Morgunblaðið - 26.07.1970, Síða 19
MORGrUN’BLAÐFÐ, SUNNUDAGUR 26. J'ÚLÍ 1070
Norðurlanda-
þing
St. Georgs-
skáta
NORÐURILANDAJMNiG St.
Georgs-skáta, verður haldið á
íslandi dagana 27. til 31. júlí
næstlkicimandi. St. Georgs-skátar
kcima til þessa móts írá ölluim
Norðurlöndunuim, Færeyjum
og Grænlandi, og auk þess
verða tveir sérstakir gestir,
annar frá Austurrí'ki en hinn
frá Slkotlandi. Þátttalkendur er-
lendis frá verða alls 116, en ís-
lenzikir þátttaikendur 30-40.
Nú er það svo að heilagur
Georg er verndari allra sikáta,
en þeir sem auðkenna sig með
heitinu St. Georgs-skátar, til-
heyra sérstökum og sjálfstæð-
um alþjóðasamtökum. Það eru
mest samtölk gamalla skáta, og
yfirleitt er það eldra fólk sem í
þeim er. Það er algengt að
hjón tilheyri þessum samtök-
um, jafnvel þótt aðeins annað
þeirra haifi haft afskipti af
skátahreyfingunni.
í þri'ðju grein laga St. Georgs
skáta segir svo um mankmið
hreyfingar þeirra. 1) Að reyna
að lifa lífinu í samræmi við
ihugsj ótniir slkátathreyf imgarinn-
ar. 2) Að flytja hinn sanna
sikátaanda inn í samfélagið sem
við lifum í. 3) Að veita skáta-
starfinu virkan stuðning, eftir
því sem aðrar skyldur frekast
leyfa.
Sjálfsagt kannast flestir við
söguna um St. Georg og drek-
ann, en það væri ekki úr vegi
að rifja hér upp nok/kur atriði
um þennan hugprúða riddara.
Samkvæmt sögulegum heim-
ildum var krossfararriddarinn
Georg frá Kappidóníu uppi á
þriðju öld eftir Krist. IHann dó
píslarvættisdauða 23. apríl ár-
ið 303, og St. Georgs-skátar
halda þann dag hátíðlegan.
Hann var snemma tekinn í
dýrlingatölu, og í Ktonstantin-
opel voru ekki færri en sex
A undirbunmgsfundi undir No rðurlandaþingið. Frá vinstri: Hr efna Tynes, (Reykjavík), Bjöm
Stefánsson (Keflavík), Elín Jósepsdóttir (Hafnarfirði), Hans Jörgensson (Reykjavík), Ed-
ward Fr.ederiksen (Reykjavík), Franch Michelsen (Reykjavík) og Jónas S. Jónsson (Reykja-
vík). (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.).
GÚSTAF A. SVEINMON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8. — Simi 11171.
YOCA
Herbergi
óskost
Séra Þór Þóroddsson fræðari frá Kaliforníu flytur erindi í
Tjarnarbæ þriðjudaginn 28. júlí kl. 20.30.
FRAMÞRÓUN LÍFSINS.
Hvar erum við?
RegJ'U’saimur, miðailid'na maður
ósikar eftir heribengi sitnax eðe
síðair. Gjamari fonsitiofuhieiiberg'i,
þó e'k'ki sik'ilyrði. Að'gainigior að
baði og siíma æsikilieg'ur. Góð og
snyrt'i'lieig umgeng'nii. Upplýsiiogar
í Siima 25810 kl. 7—9 á miáruu-
daigsikivöíd.
Hið týpiska Yogakerfi Dr. Dingle kynnt. Kennsla næstu daga
á eftir fyrir þá sem hafa sérstakan áhuga,
Allt námsefni íslenzkað.
Aðgangur að erindinu 100 krónur.
Upplýsingar í síma 35057.
kirkjur helgaðar honum, þótt
aðalstöðvar, eða öllú heldur
vagga átrúnaðarins hafi verið
í Lydda í Palestínu — Israel —
þar sem hann að sögn, á að
vera jarðsettur. A sjöttu öld
var fólk á Vesturlöndum einnig
farið að dýrka þennan hug-
prúða riddara, og hann varð er
tímar li'ðu einn mesti dýrð-
lingur manna.
Á ríkisstjórnarárum Játvarð
ar þriðja, Bretakonungs, var
dánardagur heilags Georgs,
gerður að þjóðhátíðardegi Eng-
lendingá, frá árinu 1222. Það
er því ekki að undra þótt heil
ag>ur Georg hafi verið valinn
sem verndardýrðlingur skát-
anna. Hann er tákn riddara-
mennskunnar, hugretokis og
hjálpsemi, sem Baden Powell
hefur gert að hinum rauða
þræði skátalaganna.
Kirkan lítur á baráttu heil-
ags Georgs við drékann, sem
tákn um baráttu mannsins við
hið illa. Og eins og heilagur
Geor-g 'gek!k á móti drekanum
í nafni Krists, og bar sigur af
hólmi, eins getur maðurinn
sigrazt á hinu illa í sjálfu sér,
í nafni Krists.
Það myndaðist fljótlega
helgisögn um það þegar heil-
agur Georg gelkk til atlögu við
drekann til að bjarga hinni
ungu prinsessu úr tolóim hans.
Það eru til fleiri en ein útgáfa
af þessari sögu, en þráðurinn
er sá sami: Sigur heilags
Georgs yfir drekanum.
St. Georgs-skátar líta á þetta
sem þungamiðju málsins. Það
verða margir og margs konar
drekar á vegi manna á lífsleið-
inni, og það þarf því oft hug-
rekki og þrautsegju til að
vinna á þeim.
Á íslandi eru starfandi átta
St. Georgs gildi, á sjö stöðum,
og samanlagt telja þau rúmlega
200 meðHmi. Fyrsta gildið var
stofnað í Reykjavík árið 1959,
og fyrsti gildismeistari var
Daníel Gíslason. Landsgildi
var stofnað 1963, og fyrsti
landsgildismeistari var Dúi
Björnsson (Akureyri), þá
Eirilkur Jóhannesson, (Hafnar-
firði), en nú gegnir Hans Jörg-
ensson (Reykavík) því starfL
St. Georgs skátar halda fundi
mánaðarlega, nema á surmrin,
og á þessum fundum eru m.a.
rædd félagsmál og hlýtt á
fræðsluerindi.
Norðurlandaþingið sem
hefst í Reykjaví'k þann 27., er
það tíunda í röðinni, og þ_að
fyrsta, sem haldið er hér á Is-
landi. Meðan það stendur yfir
verður farið í ferðalög um
landið og 'komið m.a. við á
Hreðavatni, Bifröst, Reykholti,
Þingv'öllum, Skálholti, Heklu,
Selfossi og Hveragerði. Á þing
fundum og helztu viðkomustöö
um í ferðum og veizlum, verða
flutt stutt fræðsluerindi um ís-
land, sögu þess og menningu,
og atvinnuhætti.
<§> I. DEILD
Laugardalsvöllur klukkan 6.
í dag, sunnudaginn 26. júlí kl. 6 leika
Víkingur — ÍBA
Mótanefnd.