Morgunblaðið - 07.12.1968, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.12.1968, Qupperneq 13
I MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968 13 . Ævintýri í óbyggðum lndriði Úlfsson. Leyniskjalið. Saga uin tápmikla drengi. Skjaldborg sf. Akureyri, 1968. ÞESSA bók leggur eniginn dreng- ur frá sér, fyrr en lestrinum er lokið. Samt hefst sagan í mjög hversdagslegu umlhverfi; sögu- hetjan sefur. En kluikkan á nátt- borðinu vekur drenginn ekki aðeins til að flýta sér í vorprófið, heldur einnig til að leika aðal- blutverk í óvæntri, og hraðri atburðanás, fyrst heima í þorp- inu, síðan uppi í óbyggðwm, þar sem drengurinn er í vegafvinnu um sumarið. Einmitt þennan sam,a skóladag gerist atvik, sem fellir ljótan grun á drenginn. Hann veit að vísu, að þeir, sem þekkja hann bezt, treysta ráð- vendni hans afdráttarlaust, en hann veit lika um grun og I umtal hinn. Það veldur honum sársauka. í sumardýrð öræfanna uppi undir Illaskarði gleymast þessi1 leiðindi, og vegna skarpskyggni: sinnar ag snarræðis varðandi; sikriðuna hefst Broddi raunar | hátt yfir iágkúrul'egan þjófnaðar- j grun. En hiver er þá himii seki? j Hvernig hvarf pénmgaiveski Kal'la á krákunni? í sögulegri veiðiiför kiomast Broddi og Daði vinur hans á sporið að stærra máli. Þeir geta að vísu ekki áttað sig á leyni- skjalinu, sem þeir finna í veiði- kofanum, en það vekur hjá þeim ævintýraþrá og rannsóknareðli leynilögreglumannsins. Og nú gerist atburðarásin afarthröð og æsileg. Ýtunni hans Lása hefir verið ekið í fen, svo að alllir verða að yfirgefa vinnubúðirnar um hánótt til að bjarga henni, Morguninn eftir eru peningarnir, sem áttu að ganga til að greiða verkamönnunum kaup, horfnir úr harðlæstum peningskápnum, nótt til að leita hellisins, þai- og drengirnir laumast burt um sem þeir telja þjófana hafa falið þýfið. Þeir sýna mifcla dirfsku, en þjófarnir reynast slægir og ófyrirleitnir. Drengirnir ginnast inn í hellinn og grípa þar í tómt, en þjófarnir velta steini fyrir munnann og lofca rannsóknar- mennina inni. Ég má ekki spilla ánægju ungra lesenda með því að rekja efnið nánar. Höfundi hefir tek- izt að lýsa með fáum dráttum aðalpersónum sögunnar, verk- stjóranum afa, Lása á ýtunnd, Maríu ráðskonu, sem aðeins einn fær að lokum að kyssa á nef- broddinn, og svo Daða halta, sem verður vinur Brodda og þátt- takandi í ævintýrum hans. Sagan er um börn og ætluð börnum. Þeim mun þykja hún skemmtileg. Fullorðnum kann að finnast tiliviljunin smella furðu þægilega inn í hina æs- andi atburðarás, t. d. hve auð- velt drengjunum veitist að finna járnfleinastigann, sem liggux niður að helilinum, en enginn í sveitinni virðist hafa vitað um, hivorki hellinn né stigann. En srona gengur það í sfcemmtileg- um sögum og jafnvel stundum í lífinu sjálfu. Höfundi er létt um frásögn og mál hans lipurt víðast hvar. Ef hann vill að futll- orðnir hlusti um leiíj, þegar hann segir börnum sögurnar sínar, þarf hann að temja sér sparsemi á notkun tilviljunar, ef eðlilegt samhengi atburðanna nœgir eitt sem framvinduafl sögunnar. Prófarka'lestur mætti vera betri, en stafvillur eru samt ekki verri en svo, að auðvelt er að lesa í málið. Lögregliustjórinn nefnir Brodda Bjarnason, en mér skilst að faðir hans heiti Björn. Á bls. 18 hefir óskilalína slæðzt inn. Það væri sparðatíningur að minnast á fleira. Bókin er ágæt- lega prentuð, á góðan pappír og í snotru bandi. Myndir Bjarna Jónssonar eru sönn bókarprýði og gera allt sögu sviðið ásýnilegt. Ég 'held, að mörgum dreng muni þykja Leyniskjalið sikemmtileg lesning. Matthías Jónasson. Nýr bíll Fiat 125 Berlina, módel 1968 er til sölu af sérstökum ástæðum. Dimmrauður, glæsilegur bíli, 100 hestöfl, 4ra dyra. Gangur af snjódekkjum fylgir. Gott verð og greiðsluskilmáliar. Upplýsingar í síma 8-26-05 kl. 1—3. Jólabasar verður haldinn í Barnaskóla aðventista, Ingólfs- stræti 19, sunnudaginn 8. desember kl. 2 e.h. Alls konar munir til jólagjafa; bækur, jólakort, kökur, Komið og gerið góð kaup. Allur ágóði rennur í barnaskólasjóð. Basarnefndin. Opeleigendur athugið, Ný varahlulaverzlun Opelbúdin si. Nýbýlavegi 10 — Sími 42325 býður yður þjónustu sína. Opelverkstæðið Pétur Maacb á sama stað býður fullkomna viðgerðaþjónustu. Þorsteinsson. Snorri FERÐIN FRA Sigfússon 2REICKU MINNINGAR : ■■■■■■ "V : SkovU FERÐIN FRX brekku Endurminningar höfundar frá æsku- og uppvaxtar- árum, námsárum heima og erlendis og fyrstu starfs- árum. Breið og litrík frásögn, iðandi af fjölbreyti- legu mannlífi, þar sem m. a. koma við sögu margir þjóðkunnir menn. Höfundur þessarar bókar er löngu þjóðkunnur sem forustumaður f uppeldis- og skólamálum og af ýmsum öðrum störfum í félags- og athafnalífi, mik- ilsmetinn skólastjóri um langt skeið, síðan náms- stjóri og loks frumkvöðull og fyrsti stjórnandi spari- fjársöfnunar skólabarna. Það er bjart yfir þessari bók, eins og höfundinum sjálfum. Og hinum ótalmörgu vinum hans og góð- kunningjum um land allt mun án efa verða það óblandin ánægja að eiga þess nú kost að verða förunautar hans f ferðinni frá Brekku, sem orðin er löng og giftudrjúg. IÐUNN Skeggjagötu 1 símar 12923, 19156 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í Breiðholtshverfi Höfum til sölu 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir, sem seljast tilbúnar undir tréverk og málningu og sameign að mestu frá- gengin. í sumum tilfellum er hægt að fá íbúðirnar fokheldar með tvöföldu gleri og miðstöðvarlögn, og sameign að mestu frágenginni. íbúðarstærðin er frá 60 — 108 ferm. Verð á íbúðunum tilbúnum undir tréverk og málningu frá 550 — 850 þús. Verð á íbúðunum, fokheldum með tvöföldu gleri og miðstöðvarlögn og sameign frágengin, frá kr. 500—750 þús. íbúðirnar verða tilbúnar í júní og september 1969. Beðið eftir öllu húsnæðismálaláninu og er miðað við að greiða 100 þús. við samning og aðrar greiðslur samkomulag. Teikningar liggja fyrir á skrifstofu vorri. TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR Austurstræti 10 A 5. hæð. Sími 24850 — Kvöldsími 37272. Op/ð til kl. S í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.