Morgunblaðið - 04.12.1968, Blaðsíða 1
28 SIDUR
271. tbl. 55. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretar spilla sam-
huöinni viö Rússa
— segir sovézka stiórnin
i mótmælaorðsendingu
London, 3. des. — (AP)
h ANDREI Gromyko utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna
boðaði í dag sendiherra Bret-
lands í Moskvu á sinn fund
og afhenti honum mótmæla-
orðsendingu sovézku stjóm-
arinnar til þeirrar brezku.
Séð frá tungíi
’MÍND þessi var tekin I
I 'úr sovézku tung'lflauginni |
l „Zond-6“, og hefur verið send (
| *út um heim á vegum Tass-
Tréttastofunnar. Sýnir myndin I
yfirborð tunglsins eins og það i
litur út úr 3.300 kílómetra.
hæð, en til hægri á myndinni
sést jörðin, eða hluti hennar, I
1 í 388 þúsund kílómetra f jar- |
l lægð.
Klögumálin ganga á víxl
Jórdaníumenn og ísraelsmenn kœra hvorir
aðra vegna átaka við landamœrin
Amman, Tel Aviv og Kaíró,
3. des (AP—NTB)
ENN urðu átök við landamæri
Jórdaníu og ísraels í nótt, og seg
Feðgar deila
— Kenna hvor öðrum um morð
'Kaupmannahöfn 3. des. (NTB).
Réttarhöld eru hafin í Kaup-
mannahöfn í morðmáli, þar sem
feðgar tveir eru sakaðir um að
'hafa myrt 47 ára kaupmann í
Kaupmannahöfn í fyrra mánuði.
Ákærðir eru 46 ára verkamaður
og sonur hans, 18 ára. Saka þeir
hvor annan um morðið.
Kaupmaðurinn, Svend Áge
Geisler, var myrtur 14. nóvember
'sl., og hafði hann hlotið banvænt
'höfuðhögg. f réttarhöldunum í
dag sagði faðirinn, sem ákærður
er: „f>að var sonur minn, sem
drap Geisler, og hann gerði það
meðan ég ibrá mér frá bílnum.“
Sonurinn sagði hinsvegar: „Fað-
ir minn neyddi mig til að rota
Framhald á bls. 27
ir í fregnum frá Amman að 14
Jórdanir, allt óbreyttir borgarar,
hafi fallið, en 18 særzt.
f Kaíró stendur nú yfir sérstakt
þing sósíalistasambandsins, sem
er eini stjórnmálaflokkurinn í
Egyptalandi, og sagði Nasser for
seti á þingfundi í dag að fjöldi
Egypta hefði starfað að njósnum
fyrir ísraelsmenn. Varaði hann
þjóð sína við þessum njósnur-
um, og sagði að einn þeirra hefði
nýlega verið handtekinn þegar
hann var að fara úr landi. Hafði
njósnarinn í fórum sínum film-
ur og leynilegar upplýsingar.
Það var nokkru eftir miðnætti
í nótt að átökin hófust á ný við
landamæri ísraels og Jórdaníu.
Segja ísraelsmenn að Jórdanir
hafi skotið úr fallbyssum sínum
á átta samyrkjubú í Beisan- og
Jórdandölunum. en ekkert mann
fall hafi orðið. Telja þeir að með
skothríðinni hafi Jórdanir ætlað
að hefna fyrir það að ísraels-
merrn sendu á sunnudag flokk
hermanna um 65 kílómetra leið
inn í Jórdaníu til að sprengja
þar upp tvær brýr á aðal sam-
gönguæðunum milli Amman og
suðurhluta landsins. Beittu Jór-
danir að sögn ísraelsmanna nýj-
um sovézkum fallbyssum með
122 millimetra hlaupavídd.
fsraelsmenn svöruðu árásinni í
sömu mynt og hófu fallbyssu-
skothríð á nokkur þorp í nánd
við borgina Irbid og á borgina
sjálfa. Einnig beittu ísraelsmenn
herþotum til loftárása á bæinn
Kafr Assad, og munu flestir
hinna látnu hafa fallið þar. Fall
byssuskothríðin stóð til klukkan
tvö um nóttina, og loftárásirnar
hálfri klukkustund lengur. Segja
talsmenn Araba að meðal fall-
Framhald á bls. 27
Afstaða Breta hefur úrslitaþýðingu
gagnvart aðild íslands ai EFTA —
Segir í orðsendingunni að
Bretar spilli og íþyngi sam-
skiptum þjóðamia tveggja, og
noti innrás Sovétríkjanna í
Tékkóslóvakíu sem yfirvarp.
Sendiráð Sovétríkjanna
í London birti í dag efni orð-
sendingarinnar, áður en
brezku stjórninni barst hún
í hendur.
Benda fréttamenn á að aug-
ljóst sé að sú ákvörðun brezku
stjórnarinnar að fara þess á leit
við sovézk yfirvöld a’ð fækkað
yrði starfsfóllki við sendiráð
þeirra í Londioin, hafi átt siirn
'þátt í orðsendingunni í dag. Vair
þessi ósk Breta borin fram eftir
að fram koom fyrir rétti í Lond-
on að Alexander C. Borisenko,
fyrrum menninigarmálafulltrúi
við semdiiróðið í London, ha>fði
stundað njósnir meðan hann
dvaldist í Emglandi.
í orðsendingunni frá í dag seg-
ir sovézka stjórnin meðai ann-
ars:
„Á ýmsum sviðum gagn-
kvæmra samskipta stefnir brezka
stjómin beinlínis að því að rjúfa
Framhald á bls. 27
Minnkondi
gullsjoður
Bretu
FRÁ blaðamanni Morgunblaðsins
í Genf, Styrmi Gunnarssyni,
3. des. — Aðildarumsókn Islands
að EFTA verður tekin fyrir á
fundi fastaráðs Fríverzlunar-
bandalagsins á fimmtudagsmorg-
un. Verður þá væntaniega geng-
ið frá ýmsum tæknilegum atrið-
um í sambandi við málið, svo
sem hvenær viðræður hefjist
milli íslands og EFTA um um-
sóknina.
Afstaða manna hér í Genf til
aðildarumsóknar ísilands ein-
kennist af velvilja, en jafnframt
er bent á ýmis vandamál, sem
upp koma í sambandi við um-
sóknina. Annar af aðstoðarfram-
kvæmdastjórum Fríverzlunar-
bandalagsins Alfred Wacker
sagði í morgun, að þessi umsókn
væri nýr þáttur í starfi EFTA,
þess vegna verði að ræða ítar-
lega, hvernig um málið sfculi
Theodorakis fyrir rétl
Aþenu 3. des. NTB
GRÍSKA skáldið Mikis Theodorak
is verður leiddur fyrir rétt í A-
þenu á morgun, miðvikudag og
ákærður fyrir að hafa farið móðg
andi orðum um gríska herinn, áð
nr en byltingin var gerð í land-
inu.
Theodorakis sem var þingmað-
ur vinstri flokksins EDA, áður en
þing var leyst upp í apríl 1967,
hefur búið í eins konar útlegð í
þorpinu Zatuna síðast í ágúst.
Áður hafði hann, Theodorakis set
ið mánuðum saman í fangelsi.
Theodorakis er ákærður fyrir
að hafa farið óvirðulegum orðum
um herinn í nóvember 1966, er
hann í skeyti til ríkisstjórnarinn-
ar sem þá sat, sagði að herinn
hefði byltingu í undirbúningi.
fjallað af hálfu EFTA og gera sér
grein fyrir þeirri afstöðu, sem
Fríverzlunarbandalagið ætti að
taka. Hann sagði að allir vildu
fá íisland í EFTA, en ekki þýddi
að loka augunum fyrir vanda-
málunum. Þegar Finnland hefði
gerzt aukaaðili að EFTA hefðu
samtökin verið nýstofnuð, en nú
væru átta ár liðin og margar
ákvarðanir hefðu verið teknar
á því tímabili. Það gerði málið
flöknara í sambandi við íslenzku
umsóknina. Hann kvaðst gera sér
vonir um að viðræður gætu haf-
izt næsta sumar, þannig að hugs-
anlegur samningur yrði lagður
fyrir Alþingi íslendinga næsta
haust.
Almennt virðist það skoðun
manna hér i Genf, að mikið velti
á afstöðu Breta til íslenzku um-
sóknarinnar. í þvi sambandi er
bent á að Bretar eigi í töluverð-
um erfiðleikum nú, sem snerta
samstarfið innan EFTA og því
sé spurning, hversu áhugasamir
þeir verða um að greiða fyrir ís-
lenzku umsókninni. Háttsettur
brezkur embættismaður sagði í
dag, að ekki væri hægt að móta
neina afstöðu til umsóknar ís-
Framhald á bls. 2
London 3. des. (AP-NTB).
'Skýrt var frá þvi i London í dag
'að gull- og gjaldeyrisforði Bret-
*lands hefðj í nóvember minnkað
um 82 milljónir sterlingspunda
<17.220 millj. kr.), en minnkaði
Pm 4 milljónir punda í október,
•og jókst um 21 millj. punda í
keptember.
Bent er á í sambandi við
þessa rýrnun sjóðanna að afborg-
anir og vextir af erlendum lán-
lun hafi í nóvember numið 52
miílljónum punda. Gull- og gjald.
eyrissjóðir Breta nema nú 1.046
milljónum punda, og hafa ekki
verið jafn rýrir síðan í október
1967, múnuði fyrir gengislækkun
pundsins. Þá námu þeir 1.003
milljónum punda.
Teikningar frá14. öld
seldar fyrir 18 millj.
London 3. des. NTB
EITT af merkari miðaldahand
ritum, eins konar teiknimynda
saga um sögu fornaldar var
selt á uppboði hjá Sotheby í
London í dag fyrir rösklega
átján milljónir króna. Ritið er
Speculum Historiale eftir Vin
ceftt de Beauvais, sem hann
gerði fyrir Karl 5. Frakikaikon
ung á 14. öld. f henni eru 708
myndir frá atburðum í mann-
kynssögunni frá sköpun heims
ins til lífs og starfs Jesú Krists.
Ekki var látið uppskátt, hver
kaupandinn var.