Morgunblaðið - 07.03.1969, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MARZ 19&9.
BÍLALEIGANFALURhf
car rental service ©
22*0-22-
rauðarArstíg 31,
1-SS t,M'1-44-44
mum
Hvcrfisgötu Itt3.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
SKLPHOUI21 SÍMA* 21190
--?* eFtirlokurrslmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
MYNDAMÓT hf.
PRENTfytYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI 6
SlMI17152
Eldhús
framtíðarinnar
Skoðið nýju
Husqvarna
eídavélarnar
Cjunnar —^áyeiriáon
Suðurlandsbraut 16.
Langavegl 33. - Síml 35366.
0 Dagfinnur
dýralæknir
Á Kr. Einarsson, skriíar:
„Heiðraði Velvakandi!
Laugardagskvöldið 22. þ.m. hlust
aði ég i útvarpinu á dagskrá-
atriði, sem ég á vart nógu sterk
orð til að lofa, bæðí hvað efni
og flutning snerti. Hér á ég
við dagskrárþáttinn um Dagfinn
dýralækni I samantekt Ólafs
Stephensens með tónleikum og upp
lestri Péturs Einarssonar, leikara.
Þátturinn allur var einkar fróð-
legur, léttur og skemmtilegur, í
einu orði sagt framúrskarandi.
Það er mikill ávinningur fyrir
hlustendur, bæði unga og aldna,
að fá að kynnast manninum og
rithöfundinum Hugh Lofting og
tildrögum þess, að sögurnar um
Dagfinn dýralækni urðu til.
Bækurnar um Dagfinn dýra-
lækni munu vera alls tólf, og
hafa þær komið út á fjölmörg-
um tungumálum. Auk þess hafa
a.m.k. tvær langar kvikmyndir
verið gerðar eftir bókunum
Tvær fyrstu bækurnar um Dag-
finn dýralækni hafa komið út á
fslenzku í ágætri þýðingu Andrés
ar Kristjánssonar, ritstjóra Bæði
útgefandi og þýðandi eiga mikl-
ar þakkir skilið að hafa gefið
íslenzkum lesendum tækifæri til
að kynnast þessu snilldarverki
heimsbókmenntanna. Ég vona, að
enginn skólabókasöfn láti þessar
bækur fram hjá sér fara.
Að endingu vil ég þakka út-
varpinu fyrir þennan dagskrár-
þátt og mæiist um leið til þess,
að þátturinn verði endurtekinn.
Ég hef grun um, að hann hafi
farið fram hjá mörgum vegna
þess, að hann var fluttur á sama
tima og fréttir í sjónvarpinu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Á. Kr. Einarsson, skrifar:
0 Friðarsveitir
„Madame x“, skrifar:
,;Kæri Velvakandi!
Ég las f dálkum þínum um
daginn bréf, þar sem lagt var til,
að stofnaðar yrðu íslenzkar frið-
arsveitir. Ég er algerlega fylgj-
andi þvf. Fjöldi landa, þ.á. m
öll Noðurlöndin, utan Islands,
hefur slíkar sveitir á sínum veg-
um f þróunarlöndunum Þessar
sveitir byggja skóla og sjúkra-
hús og kenna bömum undirstöðu-
menntir. Það hefur komið f ljós,
að viljinn er fyrir hendi hjá ís-
lendingum. Við viljum gjarnan
gera það, sem í okkar valdi stend
ur. Milljónum hefur verið safnað
til kaupa á matvælum og öðrum
brýnustu lífsnauðsynjum.
Ég las f blöðunum, að ráð-
gert væri að stofna íslenzka Un-
ice-nefnd, sem tæki að sér verk-
efni á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Hlutverk þessara nefnda
er annars vegar að bjarga börn-
um frá hungri og hins vegar
að annast fræðslu og heilsufar
þeirra. íslendingar hafa þegar lagt
mikið af mörkum til útrýmingar
hungri, en hingað til höfum við
ekki gert neitt til að auka mennt
un þessa fólks.
Menntun hlýtur að vera undir-
staða þess, að fólkið geti bjarg-
að sér í framtíðinni og þetta
verði ekki vítahringur, þar sem
börn fæðast einungis til að deyja.
Frumkvæði að stofnun friðar-
eveita hlýtur að stianda næst
„Herferð gegn hungri" og Rauða
krossinurt, en einnig gæti æsku-
lýðsráð eða þjóðkirkjan staðið
þar að.
Madame x“.
0 Samþykkt í
saumaklúbbi
Gramur eiginmaður, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Mér datt í hug að drepa niður
penna af gefnu tileíni. Konan mín
er f saumaklúbb, sem ekki er f
sögur færandi. Ég .amast síður
en svo við því. Hún hefur gott
af því útstáelsi, þótt nafngiftin
á þessum alkunnu klúbbum orki
kannski tvímælis. Að minnsta
kosti er það álit okkar margra,
sem ekki erum þar gjaldgengir.
En hvað um það, hér um daginn
kom hún heim með bráðsnjalla
hugmynd, eða öllu heldur sam-
þykkt, sem þær frúmar gerðu í
klúbbnum sfnum. Þær höfðu
Caldrei þessu vant, trúi ég) tekið
efnahagsmálin til umræðu og að
sjálfsögðu krufið þau til mergj-
ar. Ég efast ekki um að allri
skuldinni hafi verið skellt á karl
mennina, en hvað gátu þær gert
til þess, að fleyta okkur yfir þá
tímabundnu erfiðleika, sem nú er
við að glíma. Jú, þá rann upp
fyrir þeim ljós. Voru það kannski
ekki þær, sem gerðu öll innkaup
fyrir heimilið? Og einn liðurinn
í þvf að við fáum rétt úr kútn-
um er að sjálfsögðu efling ís-
lenzks iðnaðar. Hvernig gátu þær
stuðlað að þeirri eflingu? Auð-
vitað með þvf að kaupa fslenzku
iðnaðarvöruna. Og nú er bezt
að gera langa sögu stutta: þær
samþykktu að spyrjast ætíð fyrir
um það f verzlununum, hvaða
vara væri fslenzk og kaupa hana
nema mikill gæða- eða verðmun-
ur væri augljós.
Ég gladdist mjög, þegar ég
heyrði þetta, ekki sízt vegna þess
að fjölmargar fslenzkar iðnaðar-
vörur gefa þeim erlendu ekkert
eftir að gæðum og eru auk þess
oft ódýrari.
0 Kaupum íslenzkar
iðnaðarvörur
En svo eru það áform og efnd
ir. Konan mín fór út í búð til
þess að kaupa klósettpappfr og
þvottaefni, en áður en hún bar
upp erindið tilkynnti hún, að hún
óskaði eftir fslenzkum vörum, ef
til væru. Jú, jú, íslenzkt þvotta-
efni var til, en afgreiðslustúlkan
mælti svo mjög með einni teg-
und erlends þvottaefnisins, tíund
aði svo gæði þess, að konunni
minni fannst hún ómögulega geta
gert heimilinu og þvottinum sín
um þann óskunda að fá ekki not
ið allra þeirra herlegheita! Af-
greiðslustúlkunni sá þó, hvernig
henni leið og til þess að bæta
henni að nokkru glataðan stuðn-
ing við íslenzka framleiðslu, þá
sagði hún að til væri afbragðs
íslenzkur klósettpappír. Ekkert
væri að marka þótt áletrunin á
umbúðunum væri á útlenzku.
Þú verður að fyrirgefa fáfræði
mína, Velvakandi góður, en hvar
er þessi íslenzka klósettpappfrs-
verksmiðja? Eru þeir ef til vill
farnir að höggva skóg á Hall-
ormsstöðum og nýta hann á þenn
an nytsama hátt?
Og að lokum: íslenzkur iðnaður
hefur tekið stórstígum framförum
á undanförnum árum. Með því
að styðja hann gerum við sjálf-
um okkur mest gagn. Það er út
f hött að láta erlend iðnaðarfyrir
tæki græða á okkur á meðan við
sveltum þau innlendu — ekki sizt
nú þegar íslenzku iðnaðarfyrir-
tækin hafa gert sér ljóst, að til-
gangslaust er að bjóða annað en
góða vöru. Við verðum að standa
saman í þessu sem öðru og berj-
ast öll á sömu vígstöðvum.
Gramur eiginmaður".
— Ekki veit Velvakandi, hvar
Skítblaðnir hf. er til húsa.
LESONAL BÍLALAKK
Lesonal bílalakk, grunnur og spartl. Litaval, lita-
b.öndun. Hagstætt verð. Póstsendum.
MÁLARABÚÐIN
Vesturgötu 21, sími 21600.
fjölbreytt úrval af gúmmí- og TH
vinnuvettlingum. VH
Ótrúlega hagstætt verð. ^SjSj
Sími 20000.
T:
Vack 5 Decka
MAÐUR FRÁ UMBOÐINU
MUN HAFA SÝNIKENNSLU
Á NOTKUN OC MEÐFERÐ
B/cckc Decken
VÉLA EFTIR HÁDECI í DAC
(FÖSTUDAC) í VERZLUNINNI
Málning & járnvörur
Laugavegi 23
Þrjátíu ára
afmælis Tennis- og badminton-
félags Reykjavíkur verður minnzt
með sameiginlegu borðhaldi í Átt-
hagasal Hótel Sögu, föstudaginn 14. marz kl. 19.00.
Dagskrá verður mjög fjölbreytt. — Dansað til kl. 2.00.
Miðar fást hjá Ragnari Haraldssyni sími 41980,
Magnúsi Elíassyni sími 19232 og á afgreiðslu Tímans,
Bankastræti 7.
Eldri og yngri féiagar eru hvattir til að mæta.
Til sölu:
Einbýlish. (vatnskl.) í Kóp. 2 stofur, 3
svefnh., eldh. og bað. Bílsk. Ræktuð
lóð. Mjög fallegt útsýni. Verð kr. 1
milljón. Útb. kr. 400—500 þús.
5 herb. íbúð við Háaleitisbr., 117 ferm.
Teppal. stigah. Vélar í þvottah.
Ný stór 2ja herb. kjallaraíbúð í Vestur-
borginni. Verð kr. 650 þús. Útb. 300 þús.
ÍBÚÐA-
SALAN
SÖLUMAÐUR:
GÍSLI ÓLAFSS.
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BÍÓl
SÍMl 12180.
HEIMASÍMI
83974.
5-6 herb. fokh. sérh. meS bilskúr í Kóp.
Útb. kr. 350 þús. á árinu. BeSiS eftir
láni húsnæðismálastjómar.
4 herb. íbúð í StóragerSi. i stofur, I
svefnh., eldh. og bað.
Hafnarfjörður:
4 herb. á 1 h. I tvibýlish. Sérinng., sér-
hiti, sérþvottah. Kr. 1090 þús. Útb. kr.
250—350 þús.