Morgunblaðið - 06.02.1969, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.02.1969, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1969. Svona vilja þeir að frú Nixon klæðist EINS og við er að búast, er allt. sem viðkemur Nixons-fjölskyld- unni mjög undir smásjá og geta þau sjálfsagt tæpplega snúið sér við án þess að fylgzt verði með þeim næstu fjögur árin, en þetta Nr 1: Kápa eftir Blass er einn af ókostunum við að vera í opinberum stöðum hjá stórþjóðum. Fólk í Bandaríkjun- um virðist vera ófeimið við að finna að ýmsu í fari íorsetans og annarra manna í æðstu em- bættum og sést ýmislegt af því tagi á prenti. Forsetafrúin fær lika sinn skerf, og nýlega sást í amerísku kvennablaði grein, þar sem bent var á ýmsa kosti henn- ar og jafnframt á sitthvað, sem ábótavant þótti við klæðaburð hennar. Frú Nixon þykir yfir- leitt ákaflega aðlaðandi, talsvert unglegri en við mætti búazt af Nr. 2: Kvöldkjóll eftir Beene Nr. 3: Heimaklæðnaður eftir De la Renta 56 ára gamalli konu. Hún er sögð hafa einkennandi engilsax- neskt útlit, góða beinabyggingu og ljósleitan enskan hörundslit. Ennfremur þykir ’hún hafa fallegustu fætur allra kvenna þeirra sem hæst ber í opinberu lífi í Bandaríkjunum í dag. En fundið er að fatasmekk hennar, sem þýkir nokkuð blend inn, hinum hárauða varalit hennar, sem bókstaflega yfir- gnæfir allan lit í andlitinu. Vikuritið „Time“ bað fjóra þekkta tízkuteiknara í Banda- ríkjunum að teikna föt, sem þeim fyndist að frú Nixon ætti að klæðast, og sjáum við hér árangurinn af því. Fyrst er kápa (nr .1), eftir Bill Blass, tízkuteiknara, og ber hún tals- verðan rússneskan svip. Kápan er úr ullarefni með safalaskinns trefli og hatt úr sama skinni. Geoffrey Beene leggur til, að frú Nixon klæðist síða kjólnum nr. 2, en það er pils og blússa með vesti utanyfir. Oscar de la Renta álítur, að frú Nixon hafi ekki notið sín vegna meðfæddrar feimni. Hann sér hana fyrir sér sem ákaflega kvenlega konu, og það þurfi hún að leggja áherzlu á í klæðaburði sínum. Velur Nr. 4: Kvöldkjóll eftir Brooks hann þennan heimaklæðnað (nr. 3) fyrir hana. Donald Brooks, fjórði tízkuteiknarinn, er ákaf- lega óánægður með núverandi val hennar á fötum, og þurfi hún þar algjörlega að breyta um stefnu. Teiknaði hann þennan bleika crepe-kvöldkjól með rauðum jakka úr satíni og flaueli utanyfir (nr. 4). (THIÍ Heftari er mesta þarfaþing á skrifstofu, eins og allir vita. En það eru fcka not fyrir hann á hverju venjulegu heimili, t.d. ef rúllugardínan losnar frá trénu að ofan, þá er hægt að festa hana með heftaranum. Sömuleiðis, ef gardínan er of síð, er hægt að draga hana upp eins hátt og óskað er og setja svo heftiklemmu í tréð að neðan. Ostahnifur — mesta þarfaþing OSTAHNÍFUR er ómissandi, eins og allir vita, en hann má nota til annars en að skera ost. Reynið t.d. að skera agúrku- sneiðar eða kál í ræmur með ostahnífnum, og þegar smjörið í ísskápnum er of hart til að smyrja með, má skera það í flög ur með ostahnífnum, og verður það þá auðveldara viðfangs. Ójbæg/nc// í fótleggjum TIL eru þeir, sem líða af óþæg- indum í fótleggjum,- mismun- 'andj miklum, sumir fá jafnvel krampa. óþægindi þessi geta jafnvel valdið viðkomandi and- vökunóttum. Til að örva blóð- 'rásina og vinna á móti þessum óþægindum, er mælt með því að bursta fótleggina með þurrum, stífum bursta, og bursta að neð- an og upp á við. Hvítur kragi og uppslög a. Hvítur kragi og bvít upp- slög eru í tízku um þessar mund ir. Það ætti að vera auðvelt að sauma sér þetta eftir sniðinu, sem við birtum hér. Þægilegt er að hafa e.fni í kraganum og upp- slögunum t.d. úr nælon eða terrylene, þá þurfum við ekki að strauja það. Einnig er hag- kvæmt að sauma tvo kraga svo að við eigum til skiptanna. b. Snið af kraganum og upp- slögunum. í 2 kraga og tvenn uppslög fer 50 cm af efni (90 cm breiðu), 30 cm af þunnu, hvítu bómullarefni í hálsmálið, 55 cm hvítt skáband. Sniðið er 3 hlutar: 1. hálsmál, 2. kragi, 3. uppslög. Skiptið papp ír í ferninga, 2x2 cm að stærð. Teiknið sniðið eftir myndinni, munið að mynztrið nr. 3 (upp- slög) er teiknað tvisvar. Allir hlutar sniðsins eru hér án sauma. Þess vegna þarf að reikna með 1 cm fyrir sauma á öllum hlutum sniðsins. Kragi og uppslög eru sniðin tvöföld. Háls- málið er sniðið einfalt á ská. •JCraginn er saumaður á þrem- ur hliðum, honum snúið við og strauaður. Hálsmálið er lagt tvö- falt saman eftir línunni á mynd nr. 1, saumað er fyrir endana og 2 cm yfir á hvoru megin við langa sauminn (sjá snið nr. 1: punktalínan sýnir, hvar festa á kragann í). Snúið hálsmálinu. Kraginn er síðan saumaðilr í hálsmálið. Uppslögin saumuð á röngunni, tvær stuttu hliðarnar og snúið. Festið skábönd á uppslögin 2 hnappagöt saumuð í. og O J® V 0> Cy V/ X4 f-4 \—1 I 1 3 4—1 , / / T J 1 r~ 1 2 1 + L | 1 1 X 1 * h •i i N 4 1 JL f

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.