Morgunblaðið - 03.04.1970, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1®7«
>
MAGMUSAR
«qpHt>m21 simas 21120
e*ttr ioicurt ttmi 40381
vmi/oiR
BILALEIGA
HVERFISOÖTU 103
VW Sendfferðab i f rerO - VW 5 manna-VW svéfnvagn
VW S manna-Landrover Zmanna
bilaJeigan
AKBBATJT
Lækkuð leigugjöld.
/* 8-23-4?
h sendum
Bílaleigan
UMFERÐ
Sími 42104
SCIIDUM
99
Okubennsla
GUÐJÓN HANSSON
Sími 34716.
Vélapakknlngar
Bedford 4-6 cyl. dísil 57, 64.
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6-8, '54—'68.
Dodge '46—'59, 6 cyl.
Dodge Dart '60—'68.
Fiat flestar gerðir.
Ford Cortina '63—'68.
Ford D-800 '65—'67.
Ford 6—8 ryL '52—'68.
GAÍ.C.
Gaz '69.
Htftman bnp. '64—'65.
Mœkwitch 407—408.
Opel '55—'66.
Rambler '56—'68.
Renault flestar gerðir
Rover, bensín, dísil.
Skoda 1000 MB og 1200.
Simca "57—'64.
Sínger Commer '64—'68,
Taunus 12 M, 17 M '63—'68
Trader 4—6 cyl. '57—'65.
Volga.
Vauxhall 4—6 cyl. ’63—'65.
Willys '46—'68.
Þ. Jónsson 8 Co.
Skeifan 17.
Símar 94515 og 84516.
fþ „A ég að gæta bróður
míns?“
Sú nefnir sig „Kolfinnu", sem
spyr þessarar sígildu spurning
ar og sfcrifar siSan:
„Fyrir nokkru stóð hér yfir
svooefnd „Áfengisvarnavika".
Að vísu hefur verið lítið um hana
skrifað, en nokkrar myndir voru
sýndar í glugga af þeirri eymd,
sem áfengið getur haft í för meS
sér og sitthvað fleira mun hafa
verið gert, fyrirlestrar i skólum
til daemis. —
0 Hverfasamtök til að-
stoðar drykkju-
sjúkum?
En nú er mér spum: Hvað gagn
ar slífc áfengisvarnavifca? Er
ekki sá góði ásetningur að gera
eitthvað, sem gagnar, gleymdur,
þegar slíkri viku er lokið? —
Væri nú ekki hægt að stækka
þessa „vikuhugmynd" þannig. að
hún stæði allt árið og gera hana
ef til vill þannig vænlegri til ár-
angurs? — Væri það t.d. ekki
hægt með því að stofna hverfa-
samtök í borginni, sem með sterk
um og kærleíksríkum átökum
reyndu að koma hinu drykkju-
sjúka fólki til aðsto&ar? Varla er
Reykj.avík stærri en svo, að slíkt
væri mögulegt. — Hverfi þessi
ættu sennilega að vera fremur lít-
il, jafnvel íáeinar götur eða götu
hlutar.
0 Hafa vilja en vantar
þrek
Að vísu er sagt, að drykkju-
sjúkur maður (karl eða kona)
verði að vilj» sjálfur, ef hægt á
að vera að hjálpa. En hversu
margir eru það ekki, sem hafa
vilja en ekki þrrk til að hætta
áfengisneyzlunni, en myndu finna
styrk í því að verða þess varir að
samborgurum þeirra er ekfcá
sama um þeirra hag og hryggi-
lega ástand? Hvernig er með skát
ana, Slysavamafélagið og fleiri
FISKIBÁTAR
Höfum kaupendur að 50—70 lesta góðum bát. Einnig 18—30
lesta bátum. Háar útborganir, góðar tryggwvgar.
TIL SÖLU 12 lesta, 11 lesta og 9 lesta bátar.
TRYGGrNGAR & FASTEIGNIR
Austurstræti 10 A 5. hæð.
S«tú 26560. Kvöidsími 13742.
PIERPOAITIII!
5f* ^|*3ÍÉIL § Allar nýjustu gerðir af
Pierpont-úrum.
Kornilíus Jónsson, úrsm..
Skólavörðustíg 8 og Bankastræti 6.
AKRANES
ÚTSÝN heldur FERÐAKYNNINGU OG KVÖLDSKEMMTUN
í HÓTEL AKRANES laugardaginn 4. apríl kJ. 21.00.
Hótelið framreiðir vinsæla rétti handa matargestum frá kl. 19.00.
Hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar um ferðalög:
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar.
Kvikmyndasýning: Strendur Spánar.
•fa Ferðahappdrætti: Virmtngur ferð til COSTA DEL SOL
að verðmæti kr. 20.000.—
Dregið á staðnum.
if Dans til kl. 1.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Fjöknennið og njótkJ skemmtilegs kvölds með ÚTSÝN.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN
Umboð á Akranesi: Hallgrímur Ámason.
aðíla, sem þjóta af stað, um leið
og kallið kemur: maður er týnd-
ur, slys hefur orðið, voði er á
ferð. Þökk sé þeim öllum. Þeir
skilja, að maður á að gæta bróð-
ur síns. En er ekki voði á ferð-
inni dag hvern, þar sem meno
ráða ekki gjörðum sínum vegna
áfengisneyzlu, aka farartækjum
drukknir, spilla heimilisfriði,
splundra jafnvel heimilum að
lokum, eru hætto- og ógæfuvald
ar sjálfum sér og öðrum? —
0 Vítahringur
Ef U1 vill gæti rikisvaldíð ver-
ið óbeint með í slíkum samtök-
um, með því t.d. að fækka sölu-
dögum áfengis, loka vínsölubúð-
um föstudaga og laugardaga og
fyrir stórhátíðir. Auðvitað
myndu hinar miklu tekjur ríkis-
in.s af áfengissölu minnka nokk-
uð við það, en vonandi kæmi það
tap að nokkru til baka með
minna álagi á hæli og sjúkrahús.
Þetta er allt einn vítahringur:
Sala áfengis — drykkjuskapur
— drykkjumannahæli og sjúkra-
húsvist. Hvað það, sem gæti orð-
ið til þess að brjóta skarð í þenn
an vítahring hlyti að stefna í
rétta átt. —
Vissulega eru mörg félagasam-
tök og margir einstaklingar, sem
vinna mikið og gott starf fyrir
þessi mál. En fleiri þurfa að
koma til, þátttaka að verða al-
mennari ef eitthvað á að miða
í rétta átt. Virkja þarf fleiri
krafta til aðstoðar, safna þeim
saman í smærri eimmgar um alla
borgina, hverfasamtök. þar sem
mean oftast þekkja nokkuð
meira hver til annars og persónu
legra vandamála síns nágrennis.
Bræður manns eru að vísu hvar-
vetna. en þó ekki sízt í næsta ná-
gnenni.
Á ég að gæta bróíhir míns og
aðstoða hann? Ef ekki ég, hver
þá? — Samtök borgaranna Ismá
deildum gætu orðið mikilvirk til
aðstoðar þeiin stærri samtökum,
sem fyrir eru. — Ef til vill gætu
kirkjan og söfnuðimir orðið hér
til forgöngu. — Ef við, þú og ég,
við öll eigum að gæta þessara
bræðra okkar, sem eiga í erfið-
leikum, sýnum þá bróðurþel £
verki —
Kolfinna“.
0 Laxá í Þingeyjarsýslu
og Gljúfurversvirkjun
SlgriSur Jónsdóttir, Álfheimum
46, Reykjavík skrifar:
„Á sama tíma sem þjóðir heims
bindast samtökum um að stöðva
og vinna á móti hinum mikla
háska, sem stafar af rányrkju og
röskun náttúrunnar af völdum
mannsins, sjáandi fram á, að með
sama áframhaldi ris náttúran
gegn manninum og útrýmir hon-
um, þá hyggst hópur skamm-
sýnna manna norður á Akureyri
sölsa undir sig allt vatnakerfi
Suður-Þingeyjarsýslu, veita ám
þar fram og aftur eftir eigin geð
þótta án tillits til röskunar nátt-
úrunnar og vilja íbúa sýsluonar.
A ég þar við stjórn Laxárvirkj-
unar ög fyrirhugaðar aðgerðir
heimar í sambandi við Gljúfur-
versvirkjun. Aðgerðir þessar
hafa miklar og víðtækar breyt-
ingar í för með sér, m.a., að
sökkt verður einum dal og íbú-
um hans sagt að hypja sig.
Laxá í Þingeyjarsýslu og um-
hverfi henmar er töfrandi heimur
sérstæðs jurta- og dýralífs,
ógleymanlegar þeim, sem kynnzt
hafa honum að einhverju ráðL Að
alaðdráttarafl árimnar er þó lax-
ina. Mikill fjöldi veiðimanna,
bæði innl'cndra og erlendra hafa
sótt ána þeim. Á bökkum hennar
í átökum sínum við hinn göfuga
fisk, hafa þeir um stund gleymt
áhyggj um og sorgum hins hvers
dagslega lifs og snúið aftur end-
urnýjaðir að kröftum.
Enginn hefir með nokkrum
rökum getað sagt fyrir um, hvaða
áhrif hin fyrirhugaða Gljúfurvers
virkjun mun hafa á laxgengd í
ána. Eyðileggist hún sem veiðiá,
er það óbætanlegt tjón. Það er að
vísu hægt að borga núverandi
eigendum veiðiréttarins skaðabæt
ur, en hvað um hina ófæddu, sem
um aldir geta notiS fegurðar og
gæða árinnar, sé hún látin
óhreyfð?
Stjórn Laxárvirkjunar væri
vorkunn, ef Gljúfurversvirkjun
væri nauðsyn, en svo er ekki, eða
var þeim ekki boðið að veraþátt
takendur í Búrfellsvirkjun og fá
rafmagn þaðan? Þeirra einu rök
fyrir hinni fyrirhuguðu virkjun
eru, að með henni fái þeir ódýr-
asta rafmagn, sem völ er á, fyrir
sig og aðra íbúa svæðisins, en af-
leiðingar framkvæmdanna geta
orðið með þeim hætti, að þetta
verði dýrasta rafmagn, sem hægt
er að fá.
Að síðustu vil ég skora á Þing
eyinga að standa fast á lagaleg-
um og siðferðUegum rétti sínum
í þessu máU og ég vona, að þeir,
æm úrslitavaldið hafa, beri gæfu
til að koma í veg fyrir þá eyði-
leggingu og röskun náttúrunnar,
9em Gljúíurversvirkjun hlýtur
óhjákvæmilega að hafa í för með
sér, nái hún fram að ganga.
Sigríður Jónsdóttir,
Alfheimum 46,
Reykjavík".
— VeLvakandi væntir þess, að
þeir, sem eru á öðru máli, láti
einnig til sín heyra hér 1 dálk-
unum, — annað verður of ein-
hliða.
Herbergi og fœði
Okkur vantar herb. og faeði fyrir svissneska stúlku frá 20. maí
til 10. júní sem næst Laugardalshöllinni.
ÁSBJÖR1M ÓLAFSSON H.F.
Simi 24440.
Atvinnurekendur
Gott bókhald er grundvöllur hagkvæms reksturs.
Gott bókhald má nota, sem stjórntæki í þágu rekstursins.
Tveir viðskiptafræðingar óska eftir að taka að sér bókhald
fyrir smærri sem stærri fyrirtæki.
Fjárfestingarreikningar og greiðsluáætlanir koma einnig tif
greina.
Tilboð sondist til Mbl. fyrir 10. apríl n.k. merkt:
„Bókhald — 8658".
Með öll tilboð verður farið sem algert trúnaðarmál.
t