Morgunblaðið - 04.11.1969, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1969
- Greinargerð
Framhald af bls. 12
máli. Athyglisverðari er sú stað
reynd, að lónið hlýtur að geyma
kulda frá vetrinum fram á sum-
ar, svo að laxagöngtnm gæti
seinkað að mikluim mun til stór
tjóns fyrir veiðiréttareigendur,
en vöxtur alls fisks í ánni yrði
þeim mun hægari yfir sumarið,
sem hitastigið er iægra. Helgi
Hallgrímsson og fleiri náttúru-
fræðingar hafa bent á, að við
rotnun siýs, jurtagróðurs og
gróðurmoldar af mörgum feT-
kUómetrum algróins lands, geti
myndazt mikil eiturefni í lón-
inu, með stórhættulegum og ó-
fyrirsjáanlegum afleiðingum fyr
ir allt dýralíf í ánni, allt til
sjávar.
MÝVATN OG KRÁKÁ —
SUÐURÁ OG SVARTÁRVATN
Laxárvirkjunarstjórn heldur
því fram, að hin svokallaða Suð
urárveita sé skaðlaus fyrir Mý-
vatnssveit, jafnvel að hún verði
til bóta. Mývetningar eru á ann
arri skoðun, og má þar vitna til
skjalfestra mótmæla þeirra, sem
send hafa verið alþingismönnum
kjördæmisins. Einnig má vitna
td álátsgjörðar stjómar Búnað-
arfélags íslands, en þar segir,
að 18 lögbýli muni vera í hættu,
ef af þessum vatnsflutningum
verði. Að okkax dómi verður
vart búið á flestum þessara býla
eftir vatnsflutningana.
Verkfræðingur Laxárvirkjun-
arstjórnar í þessu máli (Sig.
Th.) var þráspurður að því,
hvernig hugsað væri að hemja
þetta aukna vatn í farveginum,
en hann neitaði að gefa nokkr-
ar upplýsingar þar að lútandi og
sagði það ekki koma nefndinni
við.
Þarna er um að ræða allt að
10 km leið um marflatt land,
hallinn ca 30—40 cm pr. km, og
íarvegur Krákár jafnan bakka-
fullur við eðlilegt rennslismagn.
Laxárvirkjunarstjórn segir, að
þarna sé aðeins spurning um
kostnað. En hvers vegna má
ekki skýra frá því, hvernig þessi
vatnsflutningur um láglendið er
fyrirhugaður? Botn árinnar er
víðast hvar hærri en landið i
kring, þegar blábakkanum
sleppir, enda flæðir áin yfir allt
þetta land á vetrum og myndar
1—3 m þykkt íslag yfir allt
sléttlendið. Getur Þá hver og
einn gert 3ér í hugarlund hvað
sú íshella yrði umfangsmikil, eft
ir að vatnsmagn Svartár og Suð
urár yrði komið til viðbótar.
Virkjunarstjórn talar nú um 16
rúmmetra viðauka vatns, og er
það ekki lítið vatnsmagn, en í
viðtali við Sigurð Thoroddsen
sd. vetur, taldi hann nauðsyn-
legt að fá 23 rúmmetra til að
fulinýta virkjun við Brúar. Þeg-
ar þess er gætt, að skurðinum
úr Suðurá í Svartárvatn er ætl-
að að flytja 17 rúmmetra og allt
venjulegt afrennsli Svartárvatns
kemur svo til viðbótar, er sýnt,
að ekki e<r gott að treysta þess-
um töLum.
Á HÚSÖNDIN AÐ FYLGJA
GEIRFUGLINUM?
En þetta er ekki eina hætt-
an, sem Mývatnssveit getur staf
að af þessum hættulegu vatns-
flutningum frá vatnasvæði
Skjálfandafljóts. Mývatn sjálft,
þessi fuglaparadís og gimsteinn
íslenzkrar náttúru, er líka í stór
kostlegri hættu, sökum hins
kalda, aðflutta vatns og aukins
sandburðar. Augljóst er, að hin-
um nýja vatnsflaumi er stefnt
til Mývatns, til þess að hægt
verði að niýta það síðar í nýja
virkjun úr Mývatni, enda síð-
asta s.tig allra þessara umbrota
nefnt „Mývatnsvirkjun". Það ó-
happaverk mundi þá reka smiðs
höggið á þessar, að því er virð-
iist, vanhugsuðu ráðagerðir.
Við viljum minna á, að upp-
eldisstöðvar húsandarinnar eru
við Mývatnsósa og niður Lax-
árdal — þær einu í Evrópu.
Yrði Suðunárveitu beint í Laxá,
mundu þær verða eyðilagðar
samkvæmt álitsgerð Arnþórs
Garðarssonar, fuglafræðings. Ör
lög húsandarinnar yrðu þá hin
sömu og geirfuglsins forðum, sem
íslendingum var til lítils sóma.
5 AURA VIRKJUN SUÐURÁR
Bollaleggingar um 5 aura verð
á Suðurárveitu-rafm.agninu verða
ekki teknar alvarlega, eða á Suð
urárveita ekki að taka þátt í
kostnaði sjálfr.ar virkjunarinnar
við Brúar. vélum, jarðgöngum
og sfiflugerð? Þarna er um hald
lausa og villandi fullyrðingar
að ræða, þar sem ekki er tekið
tillit til margra þátta, sem hljóta
að koma til útgjalda og gera
veituna miklu óhagstæðari en
látið er í veðri vaka. Má þar
nefna allar skaðabætur vegna
eignaupptöku og margvíslegra
skemmda. Við æskjum þess
vissu'lega, að sem ódýrastiriar
raforku verði aflað fyrir þetta
svæði, en það má þó ekki verða
á óbætanlegan kostnað náttúru
verðmæta í héraðinu, og það
verður að reikna dæmið til ful'ls.
Gera hefði átt samanburðarr.ann
sóknir á sem flestum virkjunar-
möguleikum, áður en endanlegar
áætlanir voru gerðar, svo að
ljóst væri, hvort ekki mætti fá
jafn hagkvæma virkjun án
þeirrar röskunar, sem Gljúfur-
versvirkjun mun valda.
SKJÁLFANDAFLJÓT
Sá þáttur þessara mála, er
snýr að Skjálfandafljóti, er með
ölliu sniðgenginn í greinargierð-
inn.i. Hverjar voru niðurstöður
„hinna færustu sérfræðinga“?
Getur hugsazt, að þeir hafi
gleymt þessum þætti málanna?
Fjöldi bænda í fjórum sveit-
arfélögum eiga land að fljótinu,
og hefur veiði verið stunduð í
þvi öldum saman, misjafmlega
mikið að vísu, en þó verður að
teija, að þar sé um veruleg verð
mæti að ræða. Bændur þar hafa
lengi eygt möguleika á að auka
þessa veiði verulega með fisfci-
rækt og fiskvegi upp fyrir foss
ana og nálgast nú óðum sá tími,
að úr þessu verði. Slíkur fisk-
vegur mun vera mjög ódýr mið
að við það svæði, sem þá opn-
ast, þ.e. fremst fram í Bárðar-
dal. Hvað verður um þessa fram
kvæmd, og hvað um þann lax
og silung, sem fyrir &r í fljót-
iniu, ef megin hluti tæra vatns-
ins verður tekinn úr því? Þeir,
sem til þekkja, vita, að veiðin
er háð því hversu tært fljótið er,
þ.e.a.s. hve hlutur bergvatnsinis
er mi'kill.
Vatnaflutningar, ein.s og fyrir-
hugaðir eru á Suðurá og Svartá,
hafa hér aldrei verið fram-
kvæmdir. Áhr.if þeixra geta oð-
ið fjölþætt. Bárðdælingar benda
t.d. á hver áhrif það getur haft
á snjóalög í dalnum, ef Fljótið
verður á ís allian vetiuiriinini, eimis
og líklegt er að verði, þegar
lindarvatnið hverfur, en frá ósi
Svartár helzt Fljótið að jafnaði
autt niður eftir dalnum, og ber
jafn'harðan burtu renningssnjó,
s©m annars settist á vegi.
í lok greinargerðar sinniar
kemst Laxárvirkjunarstjórn að
þeirri niðunstöðu, að Gljúfur-
versvirkjun sé fyllillega réttlæt-
anleg sökum þess, að hagnaður
inn af virkjuninni sé meiri en
það sem nemur tjónd. Allan rök
stuðning vantar um þetta atriði,
enda óframkvæmanliegur, meðan
enginn samanburður liggur fyr-
ir um aðra virkjunarmöguleika
né mat á skaðabótum, svo sem
áður hefur verið tekið fram. Er
hér því um haldlausar staðhæf
ingar að ræða.
Laxár.virkjunarstjórn hefur
haldið því fram, að „krapaistífl-
urnar í Laxárdal", séu aðalor-
sök eða jafnvel eina orsök raf-
Londvélor hi.
SÍÐUMOLI 11 - SÍMI 84443.
magnstrufananna á Laxársvæð-
inu. En hitt mun réttara og geta
kunnugir menn dæmt um það,
að mikið af þessum truflunum á
r-ætur sínar að rekja til bilana
á línulögnum, tengivirkjun og
ófullkomins útbúnaðar á vatns-
inntaki við stíflu og á vatns-
miðluniartuirni.
VILDU AKUREYRINGAR
SETJA SIG í SPOR
ÞINGEYINGA?
En hvað hefðu Akureyringar
sagt, ef Þingeyingair hefðu gert
áætlun án samráðs við þá um
að stífla Glerá í mynni Glerár-
dals með 57 m hárri jarðvegs-
stíflu, til að loka þar inni 170
milljón m3 af vatni, sem gætd
fyrirvaralaust steypzt fram yf-
ir íbúðarhverfi Oddeyrar og
Glerár? Væri ekki huigsanlegt,
að þá hefði risið upp mótmæla-
alda í höfuðstað Norðurlands,
eitthvað í líkingu við þá, sem
Þingeyingar hafa stofnað til og
eiga þó Akureyringar enga
Laxá eða Mývatnssveit að verja.
Við teljum okkur hafa sýnt
full’komið raunsæi í þessu Lax
árviirkjunarmáli, með því að fall
ast á og heita stuðningi við tak
markaða virkjun í Laxá, sem
tryggii í senn ódýra og örugga
orkuvinnslu fyrir Laxársvæðið
alllangt fram í tímamn og veiti
Laxárdal og Laxá nauðsynlega
vernd fyrir hinum skaðlegu
áhrifum stórvirkjunar. í stað
þess að líta með velvild og skiln
ingi á aðstöðu Þingeyinga í
þessu máli og taka fagnandi til-
lögum þeirr.a, virðist stjórn Lax
árvirkjunar enn sem fyrr ætla
að taka sér sjálfdæmi í virkjun-
armálum Laxár. En er þá ekki
kominn tími til þess fyrir for-
ráðamenn Laxárvirkjunar, að
þeir geri sér grein fyrir því, að
Þingeyingar munu ekki afsala
sér rétti sínum í þessu örlaga-
ríka máli. — Sá réttur verður
ekki tekinn með yfirtroðslu,
eins og fram hefur komið í skipt
um Laxárvirkjunarstjórnar við
Laxdælinga, þegar fulltrúar
he.nn.ar tilkymratu bændum í
Laxárdal, að jörðum þeirra yrði
sökkt og því væri þeirn ráðle.g-
ast að h-ætta framkvæmdum á
þeim. Til þessa skorti virkjun-
arstjórnina alla heimild. Leyfi
það, er Atvinnumálaráðuraeytið
hefur nýlega gefið Laxárvirkj-
unarstjórn, er aðeins fyrir 700
kw virkjun, en Skýrt er tekið
fram, að ráðuneytið skorti heim-
ild til þess að leyfa framkvæmd
2. áfanga GLjúfurversvirkjunar,
sem geriir ráð fyrir að auka afl-
ið upp í 14700 kw, enda heimila
núgildandi Laxárvirkjunarlög
aðeinis 12 þús. kw virkjun við
Brúar. í leyfinu er einnig tek-
ið fram af hálfu ráðuneytisins:
„engin fyrirheit eru gefin um
leyfi til stærri virkjunar en
framangreind lög gera ráð fyr-
ir“.
NÝ VIÐHORF NAUÐSYNLEG
Það fer því efcki á milli mála,
að það var ekki að ástæðulausu,
að Þingeyingar risu upp til
varnar ge-gn hinum gálausu á-
formum Laxárvirkjunarstjórnar.
Virkjuna.rstjórnin getur ekki að
eigin vild leikið sér með hags-
muni þeirra og hin dýrmætu
vatnahverfi, eins og þar væru
auðnir einar. Sú stefna heyrir
fo.rtíðinrai til, og nú e.ru aliar
helztu menningarþjóðir heims að
vakna til aukins skilnings um
það, að þeim sem beita tækni
nútímans, beri skylda til þess
að sýna meiri gætni og tillits-
semi í skiptum sínum við nátt-
úruna og landið.
í hinni athyglisverðu grein
Þóris Baidvinssonaæ í Morgun-
blaðinu 25. f.m. kemur fram,
hvemig Bretar líta á þessi mál,
en þar segir m.a.: „Kerfi verk-
vísinda, sem skipulagt hefur þó
verið í þjónustu mannsine, verð-
ur honum stundum yfirsterkari
og bindur hann í þess stað í
fjötra. Þekkingarskortur hins al
menna borgara á margs konar
sérfræðisviðum gerir hann hlé-
drægan og óvirkan í málum, sem
oft snerta þó umhverfi hans og
framtíð. Þetta verður til þess að
teknar eru ákvarðanir, er varða
Mf og starfssvið borgaranna, án
þess að þeir gsfi sig fram til að
beita rétti sínum.“ Og enn frem-
ur: „Eitt þessara fyrirbæra er
ágengni iðnaðarhagsmuna við
dreifbýlissvæði, sem varðveita
vilja gróður, dýralíf og svipmót
náttúruranar fyrir spjöllum og
urnróti eða eyðingu". Kunnugt er
hvernig það opinbera í Banda-
rikjunum setur rammar skorður
gegn hv.ers konar náttúruspjöl-l-
um af völdum opinberra fram-
kvæmda þar í landi.
Með tilliti til þess, sem hér
hefur verið rakið og drepið á,
sfcortir Laxárvirkjunarstjórn öll
raurahæf röfc og lagalegar for-
sendur fyrir framkvæmd Gljúf-
urveravirkj uin.ar og vi'Ijum við
vara hana alvarlega við afleið-
ingum þeirrar ábyrgðar, sem hún
tebur á sig, ef hún hyggst halda
áfram óbreyttri stefnu í þessu
mikilsverða máli, með því að
hefja framkvæmdir á fyrsta
stigi þesisarar áætlunargerðar,
eins og þetta væri afgreitt mál,
og í því trausti, að henni takist
að knýja síðar fram breytingu
á Laxárvirkjunarlöggjöfinnii sér
í hag.
Stjóm Búnaðarfélags Isilands
hefur nýlega skilað á-litsgerð um
Laxárvirkjunarmálið, vegna til-
mæLa Náttúnuverndarráðs og
leggst einhuga ge-gn fyrirætl-un-
um Laxárvirkjunarstjórnar um
hina stóru Gljúfurversvirkjun,
þa-r sem sú framlkvæmd mundi
hafa í för me-ð sér mikinn hnekk
fyrir búskaparaðstöðu í Þingeyj-
arsýslu. Þetta álit undirstrikar
það sjónarmið okkar að meta
beri náttúrule-g verðmæti og
hagsmuni þeirra, 9em héraðið
byggja, áður en staðarval og
vidkjunarathafnir eru ákveðnar.
Meðan Skjálfandafljót og Jök-
u'LSá á Fjöllum renna óbeizluð
til sjávar og jarðlhitinn bíður í
Reykjahverfi og Mývatnssveit,
vantar ÖLI- rök fyrir því að raska
vatnahverfum heils héraðs til
stór tjóns fyrir héraðsbúa og
eyðingar ómetanlegrar náttúru
— sökkva einum fegursta dal
landsins á kaf í vatn og stofraa
fjölda fólks í lífshættu. Orku-
þörf Norðurlands má örugglega
ful'lnægj-a á hagstæðan hátt um
áratuigi án slíkra aðgerða.
Eins og áður hefur komið
fram í ályktunum og yfirlýsing-
um, setja Þingeyingar sig ekki á
móti jafnrennslisvirkjun í Laxá
innan þeirra marka, að ekki
verði stíflað hærra en svo, að
vatn hækki ekki í Bimingsstaða
flóa í Laxárdal, enda heimila lög
um Laxárvirkjun ekki, að geng-
ið verði lemgra. Jafnframt verði
þá gert samkomulag aðila um að
horfið verði frá öllum frekgri
virkjunaráformum í Laxá.
Þe-gar þessi greinargerð er
samin, hefur n-efndin e-kki tekið
tiL meðferðar grein-argerð s.n.
Laxárnefndar, en það mun síð-
ar verða gert.
Hinn 10. október 1969,
Héraðsnefnd Þingeyinga
í Laxárvirkjunprmálinu.
Odýrusti ii og handhæg ustu
þvottavélarnar á markaoinum KARIN EXPRESS Tekur — 1.5 kíló. Tekur — 1.5 kíló. Vatnsmagn — 7 lítrar. Vatnsmagn — 6 lítrar. Þvottaefni — 50 grömm. Þvottaefni — 50 grömm. Þyngd — 4.8 kíló. Þyngd — 2,5 kíló. Þvottatími — 4 mín. Þvottatimi — 4 mín. VERÐ — 1995.00. VERÐ — 1595.00.
W
_—l
Sendum í póstkröfu.
I BÚSÁHÖLD Kgörgarði Sími 23349
Fyrirliggjandi
matar- og kaffidúkar í gjafakössum
Kr. Þorvaldsson & Co., heildverzlun
Grettisgötu 6, símar 24730 — 24478.