Morgunblaðið - 30.05.1970, Side 1

Morgunblaðið - 30.05.1970, Side 1
48 SÍÐUR (TVÖ BLÖÐ) 118. tbl. 57. árg. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1970 Prentsmiðja Morgunblaðsins Frá Reykjavíkurhátíð D-listans í gærkvöldi. Fjölmennasta fundi, sem haldinn hefur verið í Háskólabíói. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) Framtíð borgarinnar í höndum Reykvíkinga — til sigurs á sunnudaginn! Hvatning Geirs Hallgrímssonar á fjölmennasta fundi, sem haldinn hefur verið í Háskólabíói — Við sem nú byggjum borgina, höfum því skyldur að rækja og við hljótum að eiga okkar metnað fyrir borgarinnar hönd. Framtíð hennar og saga eru í okkar höndum. Við skulum því, um leið og við göngum hér út, strengja þéss heit að vinna samborg- ara okkar til fylgis við sam- henta meirihlutastjórn í Reykjavík til að tryggja, að borgin verði áfram hlutverki sínu vaxin sem höfuðborg landsins og góður bústaður börnum sínum. Til sigurs á sunnudaginn! Þetta voru lokaorð Geirs Hallgrímssonar á hinni glæsi- legu Reykjavíkurhátíð Sjálf- stæðismanna í Háskólabíói, fjölmennustu samkomu, sem haldin hefur verið í þeim húsakynnum fyrr og síðar. Voru salarkynni Háskólabíós, gangar þess og anddyri troð- full. Margir fundargesta stóðu utan dyra og fjölmarg- ir urðu frá að hverfa. Með þessari fjölmennu Reykja- víkurhátíð er lokasókn Sjálf- stæðismanna í borgarstjórn- arkosningunum hafin. I ræðu sinni sagði Geir Hallgríms- son, borgarstjóri: Góðir Rey(kvíkingar. VIÐ höfuim fylgzt m-eð sérkenni- legri 'k'O'sn i ngab a ráttu undan- farnar vikuir og mánuði. Hún hófst með því, að and- stæðingar olkkar ætluðu að sækja lykilinn að sitjórnairráðinu í hendur Rey'kvíkinga í þessum kosninguim og töluðu um borgar- stjórna'rkosningarnax sem undan- i ás fyrir Alþingiakosningar. Reykvíkiin’gar miuniu á sínum tíima talka afstöðu til þess, hveirj- ir Skulu hafa lyklavöMin í Framhald á bls. 13 Geir Hallgrímsson á fundinum í gærkvöldi. 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.