Morgunblaðið - 13.06.1969, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.06.1969, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 19©9 25 - BÓKMENNTIR Framliald af bls. 17 sögðu þeir, það er ekki gott, segj- um heidur áætlunarbifreið. Þá hugsuðu gárungamir sem svo, að maður yrði hvort eð var strandaglópur í hvert skipti, sem hann ætti að geifla á þvílkri lang- loku. Væri þá skömminni skárra að hafa nokkra skemmtun af endaleysunni, og urðu þá til kringilyrði eins og: áætlunarsjálf- hreyfirennireið — og fleira af því- líku tagi, bráðfyndið. Þeir, sem fara með opinber málefni á islandi, virðast hafa tima til að segja og skrifa löng orð. Hæstaréttarmálafiutningsmaður — það er ekkert einsdæmi. Annað dæmi áþekkt. Hvort var hentara að segja utanríkismálaráðuneyti eða stutt og laggott: utanríkis- ráðuneyti? Sendiherrar á islandi báru fyrst nafnbótina: minister — á erlendu máli, hækkuðu svo upp ambassador. Hvað átti þá að kalla þá á íslenzku? Sendiráðherra — var upástunga einhvers. Gagn- fræðaskóli var þegar rótgróið orð í málinu, þegar einhverjum hug- kvæmdist bragarbótin: gagn- fræðastigsskóli. Er það ekki klárt og kvitt sagt þjóðaríþrótt íslenzk að klúðra saman löngum orðum? Áreiðanlega gætum við smíðað orð, sem — prentað með fyrir- sagnaletri — næði til tunglsins. ef við á annað borð freistuðum þess. Því island er vettvangur ný- gervinga og máltilrauna. Væri verðugt að rannsaka, hvaða og hverskonar nýyrði hafa haft i fullu tré við þær slettur, sem þeim var ætlað að kveða niður. Hvers vegna réð dráttarvél ekki við traktor. svo dæmi sé nefnt? Vegna þess. að lengri tíma tekur að segja fyrr talda orðið? Dragi kom of seint; traktorinn var þá búinn að vinna sér hefð. En svo eígum við líka nýyrði, sem eru hreint og beint afbragð: simi, þota, tengill, rofi . . . Sem nýyrðasmiðir hafa íslenzkir mál- fræðingar unnið bæði gott og illt starf og þó meira gott. En það haggar ekki þeirri stað- reynd, að íslenzkan er — með ýmiss konar löngum samsetning- um — gerð allt of óþjál, óljós og leiðinleg. Þannig er málið keyrt á móti straumi tímans með hliðsjón af, að öll málþróun hefur síðustu ár- þusundin stefnt til styttingar og einföldunar. Latínska orðið insula er t. d. orðið þrefalt styttra í frönsku, framborið íl. italska orðið influenza setur ekkert heimsmet í lengd. Samt hefur enskumæl- andi fólk ekki treystst til að not- ast við nema miðstykkið úr því: ftu. Enska orðið popular er hvorki langt né óþjálft, en þykir samt of langt í ræðu og riti og er því stytt í hið fræga: pop. islenzkan geldur þess, hve skamman tíma hún hefur verið ræktuð. i rauninni er hún forn- mál enn i dag; blæbrigðarik i skáldskap; einkar heppileg til að tjá ýmiss konar geðflækjur og hugrenningar; tiltölulega hrein af erlendum slettum, en þar með lika órafjarri nútimanum og stend- ur þvi klumsa frammi fyrír nýj- um hlutum. Málfræðingar áttu lengi nokkra sök á þessu. Þeir voru allir i fom- menntunum, kenndu málið eins og klassiskt bókmenntamál, lögðu ofurkapp á heiti. kenningar og gamalt heyvinnumál, en létu sem þeir vissu ekki af lífinu kringum sig. Og voru hreyknir af. Sé íslenzkan borin saman við ýmis erlend mál, kemur tvískinn- ungur hennar gerst í Ijós. Spyrj- um t. d. Englending um einhvern hlut, hvað kallaður sé á hans máli. Varla mun standa á svari. Það má vera bus, car, coach, jet; eða nýyrði eins og hovercraft og supersonic; eða hvað annað, sem er. Islendingi, sem spurður væri hins sama, mundi vefjast tunga um tönn. — Rúta, áætlunarbíll, áætlunarbifreið — hvað af þessu ætti hann að nefna, svo dæmi sé tekið? Hvort ætti hann heldur að segja líter og meter, eins og sagt er í daglegu tali, eða lítri og metri, eins og málfræðin kennir? Segi einhver i mjólkurbúð: ég ætla að fá einn lítra af mjólk — má búast við að stúlkan hvái: ætlarðu að fá einn líter eða fleiri lítra? mun hún þá segja með seimdreginni áherzlu á síðari at- kvæðum. Engum blöðum er um að fletta, að það er málfarslegt stefnuleysi, sem fyrst og fremst riður á slig nútima íslenzku, auk aflægishátt- ar og púkaháttar ýmissa þeirra, sem á annað borð hafa skoðun á hlutunum. Málið er óstýrilátt og lætur ekki að hvaða stjóm, sem er. Orðin halda áfram að heyja sina baráttu án íhlutunar málfræðinga. Aðeins geta þeir hjálpað til, eða spillt fyrir samkvæmt því, hvemig til tekst. Þá stendur íslenzkan að þvi leyti höllum fæti i samkeppni við tungumál nágranna okkar, að hún dragnast með beygingarend- ingar, sem mörg önnur mál hafa rækilega losað sig við. Því sjálfsaðara er þá að teygja hana ekki meir en nauðsyn krefur með óþörfum dratthölum Um beygingafræðina má svo að orði kveða, að hver hefur sinn djöful að draga eða engil að annast, allt eftir því, hvernig menn vilja hafa það. Kjósi menn að fleygja beygingarendingunum, þá það. En vilji þeir á hinn bóg- inn hatda þeim. hvemig skal þá læra þær nema sem beyginga- fræði? Þegar sagt er um nem- anda, að hann skuli ekki læra ís- lenzka málfræði, heldur málið sjálft, þá má eins segja um stúdent í læknisfræði. að hann skuli ekki læra efnafræði, heldur byrja strax að skera upp. — ★ — Sannarlega vantar okkur — í bland — bækur um „málið sjálft", svo stuðzt sé við endur- tekið orðalag. Tilraunir hafa að vísu verið gerðar í þá áttina og reynt að troða þeim inn á skólana — til að einhver græði peninga, að þvi er virðist, því höfundarnir, mikil ósköp — kannski hefur þá ekki vantað viljann, en menntun- ína og hæfileikana hefur þá til- finnanlega skort, svo mikið er víst. Til að fyrirbyggja, að slíkur og þvílikur skussaháttur vaði uppi um alia framtíð ættu hæfir menn og læiðir að endurskoða frá rót- um okkar latinsk-islenzku mál- fræði og semja svo nýjar og læsi- legar bækur handa þeim, sem vilja nema málið og — nota það af einhverju viti. Erlendur Jónsson. Bifreiðasala mjög vel staðsett við Miðborgina er til sölu. Þeir sem hefðu áhuga á að gefa sig í þetta starf hringi í síma 81848. Rellur lyrir 17. júni Tómstundabúðin Aðalstræti 8. Nemendasamband Menntaskólans i Reykjavík. Stúdentafagnaður nemendasambandsins verður haldinn að Hótel Sögu mánu- dagínn 16. júní 1969 og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Auk nýstúdenta hafa eftirtaldir júbílárgangar ráðið þátttöku sína: 25 ára stúdentar, 30 ára stúdentar og 45 ára stúdentar. Nokkrir aðgöngumiðar, sem afgangs eru, verða seldir í and- dyri Súlnasalar Hótel Sögu laugardag 14. júní kl. 16—18 og sunnudag 15. júní kl. 10—11 og einnig kl. 16. Þangað má og vitja pantana, sem ósóttar eru. AÐALFUNDUR nemendasambandsins verður haldinn að Hótel Sögu mánu- dagrnn 16. júní kl. 19.20. Venjuleg aðaffundarstörf. Tillögur um menn í stjórn sambandsins skulu hafa borizt Sigurði Lrndal. hæstaréttarritara, fonnanni stjómar, í síðasta lagi á hádegi laugardag 14. júní. Reikníngar sambandsins liggia frammi til sýnis hjá Þóri Einarssyni, viðskiptafræðngi, Iðnaðarmálastofnun íslands, gjaldkera stjórnar. STJÓRNIN. SKIPSTJÓRA vantar á nýtt 120 rúml. togskip. sem gert verður út frá Norðurlandi. Upplýsingar hjá Landssambandi ísl. útvegsmarrna. Í KVOLD ÍKl'OLD t KVÖLD í KVÚLO í KVÖLD mmmm SÚLNASALUR mm BJASIUASON OE HLJÓMSVEIT NÝTT - NÝTT - NÝTT - NÝTT BARBERSHOPKVARTETT. NÝSTÁRLEG FEGURÐARSAMKEPPNI. HUGSANAFLUTNINGUR. SÖNGUR, GRÍN OG GLEÐI Bovðpantanir í síma 20221 eítir kl. 4. Enginn sérstakur aðgangseyrir. Aðeins rúllugjald kr. 25.— Góða skemmtun Dansað til kl. 1. i HVOLI ) Í KVÖLI i i kvöli I i KVÖL 1 i KVOLÖ, HÆTTA A NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams JU5T A DARNED MINUTeX dan ny/... how can you TIE THE BEATINQ TO My DATE WITH BEBE BOTA = AND.,.yoU SAID SHE DIDN'T TASTE THE LAST BOTTLE OF WINE / you WERE SROGSy... SHE WASN'T/ DO I HAVE TO USE A _____ SKETCH- PAD 't/M £ AT THAT MOMENT, A FEW HUNDRED YARDS AWAY... IT'S HARD FOR A UEALOUS MAM TO MAKE PROMISE.5.BEBE .... BUT, FOR THIS INFOR- MATION,I'LL FAV yOUR PRICE'/ — Heyrðu andartak, Danny. Hvernig geturðu furníið samband milli barsmiðar- innar og stefnumóts míns við Bebe Bota? — Þú getur kallað það sektarlíkur, Troy. Þú varst barinn skammt frá hóeli hennar... — og þú segir að hún hafi ekki bragð- að á síðustu vinflöskunni! Þú varst ringl- aður ... hún ekki. Þarf ég að draga upp mynd á blað af þessu? — Á sama andartaki í nokkur hundruð metra f jartægð. — — Skiljum við hvort annað, Ernst. Ekki meira ofbeldi. — Það er erfi' t fyiir afbrýðisaman mann að veita lofo'ð. Bebe. En fyrir þess- ar upplýsingai skal ég borga það, sem þú setur upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.