Morgunblaðið - 21.08.1969, Síða 4

Morgunblaðið - 21.08.1969, Síða 4
MORGUNiBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1909 smá-stundarsakir, þegar loksins verður farið að byggja þama, en fyrr ekki. (Sleppt úr). Með vinsemd og virðingu fyrir Velvakanda og borgaryfirvöld ur blaðamönnunum rétta merk- ingu eins algengasta sagnorðs I íslenzku? Bokki“. 0 „Ein fróm ósk til sjón- Hvérfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. MAGIMÚSAR 4K1PHOLTI21 SÍMAR2U90 eftirlðkuti slmi 40381 B(LALEIGANFALURh/f carrental service © 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31, LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastrætí 13. Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. LOFTUR H.F. LJÓ3MYNDASTOTA íngólfsstræti 6. Pantið tíma í síma 14772. FÉLAGSLÍF FARFUGLAR — FERÐAMENN Ferð í Hrafntinousker um næstu bekji. Farmiðasate í skrrfstofunoii, Laufásveg 41, mi'H'i kl. 8.30 og 10 á kvöld- ►n, sími 24950. Farfugla r. DAGENITE RAFCEYMAR 6 og 12 volt fyrir benzín eða dísílvélar Garðar Gíslason h.f. bifreiðaverzlun 0 Stíflan í Aðalstræti „Civis Beiciavicensis" skrifar: „Velvakandi góður! Nú er einkennilegt um að lit- ast á hinni fornu sjávargötu fyrsta bóndans í Reykjavík, Ing ólfs Arnarsonar, og er ég viss um, að hún hefur ekki verið jafn ógreiðfær frá árinu 874, að minnsta kosti. Ingólfur útvegs- bóndi og landnámsmaður hefur áreiðanlega viljað hafa sjávar- götu sína greiðfæra fyrir 1095 ár- um. Hann hefur sjálfsagt sett stiklur yfir keldur og vilpur, en rutt eggjagrjóti úr vegi. Kn nú bregður öðru við. Okkar ágæta og dugmikla borgarstjóm leyfir að láta stífla götuna til hálfs, þó ekki vegna gatnagerðar, heldur vegna hÚ9byggingar, sem ekki er einu sinni hafin. Nú er ég allur með þvi, að byggt verði stórt og fallegt hús austan Aðalstrætis (með því skil yrði þó, að það verði meiri bæj- arprýði en húskálfs-ófjetið suður úr Landsímahúsinu og byggist ekki út yfir okkar gamla kirkju- garð, bæjarfógetagarðinn). Vera má, að vegna þeirrar smíðar þurfi að loka Aðalstræti um sinn að öllu eða hálfu leyti, þegar þar að kemur. Kn það er bara ekki komið að því! Kkkert er unnið í húsgrunninum, og það er alveg ástæðulaust að stífla Aðal- stræti að hálfu, meðan svo er. Þetta er svo mikilvæg samgönguæð, að henni má alls ekki loka, nema fulla nauðsyn beri til. Sú nauð- syn er ekki fyrir hendi, eins og nú er. Þessi ógeðslega girðing út í miðja götu, sem er til trafala allri umferð um miðbæinn og út heimtir einstefnu-umferð um Að- alstræti, hefur ekkert við sig, sem réttlætir hana, og því á hún að fara. Spyrjið bílstjórt og fólk, sem vinnur eða býr þama í grennd. Allir eru á móti henni, enda sér enginn nokkra skyn- samlega ástæðu fyrir tilveru henn ar. Hins vegar má hún koma um Atvinna óskast Ungur maður með góða, alhliða reynslu f innflutnings- og sölustörfum (heima og erlendis), enskum bréfaskriftum og öðru er að skrifstofustörfum lýtur, óskar eftir atvinnu sem fyrst. Nákvæmni og vandvirkni í hávegum höfð. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins sem fyrst, merkt: „Areiðanlegur — 3751". íbúð óskast tíl leigu 4ra—5 herbergja íbúð óskast til leigu, helzt til tveggja eða þriggja ára. Tilboð merkt: „3804" sendist blaðinu sem fyrst. Sendiferðabíll Til sölu er Commer-sendiferðabíll, árgerð 1966 Selst ódýrt. SÍLD OG FISKUR. Sandblástur Stórt iðnaðarfyrirtæki óskar eftir að ráða mann vanan sand- blæstri, sem jafnframt gæti tekið að sér verkstjórn. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé heilsuhraustur og reglusamur. Um fr3mtíðarstarf gæti verið að ræða. Upplýsingar um afdur og fyrri störf sendist afgreiðslu Morgun- blaðsins merktar: „Sandblástur 3528" fyrir þriðjudagskvöld. um, Civis Reiclavicensis“. 0 Hvað þýðir sagnorðið „að mega“? „Bokki“ sendir eftirfarandi bréf: „Velvakandi! J. Ó. P. sendir þér bréf um daginn og taldi árangurinn af blaðamannaskólanum svokallaða ekki nógu góðan. Mig langar til þess að minnast á eitt atriði, sem gleymzt hefur að kenna. Það er merking sagnarinnar „að mega“. Um síðastliðin aldamót kvart- aði Benedikt skáld Gröndal und an því, hve margir Reykvíkingar notuðu sögnina „að mega“ í danskri merkingu, en ekki ís- lenzkri, þ.e. í dönsku merking- unni „að verða“, „neyðast til“. Þegar ég las ummæli hans, í kringum 1938, var þessi dönsku- lega notkun sagnorðsins ekki lengur til í mæltu máli í Reykja- vík, og man ég, að ég var að hugsa um, hve þessi dönsku- sletta hefði horfið tiltölulega fljótt úr tungutaki fólks. Kn nú á allra-seinustu árum bregður svo við, að ég er að rekast á þessa vitleysu hvað eftir annað í blöð um og því oftar sem á líður. Að- allega er þetta í kjaftasögudálk- um blaðanna, sem virðast vera „þýddir" umhugsunarlaust upp úr lélegustu slúðurdálkum er- lendra sorpblaða. Kn þetta er farið að breiðast út fyrir það. Til dæmis er þessi merkingar- brenglun tvívegis á forsíðu Vísis síðastliðinn mánudag í innlendum fréttum. Sagt er um fallhlífar- mann: „Hann mátti því svífa stjórnlaust 2600 fet“. (Hver leyfði honum það? Og af hverju fet, en ekki metra?) Sagt er um bruna á Hólum í Hjaltadal: „ ... og heimafólkið mátti bera vatn í föt um á eldinn". — Hver var svo almennilegur að leyfa fólkinu það? í fyrra dæminu átti að segja á venjulegri íslenzku: „Hann varð því ...“, eða „neyddist því til“, — (hægt er að umorða þetta á fleiri vegu). Var ekki hægt að kenna ykk- varpsins“ Ofanprentaða fyrirsögn setur „Samherji" bréfi sínu, sem hér fer á eftir. Vonar Velvakandi, að það birtist ekki of seint. Herra Velvakandi! Mig langar til að biðja þig að koma ósk á framfæri fyrir mig til hinna ágætu sjónvarpsmanna. Ég geri ráð fyrir því, að sjónvarpið muni á einhvem hátt minnast árs afmælis innrásarinnar i Tékkósló vakíu. Reyndar mun sá dagur koma upp á fimmtudaginn 21. þ.m., og því ekki sjónvarpsdagur. Það yrði þá að líkindum daginn eftir. Ég vil taka fram, að mér finnst sjónvarpið yfirleitt reka sína fréttaþjónustu vel og hlutlaust, og á því byggist ósk mín, en hún er þessi: Að loknum þeim fréttum, sem kunna að berast frá Tékkósló- vakíu sjálfri og — eða annars staðar frá vegna afmælisins, verði haft viðtal við nokkra málsmet- andi menn hér heima og leitað álits þeirra um þá framvindu, er mál þetta hefur haft á árinu. Sérstaklega verði þó talað við hina sömu og leiddir voru fram fyrir „skerminn" fyrir ári, og jafnvel einhverjar þær konur, sem sátu Friðarþingið í Austur-Berlín fyrir skömmu. Kr þetta hefur far ið fram, mælist ég eindregið til að sýndar verði myndir frá inn- rásinni og endurtekin viðtölin frá því í fyrra. Þar vil ég þó sérstaklega benda á formann ís- lenzk-Tékkneska félagsins, eða hvað það heitir og mjög æskilegt væri eí hann bæri fram í nafni félagsins einhvers konar ávarp frá því eða þakkargjörð, eftir því sem efni standa til. Auk þess beina fréttagildis, sem slíkt hefði, gæti það vísað mér og öðr um pólitískt villuráfandi sálum veginn, og skýrt hvort þarna muni ekki að finna lausn þess þjóð félagsvanda, er við íslendingar og aðrar þjóðir hafa við að glíma og hvoi-t þarna muni ekki að finna það þjóðfélagsform, er við ÖU í bróðerni gætum sætt okkur við? — Samherji". Sölumaður sem hefur bíl óskast til að selja þekktar tegundir af heimilis- tækjum (sjónvarpstæki, útvarpstæki, kæliskápa, frystikistur, eldavélar og fleiri rafmagnsvörur) á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi í september og október. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 24. ágúst merkt: „Áreið- anlegur 3549". Vönduð 5 herbergja íbúð rúmgóð og sólrík með svölum móti suðri, er til leigu á «ár- lega góðum stað í Austurborginni. Tilboð merkt: „Sólrík 3546" sendist Morgunblaðinu fyrir há- degi laugardaginn 23. þ. m. OK hf. — Steypustöð Fyrsta steypustöð landsins. sem útbúin er hinum viðurkenndu Gyramixer-þvingunarblandara, er hrærir steypuna i stöðinni og eykur þar með gæði hennar að miklum mun. Hægt er að afgreiða hrærða steypu á venjulegan vörubílspall, eða annað flutningatæki. Höfum 1. flokks byggingakrana fyrir smærri og stærri verk. Eingöngu er steypt úr viðurkenndum efnum úr Njarðvíkum. Reynið viðskiptin — fljót og góð afgreiðsla. OK H.F., STEYPUSTÖÐ, Dalshrauni 13—15, HafnarfirtJi. Sími 52812. Skrifstofa Bolholti 4, sími 83840. Nýtt veitingahús Af sérstökum ástæðum er til sölu nýtt steinhús um 130 ferm, hæð og jarðhæð. um 50 ferm, í Stykkishólmi. f húsinu er veitingarekstur, sælgætis- og tóbakssala, íbúð og fleira. Til greina koma skipti á góðri 3ja herbergja íbúð í nágrenni Reykjavíkur, t. d. á Seltjarnarnesi eða í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar gefur NÝJA FASTEIGNASALAN, Laugavegi 12. Simi 24300.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.