Morgunblaðið - 08.11.1970, Qupperneq 12
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1970
Sverrir, Ragnheiður
Guðrún og- Erla Kristtn
sitja í stiganum
í Lindargötuskólanum
en fyrir aftan þau
standa Eygló Pála,
Sævar, Ásgerður,
Guðjón og Gauðlaugiu’.
Rætt VÍð
ungmenni
sem eru
eða hafa
verið í
framhalds-
deildum
Fyrir rúmu ári var komið á fót fram-
haldsdeiidum við Gagnfræðaskólann við
Lindargötu í Reykjavík og gagnfræða-
skólana á Akranesi, Akureyri og Nes-
kaupstað, þar sem ætlunin var að gefa
gagnfræðingum og nemendum með
landspróf kost á tveggja ára framhalds-
námi. Kennslan hófst síðari hluta októ-
ber og þótt ekki iægi Ijóst fyrir hvaða
réttindi próf úr framhaldsdeild kæmi
til með að veita, hófu 170—180 nemend-
ur nám í þessum deildum. Veturinn leið,
án þess að nemendurnir fengju ákveðin
svör við því, hvaða Ieiðir stæðu þeim
opnar að prófi loknu, en 11. maí var
gefin út regiugerð um réttindi þessara
nemenda til inngöngu í æðri skóla.
1 framhaldsdeildunum er stefnt að því
að hafa fjögur kjörsvið þar sem því
verður við komið: tæknikjörsvið, upp-
eldiskjörsvið, hjúkrunarkjörsvið og við
skiptakjörsvið. Ef litið er á reglugerð-
ina um réttindi nemenda sést m.a. að
lokapróf fyrra árs gefur eftirfarandi
réttindi: veitir nemendum tæknikjör-
sviðs rétt til inngöngu í síðari helming
undirbúningsdeildar Tækniskólans,
styttir iðnskólanám um 4 mánuði, veitir
rétt til að hefja nám á öðru námsári
Garðyrkjuskóla ríkisins og veitir rétt
til að setjast í 1. bekk (3. bekk) mennta-
skóla og sé um góðar einkunnir að ræða,
sem ná tilteknu lágmarki, getur nem-
andinn setzt I annan bekk menntaskóla
(4. bekk).
Lokapróf síðara árs getur veitt rétt-
indi til að stytta iðnskólanám um 8 mán-
uði, veitir inngöngu i framhaldsdeild
Bændaskólans á Hvanneyri og veitir
nemendum af hjúkrunarkjörsviði for-
gangsrétt til inngöngu í Hjúkrunarskól
ann, umfram aðra nemendur með jafn-
langt undirbúningsnám. Þá veitir loka-
próf af uppeldiskjörsviði rétt til inn-
göngu í 3. bekk Kennaraskólans, en
námsefnið í 5. og 6. bekk uppeldiskjör-
sviðs framhaldsdeildar er nú það sama
og i 1. og 2. bekk Kennaraskólans. Flest
þau réttindi, sem að framan greinir eru
háð skilyrðum um lágmarkseinkunnir og
í einstaka tilvikum þarf meðmæli og að
þreyta inntökupróf í einstökum grein-
um.
370 í 5. bekk
Þegar próf voru þreytt upp úr fram-
haldsdeildunum s.l. vor luku 137 nem-
endur prófum — og þegar þeir stóðu
með einkunnaspjöldin í höndúnum og
— Kennslan er góð út af fyrir sig og
það er gott að hafa svona „betrunar-
hæli“ fyrir þá, sem hafa dottið út af
sporinu vegna áhuga- eða viljaleysis.
Þetta er góð bráðabirgðaráðstöfun, en
það þýðir ekki að hlaða ofan á hús, ef
grunnurinn er ónýtur og eins þýðir
ekki að ætla sér að gera fullkomna
framhaldsdeild, þegar undirstöðuna
vantar. Því er það mín skoðun að það
þurfi að endurskipuleggja fræðslukerf-
ið frá grunni.
Vann
ár á
spítala
Erla Kristín Sigtryggsdóttir, sem nú
er í 5. bekk hjúkrunarkjörsviðs, tók
gagnfræðapróf 1969 og sótti þá strax
um skólavist í Hjúkrunarskólanum.
— Ég fór strax að vinna á Landspital
anurn segir hún. Það er nauðsynlegt að
kynnast starfinu, sem maður ætlar að
leggja fyrir sig, til að sjá hvort maður
fellir sig við það. Ég var gangastúlka
á handlækningadeild og fékk þá góða
innsýn í starfið. Þegar ég sótti um
Hjúkrunarskólann var mér sagt að gagn
fræðapróf nægði, en eftir að framhalds-
deildirnar byrjuðu eru þeir, sem taka
próf þaðan látnir ganga fyrir. Ég kemst
væntanlega að næsta haust.
sáu hvaða leiðir stóðu þeim opnar voru
ákvarðanir teknar eftir því hvert hug-
ur hvers og eins stefndi. Sumir sóttu
um menntaskóla aðrir um Tækniskól-
ann o.s.frv., og enn aðrir fóru út í at-
vinnulífið og 45 ákváðu að halda áfram
og taka 6. bekk, en svo er síðari bekk-
ur framhaldsdeildar nefndur. 1 vetur
verður 6. bekkur aðeins á tveimur stöð-
um, í Reykjavík og á Akranesi, en 5.
bekkur verður starfræktur á 11 stöð-
um og ber það vott um þann áhuga sem
nemendur sýna þessu námi. Verður 5.
bekkur starfræktur í Reykjavík, Akra-
nesi, Akureyri, Húsavík, Eiðum, Nes-
kaupstað, Vestmannaeyjum, Selfossi,
Keflavik, Kópavogi og Hafnarfirði.
Samtals verða í þessum skólum 370 nem-
endur í 5. bekk.
Skömmu eftir að framhaldsdeildin í
Lindargötuskóla tók til starfa i fyrra-
haust ræddi Mbl. við nokkra nemend-
ur um hvað fyrir þeim vekti. 1 ljós kom
að þessum ungmennum fannst þau ekki
hafa lært nóg, þau höfðu rekið sig á
það á vinnumarkaðnum að loknu gagn-
fræðaprófi að þau stóðu sig ekki nógu
vel í samkeppninni. Ung stúlka, sem
unnið hafði eitt ár að loknu gagnfræða-
prófi sagði einfaldlega: Það er óhjá-
kvæmilegt að læra eitthvað, því gagn-
fræðaprófið veitir ekki næg réttindi.
Til þess að fá einhverja hugmynd um
hvernig nemendum sem luku 5. bekk í
fyrra hefur reitt af og hvað þau, sem
nú eru í 5. bekk ætla sér, hittum við að
máli 8 ungmenni, fjóra pilta og fjórar
stúlkur, sem ýmist eru í framhaldsdeild-
unum eða hafa farið þaðan í aðra skóla.
„Betrun-
arhæIi,,
Sverrir Magnússon stendur á tvítugu
og í haust hóf hann nám í Menntaskól-
anum í Reykjavík og settist í 4. bekk.
Hann reyndi við landspróf á sínum tíma,
en féll.
— Maður áttaði sig ekki á því að það
þurfti að lesa og því fór sem fór, segir
Sverrir. Ég tók 4. bekk og gagnfræða-
Erlu Kristinu fannst svolitið skrýtið
að taka upp þráðinn að nýju, eftir að
hafa unnið í eitt ár. En henni lizt vel á
námsefnið á hjúkrunarkjörsviði.
— Þetta miðast við að veita okkur
sem mesta almenna menntun og búa
okkur þannig undir Hjúkrunarskól-
ann. Við fáum hér t.d. 6 tíma í dönsku
á viku, en flestar bækurnar í Hjúkrun-
arskólanum eru á dönsku. Annars get
ég ekki dæmt um námið hér strax —
en það er gott að fá tækifæri til þess
að læra hér og vera í æfingu þegar
námið í Hjúkrunarskólanum byrjar.
próf og hélt síðan til Svíþjóðar og var
einn vetur á lýðskóla þar. Eftir það var
ég staðráðinn í að læra eitthvað meira
og þegar ég kom heim frétti ég af því
að framhaldsdeildirnar væru í undir-
búningi.
— Hafðirðu eitthvert ákveðið fram-
haldsnám í huga þegar þú fórst í fram-
haldsdeild?
— Ég fór á tæknikjörsvið og ætlaði
mér í Tækniskólann eftir veturinn. Við
fengum ekki að vita fyrr en um miðjan
apríl hvaða réttindi við fengjum eftir
veturinn, en þegar prófin gengu vel hjá
mér skipti ég um skoðun og sótti strax
um að fá að fara í 4. bekk (2. bekk)
menntaskóla.
Sverrir er i máladeild og aðspurður
hvernig hann standi í samanburði við
þá, sem komu úr 3. bekk menntaskóla
sagði hann, að honum fyndist hann
standa þeim jafnfætis, en námið væri
tekið fastari tökum en í þeim skólum,
sam hann hefði verið í áður.
Að loknum eins vetrar kynnum sín-
um af náminu í framhaldsdeild segir
Sverrir:
*
I
Tækni-
skólann
Þegar Sævar Geirsson tók gagnfræða-
próf vorið 1969 var hann alveg óráð-
inn í hvað hann ætti að gera. Um sum-
arið frétti hann af því að stofnun fram-
haldsdeilda væri í undirbúningi og
ákvað að fara þangað — á tæknikjör-
svið.
— Þótt ég færi I framhaldsdeild hafði
ég ekki hugmynd um hvað síðan tæki
við — enda vanur að láta hverjum degi
nægja sín þjáning, segir Sævar.
Reglugerðin um þau réttindi, sem námið
veitir kom líka ekki fyrr en um hálfum
mánuði fyrir próf og það var auð-
vitað allt of seint. Fram að þeim tíma