Morgunblaðið - 03.12.1968, Síða 1
32 SIOUR
Stjórnarfrumvarp á Alþlngi:
Um 740 milljón kr. gengishagnaði
ráðstafað til sjávarútvegsins
Um þriðjungur til greiðslu erlendra
skulda iiskiskipakaupenda — Stofnfjár-
sjóður fiskiskipa efldur — Útflutnings-
gjöld samrœmd — Auknu fé veitt
til Tryggingarsjóðs fiskiskipa
t GÆR var lagrt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um ráðstafanir
í sjávarútvegi vegna breytingar
gengis íslenzkrar krónu. Er frum
varpið í þremur meginköflum er
fjalla um tillögur um ákvörðun
nýs fiskverðs og stofnfjársjóð,
um breytingu útflutningsgjalds
og um ráðstöfun gengishagnaðar
af birgðum útflutningsafurða.
í frumvarpinu kemur fram að
samkvæmt upplýsingum sem fyr
ir liggja um birgðir sjávarafurða,
muni vera hægt að áætla að
heildarupphæð geti numið alls
um 1000 millj. kr. Er þá skreið
ekki með taiin. Gengismunur af
þessum birgðum mundi nema um
540 milljónum kr. Við þetta bæt-
ist gengismunur af andvirði út-
futtra en ógreiddra afurða, sem
áætlaður er 200 millj. kr., og er
þá gert ráð fyrir, að það sölu-
verð haldist, sem nú er áætlað.
Fé þetta verður allt notað í þágu
sjávarútvegsins og verður megin
hluti þess lagður inn á gengis-
hagnaðarsjóð í Seðlabankanum,
og verður síðan úthlutað eftir
ákveðnum reglum sem kveðið er
á um í frumvarpinu. Stærsti
hlutinn verður látinn ganga til
greiðslu á gengistapi af lánum
vegna fiskiskipa sem byggð hafa
verið erlendis, svo og síldar-
flutningaskipa, eða 34,5%.
Fyrsti kafli frumvarpsins fjall-
ar um tillögur um ákvörðun nýs
fiskverðs og gerir ráð fyrir að
hið fyrsta verði ákveðið nýtt
lágmarksverð á fiski, í síðasta
lagi 15. nóv. Jafnframt gerir
frumvarpið ráð fyrir því, að
gengisbreytingin leiði til þess, að
útgerðarfyrirtæki geti staðið und
ir stofnf járkostnað sinum og
auknum rekstrarkostnaði er af
SKEMMDAR-
VERK í WALES
Binmánghaim, 2. des — NTB
SKEMMDARVERKAMENN —
líklega úr röðum welskra þjóð-
ernissinna — sprengdu stóra
vatnsleiðslu í dag með þeim af-
leiðingum, að milljónaborgin
Birmingham fékk aðeins helm-
inginn af sínu venjulega vatns-
764 fórusl í
umferðinni
Chicago, 2. des (AP)
FRÁ því á föstudagskvöld þar
til á mánudagsmorgun fórust
alls 764 manns í bilslysum í
Bandaríkjunum. Hafa aldrei
farizt jafn margir yfir eina
helgi í umferðarslysum þar í
landi.
magni. Sprengingin var svo öfl-
ug að hún heyrðist átta kíló-
metra leið, enda var ein aðal-
leiðslan sundurtætt og önnur
stórskemmd.
Þjóðernissiruniarnir haía á und-
ainfömiuim árum unmi@ mörg
skemimd ar ve rk á vatnisleiðslum
og stifluim í Wailes. Jodk Wilson,
yf ir 1 ögreg 1 utm a ð u r við Scotland
Yard, hraðaði sér til Waleis þeg-
air hann heyrði um spreninguna,
en honum hefur verið falið að
anmasit um öryggistráðsbafanir
þe'gair Karl ríkisairfi verður gerð-
ur prins af Walies, við hátíðleiga
aithöfn nœista sumar. Lögreiglu-
stjórinn í Birminigbam saigði, að
líkleigast væri að eimhver „hinna
geðveiku þjóðemissinna" væri
sekur um þetita ódæði. Margir
helztu leiðtogar þjóðemissinna
voru þegar handteknir og vega-
tálmanir settar upp umhverfis
Framhald á bls. 25
gengisfellingunni leiðir og er lagt
til að fiskkaupandi greiði tiltekið
gjald til Stofnfjársjóðs fiski-
skipa, er fyrst og fremst verði
síðan varið til greiðslu afborg-
ana og vaxta af stofnlánum. Enn-
fremur er lagt til að fiskkaup-
andi greiði útgerðarfyrirtæki á-
kveðinn hluta í útgerðarkostn-
aði.
Þá miðar frumvarpið að þvi að
rétta hlut Tryggingarsjóðs fiski-
skipa, en sjóðurinn hefur verið
mjög illa settur, ekki sízt vegna
þess að tekjustofnar hans hafa
brugðizt. Er með frumvarpinu
gert ráð fyrir að heildartekjur
af útflutningsgjaldi hækki upp
371,4 millj. kr., eða um 48 millj
kr., og rennur það fé til sjóðsins.
Segir í greinargerð frumvarpsins,
að þýðingarmikið sé að skipta
hækkun gjaldanna þannig á af-
urðir, að tekjurnar dreifist jafn-
ar á þær en verið hefur og verði
öruggur tekjustofn, en nú er
hlutfallslega mjög mikill hluti
Framliald á bls. 14
Enn einni
vél rænt
Miiami, Florida, 1. dets — AP
ÞOTU frá bandaríska flugfélag-
inu Eastern Airlines, sem var á
leið frá Miami til Dallas, var
rænt í dag og snúið til Kúbu. í
henni voru 38 farþegar og 7
manna áhöfn. Kúbubúinn, sem
rændi henni kvaðst ekki þola
að búa lengur í landi eins og
Bandaríkjunum. Farþegar fengu
að lialda heimleiðis með annarri
flugvél fljótlega og búizt var við
að áhöfn og flugvél yrði sleppt
fljótlega.
Þetta er í 17. skipti sem far-
þegaflugvél er rænt og flogið til
Kúbu á þessu ári, enda sagði
flugstjórinn að það væri líklega
bezt að taka upp áætlunarferðir
til „helv . . . eyjarinnar“.
Fullveldisfagnaður á heimili sendiherrahjónanna í Kaupmannahöfn: frá v. frú Vala Thoroddsen,
Foul Sörensen, ráðherra, Karl Skytte, forseti þjóðþingsins og dr. Gunnar Thoroddsen.
50 ára fullveldis íslands
minnzt í Danmörku
Ritgerðarsamkeppni um íslenzkt mál,
efnahagsþróun og jarðfrœði
Kaupmannahöfn, 2. des. I óskir Danmerkur voru flutt-
Einkaskeyti til Morgunbl. ar í fjölmennu hófi á heimili
FIMMTÍU ára fullveldisaf- j Gunnars Thoroddsens, sendi-
mælis íslands var hátíðlega
minnzt í Kaupmannahöfn.
herra. Meðal gesta voru Karl
Skytte, forseti þjóðþingsins,
og fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar þeir P. Nyboe Ander-
sen, efnahagsmálaráðherra,
Poul Sörensen, innanríkis-
málaráðherra og Erik Ninn
Hansen, varnarmálaráðherra.
Meðal gesta voru einnig
margir meðlimir þjóðþingsins
Framhald á bls. 25
Hinar opinberu hamingju-
Hanoi vill fleirri vopna-
hlé um jólin en Saigon
Albanir hervæðast
Paríis, 2. desember — AP-NTB
• Stjórn Suður-Vietnam hefur
boðað 24 klukkustunda vopnahlé
um jólin, en sagt, að það gildi
ekki fyrir „Tet“ sem er áramóta-
hátíð samkvæmt timatali þar í
landi.
• Sendimenn Bandaríkjanna
og Norður-Vietnam í París hafa
haldið með sér fundi til að reyna
að komast að samkomulagi um
tilhögun friðarviðræðnanna sem
hefjast að öllum líkindum fljót-
lega eftir að sendinefnd Suður-
Vietnam kemur til borgarinnar.
• Averell Harriman, formaður
bandarisku friðarviðræðusveitar-
innar, hefur sagt, að hann muni
að öllum likindum láta af því
embætti þegar Richard Nixon
Framhald á bls. 25
TóKlÓ 1. desember (AP). —
Varnarmálaráðuneyti Albaníu
hefur fyrirskipað herforingj-
um landsins að búa herinn
til varnar. Segir í tilkynn-
íngu ráðuneytisins að her-
stjómin verði að vera viðbú-
in því að þurfa að yfirbuga
árásaraðilann, ef innrás yrði
gerð í Albaníu.
Upplýsingar þessar eru
hafðar eftir NCNA, opinberu
fréttastofunni j Peking, og
segir fréttastofan að fyrir-
skipanir þessar hafi verið
gefnar út um leið og þess var
minnzt í Tirana að 24 ár voru
liðin frá því Þjóðverjar voru
hraktir frá Albaníu.
Kínverska fréttastofan seg-
ir, að herstjóminni hafi verið
falið að efla herinn og sveitir
vopnaðra borgara og vera við-
búin styrjöld, þar sem Sovét-
rikin og þjónar þeirra hafi nú
gert Varsjárbandalagið að ár-
ásartæki.