Morgunblaðið - 05.12.1968, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DES. 1966
Systurnar, Rósa og Guðrún Jónasdætur í Snyrtivöruverzluninni
Signu t.h. við þær eru tvær af greiðslustúlkur, Sigurbjörg Ar-
manns og Emilía Sigursteins.
Ný snyrtistofa
í Hafnarfirði
Síðastliðinn laugardag tók til
starfa í Hafnarfirði, ný snyrti-
stofa, Snyrtistofa Rósu.
Er hún í stórhýsi Olivers
Steins, við Strandgötu, fyrir inn
an snyrtivöruverzlunina Signu,
og er eigandi Rósa Jónasdóttir.
Er þetta þriðja árið, sem hún
starfrækir verzlun og snyrti
stofu í Hafnarfirði, með systur
sinni.
Þær Iærðu báðar snyrtingu í
snyrtistofu Margrétar, Skóla-
vörðustíg í Reykjavík, þar sem
nú er Snyrtistofan Maja. — Þær
systur urðu greiðlega við svör-
um, er blaðamaður Morgunblaðs
ins leit inn fyrir skemmstu.
— Hvemig hafa viðskiptin
gengið hjá ykkur?
— Við höfum haft alveg nóg
að gera, en hitt húsnæðið var orð
ið alltof lítið, svo að ekki var
annað að gera en flytja.
— Hvaða þjónustu bjóðið þið
viðskiptavinunum svo?
— Við höfum nudd og húð-
hreinsun fyrir unglinga og hand
snyrtingu. Svo gefum við ljós-
böð og hítaiampa. Eínnig not-
Um við teslatæki, tökum af hár
með vaxi og litum augabrúnir
og augnhár.
— í seinni tíð er fólk farið
að nota sér miklu meira þá þjón
ustu, sem við bjóðum með kvöld
snyrtingu. Við höfum gjarnan
opið miklu lengur, er árshátíð-
ir eru í uppsiglingu, og eins á
Hollywood 3. des. AP
EIGINKONA leikarans Roberts
Taylor, Ursula Thiess, skýrði frá
því í dag, að maður hennar þjáð
ist af lungnakrabbameini og
hefði honum verið það kunnugt
um nokkra hríð. Taylor gekkst
undir mikla skurðaðgerð í fyrra
mánuði og var þá numið brott
nær allt hægra lungað. Uppskurð
.urinn þótti takast vel eftir von-
um, en nú hefur leikarinn verið
lagður inn á sjúkrahús á ný til
rannsókna og frekari aðgerða.
laugardögum, eftir verzlunar
tíma.
— Eruð þið með einhverja
nýjung í þjónustu?
— Já, til dæmis, þegar við-
skiptavinir okkar eru að kaupa
Guðrún Jónasdóttir snyrtir við-
skiptavin.
snyrtivörur, þá snyrtum við þá
gjarnan með viðeigandi vörum,
eða því sem við álítum að fari
bezt, og Ieyfum þeim þannig að
reyna vöruna frá okkur.
Einnig höfum við samstarf við
hárgreiðslustofu Guðrúnar, sem
er hér uppi á lofti. Geta kon-
urnar komið niður til okkar og
fengið snyrtingu, meðan þær
eru með rúllurnar i sér, og síð-
an farið upp aftur og látið greiða
sér. Þannig aflagast ekkert, sem
búið er að gera fyrir þær!
— Gerir fólk mikið að því að
heimsækja snyrtistofur?
— Það er að aukast mikið, að
fólk notfæri sér þessa þjónustu.
— Koma karlmenn líka mikið
til ykkar?
/ Þeir hafa látið sjá sig, en
mest koma þeir þó til að verzla.
— Er eitthvað, sem þér álítið
að mætti betur fara í snyrti-
málum fólks almennt?
— Það væri þá helzt hand-
snyrtingin. Mér finnst, að karl-
menn mættu gjarnan notfæra sér
hana meira en þeir gera!
GnUna hliðið
frumsýnt
nð Flúðum
LEIKFÉLAG Hrunamanna frum
sýndi í gærkvöldi Gullna hliðið
eftir Davíð Stefánsson. Leik-
stjóri er Helgi Skiúlason. Með
helztiu hlutiverk faira: Siigurbjörg
Hreiðarsdóttir og Guðmundur
Ingimarsison, sem léku kerling-
una og Jón bónda. Grasakonan
er leikin af Eyrúnu Guðjónsdótt
ur, en óvininn leikur Haukur
Jóhannes Helgason. Alls eru hlut
vertkin yfir 20, og að leiksýning-
unni starfa milli 40 og 50 manns.
Söngvar eru æfðir af Sigurði
Agústssyni.
Þessi leiksýning tókst með
miklum ágætum, og óreiðanlega
ein sú bezta sem seft hefur verið
á svið hér austanfjalls. Leikarar
fóru yfirleitt vel með hlutverk
sín, og sumir a-f mikilum ágæt-
um. Flutningur söngvanna var
fallegur og þróttmilkill og heild
arsvipur sýningarinnar með ágæt
um. LeiktjÖld eru mjög fögur og
vöktu óskipta athygli. Þau hafa
gert þrir bændur í Hrunamanna
hreppi, Eiríkur Þorgeinsson, Sig-
uirður Tómasson og Hörður Ein-
arsson. Á frumsýningunni var
húsið fullskipað og tóku frum-
sýningargestir leiknum af mikilli
hrifningu. í leikslok voru leik-
stjóri, söngstjóri og leikendur
margkallaðir fram. Hér hafa
Hrunamenn undir ágætri leik-
stjórn Helga Skúlasonar unnið
mikinn leiksigiur. Næstu sýninig-
t)h að leiknum verða að Flúðum
n.k. miðvikudag föstudag og laug
ardag kl. 21.30. — Fréttaritari.
Ný hljómplntn
KOMIN er á markaðimn ný
ihljómplata með ungum söngv-
ara Sverri Guðjónssyni, með
Umslag hinnar nýju hljómplötu.
hljómsveit föður hans Guðjóns
Ma-tthíassonar. Þefcta er 33 snún-
inga plata með fimm lögum. Eru
öll lögin eftir Guðjón Matthías-
son og textar þriggja þeirra, en
'einn texti er eftir Árelíus Níels-
son og annar eftir Bigg bláa. I
hljómsveit Guðjóns eru auk hans
Þorva-ldur Björnsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Erlingur Einarsison
og José M. Riba.
Norðfirðingn-
félng stofnnð í
Reykjnvík
Miðviku-daginn 20/11 1968 var
haldinn stotfnfundiur í átthaga-
féla-gi Norðfirðinga í Reykjavík
og nágrenni
Til fundar maéttu 150 manns.
Auk þeirra gerðust stofnfélagar
52.
Formaður félagsins var kjör-
inn Friðjón Guðröðarson lögfræð
ingur. Aðrir í stjórn: Svavar Lár
usson, yfirkennari, Anna Jóns-
dóttir ,hústfrú, Ragna Jónsdóttir
kennari, Birgir Sveinsson, kenn-
ari.
Tilgan-gur félagsins er að við-
halda og auika kynni á meðal
svo og að treysta böndin við
Norðfirðinga á félagssvæðiniu,
beimabyggðina á ýmsum svið-
um.
—Endurskipulagning
Framhald af bls. 14
til þekkjum, höfum við merkt í
meðfylgjandi sjókortum, og mun
um við gera nánari grein fyrir
þeim síðar í bréfi þessu. Við
viljum leggja sérstaka áherzlu
á, að við vitum, að fiskimiðum
okkar yrði enn meiri hætta bú-
in vegna stóraukinnar sóknar á
þau, ef tillögur Reykvíkinga og
Suðurnesjamanna yrðu ti-1 við-
miðunar, næðu þessi mál fram að
ganga á Alþingi.
Okkur grunar, að ef mál þetta
kemur fyrir Alþin-gi, verði um
það mjög skiptar skoðanir og
jafnvel að þingmenn sumra kjör
dæma séu alveg mótfallnir að
veita nokkra aðstöðu til þotn-
vörpuveiða innan fiskveiðilögsög
unnar, en aftur á móti vitum
við, að margir bátar frá þeim
verstöðvum, sem mest hafa bar-
izt á móti botnvörpuveiðum inn-
an fiskveiðilögsögunnar, hafa
verið útbúnir til botnvörpuveiða
og sendir til veiða á okkar mið.
Þess vegna leggjum við til, að ef
leyfa á botnvörpuveiðar innan
fiskveiðilögsögunnar undir vís-
indalegu eftirliti verði það gert
allt í kringum lanidð, eða
svæðaskipting fari fram og verði
svæðunum skipt þannig t.d. að
bátar úr verstöðvum frá Reykja
nesi til Hornafjarðar hafi einir
leyfi ti’l botnvörðuveiða á því
svæði, og hliðstætt yrði látið
gilda um báta frá öðrum ver-
sitöðvum. Við bendum á svæða-
skiptingu með tilliti til þess, að
ef ákveðnar verstöðvar eða
jafnvel landsfjórðungar vilja
ekki fallast á neina rýmkun
innan fiskveiðilögsögunnar, geti
þeir haldið sínum fiskimiðum
lokuðum fyrir botnvörpuveiðum
innan núgildandi fiskveiðilög-
sögu, en um leið geti þeir ekki
sent báta sína til veiða á öðr-
um svæðum.
Eins og áður er bemt á í bréfi
þessu, finnst okkur starfsbræð-
ur okkar í Reykjavík og Suður-
nesjum ganga of nærri fiskveiði
lögsögunni með tillögum sínum
og þá sérstaklega fiskimiðum
Vestmannaeyinga, þar sem við
teljum mjög vafasamt, að breyt-
ing fáist á fiskveiðilögsögunni
fyrir Faxaflóa. Leggjum við því
til, að á því svæði, sem við til
þekkjum frá Tvískerjum að
Knarrarósi, verði leyfðar botn-
vörpuveiðar undir vísindalegu
eftirliti á bátum allt að 150 rúml.
inn að gömlu þriggja mílna land
helginni, þó með þeim undantekn
ingum, sem sýndar eru í með-
fyígjandi sjókortum nr. 9, 32 og
33, þar sem við teljum algerlega
hættulausar ótakmarkaðar tog-
veiðar, austan, sunnan og vest-
an við Vestmannaeyjar, því að
þar veiðis-t eingöngu stór fiskur,
enn fremur hafa smærri bátar
erfiða aðstöðu til sóknar á fjar-
lægari mið.
Eins og áður er bent á, teljum
við ekki ráðlegt að leyfa botn-
vörpuveiðar innan þriggja sjó-
mílna frá fjöruborði vegna
hættu á smáfiskveiðum. Þó telj-
um við, að leyfa ætti ótakmark-
aðar botnvðrpuveiðar á öSlu
þessu svæði, þar með talin smá-
fisksvæðin merkt 1, 2 og 4 í með
fylgjandi sjókortum, þann tírna,
sem loðna er í göngu með strönd
inni, eða á tímabilinu 15. febrú-
ar til 15. apríl ár hvert, að und-
anskildu svæði nr. 3 í sjókort-
um nr. 9, 32 og 33, sem við leggj-
um mjög ríka áherzlu á að bann
aðar verði veiðar með öllum veið
arfærum allan ársins hring
vegna hættu á skemmdum á raf-
streng og væntanlegri vatns-
lögn. Ósk okkar um ótakmarkað-
ar veiðar innan þriggja sjómílna
á tímabilinu frá 15. febrúar til
15. apríl ár hvert byggist á því,
að þá fæst eingöngu stór og góð-
ur fiskur á þessu svæði, en nær
því enginn fiskur annars staðar,
vegna göngu loðnunnar með
ströndinni.
Við höfum hér aðeins gert til-
lögur og bent á reynslu okkar
af svæðinu frá Tvískerjum að
Knarrarósi, en teljum okkur
ekki hafa næga þekkingu á
fiskimiðum og fiskigöngum aust-
an og vestan við þessa staði, en
viljum leggja mjög ríka áherzlu
á, að leitað verði álits skipstjóm
armanna í þeim verstöðvum, sem
að þeim liggja.
Til áréttingar_ á ábendingum
okkar um að leyfa ekki botn-
vörpuveiðar nær landi en þrjár
sjómílur frá fjöruborði höfum
við merkt þrjú svæði í meðfylgj
andi sjókortum nr. 31, 32 og 33,
með tölunum 1, 2 og 4, því að
þar vitum við að veiðist nær ein
göngu smár fiskur allt árið,
nema þann tíma, sem loðna er í
göngu með ströndinni. Á svæð-
um merktum 1 og 2 í sjókort-
um nr. 30, 32 veiðist smár þorsk-
ur og ýsa, á svæði nr. 4 í sjó-
kortum nr. 32 og 33 veiðist ein-
göngu smá ýsa.
í bréfi þessu höfum við reynt
að draga upp sem gleggsta mynd
af ástandi því, sem við teljum
vera á fiskimiðum okkar, og ótta
um ofveiði og ágang á þau.
Treystum við því, að þér hafið
forgöngu um að kynna öðrum
þingmönnum þessar tillögur okk
ar, og væntum þess, að þið fylg-
ið fast eftir þessu stórmáli okk-
ar Vestmanneyinga um hag-
kvæma notkun, en jafnframt
verndum fiskimiða okkar og lífs
afkomu.
Virðingarfyllst,
f.h. Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja og Skipstjóra- og
stýrimannafél. Verðandi.
Sigurgeir Ólafsson.
Hilmar Rósmundsson.
Björn Guðmundsson.
Sigurður Gunnarsson.
Bjarnhéðinn Elíasson.
Friðrik Ásmundsson.
Karl Guðmundsson.
Arnoddur Gunnlaugsson.“
Hinn 2. október síðastliðinn
Étipaði sjávarú-tvegsmálaráðherra
nefnd, sem skipuð er fulltrúum
allra þingflokkanna á Alþingi, til
að gera heildartillögu til ríkis-
stjórnarinnar um hagnýtingu
fiskveiðilandhelginnar. Sæti í
nefndin-ni eiga eftirtaldir þing-
menn: Jón Ármann Héðinsson,
sem er formaður hennar, Jón
Skaftason, Guðlaugur Gíslason,
Sverrir Júlíusson og Lúðvík Jós-
efsson.
M Veljum
islenzkt
til jólagjafa
Húsnueður !
Óhreinindi og blettlr, tvo
sem fitublettir, eggja-
blettir og blóðblettir,
hverfa á augabragði, ef
notað er HENK-O-MAT t
forþvottinn eða til að
leggja í bfeyti.
Síðan er þvegið á venju-
legan hátt úr DIXAN.
HENK-O-MAT, ÚRVALS VARA FRÁ
Entfwnt
r«-. Knhao.
. “T-- V»ch-. Eliub.
usw.
SW4SA?tfrksten