Morgunblaðið - 13.06.1969, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.06.1969, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 196# FRÉTTAMYNDIR Fremsti tennisleikari Astralíu, Bill Bowrey, varð fyrir óhappi um daginn í keppni við Lance Lumsden frá Jamaica. Þegar Bowrey ætlaði að fara að slá knöttinn, bro'.naði spaði hans, eins og mynd- in sýnir. Engu að síður sigraði Bowrey 6—3, 4—6 og 6—4. Páll páfi VI ávarpaði á þriðjudag fulltrúa á þingi alþjóða vinnu- málastofnunarinnar, I.L.O., í Genf. Var myndin tekin þegar páfi gekk i fundarsal. Otto Winzer, utanríkisráðherra Austur-Þýzkalands, var nýlega á ferð um Sýrland. Meðan hann var í Damaskus undirritaði hann ásamt dr. Mustapha Al-Sayyed, utanrikisráðherra Iandsins, samning, þar sem Sýrland veiiir Austur-Þýzkalandi fulla v iðurkenningu. Er Sýrland þriðja Arabaríkið, sem viðurkennir Austur-Þýzka land, hin eru írak og Súdan. Frá nýafstaðinni þingmannaheimsókn til Sovetnk janna. Myndin var tekin þegar íslenzka þing- mannanefndin lagði blómsveig að minnisvarða Lenins í Lenin-safninu í Moskvu. Fremst gengur Gils Guðmundsson og heldur á blómsveignum, en fyrir aftan hann koma þeir Birgir Finnsson, forseti Alþingis, og dr. Oddur Guðjónsson, sendiherra. (Fréttamynd frá Tass). Siðastliðinn sunnudag fórust Charles nokkur Bailey, kona hans og tíu böm þeirra hjóna, í eldsvoða í borginni Parkersburg í Vestur- Virginíu í Bandaríkjunum. Tvö barna þeirra komust af, Susan 15 áxa og Roger 13 ára, og sjást þau hér á myndinni. Nú hafa þau Susan og Roger verið sökuð um að hafa kveikt í húsi fjölskyld- unnar til að drepa föður sinn. Skýfall mikið varð í Colorado-riki i Bandaríkjunu m um siðustu helgi og fylgdi því gífurlegt haglél. Mynd þessi er frá borginni Denver og sýnir björg unarmenn koma að bifreið, sem er að sökkva í elg- inn. Óttazt var að einhverjir væru í bifreiðinni, og fóru froskmenn úr bátnum á eftir bifreiðinni niður í djúpið. Þótt um 40 bifreiðir hafi so kkið, fórst enginn þeirra, sem í þcim var.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.