Morgunblaðið - 10.02.1970, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.02.1970, Qupperneq 16
16 MOBiGU'NIBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FBBRÚAR 1070 taigtiit&Iftfrft Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjaid kr. 165.00 1 lausasölu H.f, Árvakur, Reykjavík, Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sfmi 10-100. Aðalstræti 6. Simi 22-4-80. á mðnuði innanlands. kr. .10.00 eintakið. EFTA-AÐILD OG NORDEK F|eilurnar um aðild okkar ” að EFTA eru nú naer því þagnaðar, enda er það sann- ast sagna, að eftir því sem það mál upplýstist betur, sannfærðust fleiri um, hve sjálfsagt það væri, að við tækjum þátt í þessu sam- starfi á sviði viðskiptamála. Kommúnistar voru auðvitað andvígir þátttöku okkar í EFTA, eins og öðrum hags- munamálum íslenzku þjóðar- innar, en Framsúknarmenn hölluðust í æ ríkari mæh á sveif með þeim, sem þátt vildu taka í Fríverzlunar- samtökunum, þótt þeir veldu sér það hlutskipti að segja hvorki já, já né nei, nei. í stuttu máli má segja, að þeir meginhagsmunir sem við íslendingar höfum af þáttöku í FríverzlunarsamtökTmum, sé tollfrjáls markaður fyrir allar okkar iðnaðarvörur og betri aðstaða til sölu land- búnaðar- og sjávarútvegsaf- urða. Þennan markað fáum við strax, en hins vegar þurf- um við ekki að lækka tolla okkar á EFTA-vörum um meira en 30% næstu fjögur árin, og afnema þá síðan á sex árum þaðan í frá. Sú tollvemd, sem við njót- um fyrir okkar framleiðslu, er í flestum tilvikum jafn mikil og hollt er fyrir iðnað, sem ætlazt er til að aukist og styrkist, því að iðnaðinum er vissulega nauðsynlegt að hafa nokkurt aðhald og samkeppni til þess að þeim árangri verði náð, sem að er stefnt. Að sjálfsögðu er það fyrst og fremst að þakka frænd- þjóðum okkar á hinum Norð- urlöndunum, hve hagstæðum samningum við náðum um EFTA-aðild, auk þess sem þær standa að iðnþróunar- sjóðnum, sem vissulega mun hafa mikla þýðingu fyrir uppbyggingu iðnaðarins á næstu ámm. Ekki leikur á tveim tung- um, að íslendingar vilja hafa náið samstarf við hinar Norð- urlandaþjóðirnar, bæði á sviði viðskiptalífs og í menn- ingarefnum. Samt stöndum við nú frammi fyrir þeim vanda að geta ekki tekið þátt í því víðtæka efnahagssam- starfi, sem allt útlit er fyrir, að frændþjóðir okkar komi á sín á milli með stofnun Nor- dek. íslenzkir ráðamenn eru sammála um, að á þessu stigi sé ógjömingur fyrir okkur að taka þátt í Nordek. Hins vegar munum við að sjálf- sögðu fylgjast náið með fram- vindu mála og leitast við að halda öllum þeim tengslum við hinar Norðurlandaþjóð- imar, sem unnt er, enda vit- um við af reyn'slunni, að þær munu gera það, sem í þeirra valdi stendur, til að auðvelda okkur slík samskipti. En þegar Nordek er að verða að veruleika, sjá menn enn betur en áður, hve knýj- andi nauðsyn það var, að við gerðumst aðilar að Fríverzl- unarsamtökunum. Ef við hefðum staðið þar utan við, og jafnframt þurft að horfa á þróun hins víðtæka efna- hagssamstarfs nágrannaþjóð- anna innan Nordek, sem er á næsta leiti, hefði vissulega verið vá fyrir dymm. Þá hefðum við einangrazt æ meir frá okkar elztu og beztu viðskiptaþjóðum og þeim þjóðum, sem við helzt viljum hafa náin samskipti við. Öflugra atvinnulíf ¥ kjölfar EFTA-aðildarinnar mun fylgja margháttuð uppbygging á sviði atvinnu- lífsins, enda sjást þess nú hvarvetna merki, að athafna- menn hyggjast hagnýta þau tækifæri, sem eru á næsta leiti, til þess að auka umsvif og bæta rekstur fyrirtækja. Ríkisvaldið mun líka leggja sig fram um að auðvelda at- vinnufyrirtækjunum að koma rekstri sínum á traustan grundvöll. Þannig munu þeg- ar á þinginu, sem kemur sam an á ný um mánaðamótin, koma til afgr. tillögur, sem miða að eflingu atvinnufyrir- tækja. Er þar um að ræða löggjöf til að auðvelda sam- runa og samvinnu fyrirtækja og í annan stað breytingar á skattalögum, sem miða að því að gera íslenzk fyrirtæki jafn vel sett að því er skattgreiðsl- ur varðar og fyfirtæki í sam- keppnislöndunum. Koma þar einkum til greina breytingar á reglum um afskriftir, og jafnframt er nauðsynlegt að breyta skattlagningu hluta- bréfaeignar og sköttum af arði af hlutafé til þess að örva þátttöku manna í at- vinnurekstri. Nefnd sú. sem Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, skipaði til þess að gera til- lögur í þessu efni, hefur starf að að undanfömu, og vænt- anlega verður álit hennar til- búið, er þing kemur saman að nýju, svo að bráðan bug megi vinda að því að koma þessum nauðsynlegu breyt- ingum á. rii Stúaentar haskólinn EFTIR ÞÓR WHITEHEAD ÞAÐ HEFUR VARLA farið fraan hjá noklkruim manni með s'kilningarvitin í laigi, að málliefni Hásíkióiliainis hefuir mjöig borið á góma upp á síðkastið. Eiftir- minniliag næðia Járuasiar Kristjiáinssionair 1. d'esamiber var upphaif j>ess, að stúdentar efndu til funda um hásikóla- menntun, og hvernig breyta mætti sitirðnaðri niámisisikipaín í nútím-aíliegiria horf. Nú er ætlunin að láta athafnir fylgja orðum og gefa ahnenningi tæiki- færi til að ikynna sér, frá fyrstu hendi, hvað fram fer á degi hverjum í þessum margumtalaða skóla. Þann 8. marz n.k. efna stúdientar siem sé till „Háskóladags“, dyrum skólans verður þá upp lokið og ölilum aknenningi boðið til kennslu, við- ræðna og Skemmtunar. UPFHAF MÁLSINS er það, að fram- bjóðendur Vötoumanna við síðustu stjórnahkosningar í Stúdentafélaginu lögðu til, að félagið beitti sér fyrir því að kynma þjóðinni málefni slkólans „með öflugri Háskóla;kynningu“. Miðpunikt- ur kynningarinnar yrði „Hásikóladag- ur“. Slkólinm yrði þá opnaður aknenn- ingi og háSkólastarfsemin kynnt. I þess- ari tillögu Völkumanna var m.a. kom- izt svo að oiði: „Stuðningur þess fólks, sem vinnur hörðum höndum í íslenzku þjóðfélagi hlýtur að vera mjög mikils virði, þegar um er að ræða framtíðar- uppbyggingu Háskólans .... velvild almennings er grundvöllur þess að bifa megi fjárveitingarvaldinu.“ Þegar stjórn Stúdentafélagsins kom saman að loknum drætti í haust, voru allir á einu máli um að hrinda þessari ágætu hiugmynd uim „Háskóladag11 í framikvæmd. Var til þess skipuð nefnd valinna manna undir forystu Baldurs Guðlaugssonar stud. jur. Nefndarmenn höfðu þann hátt á, að þeir leituðu til allra deildarfélaga skólans og báðu þau leggja á ráðin uim hlut viðkomandi há- skdladeilda. Sarni háttur var einnig hafður á við undirbúning sjónvarps- þátta um slkólann, sem sjónvarpað verð- ur fyrir „Háslkóladaginn“, þótt ekki séu þættirnir í beinum tengslum við dag- inn. Tillögur deildarfélaganna um „Há- skóladaginn" eru tilbúnar í megindrátt- um, og gera þær ráð fyrir margbreyti- legri dagskrá. Af væntanlegum dag- Skrárliðum sikal eftirfarandi tínt til: Læknanemar ræða laeknisfræðileg við- fangsefni, opna tilra/unastofur sína og sýna beinagrindur og annað góðgæti. Laganemar setja á svið spennandi mál- flutning. Heimspekideildcirmenn halda uppi samfelldri og fjöl’breyttri dagskrá, sem byggð er á málvísinduim, sagnfræði og bókmenntum. Guðifræðinemar ann- ast sálarlega velferð gesta með messu- gjörð, en einnig efna þeir til umræðna um ýmis kirikjuinnar málefni. Tamm- læknanemar halda uppi sýnilkennslu. Viðskiptanemar efna til „seminar®“ eða hópumræðna um hagfræðileg efni. Náttúrufræðinemar sviðsetja kennsliu- stund og umræðufund fyrir gestina. Verkfræðinemar sjá um hópferðir á vit tölvunnar í Reilknistofnunimni. Erlendir stúdentar leggja sitthvað af mör'kuim, en í þeirra hópi er margt hæfileikamanna. Ekki verður „Háslkóladagur" helgaður andaktinni einberri, því að bókunennfa- og lisfkynningarnefnd gengst fyrir skemmtidagskrá, eem haldið verður uppi af listamönnum úr hópi stúdenta. Stúdentaikórinn mun ta'ka lagið og fleira verður gert til að létta gestum í skapi. Þegar „HáSkóladagur" er að kvöldi kominn, er ætlunin að Ijúlka kynning- unni með almennum fundi um Háskól- ann, stöðu hanis og framtíðarhlutverk. Verður brugðið á það ráð, að fá nokkra valimkunna menn, af ýmsum sviðum þjóðlífsins, til að flytja örstuttar fram- söguræiður. Róðiamömnium skióiams verð- ur boðið till funidiairiinis mieð það fyrir aug um, að þeir taki þátt í umræðum og svari skynsamlegri gagnrýni. Leggja forráðamenn kynningarinnar mi'kið upp úr þessu lokaatriði hennar. Ofan- ritaður vill hér með gera það að til- lögu sinni, að Háskólabíó sýni menning- unni þá tillitsseimi að hafa e’klki sýning- ar þennan dag, þannig að fundurinn og reyndar fleiri atriði geti farið fram við fjöknenni. EN HVAÐ TELJA MENN svo unnið við allt þetta umstang? Það er einikum tvennt: Að sýna hreinSkilnislega fram á stöðu Háakólans í dag, styrlk hans jafnt sem vankanta. í öðru lagi að kynna almenningi það hlutverk, sem stúdentar ætla skólanum í næstu fram- tíð. í stað þess að leggja fram hinn dæmigerða en hvimleiða íslenzka kröfulista: ..ríkið'komiupp, rílkiðbeitisér- fyrir, I það óendanlega, ásamt hæfi- legu þrasmagni í SAM-stíl, hefjast menn handa um að tjá meðborgurum sínum á geðþelkkan hátt, hvað þeim liggur á hjarta. Óskandi, að gestirnir talki boðinu þann 8. marz, verði noikkurs vísari og dragi af því nytsamar ályktan- rsa: „Anna (jeg) Anna” — kemur út hjá AB ALMENNA bókafélagið hefur fengið útgáfuréttinn að verð- launabók Klaus Rifbjergs, Anna — jeg — Anna. Er byrjað að þýða bókina og er möguleiki á því að hún komi út um mánaða- mótin marz-apríl. Baldvin Tryggvason, fram kvæmdastjóri AB, sagði í við- tali við Morgunbliaðið í gær, að AB hefði leifcað eftlir þvi að fá útigiáfuréttinn að bókinni um síð- ustu jól, og nú fyrir skömmu hefði borizt endimlegt svar og leyfi fyrir útgáfumni. — Hefur Andrés Kristjáresson ritstjóri ver ið riáðinin til að þýða bókirea, en ekki er endanlega ákveðlið hve- nær hún kemuir út. Baldvin sagði að það gæti í fyrsta lagi orðið um mfánaðamiótin marz- apríl. — Kvikmyndir Framhald at bls. S myndarinnar, Howard Hawks, er einn af elztu og beztu leikstjór- um, sem starfa í Hollywood. Þetta er nýjasta mynd hares, sú fertugasta og fyrsta í röðinni, en nú eru liðin fjörutíu og fjögur ár, síðan hann gerði sina fyrstu mynd. Hawks var lengi vanmet- inn sem leilkstjóri vegna þess að myndir hans hafa alltaf verið skemmtimyndir og það gleymist oft að leita verðleika í slíkum myndum. Á síðaiii árum haifa menn veitt því athygli, að hvað sem hann hefur gert, hefur hann alltaf ráðið hvað hann gerði og skilið eftir sinn sérstæða stimpil á myndinni. Hann hefur alltaif neitað að fást við spillingu í myndum sín- um og aðeins einu sinni hefur hann fengizt við fátaekt og að- eins einu sinni við mikil auðæfi. Jafnvel á dögum kreppunnar, fjallaði hann um fólk, sem starf aði. Hann hefur aldrei verið brautryðjandi í tæikni eða list, en hefur gengið troðnar brautir, en gert það betur en flestir aðr- ir. Ekki hefur hann fengizt við stjórnmál í myndum sinuim. — Hann segir sögur og einn gagn- rýnandi hefur kallað hann Som erset Maiugham kvikmyndanna. Hann hefur verið ótrúlega fjöl hæfur. Etftir hann liggja glæpa myndir, ævintýramyndir, leyni lögreglumyndir, kúrekamyndir og gaimanmyndir. Nokkuð hafa myndir hans verið misjafnar og næst síðasta mynd hans, Redline 7000, sem sýnd var í Háskólabíói í fyrra, var eikki ein þeirra betrL Það var í Frakklandi, sem gagnrýnendur fóru fyrst að veita athygli gömlum myndum eftir Hawkis og reis þar upp stór hóp ur aðdáenda hans. Þetta hefur breiðzt út til Amerítou og nú er Hawkis talinn í hópi fremstu leik stjóra svo sem Ohaplin, Fla- herty, Ford, Griffith, Hitclhcock, Jean Renoir, Josef von Stern- berg og Orson Wellne. Mynd þessi er skemmtileg og spennandi og ráðlegt að sjá hana, hvort sem haifa nokfkurn áhuiga á kvikmyndalist eða elkfci.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.