Morgunblaðið - 09.09.1970, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.09.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. SEPT. 1970 O ísraelsmenn hafa ákveðið að hætta þátttöku í friðarviðræðun- um í New York þar til Egyptar hafa flutt á brott eldflaugar þær, sem ísraelsmenn segja að þeir hafi flutt að Súez-skurði síðan vopnhlé gekk í gildi 7. ágúst. Á myndinni er frú Golda Meir, forsætisráðherra, að koma af stjórnmálafundi þar sem hún setti fram þessa kröfu. 1 tjöldum í sóttkvínni Kaupmamraahöfn, 7. sept.--- NTB DANSKIR hermenn reistu í dag tjöld á lóð Blegdam-sjúkrahúss- ins í Kaupmannahöfn, og er ætl- unin að þar dveljist um það bil 50 manns, sem voru settir í sótt kví í dag vegna bólunnar, og 170 manns, sem verða settir í sóttkví á morgun. Horfið var frá því ráði að einangra fólkið á mörgum stöðum og ákveðið að hafa það allt í einangrun á sama stað. f Stokkhólmi er sagt að allir farþegamiir, sem ferðuðust með SAS-flugvélinini með norska bólusj úklingnum f rá Af ghanist an, til Kaupmannahafnar og það an til Svíþjóðar, hafi verið settir í sóttkví í dag að tveimur und- anskildum. Lýst hefur verið eft ir farþegunum, sem ekki hefur tekizt að hafa upp á, bæði í Sví þjóð og erlendis. Tekizt hefur að hafa upp á flestum ef ekki öllum þeim Svíum, sem fóru frá Skods bcnrg-hælinu meðan Norðmaður- inra dvaldist þar 27.—31. ágúst. Líðan norska bólusjúklings- ins hefur hrakað nokkuð, en ekk ert bendir til þess að hann hafi smitað þá sem nú hafa verið settir í sóttkví. Meðal þeirra sem hafa verið settir í sóttkví er starfsfólk í sjúkrcLhúisiniu sem Norðmaðurinn dvelst á. í Álasundi í Noregi hafa tveir verið settir í einangrun, en lítil hætta er sögð á smitun. Annars staðar í Noregi hafa kennarar og nemendur við skóla og fjölskyld ur þeirra verið settar í sóttkví, þar sem eirara nemandinn var í Skodsborg þegar bólusóttartil- fellið kom upp. Alls hafa 29 Norðmemi komið til hælisins þann tíma, en smituraar hefur ekki orðið vart. blaðbííroarfolk OSKAST í eftirtalin hverfi Bergstaðarstrœti — Hverfisgötu trá 14-56 — Laufásvegur frá 58-79 — Hátún Rauðarárstígur frá 1-13 o.fl. — Lindargata Skúlagata TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100 BÚTASALAN hefst í dug ÞÚSUNDIB BÚT Al álnavöru markaður BUTAR BUTAR Lokað í hádeginu kl. 11,30 - 13,00 HVERFISGOTU 44 Álnavörumarkaðurinn er að Hverfisgötu 44

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.