Morgunblaðið - 17.12.1968, Síða 1
r
32 SÍÐUR
282. tb!. 55. árg-
ÞKIÐJUDAGUR 17- DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tékkóslóvakar halda áfram'
endurbótum
— en oð mjög takmörkuðu leyti
Skorað á Ota Sik oð snúa heim
Prag, 16. desember, AP-NTB.
• TÉKKÓSLÓVAKAR byggj-
ast halda áfram sumum þeim
endurbótum á efnahagskerfinu
sem byrjað var á fyrir innrásdna.
• Fréttamanni bandaríska
dagblaðsins New York Times
hefur verið vísað úr landi, og er
þriðji fréttamaður þess blaðs,
sem rekinn er frá Tékkósló-
vakíu.
• Tékkneskur fræðimaður hef-
ur skorað á OtaSik að snúa aft-
ur heim, og sagt að honum verði
ekki refsað fyrir afstöðu sina til
innrásarinnar.
• Vaciav Pleskot, utanríkis-
ráðherra Tékkóslóvakíu, var í
Kreml um helgina og ræddi við
Gromyko, utanríkisráðherra
Rússa. Ekki er vitað hvað þeim
fór á milli.
í fréttuim sem borizt hafa af
tveggja daga fundi miðstjórnar
kommúnistafloíkks Tékkóeló-
vakíu, segir, að haldið verði
áfram ýmsum endurbótum á
efnaihagskerfinu, sem hafnar
voru fyrir innrásina í ágúst. —
M.a. var sagt, að nokkur fðniað-
arfyrirtæki yrðu losuð við op-
inber afskipti af rekstri þeirra,
en ‘hins vegar var ekki minmzt
á að örva ágóðasjónarmiðið, eða
á frjálsit markaðsverð, sem byggð
ist á framleiðslu og eftirspum,
sem voru tvö aðaiatriðanna í hin
um upphaflegu endurbótum.
Sagt var að þessi mál yrðu
rædd frekar á öðrum miðstjóm-
arfundi á miðju næsta ári.
Fréttamanni „The New York
Times“ í Prag, hefur verið vísað
úr landi og gefið að ®ök að hafa
reynt að grafast fyrir um hern-
aðarleyndarmál og misnotað
tékkóslóvafciska borgara í því
skyni.
Hann hefði ekki sinnt ítrek-
uðum aðvörunum og framkoma
hans hefði ekki veríð í samræmi
við siðareglur blaðamanna.
Fréttamaðurinn hefur neitað
þessum ásökunum og kveðst hafa
algerlega hreina samvizku. Hann
bað um að fá nénari skýringu á
ákærunum, en því var neitað.
Hann er þriðji fréttamaður
þessa blaðs, sem vísað hefur ver
ið frá Tékkóslóvakíu.
Framhald á bls. 25
Pétur Ottesen
Pétur Ottesen látinn
Pétur Ottesen, fyrrverandi
alþingiismaður, lézt á heimilli
sínu Ytra Hólmi í Akranes-
hreppi í gærmorgun áttræður
að aldri. Varð hann bráð-
kvaddur, er hann var við bú-
störf, að vanda. Með Pétri
Ottesen er genginin einhver
litríkasti persóinuleiki á ís-
landi, sem langa ævi vann
góðum málum það hann mátti
af ósérhlífni og heiðarleika.
Pétur Ottesen var fæddur
á Ytra Hólmi 2. ágúst 1868
og sjálfur bjó hann á föður-
leifð sinni frá 1916. Alþingis-
maður Borgfirðinga var
hann frá 1916—1959, og
mun hafa setið Alþingi fslend
inga sem þjóðkjörinn þingmað
ur lengst aflra manna. Allan
þingtíma sinn var hann í hópi
atkvæðamestu þingmanna,
enda falin ótal trúnaðarstörf.
Ekki er unnt að telja öll þau
mál, sem Pétur lét til sín taka,
en hann hafði forystu í helztu
samtökum til styrktar land-
búnaði og sjávarútvegi. Hann
vair í stjórn Sláturfélags Suð
urlands frá 1929 og formaður
frá 1948, í Búnaðarfélagi ís-
lands frá 1942,. í stjóm Fiski
félags fsHands 1945—66 og í
stjórn Sementsverksmiðju rík
isins. í heimasveit sinni var
Pétur ekki síður í forystu alla
ævi. Hann var hreppsstjóri
frá 1918 og í fasteignamats-
nefnd og sýslunefndarmaður
var hann í 51 ár. Pétur Otte-
sen var Sjálfstæðismaður og
ætíð áhrifamaður í sínum
flokki.
Pétur Ottesen var sl. 50 ár
í fararbroddi alls staðar þar
sem gott verk var unnið á
Framhald á bls. 2
Lokaundirbúningur hafinn:
Apollo 8 verður skotið
á loft á laugardaginn
Fiskafli heims yfir 60
Kennedyhöfða, 16. des. AP.
APOLLO 8, leggur af stað í
ferðina umliverfis tunglið næsta
laugardag og þegar síðastliðinn
sunnudag var talningin hafin.
Straumur var settur á öll kerfi
geimfarsins og sérfræðingar munu
halda áfram að reyna þau allt
þar til Saturn eldflaugarhreyfill
ínn fer í gang.Geimfaramir þrír
Frank Bormann, James Lowell
og William Anders, g-engust und
ir stranga læknisskoðun í dag
og að henni lokinni voru þeir
lýstir eins hraustir og þeir
nokkru sinnum geta orðið.
Þessi síðasta vika verður ama
söm hjá öllum þeim er að tungl-
skotinu vinnia, ekki sízt geim-
förunum sjálfum. Þeir verða við
æfingar frá morgni til kvölds
og fá ekki eina einustu frístund.
Líklega er ekki fylgst eins vel
með heilsu nokkurra manna. Þeir
gangast undir læknisskoðun á
hverjum degi og þá er lögS
sérstök áherzla á að taka af
þeim hjartalínurit og fylgjasit með
önduinarstarfsemi, en þau gögn
verða notuð till samanburðar með
an á ferðinni stendur.
Þess er líka gætt eins og kost
ur er, að þeir fái ekki neina
kvillia, t.d. er búið að bólusetja
þá og allla sem nálægt þeim koma
við Hong Kong inflúensunni. Ef
svo færi að einhver þeirra veikt
iist, þó hann fengi ekki nema
kvef, væri hann að sjálfsögðu
úr sögunni. Það ætti ekki að
koma að sök þvi varaáhöfn er
til reiðu og nýtur sömu umhyggju
og þjálfunar og félagamir þrír,
en þó er sagt að það gæti orðið
til þess að ferðinni yrði frestað.
Síðar í vikunni verður byrjað
að setja eldsneyti á eldflaugina
og margflókin kerfi hennar einin
ig vand'lega yfirfarin.
illj. tonn í fyrra
— Perú enn mesta fiskveiðilandið
Fiskafli heims varð meiri á
árinu 1967 en nokkru sínni fyrr,
eon þá varð hann í fyrsta skipti
yfir 60 millj. tonn. Ekki færri en
13 af mestu fiskveiðilöndum
heims öfluðu þá meira en nokkru
sinni áður á einu árf hvert fyr-
ir sig, en alls varð fiskafli heims
á sl. ári 60,5 millj. tonn, sem var
yfir 3 millj. tonn meira en árið
áður, en þá var samanlagð-
ur fiskafli heims 57.3 millj. tonn.
Peru varð enn einu sinni
mesta fiskveiðiland heims, en þar
veiddist metafli eða 10.110.200
tonn og var langt fyrir ofan
Japan, en þar var ársaflinn
7.814.000 tonn, sem var einnig
meiri afli en nokkru sinni fyrr.
Samkv. ársskýrslum Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Samein
uðu þjóðanna, FAO er Rauða-
Kína talið koma í þriðja sæti
og er þar byggt á áætluðum
aflatölum frá því fyrir nokkrum
árum og aflinn áætlaður 5.808.000
tonn.
Sovétríkin eru í fjórða sæti
og er ársafli þeirra, sem var
meitafli alls 5.777.200 tonn. Nor-
egur, sem einnig náði metafla,
aða 3.214.300, fór fram úr Banda
'ríkjamönnum, en þar minnkaði
aflinn niður í 2.384.100 tonn og
urðu Bandaríkin í fimmta sæti,
hvað árs afla snerti.
Afli Suður-Afríku varð meiri
en nokkru siinni fyrr eða 1.644.400
tonn og urðu þessi lönd sam-
eiginlega í sjöunda sæti í fyrra
í stað ellefta 1966.
í áttunda, niunda og tíunda
sæti voru Spánn (1.430.600 tonn)
Indland (1.400.400 tonn) og Kan
ada (1.289.800 tonn) og náðu
þau öll metafla.
Indónesía gaf ekki upp neinar
tölur um fiskafla fyrir árið 1967,
en kann vel að hafa farið fram
úr afla ársins 1966, sem var
1.201.600 tonn. Danmörk, sem var
í 12. sæti, fékk metafla, sem nam
1.070.400 tonnum. >á varð Chile
Framhald á bls. 31
Skrímslið fundið
í Loch Ness?
EKKERT GENG-
UR í PARÍS -
EKKERT miðar enn í samkomu-
lagsátt í París. Ky, varaforseti
SuðurVietnam gagnrýndi Clif-
ford, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, harðlega í dag, fyrir
að kenna Suður-Vietnam um að
friðarviðræðurnar skuli ekki enn
vera hafnar. Clifford hefur gefið
í skyn að búast megi við
mjög auknum hernaðaraðgerðum
kommúnista fyrir áramót.
Birmingham, Englandi,
16. desember (AJP).
Lengi hefur sú saga gengið
að í Loch Ness vatni í Skot-
landi búi skrimsli eitt mikið,
sem margir hafa þótzt sjá.
Margvíslegar rannsóknir hafa
verið gerðar á vatninu, en
þær engan árangur borið.
í sumar sem leið vann leið-
angur frá háskólanum í Birm-
ingham að rannsóknum við
Loch Ness undir stjórn Davids
Gordons Tuckers prófessors,
©g telur prófessorinn sig hafa
heyrt grunsamleg hljóð niðri
í vatninu.
Leiðangur Tuckers prófess-
ors hafði meðferðis ,,sonar“
hlustunartæki, svipuð þeim
sem notuð eru til að hlusta
eftir kafbátum neðansjáva-.
Segir hann að með tækjum
þessum hafi hann orðið var
við undarlegar hreyfingar
niðri í vatninu, og ætlar hann
að halda rannsóknum áfram.
„Ég ihef aldrei séð neitt líkt
mælingunum, sem við feng-
um neðan úr vatninu," sagði
Tucker prófessor í viðtali í
Birmingham í dag.
Tucker prófessor og leið-
angur hans dvöldust um
tveggja vikna skeið við Loch
Ness við rannsóknir sínar, og
annar leiðangur vann þar að
rannsóknum í sumar frá 17.
maí til 4. október.