Morgunblaðið - 06.07.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.07.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1©60 JACK HAWKINS: Missti röddina, en leikur samt London ap. Jack Hawkins gerir sér ekki vonir um, að ná fullu valdi yfir rödd sinni á ný, en þrátt fyrir það er h.ann ennþá með- al fremstu kvikmyndaleikara Breta. „Það má teljast gott, að ég skuli geta gert mig skiljanleg an við annað fólk“, segir Haw kins. Hann var skorinn upp við krabbamein í hálsi fyrir þrem ur árum, og barkinn tekinn. Hann talar nú með aðstoð hálsvöðvanna. „Þegar ég kom til meðvit- undar eftir aðgerðina, vissi ég, að ég yrði raddlaus ti] dauðadags“, sagði Hawkinis í viðtali. „Núna reynd ég að gera mig sikiljanlegan m-eð því að gleypa loft, hleypa því síðan hægt út aftur, og um leið tekst mér að mynda orð. Þetta hljómiar líkt og krunk og ég er hræddur um, að ekki tak- ist að bæta úr því. Eina ráð- ið er að reyna að sætta sig við orðinn hlut“. Leikari getur varla orðið fyrir alvarlegra áfalli en að missa röddina, þó hefur Haw- kins ékki látið bugast. Hamm var staðráðimn í að halda áfram starfi sínu og það hefur hon- um tékizt. Ura þessar mundir eru sýnd ar í London þrjár kvikmynd- Eftir Glenn Goodey ir, sem hann hefur leikið í eft- ir uppskurðinin. Þær eru: „Kat rín mikla“, þar sem hanm leik ur brezka sendiherrainin við >hirð Katrínr, „Shalako", brezk kúrekamynd og „Þetta er indælt stríð“ undir stjórn Richards Attenborougb's. „Þetta eru allt persónur, sem framkvæma margt, en segja fátt“ segir Hawkins til skýr- ingar. Það litla sem talað er, tala aðrir fyrir hamn, en hanm leikur jafnvel betur en áður. Hawkirus er 58 ára. Fimm ár um áður en hamm var skor- inn upp vissi hanm, að rödd hans var að bila. „Ég vissi, að endirinm yrði sá, að ég missti röddina", segir hamm og held- ur áfram, „Þegar mér varð þetta ljóst, tók ég að mér öll hlutverk, sem buðust og reyndi að vinna eins mikið og ég gat, því að ég hef fyrir stórri fjöl- Skyldu að sjá. (Hawkins og kona hans eiga þrjú börn.) Mörg hlutverkin voru þanm- ig, að ég hefði ek'ki þegið þau undir venjulegum kring- uimistæðum, en nú var um að gera að safna eins miklu fé og mögule-gt var. Ég var nefni- lega viss um, að ég gæti ekk- ert unnið eftir uppskurðinn". Hann heldur áfram: „Ég er mjög þakklátur kvikmynda- framleiðemdunum fyrir að halda afram að bjóða mér vinnu. Ég held að það sé ekki af meðaumkum, ef ég héldi Jack Hawkins í hlutverki brezka sendiherrans í kvikmynd inni „Katrín mikla“. Þetta var fyrsta hlutverk hans eftir að barkinn var tekinn úr honum vegna krabbameins. það, hætti ég þegar í stað. En kvibmyndir eru dýr fyrirtæki. og þar er ekkert rúm fyrir meðaumkun." Hawkins er nú að leika hlutverk brezks hershöfðingja í kvikmynd um orrustuna við Waterloo. „Þegar einhver býður mér hlutverk," heldur hanin áfram, „segi ég honium allan sanrn- leikamn. Það er mjög erfitt fyr ir leikara og tæknimenn að vinma með manini sem á erfitt með að gera sig Skiljanlegan“. Hawkins hóf leiklistarferil sinn á barmsaldri, og tókst að halda frægðinni eftir að fram á fullorðinsárin kom. Þegar hanm var 18 ára, fékk hanm góð hlutverk í leikhúsum í London og 1929 lék hann með Laurence Oliver. Hann tók að leita fyrir sér um kvifcmynda hlutverk, og ekki leið á lömgu þar til homum buðust aðalhlut verk. Hann gegndi herþjón- ustu í síðari heimsstyrjöldinmi, en vanm flest stríðsárin við að skipuleggja skemmtanir fyrir hermemn í Austurlöndum. Þeg ar hann komst að raun um, að hanm var með krabbamein í hálsi, var harnn meðal fræg- ustu leikara Bretlands. „Ég get verið þakklátur fyr ir hve snemma uppgötvaðist hvað að mér gekk. Ég var skor imn upp áður en krabbamein- ið var komið út í eitlana og þess vegna er ég emn á lífi“. Stensil og offset fjölritun GESTETIMER fjölritarar eru sérstaklega smíðaðir fyrir hraða og ódýra fjölritun á viðskiptaeyðublöðum. verzlunarbréfum og myndalistum í svart/hvítu eða lit. Einnig alls konar prófverkefnum og bæklingum til kennslu. GESTETIMER fjölritarana getið þér séð á sýningunni NORDIDAKT í nýja Iðnskólanum, Skólavörðuholti. Opið frá kl. 10 árdegis til kl. 6 síðdegis. GESTETNER-umboðið býður yður velkomin. SKRIFSTOFUÁHÖLD Skúlagötu 63 Sími 23188

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.