Morgunblaðið - 20.08.1969, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.08.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1969 > Hverfiscötu 103. Sími eftir lokun 31160. MAGINIÚSAR I itaPHom 21 simar2U90 I__eftir loltun >lml 40381 | 6ÍLALEIGAN FALURhf car rental service © 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. 4 - 5 - 6 og 8 feta RÖR og BRAUTIR fyrir fatahengi LUDVIG STORR Laugavegi 15, sími 1-33-33. BILAR 1967 FORD FALCON FUTURA eikirm 28 þ. km, 2ja dyna. 1967 PLYMOUTH VALIANT ek- ino 27 þ. krn, 2ja dyra. 1966 PEUGEOT 404 ekinn 60 þ. kítómetra. 1968 SKODA 1O0O-M-B nýr og óskráður, óverrju hagstæð lán. 1966 VOIKSWAGEN 1300 hvítur Útborgun aðeins 80 þús. 1968 V.W. 1600 FAST BACK 1965 MUSTANG sjátfs-kiptuir. 1968 FIAT BERLINA 125 e-kirvn 11 þ. km. Skipti og mjög hag- staeð lán. 1955 TAUNUS 15 2ja dyra, ek- in-n 20 þ. km. Ei-n-stak-ur bí-W. 1968 SCOUT JEPPI rík-ma-nn-teg klæðni-n-g. Skipti á dýrum fóiksbíl. 1968 DODGE sendibíl-l m/glugg- x um. JEPPAR ben-sín og dísi-l. Sé bíflHnn ski-iinn eftit hjá ok-kur, þá er möguierki á því að 14.900 mann-s sjái ban-n. En sá fjökfi fer u-m Skúiagötu dagfega. ■11 Hj | BÍLASALAN ntl Hl Skúlagata 40 við Hafnarbíó. S. 15014 - 19181. 0 Hundahald — já eða nei Deilan um það, hvort leyfa eigi hundahald i Reykjavík og kaup- stöðum almennt, hefur orðið mörgum hvatning til bréfaskrifta. Velvakandi minnist þess ekki, að jafnmörg bréf hafi borizt um neitt mál, þegar sjónvarpsmálið (um Keflavíkursjónvarpið) er undan skilið. Við lauslega taln- ingu á bréfum í bréfahrúgunni á borði Velvakanda virðast 28 ó- birt bréf, sem fjalla ýmist ein- göngu eða aðallega um hunda- haldið, vera í hrúgunni. Af þeim eru 22 á móti hundahaldi, en 6 með, 2 þó með ströngum fyrir- vara. Velvakandi hefur reynt að vera hlutlaus í deilunni, en þar sem mun fleiri bréf hafa borizt gegn hundahaldinu en með, get- ur varla farið hjá því, að hunda- haldsandstæðingar hafi fengið birt aðeins fleiri bréf, — tveimur eða þremur. Hins vegar vill svo til, að Velvakandi hefur fengið skammabréf frá hundahaldsand- stæðingi fyrir að draga taum hundahaldsmeðhaldsmanna, en það getur varla verið rétt . Án þess að taka hreina af- stöðu í málinu, hyggur Velvak- andi, að ekki sé tímabært að sinni að leyfa hundahald í Reykjavík. Þessa skoðun sína byggir hann aðeins og einfaldlega á því, að svo mörg bréf (og alltof mörg of stækisfull) hafa borizt honum frá harðvítugum andstæðingum hundahalds, að hann álítur, að yrði hundahald leyft (jafnvel með öllum takmörkimum, sem aldrei yrði hægt að framfylgja nema að nokkru leyti), myndi það orsaka svo mikla óvild og jafnvel hatur meiri hluta íbú- anna í garð vesalings hundanna og eigenda þeirra, að hvorugum yrði vært fyrir áreitni, stríðni og hvers kyns ögrunum og mótlæti. Þess vegna: Leggjum málið í salt, borgarar góðir. Hitt kostar pipar í augun. 0 Fagmenn og fúskarar í veitingamannastétt Jón Mariasson, formaður Fé- lags framreiðslumanna, skrifar: ,4 Velvakanda 9. ágúst s. 1. var birt bréf frá einhverjum G.G.B. og fyrirsögnin var „Kvartað imd an skorti á kurteisi, hreinlæti og þjónustu“. Þeir, sem vinna að framreiðslu í veitingahúsinn, nefna stétt sína framreiðslumenn. Ég ætla ekki að afsaka neitt, sem þarna segir. En ég vil taka það fram, að I Hótel Valhöll er enginn faglærður fram reiðslumaður starfandi eða full- gildur meðlimur félags okkar. Þannig er mál með vexti, að fúskarar í veitingamannastétt vilja helzt ekki hafa annað en A Melunum Á góðum stað á Melunum er til sölu rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í 3ja íbúða húsi. Afhendist nú þegar tilbúin undir tréverk og húsið fullgert að utan. Stórir suðurgluggar, sérinngangur, sérhitaveita. Teikning á skrifstofunni. ARNI STEFANSSON, HRL., Málflutningur, fasteignasala, Suðurgötu 4. Sími 14314. Kvöldsimi 34231. Lóðir til sölu Tilboð óskast i tvær lóðir undir parhús og tvær lóðir undir einbýlishús á sunnanverðu Seltjarnarnesi, rétt við mörkin milii Reykjavíkur og Seltjarnarness. Lóðimar seljast ein og ein eða saman. Fiestar lóðimar eru strandlóðir. Skipulags- uppdrættir eru til sýnis á skrifstofunni. ARNI stefAnsson, hrl., Málflutningur, fasteignasala, Suðurgötu 4. Simi 14314. Kvöldsimi 34231. SOMVYL DÚKURINN KOMINN, ALLIR LITIR ófaglært fólk í þjónustu sinni. Það eru ráðnar stúlkur til fram- reiðslustarfa. Þær eni klæddar i svax-tan kjól og hvita svuntu og sendar fram í sal til að fram- kvæma störf, sem vafasamt er, hvort þær kunna. Síðan verður gesturinn fyrir barðinu á þessu fólki og fær misjafnar móttökur, en vegna þessa liggur fram- reiðslumannastéttin undir ámæli. Sannleikurinn er sá, að hótel- stjórinn ræður fólk upp á kaup, en hirðir þjónustugjaldið sjálfur. Fiiskarar vilja ekki hafa faglært fólk i vinnu hjá sér, því að þá kemst e.t.v. upp, að þeir kunna ekki mikið sjálfir. Fólkið segist hafa kvartað við hótelstjóra, og eina svarið, sem það fékk, var orðið: „Nú“. Ætti það opinbera að fylgjast betur með, að lögum um veitinga- og gistihúsahald sé framfylgt. Það er ástæðulaust fyr ir framreiðslumannastéttina að taka á sig ámæli, sem aðrir bera ábyrgð á. Svo væri ekki úr vegi, að hið opinbera léti sig 9. gr. áfengislaga nokkru skipta, ef efni þykja gefast til. Reykjavík, 14. ágúst 1969, fh.. stjórnar Félags framreiðslumanna, Jón Maríasson formaður.“ 0 And-spíritistar trúa Iíka á annað lif „Einn, sem er á móti kukli“, skrifar: „Kæri Velvakandi! Tuttugu og átta ára gömul stxilka, sem misst hefur unnusta sinn, skrifar þér mjög persónu- legt bréf. Kveður hún sig hafa sannfærzt um tilveru annars lífs með lestri spíritistarita, án þess að hafa nokkru sinni „farið á fund“ hjá andatx-úarmönnum til þess að reyna að sannprófa það, með því að láta særa anda hins látna fram. Það skiptir kannski ekki öllu máli, hvernig menn öðl ast fullvissu um framhaldslífið, og sízt vildi ég meiða tilfinning- ar stúlkunnar, en mér finnst að leiðin til sannfæringar gegnum lestur áróðursbóka andatrúar- kuklara hljóti að vera nokkuð krókótt og flestum villugjörn. Hvemig sem á þetta er litið, bannar biblían okkur að hafa í frammi kukl og særingar til þess að seiða anda framliðinna á fund okkar. Orðin eru skýr þar um. En mig langar til þess að leið- rétta einkennilegan misskilning, sem kemur fram í niðurlagi bréfs stúlkunnar, þar sem hún spyr, hvers vegna við, sem aðhyllumst ekki spíritisma, viljum taka tx-úna á framhaldslifið af fólki. Þetta viljum við alls ekki. Auð- vitað trúum við á annað lif jafn- staðfastlega og andatrúarfólk. Framhaldslífið er okkur hrein fullvissa, — við þurfum einmitt ekki að leita „sannana" á fund- um í þessu lífi, eins og spíritist- ar. Okkar trú á annað líf er sterkari en svo. Ég held ein- mitt að þeir sem heimta „sann- anir“ hérna megin séu miklu ó- öruggari í trúnni en við. Við lát- um okkur nægja opinberun guðs orðs í biblíunni og trúai-sannfær- ingu hjartna okkar, sem er svo djúpt meitluð í sálarlífið, að við þurfum ekki á neinni gervisönn- un á draugasamkundum að halda. Guð hefur ekki ætlazt til þess, að neitt samneyti sé milli lifenda og dauðra, og við eigum ekki í trúleysi okkar eða trúar- veikleika, að reyna að búa okk- ur til veraldlegar „sannanir". Ég er ekki að segja, að við sé- um neitt heilagari en þeir, sem þurfa á andatrúaropinberunum að halda til þess að styrkja sig í trúnni, (sem hlýtur að vera veik), en alla vega er trú okkar einlægari og hreinni. Guðs orð nægir okkur, — framsæring fram- liðinna hefur þar engu við að bæta. Einn, sem er á móti kukli“. CUR & LISTAIÍ hf. HÖFUM FLUTT AÐ SKÚLATÚNI 6 — SlMI 12155. Lokuð vegnn juiðurfarar miðvikudaginn 20. ágúst. RAKARASTOFA Jóns og Sigga við Laugarnesveg. Skrilstofustúlka óskost æskileg reynsla í vélabókhaldi. Umsóknir ásamt meðmælum sendist Morgunblaðinu fyrir 23. þ. m. merktar: „Skrifstofu- stúlka 8504". ÍBÚÐ ÓSKAST Ungur læknir, ókvæntur, óskar að taka á leigu góða íbúð um 100 ferm. — Upplýsingar í síma 19272.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.