Morgunblaðið - 23.05.1970, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.05.1970, Qupperneq 14
14 MORiGUNBLAÐŒÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1070 S j ómannasí ðan í umsjá Ásgeirs Jakobssonar F AO-ráðstefna á í slandi Erindi í fyrsta hluta FAO -ráðs tefn a n uim fiskileit, herpinótaveiðar og togveiðar er tvímælalaust ein merkasta al- þjóðaráðstefna, sem hér hefur verið haldin. Á þessa ráðstefnu safnast saman á þriðja hundrað manns hvaðanæva úr heiiminum og deila með sér þekkingu á efni, sem íslendingum er vitaskuld sér lega hugstætt. Ráðstefnan hefst í Háskólabíói 24. maí eða á sunnudaginn kem- ur kl. 15 og verður þar að loknu einhverju kveðjusnakki sýnd kvikmynd. Umræður hefjast síðan á mánu dag í Súlnasal Sögu kl. 10. og standa daglega til föstudags og er vinnudagurinn allstrangur hjá þátttakendum eða frá 9—12 og 14—18 daglega. Þeir ætla að taka sér frí á miðvikudagskvöld ið og létta sér upp og á laugar- daginn ætla þeir að ganga um borgina og líta á, hvernig Geir hefur sitjórnað og fara einnig um borð í skip. Tungumálin, sem töluð verða á ráðstefnunni eru enska, franska og spænska og túlkað á þessi mál. Athugandi væri fyrir okkur, ef margir fslendingar sækja ráð- stefnuna, að hafa þar einnig túlk. FAO-ráðstefnan fjallar um þrjú meginatriði í fiskveiðum. 1) Fiskleit almennt. 2) Herpinótaveiði. 3) Aimed trawling, sem mætti kannski á íslenzku nefna mark- tog, þar sem þetta þýðir nánast það, að ekki er togað í blindni, heldur að ákveðnu marki eða fisktorfu framundan veiðarfær- inu samfara vitneskju um, hvað er að gerast í sjálfri vörpunni. Fyrsti erindaflokkurinn, fiski- leitin, skiptist í marga hluta. Fyrst verður fjallað um almenna fiskileit með fiskileitarskipum og hafa lagt fram erindi um það tveir Japanir, Hayashi og Inoue, SMURSTOÐIN Reykjavíkurvegi 54 Opin frá kl. 8—18:30 alla virka daga. nema laugardaga til kl. 12, sími 50330. í ferðamannaverzluninni fæst: tóbak, öl, sælgæti, rjómaís, dagblöð, vikublöð og fleira. SMURSTÖÐIN Reykjavíkurvegi 54, sími 50330. SJ IAL FBO BAI Ifl A R Á KJÖRDAG D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfboðastarfa á kjör- dag. Sérstaklega vantar fólk til starfa, sem fulltrúar listans í kjördeildum auk margvíslegra annarra starfa. Þeir sem vilja leggja D-listanum lið með starfskröftum sínum á kjördag hringi vinsamlegast í síma 25980, Valhöll. Skráning fer einnig fram á skrifstofum hverfasamtakanna. ÍD) - LISTINN BIFREIÐIR KJÖRDAG D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu bifreiðastöðvum D-listans á kjördag. Frambjóðendur heita á stuðningsmenn listans að bregðast vel við og leggja listanum lið m.a. með því að skrá sig til akstur á kjördag. Vinsamlegast hringið í síma 25980, Valhöll. Skráning fer einnig fram á skrifstofum hverfasamtakanna. ©-LISTIHN Gunnar G. Schram Gunnar hafði forgöngu af hálfu heimamanna (og utanrík- isráðuneytisins) um undirbún- ing ráðstefnunnar. Jakob Jakobsson og Villanueva frá Perú. Að þessum umræðum lo'knum verður tekið fyrir ástand og hegðan fisksins með tilliti til á- stands sjávarins og veðurfarsins og verða í þeim umræðum lögð til grundvallar erindi þeirra Flittners og Laevastu frá Banda ríkjunum og Seydlitz frá Þýzka- landi. Næsti hluti í þessum fiskileit- arerindaflofcki ráðistefnunnar er á heldur þrengra sviði og fjallar um aðferðir til að staðsetja ná- kvæmlega, þann fisk, sem finnst á gefnu hafsvæði, og er þá fyrst um að ræða þann fisk, sem sést ofansjávar frá skipi eða úr flug vél, og hafa þar lagt fram erindi þeir Bulles og Benigno frá Bandaríkjunum, Sims frá Chile og Seidel frá Bandaríkjunum, en hans erindi fjallar um efni, sem hefur sérstakt gildi fyrir fslend inga, þar sem það er um aðferðir til að á'kveða magn af hörpu- diski á tilteknu svæðii, en til þess nota þeir orðið sjónvarp. Næst á eftir þessum erinda- kafla verður fjallað um notkun hljóðsins eða hljómburðar (acou stic) í fiskileitinni og við stað- setningu fisks í hafdjúpinu. Um þetta hafa verið lögð fram fjöl- mörg erindi. Freytag frá Þýzka- landi fjallar um, hvernig hlusta eigi eftir fiski, en við notkun ekkós og sónars er góð heyrn og hlustun ekki minna atriði en sjónin. Craig frá Englandi er með erindi um hljóðendurvarps- tækin almennt og hvernig þau eru nú. Hashimoto og Haniva frá Japan leggja fram erindi um svonefnda fjölstílaritun, sem byggist á því að stílunum, sem rita niður end- urvörpin er fjölgað til að gera ritunina nákvæmari, þar sem margir stílar rita örar á pappír inn en einn stíll. Þessir sömu menn ásamt landa sínum Kato eru einnig með erindi um hljóð- endurvarpstæki neðansjávar, sem stýrt er eða eru tengd raf- bylgjiultiælkjiuim uim borð ('tieleso- unders). Hearn frá Englandi fjallar um fiskteljara eða fiskreikni við at- vinnufiskveiðar. Miyajima, Japani, tekur fyrir stöðugleika geislans frá hljóðend urvarpstækjunum, en velta skips og aðrar breytingar á afstöð- unni valda vitaskuld truflunum í endurvarpinu. Mross frá Þýzkalandi rekur á- hrif tæknifræðinnar á þau fiski leitartæki sem helzt eru notuð við djúpsævar togveiiðar. Tveir Bretar, Philpot og Pear- ce koma með erindi um hljóðend urvörp, þar sem geislinn er þrengdur og stilitur með raf- bylgjum og einnig um svonefnd an botniás, en það er aðferð til að greinia botninn frá fiski við botn. Raitt, Losse, Schmitt og Hoff, allt FAO-menn, eru með erindi um fiskmagnsmælingar með hljómburði við Suður-Afríku- strönd. Japanirnir Shibata, Nis- himura, Aoyama og Yamanaka rekja þá þróun, sem orðið hefur í Japan í notkun ekkó-teljara eða reiknis við að ákveða stærð fiskstofna við Japansstrendur. Shibata flytur einnig erindi um endurvarpshæfni fisksins og Bandaríkjamaðurinn Suomale kemur með erindi, sem mjög er nú á baugi, sem framtíðarverk- efni, en það er að tengja tölvu (computer) við fiskleitartækin til að vinna úr upplýsingum þeirra. Tanaka Japan rekur þró un fjölstílsinis, sem áður hefur verið fjallað um. Þá kemur svo í þessum erinda flokki Sovétmaðurinn Kudrya- vtsev mieð erindli uim aið- ferðir almennt til að finna og meta fisktorfur eða fiskhnappa með ekkói. Næsti hluti þessa erindaflokks um fiskileitina og aðferðir til að finna fisk, er um sónarinn (ast- ikkið), sem hér hefur verið nefnd ur fiskriti, en er nú orðið ónot- hæft orð á það tæki eitt, vegna þess að dýptarmælirinn (ekkóið) er ekki síður fiskriti nú orðið. Hér hefur því verið horfið að því ráði, að nota með íslenzkum beygingarendingum orðin — ekkó og sónar — . „Astikk", er að vísu meira notað hér en són- ar, en það er ekki eins íslenzku- legt orð, og rétt að það víki fyrir sónar. Um sónarinn hafa margir lagt fram erindi, Margetts frá Eng- Hilmar Kristjónsson Á Hilmari mæðir þetta ráð- stefnuhald mest og vonandi heppnast hún vel, svo að hann þurfi ekki að iðrast þess að hafa farið 'framhjá stórum þjóð- löndum og alla leið hingað út til sins litla föðurlainds. landi um rafmagnssónar til leit- ar yfir tiltekinn geira (Electron ic sector scanning sonar). Tucker, einnig Englendingur fj allar um f ramtíðarmöguleika sónarsins og þá stefnu sem lík- legt er að sónartælknin taki. Y'estnes frá Nonegi er með yfir- litserindi um núverandi sónar- tækni og notkun sónarins. Þá er næst á ráðstefnunni fjall að um val fiskileitartækja, sem byggjast á hljómburði (acoustic) með tillliti til áistands otg hegðun ar fisksins, og um það efni er lagt fram erindi frá norsku firma, Simonsens Radio, Rúsa- inn Kudryatev h’efur tekið sam an erindi um gerð og notkun þeirra bljómburðartækja, sem nú eru notuð til að finna með fisk og eins um tæki á veiðar- færunum sjálfum, sem stjórna laiflam/algnliniu, aeffn í þialu ganlgur. Síðasti hluti þessa erinda- flokks um fiskileit og aðferðir til að finna fisk fjallar um aðferðir til að kenna á fiskileitartækin og um það efni leggur R. Bennett frá Englandi fram erindi, en hann er forstöðumaður IDU(Ind uistrial Development Unit) í Húll, sem er nýleg stofnun, sem hefur mjög gefið sig að þjiáílfun fisiki- skipstjóra, Simonsens Radio er einnig með erindi um svipað efni. KOSNINGASKRIFSTOFUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS UTAN REYKJAVÍKUR AKRANES: Kirkjubraut 4. Opin 10—22, sími (93)-2245. BORGARNES: Borgarbraut 1. Opin 17—19 og 20—22, sími 93-7351. PATREKSFJÖRÐUR: SjálfstæffiShúsið Skjaldborg, opin 17—19 og 20—22, sími 1189. tSAFJÖRÐUR: Sjálfstæffishúsiff, Hafnarstræti 12. Opin 13—18, sími (94)-3232. SAUÐARKRÓKUR: Aðalgata 8 (Sæborg). Opin 16—19 og 20—22, sími (95)-5310. SIGLUFJÖRÐUR: Sjálfstæffishúsið, Grundargötu 11. Opin 14—22, sími (96)-71154. AKUREYRI: Skipagata 12. Opin allan daginn, sími (96)-21504. NESKAUPSTAÐUR: Hafnarbraut 24 (Texas). Opin 17—19 og 20—22, sími 249. VESTMANNAE YJAF: Sjálfstæffishöllin, Vestmannabraut 19. Opin 14—22, símar (98)-1070 og 2233. SELFOSS: Austuryegur 1. Opin 17—22, sími (99)-1690. KEFLAVÍK: Sjálfstæffishúsið, Hafnargötu 46. Opin 14—18 og 20—22, sími (92)-2021. NJARÐVÍK: Hólagata 19. Opin 20—22, sími (92)-2795. HAFNARFJÖRÐUR: Sjálfstæffishúsiff, Strandgötu 29. Opið allan daginn, simi 50228. GARÐAHREPPUR: Stórás 4—6. Opin 16—18 og 20—22, sími 51833. KÓPAVOGUR: Sjálfstæðishúsið, Borgarlioltsbraut 6. Opin allan daginn, simi 40708 — 40310, SELTJARNARNES: Skólabraut 15. Opin 17—19 og 20—22, sími 26588. D-listinn er listi Sjálfstæðisflokksins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.