Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN • PRENTSIVIIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA SÍIVll 1D*1DD FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968 Arleg heiðurslaun til Tómasar Tillaga þess efnis lögð tram í borgarstjórn í gœr A FUNDI borgarstjórnar í gær Jagði Geir Hallgrímsson, borg arstjóri, fram tillögu frá öllum .borgarfulltrúum, sem sæti eiga á borgarráðsfundum, og í sam- .ráði við ýmsa aðra borgarfull- Tómas Guðmundsson trúa þess efnis, að Tómasi Guð mundssyni, skáldi, verði veitt heiðurslaun að upphæð krónur .100 þúsund og er ætlast til, að bér sé um árlega heiðursviður- .kenningu til hans að ræða. Gedr Hallgríinsson sagði, að nú væru 35 ár liðin síðan ljóðabók Tómasar Guðmundssonar, „Fagra iveröld", kom fyrst út, en með bvæðum þar og síðar hafi Tómas .sérstaklega áunnið sér hefðar inafnið borgarskáld auk þjóð- skáldstitils. Hlaut mikil meiðsl SJÖTÍU og tveggja ára kona rif- brotnaði, brotnaði á báðum öxl- um og hlaut höfuðmeiðsl, þegar hún varð fyrir bíl í gær. Hún var flutt í Slysavarðstofuna og þaðan í Landakotsspítala. í gærkvöldi var líðan konunnar eftir atvik- um sæmileg. Konan var á leið vestur yfir Snorrabraut, þegar óhappið varð. Gekk hún eftir gangbraut skammt frá mótum Egilsgötu, þegar að bar Volkswagenbíl á leið suður Snorrabraut. Skipti það engum togum að konan varð fyrir vinstra frambretti bílsins og lenti hún á framrúðunni, sem brotnaði við höggið, en síðan féll konan í göt- una. Ökumaður bílsins segist ekki hafa séð konuna fyrr en um sein an. Borgarstjóri sagði: „Tómas Guðmundsson hefur með kvæð- .um sínum lyft Reykjavík í æðra veldi, bæði í vitund Reykvíkinga sjálfra og annarra landsmanna. 'Hann hefur þannig opnað augu Reykvíkinga fyrir umhverfinu og skapað með þeim heilbrigðan rnetnað og samkennd með borg- ánni og lífinu, sem þar er lifað. 'Eyrir þetta erum við Reykvík- ingar þakklátir og viljum sýna það í verki á þann hátt, sem tillagan greinir frá“. Dettifoss fór að bryggju í Hrísey — Ár liðið frá því síðasti Fossinn kom EFTIR rúmlega eins árs hlé á siglingum Fossanna til Hríseyj- ar, vegna skemmda sem þar urðu 'í fyrrahaust á hafnargarðinum, 'hefur Dettifoss „rofið“ þetta hálf gerða „hafnbanns-ástand“ og var því almennt fagnað þar er Detti- foss lagðist upp að bryggjunni 17. þessa mánaðar. Var þá rúmt ár sáðan þangað hafði komið „Foss“. Lestaði Dettifoss alls um 130 tonn af frystum fiski til Bandaríkj anna úr fryistihúsi KEiA Hríseyingar fögnuðu þessu sem fyrr segir og þótti Þeim skip- stjórinn Þórarinn Ingi Sigurðs- son sýna mikla lagni við að koma skipinu upp að, því áð- stæður voru ekki sem ákjósan- legastar vegna veðurs. En allt gekk vel undir hans öruggu skipstjórn og einnig gekk skip- inu vel að komast frá aftur. Vona eyjarskeggjar að þar með sé ástæða til að ætla að Hrisey sé aftur komin inn í þjónustu Eimskips. Viðgerðinni á hafnar- garðinum eftir skemmdirnar miklu á síðasta hausti er ekki nærri lokið og mun ekki fylli- lega ljóst hverjir greiða skulu tjónið. Um þessar mundir koma íslenzku síldveiðiskipin í heimahöfn hvert af öðru eftir langt úthald í Norðursjó. Myndina tók Árni Johnsen í gærmorgun þegar Örfirisey kom klakasýld inn í Reykjavíkurhöfn úr norðangarra á hafinu og lagðist utan á síldveiðiskipið Bretting, sem líka er nýkominn heim. Rár, stög og reiðar á Bretting voru einnig í klakaböndum. Sjá viðtöl við sjómenn af Norðursjó á bls. 10. Frá borgarstjórn í gœr: Minnihlutaflokkarnir vilja stórauka álögur á atvinnu- fyrirtækin í borginni — Vilja hœkka aðstöðugjöld um allt að 80 milljónum A FUNDI borgarstjórnar í gær var fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár til annarrar um- ræðu. Minnihlutaflokkarnir, komm- únistar, Framsóknarmenn og Al- þýðuflokksmenn lögðu fram til- lögur um stórauknar álögur á atvinnufyrirtæki borgarinnar. Skv. þeim tillögum mundu að- Deildafundum Alþingis lokið fyrir þinghlé — Síðustu deildafundum Alþingis fyrir þingfrestun lauk í gær- ikvöld. < Að lokinni afgreiðslu mála í efrj deild þakkaði þingforseti, Jónas G. Rafnar, þingmönnum samstarfið og árnaði þeim og fjölskyldum þeirra gleðilegra DAGAR TIL JÖLA ■jóla og farsæls árs. Ólafur Jó- hannesson þakkaði óskir þing- forseta og færði honum og fjöl- skyldu hans jóla- og nýársóskir, sem þingmenn tóku undir með því að rísa úr sætum. 1 neðri deild flutti forseti deildarinnar, Sigurður Bjarna- son, þingmönnum óskir um gleði leg jól og farsælt nýár. Lúðvík Jósefsson þakkaði forseta og færði honum og fjölskyldu hans (jóla- og nýársóskir, sem þing- menn tóku undir með því að xísa úr sætum. stöðugjöld hækka um 30 til 80 milljónir króna. Afstaða borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins var hins vegar sú, að eins og atvinnuástandið í borginni er, og töluverður skort ur á atvinnu, kæmi ekki til mála að auka álögur á atvinnu- fyrirtækin, enda leiddi það til þess eins, að atvinnuástand í borginni versnaði enn frá því sem nú er. Umræðum og afgreiðslu fjár- hagsáætlunar var ekki lokið er Mbl. fór í prentun, en hér fer á eftir frásögn af umræðunum í gærkveldi. Geir Hallgrímsson borgarstjóri fylgdi breytingartillögum borg- arriáðs stuttlega úr hlaði. Ræddi hann m.a. um þá ákvörðun borg- axrá'ðs, að veita Tómasi Guð- mundssyni skáldi 100 þús. kr. heiðurslaun, en þess er getið annars staðar í blaðinu. T»á ræddi hann um hækkuð framlög til ýmissa stofnana. Er í tillögum borgarráðs gert ráð fyrir að framlög til leikvalla haekki úr 3 millj. í 5 millj. og að framlag til Sjúkrasamlagsins hækkaði úr 90 milljónum í 100 milljónir. Borgarstjóri gagnrýndi mjög tillöguflutning minnihlutaflokk- anna, er þeir legðu til að hækka aðstöðugjöld um tugi milljóna. (Minnst hjá Framsókn 30 miUj., mest hjá krötum 80 milljónir). Hér váeri verið að gera tiliögur um stórauknar álögur, á atvinnu- fyrirtækin, og ef þær yrðu sam- þykktar hlyti það að koma fram í minnkuðu greiðsluþoli atvinnu fyrirtækjanna. Eins og nú væri komið málum, væri það óverj- andi að auka álögur á atvinnu- fyrirtækin. Borgarstjóri minntist einnig á andstöðu Framsóknar við það að nota til fulls heimild við álagn- ingu húsagjalda. Benti hann á, að Framsóknarmenn væru mót- fallnir þessum hækkunum, en gehðu hins vegar ráð fyrir þeim, Framhald á bls. 31. Þrú sækja um prófessors- embætti UMSÓKNARFRESTUR um laust prófessorsembætti í guðfræði- deild háskólans rann út 18. þ.m. Umsækjendur eru dr. Björn Björnsson, sr. Jón Hnefill Aðal- steinsson fil. lic. og sr. Jónas Gíslason. (Frá Menntamálaráðuneytinu). Hörður Einarsson Hörður Einarsson ior- maður Fulltrúaráðsins Á FUNDI stjórnar Sjáfstæðisfé- laganna í Reykjavík, sem hald- inn var í gærmorgun, var Hörður Einarsson, hdl., kjörinn formað- tar Fulltrúaráðsins í stað Bald- vins Tryggvasonar, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs í aðal- stjórn. Á sama fundi var Ólafur B. Thors, deildarstjóri, kjördnn vara formaður og Steinar Berg ÍBjörnsson kjörinn ritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.