Morgunblaðið - 20.12.1968, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.12.1968, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FQSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968 Sími 22-0-22 Rauðarárstíg 31 ,,M11-44-44 m/UFlBIR Hverfiseötu 103. Siml eftir lokun 31160. MAOIMUSAR skipholh21 síma«21190 eftir lokun simi 40381 Þetta er rétta Frásögn Lúkasar í nýjum, ísl. búningi. Forvitnileg, ný, myndskreytt bók. Verð aðeins kr. 200,00. Hið íslenzka Biblíufélag Guðbrandsstofu — sími 17805. BRflun VÖNDUÐU RAFMAGNS- RAKVÉLARNAR BRAUN fyrlr allan straum, forhleðslu og rafhlöður. BRAUN við allar aðstæður: • heima • á ferðalaginu • í bílnum • um borð. ALLAR GERÐIR Jafnan til! GÓÐ GJÖF— GÓÐ EIGN! ♦ SlWI 144M O MJMIBIIATA AO o 0 Hámarkshraði á þuli K.S. skrifan „Að sjálfsögðu eigum við út- varpshlustendur að vera þakk- látir því ágæta fólki, sem les fyr- ir okkur í útvarpið, frá því í bráða býti á morgnana og fram á mið nætti. Þetta sama fólk vinnur líka á öllum stórhátíðum, þegar aðrir menn sitja heima og njóta simnar heimiUsánægju. ÞuUr út- varpsins eru svo sjónæmir og leiknir I sínu starfi að undrun sætir, en þetta gerir það aftur að verkum, að stundum kunna þeir sér ekki hóf, og lesa sér í tagi fréttir, með svo miklum hraða, að meðalgreint fólk hefur engan veginn við að skilja og minna þeir þá meir á rafdrifnar tal- maskínur en mann af holdi og blóði. Stjórn Ríkisútvarpsins verð ur því einfaldlega að setja há- markshraða á þessa þuU, þann- ig að ekki leyfist að lesa nema takmarkaðan orðafjölda, t.d. 150 orð á mínútu. Vandinn er enginn annar en sá, að telja öðru hverju orðafjöldann í fréttahandriti og 17 DAGA JÓLA OG NÝJÁRSFERÐ MS. GULLFOSS Brottför frá Reykjavík 23. des. kl. 15.00. Viðkomuhafnir: AMSTERDAM — HAMBORG og KAUPMANNAHÖFN. Nokkrir farmiðar á 2. farrými eru ennþá óseldir. Verð aðeins 8.493.00 krónur (fæði, þjónustugjald og söluskattur er innifalið). H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Farþegadeild. taka svo tímann. sem lesturinm mikið um það sem miður fer. tekur. Annari breytingu þarf nauðsyn lega að koma á, að hlustendur þurfi ekki oft á dag að hlusta á sömu fréttirnar, í þeirri von að eitthvað nýtt kunni að slæðast þar innan um. Fréttunum ætti að skipta í tvennt, þannig að þulur- inn tilkynni: ,,Nú verða lesnar fréttir, fyrst eru nýjar fréttir" Þegar þeim er lokið tilkynni þul uriinn: „Hér koma endurteknar fréttir". Þá er hverjum og einum óhætt að loka fyrir, sem ekki óska að hlusta á sama lesturinn meir en I eitt skipti". % Jólablað Æskunnar „Kæri Velvakandi. Jólablað Æskunnar var að koma úr póstinum allri fjölskyldurmi til mikillar ánægju. Æskan er allt af góður gestur og skemmtilegur við hjónin höfum ekki síður ánægju af að fletta henni og lesa en börnin. Mér skilst að barna- blaðið Æskan sé nú orðið stærsta tímarit á íslandi og ég er ekkert hissa. Velvakandi góður, sendu ritstjóranum beztu kveðjur okk ar og þakkir, við vonum að þeir haldi áfraim að gefa út jafn myndarlegt og iifandli barnablað á næsta ári. Ég efast ekki um að hinir fjölmörgu lesendur blaðsins bæði ungir og gamlir, fagni þess- um góða heimilisvini jafn vel og við. Það er líka ánægjulegt að sjá hve þessari útgáfu hefur vaxið 'fiskur um hrygg. Nú sendir hún frá sér mikinn fjölda góðra bóka á markaðinn. Þetta er vel valið efni, fræðandi og skemmtilegar bækur, sem bætast í hinn stóra bókaskáp æskunnar. Fólk talar Kaupið jólaljósasamstæður frá OSRAM þær endast og endast vegna gæðanna. það er líka rétt að láta þess get- ið, seim vel er gert. Fað’ir á Akureyri" 0 Goshruniuir í Keykjavík „Til Velvakanda Hvað veldur? Þessa spurningu hef ég oft lagt fyrir sjálfan mig, eft aldrei fund- ið svar. En hvað á ég við? Ég á við það, hvernig á því muni standa að Reykjavikurbær hefur ekki komið sér upp einum gos- brunni á almannafæri, hvað þá meira. Fjöldi íslendinga hefur nú farið út fyrir landsteinana, margir oft, og hlýtur þeim að vera ljóst þvílík fegurð ogaugna yndi vel gerður gosbrunnur er, svo mjög að sumir leggja jafn- vel krók á leið sína til að sjá þá. Fyrir utan það að auka feg- urð borgar beinlínis hefur slilct mannvirki bein sálræn áhrif, því borgararnir finna að með þessu vill hið opinbera, ásamt fleiru, veita þeim ánægju, draga dálít- ið úr gráma hversdagsleikans. Vist eru borgir skreyttar á margvís- legan annan hátt, en fátt sem nær betur tilgangi sínum en gosbrunn ar. Grátt kaldranalegt og leiðin- leg torg breytir alveg um svip, sé þar settur laglegur gosbrunn- ur. Þessu virðist líka aðrar þjóð- ir hafa gert sér grein fyrir. Hjá okkur er annað uppi á ten ingnum. Hver opinber garðurinn, hver flötin af annari er skipu- lögð, en engum dettur í hug að skreyta hana með snotrum gos- brunni. Hér eru þó fjölmargir staðir, þar sem þeir myndu sóma sér vel. Hefði ekki mátt koma fyrir gosbrunni á lóðinni ofan við Höfða, myndi ekki gos- brunnur fara vel einhversstaðar í miðbæjarskrúðgarðinum sunnan tjarnarinnar, á flötinni vestan gamla kirkjugarðsins, á Lækjar- torgi í stað hinnar gömluklukku sem gnæfir þar fáum til gaigns. Marga fleiri staði, ýmsa garða, mætti nefna þar sem vel færi á að hafa gosbrunn. Eða er ekki nóg vatn til í Reykjavíkurborg? Éru gosbrunnar dýrir? Vissu- lega, séu þeir gerðir um viðamlk il dýr höggmyndaverk. En þess gerist ekki þörf. Ýmsir fegurstu gosbrunnar, sem ég hef séð og eiga það nafn helzt skilið, eru aðeins skál með pípum upp úr, stundum upplýstir og þá hrein fegurðaropinberun. Þeir kosta auðvitað sitt, en miklu minna en ýmislegt annað, sem ré er eytt i, stundum án þess að það virðist svara kostnaði. Ég tel ástæðu til að flarið væri í alvöru að athuga þetta mál strax og efnahagur leyfir. Eða finnstokk ur alltaf nóg að geta státað af gamla Geysi og Grýtu. Úrsus“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.