Morgunblaðið - 07.12.1968, Síða 5

Morgunblaðið - 07.12.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DBS. 1968 Svisslendingar hafa lykilaðstöðu Norðurlöndin veita okkur öflugan stuðning Erfiðleikar gagnvart Bretum Um miðjan janúarmánuð hefj- ast viðræður fslands við Frí- verzlunarbandalag Evrópu og þess vegna er ekki úr vegi að athuga nokkuð hvernig horfur- nar í þessum væntanlegu samn- ingaviðræðum eru, hvaða erfið- leika verður helzt við að glíma og hvemig líklegast sé, að við- brögð einstakra aðildarrík ja Frí verzlunarbandalagsins verði. Sá hagur, sem ísland getur haft af þátttöku í Fríverzlunar- bandalaginu er fyrst og fremst þríþættur. í fyrsta lagi þurfum við ekki að greiða tolla af út- fluttum sjávarafurðum til EFTA- landanna, ef við gerumst aðilar að EFTA. Þessir tollar námu á árinu 1965 um 81 milljón króna, 1966 um 76 milljónum króna og 1'967 46 millj. króna (læikkun vegna minnkandi útfkltninigs). í öðru lagi opnast íslenzkum iðn- aði tækifæri til að hefja útflutn- ingsframleiðslu fyrir 100 milljón manna markað í EFTA-löndun- um og í þriðja lagi er hugsan- legt, að ísland njóti fyrirgreiðslu EFTA við uppþyggingu ein- stakra atvinnuigreina og er að sjál'fsögðu mikill fengur að því að njóta ráðlegg- inga sérfræðinga í einstök- nm atvinn-ugreinum frá sjö EFTA-löndum. Almennt má svo benda á, að aðildarríki Fríverzl- unarbandalagsins telja sig hafa haft mikimn hag af þáttitöku í 'samsfiarfinu innan EFTA. Út- flutningsiðnaður Norðmanna og Dana og raunar einnig Finna hefur stóraukizt eftir að sam- starfið innan EFTA hófst og í þessu sambandi má geta þess að útflutningur Finna á húsgögn- um einum jókst um 81% á sl. ári. Samstarfið innan EFTA hef- ur því reynzt hafa þau áhrif að hvetja til nýrra atvinnugreina og aukinna viðskipta, sem aftur leiða smátt og smátt til þess að lífskjör fólksins batna. Fyrir okkur íslendinga hefði aðild að EFTA hins vegar einn- ig í för með sér ýmis vandamál. Þau eru fyrst og fremst, að við verðum óhjákvæmilega að tak- ast á herðar skuldbindingar um að fella niður alla verndartolla á tilteknu tímabili, sem semj-a yrði sérstaklega um. Þetta hefði í för með sér verulega breyt- ingu á tekj-ustofnum ríkis-sj'óðs og einnig á starfsaðstöðu innlends iðnaðar. Ljóst er að gera verð- ur víðtækar ráðstafanir til þess að búa iðnaðiinn undir þessa breytingu, en hins vegar er eng- in ástæða til þess að ætla, að hún verði honum til annars en góðs ef rétt er staðið að nauð- synlegum undirbúningi að breytt um aðstæðum. Að auki er svo ákvæði í Stokkhólmssamningn- um, sem EFTA byggir á, um gaigntkvæm réttindi ti-1 viss aitvinnurekstrar í EFTA-lönd- unum og er það að sjálfsögðu ákvæði, sem við verðum að rannsaka igauimgæfiilega, en reynsla Norðmanna er siú, að sér- stöik hætta stafi ekíki af þessu ákvæði. En víkjum þá að samningsað- stöðu íslands í Genf, þegar við- ræður hefjast þar um miðjan janúar. Með aðildarumsókn okk ar að EFTA erum við raunveru- lega að segja við EFTA-löndin: Við viljum komast inn á ykkar 100 milljón manna markað með sjávarafurðir okkar tollfrjálsar og við viljum fá tækifæri til þess að komast inn á þennan stóra markað með iðnaðarvörur okkar, sem við viljum hefja fram leiðslu á til útflutnings til þess að skjóta fleiri stoðum undir at- vinnulíf okkar og efnahagslíf. í staðinn bjóðum við ykkur að- gang með ykk-ar vörur á okk- r somvyl MfJUNG Ný tegund af „PVC“ veggdúk á böð og eldhús, auðveldur að líma á veggi og halda hreinum. Er 2.5 mm þykkur, hylur því vel sprungna og hrjúfa veggi, án þess að fyrir móti á yfirborðinu. Hljóð- og hitaeiningrar, fallegur og sterkur. J. Þorláksson & Norðmann hf. J. Þorláksson /jín\ & NorÖmann hf. ENNÞÁ r A GAMLA VERÐINU, AÐEINS KR. 2.925.00 HLJ0DFÆRAHUS REYKJAVIKUR LAUGAVEGI 96 ar markað, sem telur 200 þúsund manns. Af þessu má glögglega sjá, að við erum að fara fram á töluvert meira en við getum látið í staðinn. í rauninni má fullyrða þegar í stað að frá þröng-u hagsm-una-sjónarmiði EFTA-landanna skipti það tak- mörkuðu máli fyrir þau að fá aðgang að hinum litla markaði okkar en fyrir a.m.k. einstök að- ildarríki EFTA getur það skap- að sérstök og í flestum tilvik- um staðbundin vandamál að hleypa okkur inn. En hér kemur einnig fleira til, sem okkur er í hag. Við höfum um langan aldur átt mikil sam- skipti við flest EFTA-landanna. Upprunaleg og menningarleg tengsl okkar við hin Norður- löndin er óþarft að rekja. Við höfum um langan aldur átt veru- leg viðskipti við Breta, við flutt- um til þeirra matvæli á stríðs- árunum og islenzkir sjómenn létu lífið til þess að koma þeim til Bretlands, þegar nazistar gerðu sem harðasta hríð að Bret um. Við höfum átt töluverð við- skipti við Portúgal og nú nýlega höfum við tekið upp samstarf við svissneskt stórfyrirtæki. Öll þessi atriði hafa sín áhrif. Loks er enn eitt þýðingarmikið atriði okkur í hag, sem rétt er að við gerum okkur grein fyrir. Sum EFTA-löndin og þá sérstaklega Bretland, hafa síðan 1961 árang- urlaust reynt að komast inn í Efnahagsbandalag Evrópu. Frá pólitísku sjónarmiði þeirra EFT,- landa, sem mestan áhuga hafa á fullri þátttöku í Efnahags- ÍSLAND og EFTA bandalaginu hefur það verulega þýðingu að sýna fram á að EFTA standi opið þeim, sem leita aðildar að því og þess vegna má búast við, að þessi lönd vilji töluvert á sig leggja til þess að sýna fram á þetta. Einnig er það Fríverzlunarbandalaginu sem slíku í hag að geta bent á, að EFTA hafi slíkt aðdráttarafl að fleiri ríki óski inngöngu í það. Ég tel mig geta fullyrt, að þessi síðastnefndu atriði hafi verið of- Framhald á bls. 20 Eulltrúar Breta í fastaráði EFTA. Fyrir miðju situr ambassador Breta í Melville. Til vinstri við hann situr aðalframkvæmdastjóri EFTA, Bretinn Genf, Sir Eugene Sir John Goulson. ÞÉR LÆRIOIMYTT TUIMGUIHAL Æ 60 TIIUUIH..I A ótrúlega skömmum tíma. lærið þér nýtt tungumál. Heimsirts beztu tungumála- kennarar leiðbeina yður, á yðar eigin heimili, hvenær sem þér óskið. LINGUAPHONE tungumálanámskeið á hljómplötum: ENSKA, ÞÝZKA, FRANSKA, SPÁNSKA, PORTUGALSKA, ÍTALSKA, DANSKA, SÆNSKA, NORSKA, FINNSKA, RÚSSNESKA, GRlSKA, JAPANSKA o. fl HLJÖÐFÆRAHÚSIÐ LAUGAVEGI 96 SÍML13656

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.