Morgunblaðið - 06.02.1969, Page 20

Morgunblaðið - 06.02.1969, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1969. enginn hefur svarað. Varstu sof- andi? Á ég að far-a úr símanum? — Nei, það er allt í lagi með mig. En ég er bara alveg ný- komin og alveg uppgefin. Þetta var annars bara venjuleg ferð. Ég verð orðin jafngóð þegar ég hef fengið mér bað og kaffi- bolla. En þú? Hvað stendurðu lengi við núna? — Eitthvað viku, býst ég við. Ef þú verður orðin hressari seinna, hvað segirðu þá um að borða með mér kvöldmat í kvöld? Lísa reyndi að muna eftir and litinu á honum almennilega, og reyndi að finna sér einhverja afsökun, en það mistókst. Kannski er það einmitt það, sem ég þarfnast, hugsaði hún. — Þakka þér fyrir, það gæti verið ágætt. En komdu hingað og fáðu þér eitt glas fyrst. FELAGSLÍF Víkingar, knattspyrnudeild Meistara- og 1. flokkur — inniæfingar eru kl 7 á fimmtu dögum. 2. flokkur — inniæf- ing fimmtud. kl. 8.15. Mætið stundvíslega. Nefndin. Klukkan hvað? Getur klukkan sjö verið þér hentugt? Já, vel á minnzt þakka þér fyrir litla björninn. Hann er dásamlegur. Ég ætla að taka hann með mér í hverja flugferð. — Ja, hérna! Það er naumast hann er heppinn! sagði Nýsjá- lendingurinn. Lísa vísaði honum til vegar, þakkaði honum enn og lauk sím- talinu. Þetta var á föstudegi. Á morg- un mundi hún fara að heim- sækja Símon. Hún hringdi í skól- ann til þess að láta vita, að hún væri komin heim, og tilkynna heimsókn sína, síðan í hár- greiðslustofuna og bað um tíma klukkan hálfþrjú. Klukkan var enn ekki nema ellefu, svo að hún gat lokið húsverkunum, far ið í bað og þó átt tíma afgangs. Hún tók upp úr töskunni og kom farangri sínum skipu- lega fyrir. En þegar hún tæmdi litlu töskuna, hékk eitthvað fast í hólfinu bak við púðurdósina. Hún fann til sektar, er hún mundi eftir bréfinu, sem Roxane hafði beðið hana að setja í póst. Hún sléttaði úr umslaginu og horfði gaumgæfilega á hall- fleytta rithöndina. Það var sú sama sem á bréfinu, sem hún sá í gistihúsinu í Bagdad. Og auk þess stíluð á sama manninn. Þetta gat ekki átt sér stað! Hún bar bréfið að glugganum og leit betur á það. Það var árit að til Peter Fraser, flugmanns í Flugmannaklúbbnum í London. Hér var ekki um að villast. Svo að það var þá þessvegna sem Fraser var svo æstur í að hitta hana aftur — og hún, sem fannst hann svo eðlilegur og blátt á- fram — svo óspilltur. Var hann þá — eins og McCall — skotinn í Roxane? Hún var bæði reið og móðguð og hugsaði með sér, að hún vildi engan þátt eiga í þessu laumuspili. Henni var næst skapi næst að hringja í Ný-Sjálending inn, aflýsa boðinu og segja hon- um að hún hafði sett bréfið hans í póstinn. En þegar hún lá í baðinu, tók hún nokkuð að róast. Þetta líkt- ist mest ganginum í kvikmynd. Hún mátti ekki vera offljót á sér að álykta. Hún skyldi fá honum bréfið þegar hann kæmi og hún mundi strax sjá, hvort það væri honum mikilvægt eða ekki. Hvað hún óskaði, að vera orðin ein af persónunum hjá Francoise Sagan, sem fleygir sér á rúmið, velur símanúmerið með tannburstaskaftinu og segir svo með leiftrandi augun nokkur orð i fullri meiningu, sem gerir enda á öllu saman. 24 Sápan datt niður í baðkerið með dynk, svo að hún hrökk við og fór ag hlæja. Var hún þá orðin svo rómantísk og upp- full af dagdraumum? Hvernig gat hún gert enda á því, sem ekki var einusinni byrjað? Og ef út í það var farið, þá hafði hún ekki símanúmerið hans! 7. kafli Peter Fraser haHaði sér aftur Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI. — Vertu skynsöm væna mín — Það eru engir peningar til að kaupa nema farseðil á 1. farrými. á bak í rauða hægindastólnum hjá Lísu og teygði löngu lapp irnar að arninum. — Fyrirtaksmatur! sagði hann — Ekkert jafnast við góðan mat! — Nú, hann var nú ekki neitt að státa af. Einhverntíma skal ég gefa þér virkilega góðan mat. — Er þér sama þó að ég kveiki í pípu? — Gerðu svo vel. Ég kann ekki nema vel við það. Það minnir mig á hann pabba. Nú ætla ég að búa til kaffi. Vi'ltu það franskt eða tyrknest? - Heldur franskt, þakka þér fyfir. Ég er búinn að fá nóg af þessu Austurlanda-sulli í bili. Hún gekk fram í eldhúsið, en kippti um leið áhreinu diskun- um af borðinu. Hitt gat beðið betri tíma. Hún stakk diskunum niður í skál með vatni í og mat- arleifunum inn í kæliskáp. Meðan kaffið var að verða til, fór hún inn í baðið, lagaði á sér hárið og málninguna. Hvað þessir síðustu dagar höfðu verið skemmtilegir, hugsaði hún með sér, og hve ólíkir því, sem hún hafði búizt við. Peter hafði boðið henni þris- var út síðustu vikuna og hún hafði viljað endurgjálda að ein- hverju þetta örlæti hans. Þá fannst henni bezt að bjóða hon- um uppá heimatilbúinn mat. Og þetta hafði heppnazt með mikl- um ágætum. Henni þótti verulega gaman að vera með honum. Hann var svo þolinmóður og svo umburðar lyndur gagnvart endalausu skrafi hennar um Símon. Það var eitthvað annað en Steve hafði verið. Að öðru leyti var hann ekkert ólíkur honum, að málhreimnum undanteknum. Hann hafði sömu hógværu fram- komuna. Hún velti því fyrir sér hvort hann mundi vera eins við aðra kunningja. Joy Francis eða Roxane? Hún kipptist ofurlítið við er hún bar fram kaffibakkann og henni varð hugsað til Roxane. Fyrsta kvöldið þegar hún hafði afhent Peter bréfið, hafði hann hlegið, þakkað henni kæruleysis lega og tautað fyrir munni sér: — Ennþá einu sinni — þetta er enginn friður. Og svo hafði hann stungið bréfinu í vasa sinn Það hafði verið gaman um kvöldið. Hann var umhyggjusam ur á sinn sérstaka, óframfærna I Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Þú lætur gullvæg tækifæri ganga þér úr greipum vegna upp burðarleysi, og dauðsérð svo eftir Öllum aumingjaskapnum. Vertu einarðari og ákveðnari. Nautið 20. apríl — 20. maí Þú mátt búast við því, að einihverjir velgi þér undir uggum í dag. Þín makalausa stífni gerir málið ekki auðveldara. Tvíburarnir 21. ma* — 22. júlí Umfram allt ættirðu að gæta heilsu þinnar og ofbjóða þér ekki með vinnu. Taktu tillit til ættingja þinna, sem vilja þér allt það bezta og hlýddu þeirra ráðum. Krabbinn 21. júní — 22. júlí Undarlegar tilviljanir geta gert einkamálin dálítið flókin 1 dag. Reyndu að taka öllu með brósi á vör og gera ekki úlfalda úr mýflugu. I.jónið, 23. júlí — 22. ágúst Þú ættir að vera sem mest innan um vini þína í dag og hlusta á það, sem þeir hafa til málanna að leggja. Svo vill til að fleiri hafa vit í kollinum en þú. Jómfrúin 23. ágúst — 22. september Þú getur búizt við skemmtilegum degi, ef þú lætur ekki skap- ið hlaupa með þig í gönur, hreint að nauðsynjalausu. Ættir að vera heima við í kvöld og lesa góða bók. Vogin 23. september — 22. október Velhugsandi og afskiptasamir ættingjar gera þér lífið erfitt með vinsemd sinni og velvild. Reyndu að leiða hjá þér fjöl- skylduerjur og taka ekki málstað eins frekar en annars. Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember Kæruleysi þitt getur komið þér óþyrmilega í koll í dag, ef þú viðhefur ekki hina mestu aðgát. Sinntu vinum þínum og færðu nánum ættingjum iangþráða gjöf. Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember Þó að allt virðist með felldu getur margt verið öðruvísi en þú hyggur. Láttu því ekki ónotaleg atvik á þig fá. Steingeitin 22. desember — 20. janúar Rómantíkin er í blóma, ef þú litur aðeins í kringum þig. Með- fædd hlédrægni þín skyldi ekki verða þér þrándur í götu. Vatnsberinn 21. janúar — 19. febrúar Skörp dómgreind og dugnaður er ekki einhlitt til árangurs, þaðan af síður ánægju. Það skyldirðu hugleiða. Reyndu að líta ögn bjartari augum á tilveruna. Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz Þú skalt fylgjast sérstaklega með athöfnum yngri fjölskyldu- meðlima i dag .Kvöldinu skaltu verja til spaklegra og andríkra samræðna við vini þína eða starfsfélaga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.