Morgunblaðið - 13.12.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.12.1968, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 279. tbl. 55. árg. FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ráðherraskipan Nixons vekur nokkra undrun Enginn demókrati skipaður og flestir ráð- herranna lítt þekktir utan Bandaríkjanna Washington, New York, 12. des. AP. NTB. • Richard Nixon sat á fundi með nýskipuðum ráðherrum sínum í Lumaði á aurunum Los Angeles, 12. des. (AP). Maxknillian nokkur Lando andaðist í Los Angeles í marz 1966. Var hann almennt álit- inn blásnauður einsetumaður, því hann gekk sokkaiiaus, og föt hans voru snjáð otg sliitin og næld saman með öryggis- nælum. Nú hetfur hæs'tiréttur Los Angeles kveðið upp þann úr- skui'ð að erfðaskrá Landos sé lögleg, en hann lét eftir sig 728.432,91 dollara, (rúmlega 64 milljónir króna), sem eiga að skiptast að jöfnu milli M i nnesota -h áskóla og borgar- búa í Los Angeles. Hvorugur erfingjanna fær þó arfinn greiddan á næstunni. í ertfða- skránni segir Lando að pen- ingarnir eigi að liggja á vöxt- um, hlutur háskólans í 100 ár og hlutur Los Angelesbúa í 200 ár. Ef hluitur Lois Angeles niýtur núgildandi vaxtakjara, þ.e. 5%, næstu tvær aldir, verður hann orðinn þrjú þús- und milljónir dollara (264 milljarðar króna) þegar til út- dag og tilkynnti þeim, að hann hefði ákveðið að gefa þeim mjög frjálsar hendur, hvað snertir skip anir í ýmis embætti og stöður í væntanlegum ráðuneytum. Sagði Nixon, að þeir gætu kosið sér þá ráðunauta og sérfræðinga, er þeir hefðu mestan augastað á, þegar þeir tækju við störfum sínum. • Skipan stjómarinnar hefur vakið talsverða furðu í Banda- ríkjunum, og þykir stangast á við yfirlýsingar Nixons í kosn- ingabaráttu sinni. Þá lagði hann jafnan áherzlu á, að nú þyrfti að hleypa nýju og fersku lofti inn í bandarísk stjórnmál. Stjóm málafréttaritarar segja, að við fyrstu sýn veki ráðherralisti hans ekki vonir um að svo verði. Þá hefur og vakið athygli, að enginn demókrati tekur sæti í stjórn- inni, eins og búizt hafði verið borgunar kemur. Parísarfundirnir: Borðmálið að leysast? París 12. des. NTB. FORYSTUMBNN Bandaríkjanna og Suður-Vietnam á samninga- fundunum í ParLs náðu í kvöld samkomulagi um ýmis þau forms atriði, sem hafa tafið viðræðurn- air undanfarið, m. a. lögun samn- ingaborðsins. Þeir Averill Harri- mann og Nguyen Cao Ky, sér- legur ráðunautur sendinefndar Suður-Vietnam komust að þeirri niðurstöðu að annað hvort skyldu notuð tvö há 1 fhringsborð, eða hringborð, sem væri skipt í tvennt. við. Hins vegar hefur Nixon gef- ið í skyn að demókrati muni taka við embætti ambassadors Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Talið er að Nixon skipi Sargent Shriver ambassador í París í þá stöðu. • Mesta athygli og undrun hef- ur vakið skipan Nixons í stöður utanríkisráðherra og varnarmála ráðherra, en frá þeim er skýrt í Mbl. í gær, William P. Rogers verður utanríkisráðherra og Mel- vin Laird, vamarmálaráðherra. Akvörðim Nixons að sikipa Rog ers utanrikisráðherra hefur vadd- ið nokkrum úlfaþyt, þar sem reynslia Rogers í utanríkismálum þykir mjög af skomum skammti. Rogers var dómsmálaráðherT'a í 3 ár í stjórn Eisenhowers. Melvin Laird, er sa.gður íhalds- samur, harla þröngsýnn og mjög metniaðargjiarn. Hann er þingmað ur og hefur átt sæti í fjárveit- inganefnd fuUrtúadeildarinnar. Hann barðist hvað ötullegaist fyr- ir því árið 1960, að Nixon hlyti Framhald á bls. 2 Oto Sik fer ekki heim Basel, Sviss 12. des. AP. DOKTOR Ota Sik, fyrrv. aðstoð- arforsætisráðherra Tékkóslóvak- íu og efnahagssérfræðingur, sagði í dag, að honum hefði bor- izt vitneskja um að hann hefði verið ákærður fyrir agabrot inn an tékkneska kommúnistaflokks- ins. Ota Sik sagði, að hann hefði því ákveðið að fresta för sinni til Prag, en þangað hafði honum verið boðið að 'korna, og hugðist hann sitja fund miðstjórnar flokksins, sem hófst í Prag í dag. I gær var unnið að því að skreyta jólatré Reykvíkinga á Aust- urvelli og þá tók Ólafur K. Magnússon þessa mynd. Stjórn á Ítalíu — Rumor forsætisráðherra Rómaborg 12. des. NTB. MARINO Rumor, leiðtogi kristi- lega demókrataflokksins á ítalíu Fjárhagsáœtlun Reykjavíkur fyrir 1969: Hækkun útsvarsupphæðar aðeins 4% — og útgjaldahœkkun 7,6% — Meginstefna að stilla álögum í hóf og halda útgjöldum niðri — sagði Ceir Hallgrímsson á fundi borgarstjórnar t gœr Frv. að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1969 var lagt fram til fyrri umræðu í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. í ræðu er Geir Hallgríms- son, borgarstjóri, flutti fyrir fjárhagsáætluninni lagði hann áherzlu á, að megin- stefnan við undirbúning fjár- hagsáætlunarinnar hefði annars vegar verið að stilla álögum á borgarbúa í hóf, þannig að gjaldabyrði þeirra verði ekki þyngri en óhjá- kvæmilegt er og hins vegar að draga með öllu móti úr útgjaldahækkunum. í því skyni var farið oftar en einu sinni yfir hvern einasta út- gjaldalið. Haft var að leiðar- tjósi við gerð fjárhagsáætlun- ar að leitast við að hafa út- svarsupphæðina ekki hærri en svo, að unnt væri að gefa sama afslátt og í ár þótt ekki sé hægt að fullyrða að það takist. í samræmi við þessi sjón- armið er gert ráð fyrir, að útsvarsupphæðin hækki um 4,07% en heildarútgjöld borg- arinnar til rekstrar og fram- kvæmda hækki um 7,66%. Til samanburðar má geta þess að rekstrargjöld borgarinnar hækkuðu á þessu ári frá ár- inu 1967 um 10,59%. Geir Hallgrímsson Geir Hallgrímsson minnti í ræðu sinni á, að lögum skv. er heimilt að innheimta fast- eignaskatta með 200% álagi og hefur sú heimild verið not- uð að fullu að því er tekur til lóðagjalda frá ársbyrjun 1965 en aðeins að hálfu að því er tekur til húsaskatts. Hins veg ar hafa mörg önnur sveitarfé- lög nýtt þcnnan tekjustofn að fullu. Með tilliti til þess, að gera má ráð fyrir, að fast- eignaskattar verði stærri tekjuliðir fyrir sveitarfélög í framtíðinni, þykir nú eðlilegt, að Reykjavíkurborg nýti að fullu þennan tekjustofn frem ur en hækka útsvör eða að- stöðugjöld. Hér fara á eftir þeir kaflar úr ræðu Geirs Hallgrímsson- ar, borgarstjóra, sem fjalla almennt um tekju- og út- gjaldamál borgarinnar en á bls- 17 í dag er gerð grein fyrir einstökum tekju- og út- gjaldaliðum fjárhagsáætlun- arinnar og hækkunum á þeim og á bls. 10 er gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmd- um borgarinnar á næsta ári utan gatna- og holræsagerðar og framkvæmda einstakra borgarfyrirtækja. Geir Hallgrímsson: Eins og ég heí oftsinnis áður við framilagn- Framhald á bls. 31 var í dag opinberlega skipaðtir til að veita forystu nýrri sam- steypustjórn á ítalíu. Saragat ítalíuforseti hefur lagt blessun sína yfir ráðherralista Rum- ors. Þar með lýkur þriggja vikna stjórnarkreppu í landinu, sem skall á, þegar minnihluta- stjórn Giovanni Leones sagði af sér hinn 20. nóvember sl. Rurnor sagði í kvöld, að sósia- listinn Pietro Neni verði utan- ríkisráðiherra, en nöfn annarra hafa ekki verið birt. Að stjóm- inn nýju standa sósialistar, repú- blikanar og kristilegir demókrat- ar. Kennedy- dóttir Washington, 12. des, (AP). • ETHEL Kennedy, ekkja Ro- berts heitins Kennedy, fyrrum I öldungadeildarþingmanns, er myrtur var í Kaliforníu í júní I sl., ól í dag 16 marka dóttur. I Er þetta ellefta barn frúar- I innar, og f jórða dóttirin. Hin börnin tíu eru á aldrinum frá 1 18 mánaða til 17 ára. Talsmenn sjúkrahússins í 1 Washington, þar sem frú I Ethel ól dóttur sína, segja að | mæðgurnar séu báðar við I beztu heilsu. Mágur frúarinn- ar, Edward Kennedy, og kona ) hans voru hjá frú Ethel í | sjúkrahúsinu í morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.