Morgunblaðið - 05.12.1968, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DES. 1966
31
Parísarviðrœðurnar:
Nefnd S-Vietnama
kemur á laugardag
— talið að Nixon hafi áhuga á oð Henry
Cabot Lodge taki við forystu
bandarísku nefndarinnar
New York, Washington, París,
Saigon 4. desemher. AP NTB.
Bandaríska blaðið The New York
Times sagði frá jþvi í dag, að það
hefðj eftir áreiðanlegum heim-
fldum, að Richard Nixon hefði
farið þess á leit við Henry Cobot
Lodge, fyrrv. sendiherra Banda-
rikjanna í Saigon að hann tæki
að sér forystu bandarisku samn-
inganefndarinnar i París, eftir
að Nixon tekur við embaetti. Það
fylgdi fréttinni, að Lodge, sem
er nú sendiherra í Bonn og var
varaforsetafni Nixons við kosn-
ingamar 1960, hefði mikinn á-
huga á að taka við þessu starfi.
Blaðið segir, að málið verði þó
varla útkljáð fyrr en Nixon hef-
'ur skipað í stöðu utanríkisráð-
herra.
Van Thieu forseti S-Vietnam
sagði í dag, að sendinefnd Suður-
Vietnama kæmi væntanlega til
Parísar á laugardag. Aðspurður
vildi Thieu engu spá um, hversu
lengi viðræðurnar myndu standa,
þar sem ekkert væri hægt að
segja um hver raunverulegur
samningavilji andstæðinganna
væri. Talið er að í sendinefnd-
inni verði alls um 70 manns og
nær öruggt er sagt að formaður
hennar verði Pham Dang Lám,
sem hefur verið formaður á-
heyrnarhóps þess frá Suður-Viet-
nam sem hefur fylgzt með við-
ræðum Bandaríkjanna og Norð-
ur-Vietnama.
í París héldu fulltrúar samn-
inga nefnda Norður-Vietnam og
Bandaríkjanna fund með sér fyr-
ir luktum dyrum. Munu þeir
hafa rætt fyrirkomulag á vænt-
anlegum fundum með þátttöku
fulltrúa Þjóðfrelsishreyfingarinn
ar og Suður-Vietnam stjórnar.
Averill Harriman, formaður
handarísku samninganefndarinn.
ar er staddur í Washington. Hann
átti í dag fund með Johnson, for-
seta og einnig voru þeir við-
staddir Dean Rusk utanríkisráð-
herra og Clark Clifford, varnar-
málaráðherra.
- GULLVERÐ
Framhald af bls. 1
deilan fyrir botni Miðjarðarhafs-
ins fer vaxandi, hafa enn einu
sinni komizt að þeirri niðurstöðu,
að það eina, sem unnt er að
treysta, $éu dýrir málmar.
Þannig hækkaði verðið í Lond-
on um 50 sent únsan upp í 40,75
dollara, en þ-að er hæsta verð,
sem sfcráð hefur verið síðan í
júlí. Jafnvel eftir að þessi verð-
hækkun hafði átt sér stað bárust
tilkynningar frá aðilum í Vestur-
Þýzkalandi og Sviss, sem v,ildu
kaupa gull.
f París var verðið í dag 46,82
dollarar únsan, eða 65 sentum
hærra en í gær. í Ziirich var
verðið 41 dollar — það hæsta,
frá því að peningakreppan í
Evrópu náði hámarki fyrir mán-
aðamótin.
Haustmót S.R.R.
HAUSTSUNDMÓT S.R.R. verð-
uir haldið í Sundhöll Reykjavík-
ur mfðviíkudaginín 11. des. n.k.
og hefst kl. 8.30 e.h. Keppt verð-
ur .til úrslita í sundknattleik og
í eftirtoldum sundgreimium: 100
metra bringusundi karia og
kvennia, 100 metra skriðsundi
karia og 200 metra fjórsundi
karla.
Þátttaka skal tilkynnt for-
mamni S.R.R., Eriingi Þ. Jóhanns
syni, Sundlaug Vesturbæjar,
sámi 15004, í sáðasta lagi 7. 'þ.m.
Bandaríska orustuskipið New
Jersey skaut í dag af fallbyss-
um á nyrðri hluta hlutlausa belt-
isins, í fyrrsta skipti síðan stöðv-
un loftárása var fyrirskipuð.
Talsmaður Bandaríkjahers í Saig
on sagði, að skipið hefði byrjað
skothríðina eftir að skæruliða-
hópar hefðu sbotið að banda-
rískri könnunarvél. Taismaður-
inn var spurður álits á þeim
fréttum frá utanríkisráðuneyti
Norður-Vietnam þess efnis, að
bandarískar flugvélar hefðu gert
loftárásir á svæði fyrir norðan
beltið í fyrradag, en hann kvaðst
ekkert hafa um málið að segja.
Kiwanis gefa út
jólamerki til tíu ára
Jólatónleikar með Musica da Camera
Fyrsta jólamerkið
KIWANISKLUBBURINN Hekla
hefur gefið út jólamerkjaseríu,
sem koma mun út næstu tiu jól.
Verður fyrsta meridð í þessari
seríu til sölu nú, og er það þeg-
ar komið í bókabúðir. Allur á-
góði af þessú mun renna til líkn
arstarfsemi.
Merkin eru með myndum af
át/ta jólasveinium ásamt Leppa-
lúða og Grýlu, og eru þau í lit-
Verkföll í Frakklandi
Verkamenn við Renaultverksmiðjurnar
mótmœla ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar
París, 4. deis — NTB
MESTA vinnustöðvun síðan í
verkföllunum miklu, virðist nú
Brunabótafélagið fær
endurtryggingar
— Húsatrygginga Reykjavíkur
BORGARRÁÐ hefur heimilað að
samið verði við Bnunabótafélag
íslands um endurtryggingar
Húsatrygginga Reykjavíkur, en
það hefur haft þær á hendi und-
anfarin 5 ár. Verður samið til 5
ára samkvæmt tilboði'. Um ára-
mót hækkar brunamótamat fast-
eigna í Reykjavík um 16% og
mun heildartryggingarupphæð
fasteigna í borginni þá hækka
upp í 34,2 milljarða króna að því
er talið er.
Endurtryggingarnar voru nú
boðnar út. sem kunnugt er. Var
þeim Páli Líndal, borgarlög-
manni, Sigfinni Sigurðssyni, hag-
fræðingi og Ágústi Bjarnasyni,
skrifstofustjóra, falið að vinna úr
tilboðum sem bárust og gera
samanburð. Var tilboð Brunabóta
félagsins talið hagstæðast, bæði
hvað snertir upphæð og iðgjöld
og tilboðið gerir ráð fyrir af-
slætti. ef vel gengur.
Samkvæmt upplýsingum Páls
Líndals verður samningurinn í
tvennu lagi. í fyrsta lagi um al-
menna endurtryggingu, en sam-
kvæmt henni er eigin áhætta 42
millj. og 760 þúsund kr. En í
öðru lagi og að auki er samið
um sérstaka endurtryggingu ein-
stakra tjóna, sem er 10—25 millj.
Sú endurtrygging var tekin upp
1965 og var mikil stoð í óhappa-
árinu í fyrra, þegar tvö stórtjón
vegna Eimskipafélagsskálabrun-
ans og Iðnaðarbankans komu á
sama ár. Þau voru bæði í sér-
stakri tryggingu. Útkoma ársins
varð því betri en búast mátti við,
vegna þessara sérstöku trygg-
inga, að sögn Páls.
Ef ekki kemur eitthvað sér-
stakt til, þá er endurtryggingin
nú heldur fyrir neðan það sem
var, sagði Páll.
Með þremur brœðrum sínum er:
Nóv. næsthlýjastur
NÓVEMBERMÁNUÐUR hefur
verið einstaklega hlýr. Eftir
fyrstu fjóra dagana, þegar frost
komist upp í 10 stig í Reykjavík,
hafa allir nóvemiberdagar verið
hlýir. Þetta e.r þó ekki hlýjasti
nóvembenmánuður sem þekkjst,
samukvæmt upplýsinguim frá
Öddiu Báru Sigfúsdóttur á Veð-
urstofunni. Þrír aðrir voru á-
lika hlýir í Reykjavík á þess-
ari öld, þ.e. 1941, 1956 og 1958, en
1945 var langhlýjasAi nóvember
með meðalhitanin 6,5 stig
f Reykjavik var meðalhitinn
nú 4,8 stig, og draga frostdagam
ir fyrst í mánuðinum hitann
mjög niður. Skipti mjög snögg-
lega um hitastig milli fjórða og
fimmta dags miánaðarins. Þann
4. var 5 stiga frost, en 5. var
kominn 6.1 stdgis hiti
Á Norðurlamdi var nóvember-
mánuður líka hlýr, þó hann væri
kaldari en fyrir sunnan, en hann
var ekki eins afbrigðilegur fyrir
norðan. Meðalhitinn á Aikureyrj
er 2,9 stig í nóvember, en hlýj-
asti nóvember þar hefur verið
4,8 stig árið 1956. Fjögur önmxr
ár, hefur hitinn á Akureyri far-
ið yfir 3 stig.
Seðlabankinn innleysti seðla
lyrír 19,2 milljónir króna
— frá 1. ágúst til 4. desember
GYLFI Þ. Gíslason, menntamála
ráðherra, gvaraði í gær fyrir-
spum á Alþingi frá Jóni Skafta-
syni um innlausn Seðlabanlkans
á íslenzkum seðlum, er skipt
hefur verið í erlendum bönlkum.
Var fyrirspurn þingmannsins
svohljóðandi: Hve miklum fjár-
hæðum hefur Seðlabanlki ís-
lands varið til innlauisnar á ís-
lenzkum seðlum, sem skipt hef-
ur verið í gjaldeyri í erlendum
bönkum, frá 1. ágúst 1968 til
þessa dags.
Svar ráðherra var mjöig stufct:
19.2 millj. kr.
yfirvofandi í Frakklandi. 57 þús-
und starfsmenn við Renault-
bílaverksmiðjurnar búa sig imd-
ir skipulagðar aðgerðir til að
mótmæla spamaðarfrumvarpi
ríkisstjómarinnar. Tvö stærstu
verkalýðssamtök Frakklands,
CGT, sem er kommúnistískt og
DFGT, hafa varað stjórn verk-
smiðjanna við og ásaka hana
fyrir að hafa ekki staðið við
þær skuldbindingar, sem voru
gerðar að loknum verkföllum í
sumar.
Verkamenniirnir . hatfa ákveðið
hálfs dags vmnustöðrvun á morg-
un og verkföllim mumu ná til
starfsmanna í fimm bílaverk-
smiðjum í útborigum Parísar og
í Norðuir-Frakktandi. Vedka-
menn við Le Mans verksmiðjurn
ax hafa neitað því að fara í
sólarhring.sverkfa 11 eins og fyrst
var áformað, en segjast muinu
lelggj'a niður vinnu í nokkra
kluklkuitíma á morgun.
Ýmsir stúdentaleiðtogar hafa
komið saman í dag. Þeitr sögðu
eiftir fund í dag, að stúdentar
verði að sýna í veriri að þeir
styðji verkameninina. Sértfræð-
ingar í París segja, að verkföll-
in á morgun, fimmtudag, séu
bein ögrun við de Gauille og
ríkisstjórn hains og sé allna
veðra von, ef þau breiðist út.
um. Myndirnar hefur Halldór
Pétursson teiknað. Á fyrsta
merkinu, sem kemur nú út, er
Kertasníkir á ferð, en á þvi síð-
asta sem út kamur 1977 er Grýla
og Leppalúði.
Klúbburinn hefur einnig feng
ið einkaleyfi á stimpli, sem á
stendur Nortlh Pole Iceland, en
sem fcunniugt er beraet Pósti og
síma þúsundir hréfa frá erlend
um börnum fyrir jólin sem stíl
uð eru til jólasveinsins með
þessu heimilisfangi. Vonasit
klúbbfélagar til þess að þetta
geti orðið til að gera jólamerikán
vinsaal erlendis.
Jólamerkið kostar 7 krónur,
en verður einikum selt í örkum.
Kostar örk með 12 merkjum kr.
75. Þá eru umslög með stknpl-
inum seld á 10 krónur.
- BIAFRA
Framhald af bls. 1
út áfram til landa, sem eru á
„svarfca listanum", þ. e. landa,
þar sem hættuástand rikir og
svæða, þar sam alvarleg hætta
er á vopmiðum átökum. Þetta
nær m. a. til landanna fyrir
botni Miðjarðarhafsins, Viet-
nams, Nígeríu, Suður-Afríku og
Rhodesíu, að því er sagt vaT í
Bern.
Er sagt, að Nígería, Suður-
Afríka og þrjú Arabaríki eigi að
hafa keypt vopn frá Oerlikon,
sem nemi 2,3 millj. dollara, og á
þar að vera um að ræða flug-
skeyti, fallbyssur og skotfæri.
Getspár hafa komið fram 1
svissneskum blöðum um, að her-
lið sambandsstjórnarinnar í Nig-
eríu hafi beitt svissneskum fall-
byssum gegn flugvélum Alþjóða
Rauða krossins, sem verið hafa
á flugi til Biafra með hjálpar-
birgðir handa nauðstöddum og
valdið á þeim spjöllum.
Hópur þingmanna hefur borið
fram frumvarp um að stöðva al-
gerlega sölu á svissneskum vopn-
um til annarra landa, en vopna-
útflutningur frá Sviss nam 20
millj. dollurum á síðasta ári.
Aðrir hafa varað við þess kon-
ar aðgerðum með tillití til þess,
að slíkt gæti komið niður á
svissneska hernum, sem fær
vopnabúnað sinn frá innlendum
framleiðendum. Svo kynni að
fara, að tæknilegar rannsóknir
vopnaframleiðslufyrirtækja yrði
að minnka verulega, ef þau
misstu af tekjum þeim, sem þau
hafa af sölu til annarra landa.
— Aðalfundur LTÚ
Framhald af hls 32.
um málefni sjávarútvegsins á
startfsárinu og afskipti sambands
stj órnarinnar af þeim.
Að því loknu voru iagðir fram
ársreikiningar sambandsins og
Innkaupadeildar.
Lokg fóru fram umræður um
skýrslu sambandsstjórnar og
reikningana.
- STORATOK
Framhald af bis. 1
jórdanskir hermenn hefðu fallið
og 14 særzt. Sagði talsmaðurinn,
að flugvélar tsraelsmanna hefðu
varpað sprengjum á skotmörk á
svæðunum í kringum Mafrag,
Zamaliya, Taybeh og Hafar
Assad.
ísraeisku flugvélarnar þutu
inn ytfÍT Jórdainíu um hádegis-
biiið í morgun, en um nóttina
hafði átt sér stað hörð stórskota-
hríð yfir vopnalhiáslínuna af
hálfu hinna stríðandi aðila. Stór-
Skotaliðsskyttur írakmanma
beindu á miánudagiskivöild fali-
byssuskothríð gegn níu þorpum
Israelsmanna og má líta svo á að
loftárásir fluigvélanna í dag hatfi
verið gerðar í hefndarskyni.
Sagði talsmaður ísraelsstjóm-
ar ,að árásir íraikmanna hetfðu
verið gerðar, án þess að um
nokkrar ögranir hefði verið að
ræða gegn þeim, ag að loftárás-
irmar hefðu veriið gerðar í retfs-
iinigar- og aðvörunarskyni.
Mikilvægustu skotmönk fsra-
elsmainna voru öflug stórslkota-
virki írakmanna á sléttunni fyr-
ir vestain Ibid og liðsafnaðarvirki
á Mafraq-svæðinu. Sagði tals-
maðurinn í kvöld, að skýralurn-
ar um bardagana streymdu stöð-
ugt imn og að ekki væri unnt að
svo stöddu að gera sér full-
komna greim fyrir, hversu ved
árásirnar hefðu heppnazt. Ekflri
væri vitað, hvar Mystere-tflug-
vélin, sem skotin var niður, hetfði
hrapað, en fliugmtanninum hefði
tekizt að bjarga tsér og hann
verið fluittur í sjúkralhús í ísra-
eL
Fluigmaðurinn hefði sagst hatfa
séð arabískar orustutflugvéLar,
en ekki hefði þó komið til lotft-
bairdaga. Talsmaður ísraels-
stjórnar lagði mikla áberzlu á,
að árásartiakmörkin hefðu verið
stöðvar írakmanna. íraik undir-
ritaði ekki vopnahléssamnimgama
eftir ®ex daga stríðið. Landið
undirritaði ekki heldur vopna-
hléssamningana við ísrael eftir
Palestinustyr j öldina 1949.
SlÐUSTU FRÉTTIR:
ísraelskar flugvélar
gerðu í gærkvöldi nýjar
loftárásir innan landa-
mæra Jórdaníu. Jórdanía
hefur skotið málinu til
Öryggisráðsins og krefst
þess að það komi sam-
stundis saman til fundar.
A