Morgunblaðið - 03.04.1970, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.04.1970, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1970 Hafnaríjörður Til sölu glæsileg 5 herb. íbúð á efri hæð í tví- býlishúsi við Ölduslóð. Bílgeymsla fylgir. Hrafnkell Ásgeirsson, hdl., Strandgötu 1, Hafnarfirði. Sími 50318. Hafnarfjörður Til sölu nýstandsett 3ja herb. íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi við Vitastíg. Verð kr. 1050 þús. Útb. kr. 350 þús. Hrafnkell Ásgeirsson, hdl., Strandgötu 1, Hafnarfirði. Sími 50318. Búnoðoriélogi íslonds berast öðru hverju óskir frá erlendum stúlkum einkum frá Sviss og Vestur-Þýzkalandi um að fá að vinna á sveitabýlum lengri eða skemmri tíma að sumrinu. Þessar stúlkur eru yfir- leitt vel menntaðar, og vanar sveitastörfum. Vilji einhverjir bændur fá slíkar stúlkur til starfa ættu þeir að snúa sér til Ráðningarstofu landbúnaðarins. Einnig berast oft fyrirspurnir erlendra pilta, einkum stúdenta um möguleika á ýmiss konar störfum á íslandi einkum við landbúnað. Yfirleitt reynir ráðningarstofan ekki að útvega þessum stúdent- um störf nema þegar, um stúdenta við landbúnaðarnám er að ræða. Vilji einhverjir bændur ráða slíka stúdenta til starfa, væri gott að þeir sneru sér til ráðningarstofunnar svo að hægt sé að benda viðkomandi stúdentum á möguleika til að fá vinnu hjá þessum bændum. BÚNAÐARFÉLAG ISLANDS. Sætaáklæði og mottur í alla bíla. Gamla bíla Nýja bíla Litla bíla Stóra bíla Nýir litir, ný mynstur. Sendum í póstkröfu um land allt. nniKnBúoin FRAKKASTIG 7 SIMI 22677 Olafur Sigurðsson: Kvikmyndir NÝJA BÍÓ: Rauða eitrið (Pretty Poison) ÞETTA er ein þeirra mynda, sem koma manni skemmtilega á ó- vart. Hún er líka ein þeirra mynda, sem maður notar ógjam an stór orð yfir, en þau eru öll jákvæð. Myndin segir frá ungum manni sem kemur út af heimili fyrir vandræðaunglinga og fær vinnu í lítilli borg. Hann er draum- óramaður, sem á erfitt með að gera skil á milli raunveruleika og drauma. Fljótlega kynnist hann einni af þessum ungu og saklausu stúlkum, sem ekkert sjáanlegt er hægt að finna að. Fyrir slysni lendir hún í því að drepa næt- urvörð í verksmiðjunni, þar sem hann vinnur. Kemst hún að því að það er auðvelt að drepa og miklu meira gaman en annað, sem hún hefur lent í. Eins og hann segir: „Þetta hef ur verið meiri vikan. Ég kynnt- ist þér á mánudag, varð ástfang- inn á þriðjudag, var þér ótrúr á miðvikudag, drap með þér mann á fimmtudag.“ Eins og væruta má endar vikan í steininum, en ekki fyrr en maður hefur séð eina af betri glæpamyndum, sem gerðar hafa verið í seinni tíð. Mynd þessi fjallar um ungt fólk af miklum skilningi og tals verðri kaldhæðni. Eru þau Ant- hony Perkins og Tuesday Weld eins og sköpuð fyrir sín hlutverk og leika þau bæði sérlega vel. Það kemur ekki á óvart með Anthony Perkins, en því meira á óvart með Tuesday Weld. Hún hefur leikið í fjöida mynda, en flestar þeirra hafa verið mjög lélegar og hafa ekki komið hingað til lands. í þessari mynd dansar hún línudans á milli sakleysis og spillingar, sem unun er á að horfa. Myndin er gerð af þremur ungum mönnum. Marshal Backl ar og Noel Black eru framleið- endur myndarinnar, en sá síðar nefndi er einnig leikstjóri. Hand ritið er skrifað af LorenzO Semple jr. og er óvenjulega vel gert. Það er óhætt að mæla með þessari mynd, sem er í hæsta máta óvenjuleg og vel heppnuð glæpamynd. AUSTURB ÆJARBÍÓ: Láttu konuna mína vera (Not Witlh My Wife, You Don’t) ÞAÐ þarf ekiki miklar markaðs rannsóknir til þess að sjá, að þessi mynd er einmitt af þeirri dauðadæmdu tegund, sem um þessar mundir hefur næstum gengið af Hollywood dauðri. Ef athugað er hverjir fara í kvik- myndahús, bæði hér og annars staðar, kemur í ljós að þáð er svo til eingöngu ungt fólk, innan við 25 ára aldur. Er einlhver á- stæða til áð það hafi áhuga fyr ir teprulegu nærri-því-framhjá- haldi miðaldra fólks? Það er ein- mitt þetta, sem þessi mynd fjall ar um. Segir frá tveimur stríðshetjum í Kóreu, Tom (Tony Curtis) og Tank (George C. Scott), sem eru miklir vinir, en berjast af mik- illi heift um stúlkur. Feiknafög ur hjúkrunarkona (Virna Lisi) verður hrifin af þeim báðum og kveður það valda sér nokikrum ruglingi, sérstaklega þegar báð- ir eru viðstaddir. Á meðan Tank er í spítala annars staðar, giftist hún Tom. Snýr nú sögunni skyndilega 15 ár fram í tímann, til okkar tíma í London, þar sem Tom er stað- settur á herflugvelli utan við borgina. Kemur Tank óvænt í heimsókn, ókvæntur sem fyrr, og Tom fer að óttast um konuna. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort hægt væri að leyfa nokkuð að ráði ljótt í „mynd fyrir alla fjölsikylduna“. Það þarf ekki mikla reikni- snilli til að álykta að maður, sem er fluglkappi í Kóreu 1952, er að minnsta kominn um fertugt 15 árum síðar. Ég held að ást hans og afbrýði hljóti að vera lítið at hyglisvert fyrir fólk um tvítugt. Fyrir fólk um og innan við tvítugt, liggur við að ástarævin- týri svo aldurhnigins fólks séu ó- geðfelld. Það bjargar því sem bjargað verður, að Tony Curtis og George C. Scott eru báðir afbragðs leik- arar. Allt frá því Tony Curtis lék í Some Like It Hot með Jack Lemmon og Marilyn Monroe hef ur hann verið viðurkenndur gam anleikari, þó að hann hafi of sjaldan fengið að leika í abnenni legum myndum. George C. Scott er frábær leikari og stendur sig þarna sem fyrr. Leikstjórn er hröð og vönduð og öll tæknileg gerð myndarinn- ar til hreinnar fyrirmyndar, eins og oft er með myndir af þessu tagi. Þó að mynd þessi sé ekki merkileg, er hún vel sjáandi fyr ir leik aðalleikaranna tveggja. LITAVER 7 tegundir af nylon- gólfteppum. Óbreytt verð, verð frá kr. 298. pr. ferm. Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík. Til sölu 2ja herbergja íbúð í 12. byggingarflokki. Þeir félagsmenn, sem vilja neyta forkaupsréttar að ibúð þess- ari, sendi umsóknir sínar til skrifstofu félagsins að Stórholti 16, fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 9. apríl n.k. FÉLAGSSTJÓRNIN. allar byggingavörur á einum stað V atnsleiðslupípur, svartar og galvaniseraðar Fittings — múrhúðunarnet BYGGIIMGAVÖRUVERZLUN tJY rVU KÓPAV0GS slivn 41010 TILKYNNING Véladeild vor verður framvegis opnuð kl. 8 árdegis fimm daga vikunnar (mánudaga-föstudaga) til hœgðarauka fyrir viðskiptavini Símanúmer kl. 8-9 er 84673 (bein línaj Fálkinn og Stál Suðurlandsbraut 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.