Morgunblaðið - 07.03.1969, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1»«®.
Motvöruverzlnn tO sölu
Kjöt- og nýlenduvöruverzlun í Reykjavík til sölu.
Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudag merkt:
„Trúnaðarmál — 2806“.
Iðnaðarhúsnœði
á jarðhæð um 1000—1200 ferm. að flatarmáli með
4ra—5 m. lofthæð óskast til kaups, eða byggingarlóð
fyrir slíkt hús. Tilboð, ásamt teikningu og uppl. lun
húsnæðið sendist skrifstofu vorri fyrir miðvikudag-
inn 12. marz n.k.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
KVÚLDKABARETT
Lionsklúbburinn Þór heldur kvöldkabarett
að Hótel Sögu n.k. sunnudag 9. marz.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 7.
Styrkjum gott málefni.
Lionsklúbburinn Þór.
Frú Lanciai hjálpar Iðunni, drengurinn mótar í Ieir, og Óli
horfir á.
Lanciai leiðbeinir
- UNCUM 5EM ÖLDNUM
„ÞANGAÐ liggur beinn og
breiður vegur“ .... syngjum
við, en það á því miður ekki
við hér, því að hérna eru
bæði hænsnastigar og rang-
alar, og ögn er leiðin krókótt
inn í vinnustofuna, þangað
sem förinni er heitið. (Úti
fyrir liggur hinsvegar hreitt
Kirkjustrætið með stórbygg-
ingar og sögufræg hús við
Austurvöllinn). En svo verður
heldur enginn óbarinn biskup.
Og barsmíðin fer fram í
fyrrverandi stássstofu baka
til á efri haeð í húsi númer 10
við Kirkjustræti hér í bæ.
Baráttan er háð á brautinni
til fram hjá sumum, til innri
gleði hjá öðrum og enn aðrir
vilja ekki viðurkenna þá sorg-
legu staðreynd, að þeir hreint
og beint hafi enga listamanns
hæfileika.
— Já, svona. þetta er fint,
bara halda áfram, segir bros-
andi og björt kona inni fyrir.
Hún mælir á sænska tungu,
og er hér komin til þess að
gleðja listunnendur, svala
þorsta lístrænna manna og
kvenna og ýta undir hæfileiká
fólksins. Hún er frú Lanciai,
sem er komin frá Gautaborg
á vegum frú Sigrúnar í
Kirkjumunum, og hefur stigið
inn á námskeiðin hennar til
að leiða áhúgafólk á rétta
braut listarinnar.
Frúin er myndhöggvari,
víðkunn fyrir list sína. Hefur
lengi dvalið í heimalandi
manns síns, Ítalíu, Suður-
Ameríku og mörgum fleiri
löndum heimsins, og hlotið
víða viðurkenningu og frama.
— Já svona, alltaf, að hafa
þennan þríhyrning í huga ..
Hún er að hjálpa Iðunni, sem
er að reyna að móta drenginn
sinn í leir, meðan hann situr
og mótar allskyns fígúrur í
leir sjálfur.
— Þessi þríhyrningur, og
hún bendir á gagnaugað • • • •
þessi hérna hann á alltaf að
vera á sama stað .... og hún
sýnir Iðunni, sem situr hljóð-
lát og námfús og miðar vel
áfram með snáðann. Það er
þröng á þingi, og allir vinna
og vinna, og eru lúsiðnir, en
misjafnlega hagir eða afkasta-
miklir, en vinnugleðin er það,
sem allt fólkið á sameiginlegt.
— Hey, elskling .... Allir
líta upp, kannski dálítið undr-
andi. Frú Lanciai hleypur
fram að dyrum, og faðmar, og
faðmar að sér dökkhærðan
mann sem stendur þar, og
brosir út undir eyru.
— Herra Lanciai er kom-
inn, allt í einu frá Gautaborg.
Hún hefur ekki átt von á hon-
um, en hann ætlar að vera
hér og halda upp á afmælið
sitt. Þau höfðu ekki sézt fyrr
en þarna nú, þótt hann hefði
komið í morgun. Hún hefur
átt svo annríkt við kennsluna.
Námskeiðin eru full, og kom-
ast færrf að en vilja. Hann
stendur stutt við, því að ekki
má tefja of lengi frá kennsl-
unni.
— Hvert fór hann frú
Lanciai, eigið þið eftir að
sjást?
— Ég veit ekkert hvert
hann fór. Hann hefur sjálf-
sagt farið eitthvað út að skoða
skemmtanalífið í bænum með
einhverjum kunningjum. Ég
sé hann einhverntíma aftur,
vona ég.
— Nú?
— Já. Við erum öll svona,
fjölskyldan. Börnin fjögur og
við hjónin — við erum kölluð
Lanciai sirkusinn heima í
Gautaborg. Circo Lanciai-
Opið til klukkon 10 í kvöld
BÓKAMARKAÐURINN
i Iðnskólahúsinu nýja við Skólavörðutorg
UTAVER
M22-24
1:30280-32262
Nœlonteppin
komin aftur
Verð pr. ferm. 270.— og 343.
Vönduð teppi. — Litaúrval.
BEZT að auglýsa í MORGUNBLAÐINU
m
VESTMANNAEYJAR!
VEST MANNAEYJAR!
ÞJÖÐMÁLAVERKEFNI NÆSTU ÁRA
SJÁVARUTVEGSMÁL
Laugardaginn 8. marz verður haldin ráðstefna um „Sjávarútvegsmál“ og hefst hún
kl. 15.00 í samkomuhúsinu.
Frummælandi: Matthías Bjamason, alþingismaður.
Sunnudaginn 9. marz verður haldinn ALMENNUR FULLTRÚARÁÐSFUNDUR Sjálf-
stæðisfélaganna í Vestmannaeyjum, þar sem Steinar Berg Björnsson mun halda '
erindi: „AFSTAÐA UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA TIL ÞJÓÐMÁLANNA.“
Fundurinn hefst kl. 16.00 í samkomuhúsinu.
Eyverjar F.U.S.
Samband ungra Sjálfstæðismanna