Morgunblaðið - 24.05.1970, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.05.1970, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1970 Höfnin hefur stundum verið kölluð lífæS borgarinnar. Þar er jafnan ólgandi líf, skipin koma og fara, færandi innlend og útlent hráefni, og ýmsar nauð synjavörur, sem þjóðin getur illa verið án. Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað við höfnina á undanförnum árum, geymslu- rými aukið og afgreiðsluaðstaða skipa bætt við gömlu höfnina. Reist hefur verið ný höfn — Sundahöfn — inn við Viðeyjar sund, og í tengslum við hana eru ýmsar byggingaframkvæmd ir í vændum á því svæði. Morg unblaðið ræddi nýlega við Gunn ar B. Guðmundsson, hafnarstjóra og leitaði frétía af hafnarfram- kvæmdum. Sundahöfn var fyrst á dagskrá. SUNDAHÖFN Framkvæmdir síðustu ára við höfnina má rekja til fram- kvæmdaáætlunar 1966, sem náði til ársins í ár — með lítilshátt- ar breytingum þó. í þessari áætl un var lögð höfuðáherzla á aukn ingu á viðlegurými í vestur höfninni, byggingu hafnar- skemmu á Grandagarði og bygg ingu skemmu á Austurbakka, auk viðhaldsverka við Faxa- og ^•Ingólfsgarð,11 sagði Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri, er við ræddum við hann. „f þess- ari áætlun var líka fjallað um - það að hefja framkvæmdir við Sundahöfn sem fyrst, og gerði hún í raun ráð fyrir að þær Loftmynd af Reykjavíkurhöfn reistar byggingar, sem auðvelda mjög afgreiðslu skipanna. Er þar fyrst að telja Tolllsböðina og Faxaskála, vöruskemrruu Eim- skipafélagsins á Austurbaklkan- um, sem samanlagt er um 16 þúsund fermetrar á gólffleti. Byggingar þessar eru reistar samkvæmt aðats'kipulaginu, og umsóknir liggja fyrir um áfram haldandi byggingar á þessu svæði. Vonir standa til að tak- ast megi að leysa erfiðleiika Skipaútgerðar ríkiisins, en brýn nauðisyn er á að hagræðing eigi sér stað í starfsemi hennar við höfnina. I framhaldi af þessu þá hefur verið tekin í notkun skemma á Grandagarði, sem er um 2 þús- und fermetrar." Gunnar segir að láta muni nærri að aukningin á vöru- skemm.um við flutningahöfnina sé um 20 þúsund fermetrar á síðustu árum, og miðað við þá aukningu eigi aðistaða til af- greiðslu á flutningasikipuim hér að vera orðin sambærilieg við hvaða höfn sem er í veröldinnr sem hefur að sjálfsögðu í för með sér verulega aukningu á afkastagetu skipastóls lands- manna. FISKIIIÖFN Gunnar Guðmundsson, hafnar- stjóri, ræddi þessu næst um fiski höfnina. „Vesturhluti hafnarinn ar hefur frá upphafi verið fiski höfn, og byggingarnar þar hafa verið reistar með útgerð og fisk Stóráíak í hafnarmálum Miklar byggingaframkvæmdir í vændum við Sundahöfn Geymslurými við gömlu höfnin a hefur verið stóraukið Rætt við Gunnar B. Guðmundsson, haf narst j óra liæfust árið 1966. Látu þá fyrir verulegar umsóknir á aukningu *á athafnasvæði í höfninni, t.d. taldi Eimskipa élag íslands sig þurfa að auka geymslurými inn- anhúss um 50%— miðað við flat armál. Þá leiddi athugun, sem gei’ð var árið 1965 í ljós, að þeir hafnarbakkar, sem lagðir væru með 100% nýtingu í viðlegu, og ennfremur var komizt að því, að viðlegudagar skipa í Reykja- vík voru óeðlilega miklir, sum- part vegna aðstöðunar og sum- part vegna ónógs vinnuafls. Ann að atriði, sem þarna kom einnig til greina. var að árið 1965 var vörumagn, sem fór um hafnar- bakkann. alls 660 tonn á lengd- armetra, en reyndist undanfar- in ár hafa verið um 500 tonn og var það talið hámark. Til að mæta þessari aukningu varð að bæta við geymslurými en athugun leiddi í ljós að við gömlu höfnina var ekkert úti- svæð; fyrir hendi. Þannig var það ályktun hafnarstjórnar, að það væri skorturinn á athafna svæði við höfnina, en ekki of stutt viðlegurými. sem takmark- aði nýtingu hafnarinnar. Á þessum árum lá fyrir könn un fyrsta áfar.ga Sundahafnar og var kostnaðaráætiun um 100 milljónir. Með hliðsjón af því að rekstrarafgangur hafnarsjóðs ár- ið 1965 var 20 milljóni og gjald skrá 1966 hækkaði til muna, var fjármyndun hafnarsjóðs svo mik il að kieift var talið að ráðast .þessar framkvæmdir, enda gert í fullu samráði við viðskipta banka hafnarinnar, sem hét ríf- iegum stuðningi,“ sagði hafnar- stjón. Rétt er að hér komi fram, að þessi framkvæmd var einróma samþykkt, er fjallað var um hana í hafnarstjórn og meðal þeirra, sem samþykktu hana þar voru: Kristján Benediktsson, Einar Ágústsson og Guðmundur J. Guðmundsson. Sama var uppi á teningunum í borgarstjóm. Sagði hafnarstjóri, að það hafi vakið furðu sína, þegar þessir menn og fleiri, sem áttu að vita betur, tóku að koma fram með fullyrðingar, rangfærslur og fölsun staðreynda um þetta efni. „Almenningur virtist á hirun bóg inn gera sér strax ljóst að þess- ar framkvæmdir voru nauðsyn- legar. Því miður gat hafnar- stjórn ekki fremur en aðrir séð það fyrir að efnahagur ætti eft ir að snúast þanmig, að innlent framlag til framkvæmdanna minnkaði og verkið varð dýrara. Að sögn Gunnars er hafnar- bakkínn í Sundahöfn nú tæpir 400 metrar að lengd, og dýpi er um 8 metrar, eða tveimur metr- um meira en í gömlu höfninni. Landsvæði í kringum Sunda- höfn er milli 15 og 20 hektarar. Kostnaður við þessa fram- kvæmd er um 132 milljónir, og er þá ekki miðað við gengis- tap. Ekki virðist vera ástæða fyrir beina aukningu viðlegu- rýmis á næstunni, að því er Gunnar segir, en mjög auðvelt er að auka bryggjupláss um allt að 200 metra, vegna þess að dýpkun er þegar lokið. FRAMKVÆMDIR Á SUNDAHAFNARSVÆÐINU Við spyrjum Gunnar, hvort miklar framkvæmdir séu í vænd um á þessu svæði vegna tilkomu Sundahafnarinnar. „Já. Þegar er búið að samþykkja byiggingu kornturna við Sundahöfn, og fyr ir liggja umsóknir 2ja skipafé- Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri. laga um aðstöðu á svæðinu, auk þess sem einntg hafa borizt um- sóknir verzlunarfyrirtækja um nýtingu landsvæða við Viðeyjar sund vegna tilkomu hafnarinn- ar þarna. Þurrkvíin er þó sú fram- kvæmd, sem mest er til uimræðu. Áætlunin miðast við það að þarna verði byggð í fyrsta áfanga þurrkví fyrir 5 þúsund tonna skip, en möguleikar verði á að stækka hana upp í 12—15 þúsund tonna skipastærð. Er hér fyrst og fremst verið að hugsa um viðgerðarstöð fyrir stærstu skipin — midlilandafliotann. Þarna gæti svo í framtíðinni ris ið upp skipasmíði. Með þessu móti er hægt að feoma upp stærri einingu á þessu sviði og þar af leiðandi hagfcvæmari refestri en er í dag.“ Gunnar vék einnig að hafnar- framkvæmdum við Ártúnshöfð- ann, þar sem byggð hefur verið aðstaða fyrir Sementsverksmiðj- una til losunar á lausu sementi, og þar er einnig fyrirhuguð að staða fyrir Björgun hf. til blönd unar á byggingaofni. Áður hef- ur verið drepið á áætlanir um byggingu olíuhafnar í Gelding- arnesi í frétt hér í Morgunblað inu. FLUTNINGASKIPAHÖFNIN Og þá er komið að gömlu höfninni og framkvæmdum við hana á síðustu árum. Við byrj um á því að spyrja Gunnar um Austurhöfnina og hann segir: „Á sl. 3—4 árum hafa þar verið vinnslu fyrir augum. Á síðustu árum hafa farið fram athuganir á aðstöðu fyrir fiskiflotann og fiskiðnaðinn á hafnarsvæðinu. í október 1968 kom fra skýrsla hafnarstjóra um fiskiihöfn, og síð an hefiur farið fram frekari gagnasöfnun til að renna stoð- um undir þessa hugmynd og til fullnaðar áætlunargerðar. Snú- ast þær fyrst og fremst um skipulagingu hafnarinnar sjálfrar og aðistöðuna fyrir flot ann — m.a. löndunaraðistöðu, nýtingu húsnæðis á hafnarbakk- an-um fyrir lönduinarstöð, að- stöðu fyrir frystigeymslur og ís- framleiðslu. Miðast skipulagn- in öll við að hinir ýmsu þættir fiskmóttöku og vinnslu geti far ið fram á svæðinu. Þess má geta, að í Örfirisey er töluvert landsvæði, ónotað, sem stendur fiskiðnaðar- og fiskvinnslu- stöðvum til boða.“ Gunnar sagði ennfremur, að sá dráttur, er orðið hefði á end anlegri áætlunargerð um aukna aðstöðu fyrir bátaflotann, staf- aði af þeirri breytingu, sem orð- ið hefði hér á síðustu árum á- löndunarháíttum Reykjavíkur- báta, en þeir hafa æ meir far- ið inn á þá braut að landa afla sínum í öðrum verstöðvum, þar sem skemmra er á miðin. Gunn- ar gat þess einnig, að mjög væri í athugun að aufca ennþá frek- ar aðstöðu togaraflotams í Reykj aivikunhöfn. Myndin sýnir líkan af Sundahöfn og á hafnarbakkanum sést kornhlaðan ásamt fleiri mannvirkjum, sem rísa munu á hafnar- svæðinu á næstunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.