Morgunblaðið - 07.03.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1969.
19
Loðnan fryst fyrir
Japansmarkað
— 35 tonn á hvert frystihús
Vestmannaeyjum, 5. marz.
ANNAÐ árið í röð selja Is-
lendingar Japönum nokkurt
magn af frystri loðnu,' sem
síðan er sérverkuð í Japan.
I fyrra voru seld 500 tonn af
frystri loðnu, en í ár hefur
verið samið um sölu á 750
tonnum. Fyrsta loðnan var
fryst í Vestmannaeyjum sl.
mánudag, en þá var fyrsti
dagurinn, sem loðnan full-
nægði þeim skilyrðum, sem
sett eru í loðnukaupum Jap-
ana. Aðalákvæðin eru pau,
að yfir 50% af loðnumagninu
sé hrygna, og að Iágmark
20% af þyngd loðnunnar séu
hrogn.
Þar sem aðeins er um að
ræða 50 tonn ihefur magn á
hvert frystihús til frystingar
verfð takmarkað við 35 tonn.
Við spjölluðum stuttlega
við Stefán Runólfsson, verk-
stjóra í Fiskiðjunni í Vest-
mannaeyjum um loðnufryst-
ingu fyrir Japansmarkað.
— Hvað er mikið hrygnu
o.g hrognamagn í þessum afla,
sem þið frystið?
— Við höfum fylgzt mjög
vel með því undanfarna
daga, hvort loðnan fullnægði
þeim skilyrðum, sem þarf til
frystingar fyrir Japansmark-
a’ð. Það er fyrst núna, sem
loðnan er hæf fyrir þá fryst-
ingu, en hrygnumagnið er
um 70% af aflanum og
hrognamagnið er um 22%.
— Hvernig kannið þið þessi
skilyrði?
— Við fökum ákveðið
magn af loðnu, greinum í
sundur hæng og hrygnu, og
vigtum hvort fyrir sig. Síðan
tökum við hrogn úr einu kg.
af loðnu og vigtum þau. Með
þessu getum við séð hvort
fullnægjandi hráefni sé fyrir
hendi.
— Hvað er fryst í mörgum
húsum hér fyrir japanska
markaðinn?
— Það er fryst í fjórum
húsum, — 35 tonn á hús —
en ég tel mjög hæpið, að
skammta þetta svona, því að
t.d. bara bræla getur hamlað
því, að möguleiki sé á því að
ná í loðnu með fullnægjandi
skilyrði til vinnslu fyrir hin-
ar ýmsu verstöðvar. Ég tel
eðlilegast og öruggast að
frysta upp í þennan samning
sem fyrst, þar sem fullnægj-
andi loðna fæst á meðan hún
er til staðar.
Loðnan vigtuð í öskjur.
Frá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélogshótíðin 1969
verður haldin í Félagsheimili Kópavogs laugardaginn
9. marz kl. 19.
Miðasa’a í Kópavogsbíói frá kl. 16.30—-21.30.
Skemmtinefndin.
Sælgætisverzlun til sölu
Sælgæt.isverzlun á góðum stað í bænum er til sölu
nú þegar.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir hádegi á laugar-
dag merkt: „2786“.
FERMINCARGJAFIR
VERKFÆRI
í fjötbreyttu úrvali
Þjóðbúningu-
sýningu
uð Ijúku
Sýning á íslenzkum þjóðbún-
ingum, sem stendur yfir í Boga-
sal Þjóðminjasafnsins, hefur
verið mjög vel sótt af almenn-
ingi, og skólar notað sér það að
bekkir sem koma með kennur-
um fá frítt inn. — Síðastliðinn
sunnudag komu 500 manns á sýn
inguna og sunnudaginn þar á
undan 600 og þá ótalin börn og
skólafólk.
Nú er þessari sýningu að
ljúka, og ekki verður hægt að
framlengja henni vegna þess að
búið er að lofa salnum undir
annað strax á eftir. Er síðasti
sýningardagurinn á sunnudag,
en þeir sem ætla að sjá þessa
sýningu, ættu ekki að nauð-
synjalausu að bíða fram á síð-
asta dag, vegna mikillar aðsókn-
ar á sunnudögum og þá er mjög
þröngt í salnum.
Fjaðrir, fjaðrablöð, híjóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. - Sími 24180.
Hafnarfjörður — Noriurbær
Til sölu 2ja og 3ja herb. íbúðir 1 glæsilegu fjölbýlishúsi, sem byggt verður á mjög góðum stað
í nýja byggðahverfinu í hrauninu vestan Reykjavíkurvegar, — Norðurbænum. — íbúðirnar
seijast tilbúnar undir tréverk með öllu sameig inlegu rými fullfrágengnu og einnig utanhúss.
Teppi fylgja í stigahúsi og allar hurðir þar. Dyrasími. Sérhitastillir í hverju herbergi. —
Gengið frá lóðinni með túnþökum.
íbúðirnar eru með suðursvölum, og sérþvott ahúsi, sbr. teikningin. Sérgeymsla fyrir hverja
íbúð í kjallara, og sameiginleg barnavagnageymsla.
Stærð 2ja herb. íbúða um 64 ferm., og söluvérð kr. 640—650 þús.
Stærð 3ja herb. íbúð um 82 ferm., og soluverð kr. 800—830 þús.
Fyrsta greiðsla um kr. 100.000,00. Áætlaður afhendingartími á árinu 1970 eða síðar eftir
veitingu lána frá Húsnæöismálastjórn.
Teikningar eftir Kjartan Sveinsson. Traustur byggipgaraðili, Jón og Þorvaldur s/f.,
stendur að byggingu hússins. Vandaður frágangur.
ÁRNI GUNNLAUGSSON, hrl.
Austurgötu 10, Hafnarfirði,
sími 50764, kl. 9.30—12 og 1—5.