Morgunblaðið - 07.12.1968, Page 24

Morgunblaðið - 07.12.1968, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968 — í Þjóðleikhúsinu Frambald af bls. 12 varana fasta, því samkvæmt þrettándu grein laganna er bannað að Ieika á hljóðfæri á götum og torgi. í>arna kárnaði nú gaman- ið og nú leit illa út fyrir sí- glöðu söngvurunum. En nú segjum við ekki meira frá gangi leikritsins, heldur lát- um ykkur eftir að komast að því þegar þið sjáið það sjálf. Pað er forvitnilegt og skemmtilegt að sjá hvernig félagarnir leysa úr vanda- málunum áður en yfir lýkur. í leikhléinu spjölluðum við aðeins við nokkra krakka og öllum þótti ákaflega gaman að leikritinu. Við spurðum 5 ára gamla unigfrú Maríu Ammendrup, að því hvað heimí þætti skemmtilegast. „Mér finnst allt skemmtilegt", svaraði hún. Veiztu hvert söng- vararnir eru að ferðast?" l>eir eru að ferðast til þess að verða frægir“, svaraði Maja. Veiztu hvert spurðum við? „Veizt þú það“? Nei, svöruðum við. „Ég veit það ekki alveg, en ég skal segja þér það, sem ég held: Eg veit ekki hvert þeir eru að fara af því að þeir eru ekki búnir að segja það ennþá al- veg ákveðið, en þeir eru á leið úr sveitinni út í heim til þess að verða frægir og koma fólki í gott skap. Það er svo gaman að þeim, en ég held að þeir ætli til borgarinnar". Við hittum einnig þrjú syst kin: Davíð Gunnar, Ágúst Inga og Dóru. Þau sögðu að það væri ógurlega gaman og að það væri mest gaman þeg ar söngvaramir væru að sprla og syngja. Einnig væri voða gaman þegar leikararnir spyrðú krakkana úti í sal hvað þeir ættu að gera. Þau systkinin sögðiust oft fara í Xeúkhús, sérsitak- Iega á barnaleikrit, af því að þau væru alltaf svo skemmti'leg. Kröikikuinum fannst það svolítið prakkara- strik þegar söngvararnir eig- inlega rændu trompettleikar- anum frá herflokknum þar sem allir sváfu, en þeim fannst trompettleikarinn eiga miklu betur heima í hópd söngvaranna, heldur en her- mannanna. Við töluðum líka við hóp af krökkum og spurðum þau um leikritið og við fengum svo mörg svor í einu að við gátum vart greint á milli. Þeg ar við spurðum hópinn að því til hvers söngvararnir væru að ferðast fengum við t.d. eft irfarandi svör: „Til þess að verða frægir“, „Til þess að fá peninga", „Til þess að skemmta", „Til þess að gera fólkið fjörugt". Og þó að eitt hvað sé til í þessu öllu er síðasta svarið Iíklega réttast, því að meginmarkmið síglöðu söngvaranna var að koma öðr um í gott skap með sinni eig in gleði. Þó að þið þekkið eflaust höfundinn, Thorbjörn Egner, langar ykkur kannski að rifja upp nokkur atriði um hann og við skulum lesa það sem stendur í leikskrá Þjóð- leikhússins um Egner:“ Á lítffli eyju einhversstað- ar við suðurströnd Noregs, sem er ákaflega vogskorin (ef þið vitið ekki hvað það þýðir skuluð þið spyrja pabba ykkar að því) sést stundum til manns, sem rölt- ir þar um og er að hugsa. Og hvað skyldi hann svo sem vera að hugsa, þessi hægláti maður? Um allt mögulegt skemmtilegt og einnig um annað, sem er ekki alveg eins skemmtilegt. Hann er með öðrum orðum að hugsa um manniifið í þessum marg- breytilega heimi gem við bú- um í, um góðar manneskjur og slæmar, um heimskupör manna og um fólk, sem er al- veg ágætt — jafnvel þótt það kunni að hafa einhverja galla. Þið farið liklega nærri um hver þessi maður er — enginn annar en Thorbjörn Egner, sem við þekkjum öll, af því að hann bjó til Karde- mommubæinn og Dýrin í Hálsaskógi — Skemmtilegu leiikritÍTi, sem við íáuim hér í þjóðleikhúsinu um árið. Hann bjó líka til Karíus og Bakt- Anægður með Dralon Þetta er harm Kalti. Pabbi hans er læknir. Kalli er duglegur í leíkfimí og getur lika hoppað yfir hestinn, næstum án þess að fá hjalp. Honum fínnst gaman að teikna og er dálrtið upp meö sér af því. Hann sýnir gjarnan hringi sína og krúsin- dúllur, ef hann fær tækifæri til þess. Eins og allir drengir tekur hann Irtið tillit til fatanna sinna. Þess vegna velur móðir hans prjónavorur úr Dralon handa honum, Þá veít hún að hann er hlýtt klæddur og í fötum, sem þola að vera notuð. Einmitt eins og þessi Dralon-peysa frá Heklu. Hún er aaðveld að þvo, þornar fljðtt og þolir jafnvel að vera þvegin í þvottavél. Prjónavörur úr Dralon ... úrvals trefjaefninu frá Bayer... eru prjónavörur I hæsta gæðaflokki, fyrir börn og fullorðna. Þær fást alstaðar, hefzt hjá þeim, sem aöeir: selja fyrsta flokks prjónavörur. dralon BAYER Úrvals treffaefni i us, en það merkir samt ekki að öll tannpína sé þessum á- gæta manni að kenna, enda þótt Karíus og Baktus eigi mikla sök á henni. Það stendur í gamaTli leik skrá Þjóðleikhússins, að Thor björn Egner sé þúsundþjala- smiður — en það er maður, sem er margt til lista lagt — svo sem að semja leikrit og teikna við það leikmynd og búninga, yrkja vísur í leikrit ið og semja við þær skemmti- leg lög, en þaS köllum við einu nafni söngva —af því að það á að syngja það. AIR þetta gerir Thorbjöm Egner, og þess vegna er hann þús- undþjalasmiður. En það merkilega við þetta aflt sam- an er það, að hann gerir þetta ekki einungis til þess að skemmta okkur, heidur líka til þess að skemmta sjálf um sér.“ Sígiöðu söngvararnir 5 leika eftirtaldir leikarar: Bessi Bjarnason leikur And- rés söngvara, skáld og túbu leikara. Jón Júlíusson leikur Sívert flautuleikara, Margrét Guðmundsdóttir leikur Kari söngvara og banjóleikara, Ámi Tryggvason leikur trompetlei'karann sem sofn- aði á verðinum og Flosi Ól- afsson leikur trommuslagar- ann, sem ætlaði að verða frægur. Klemenz Jónsson er léikstjóri, en hann hefur stjómað öllum leikritum Egn ers hérlendis. — á.j. Velíum islenzkt til jólagjafa Jólabókin til vina erlendis Passíusálmar Hallgríms Péturssonar (HYMNS OF THE PASSION) í enskri þýðingu Arthur Gook með formála eftir Sigurbjörn Einarsson biskup. Valin gjöf handa vinum og vandamönnum erlendis. Fást í bókaverzlunum og i Hallgrímskirkju, Reykjavík Útgefandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.