Morgunblaðið - 08.11.1970, Qupperneq 14
38
MORGXJN'BLADIÐ, SUNiNUDAGUR 8. NÓVBMBiER 1970
Haustlaukar
Það er ekki öllum gefið að
láta gróður lifa, og margir, sem
verða fyrir vonbrigðum með til-
raunir í þá átt. En þó að sumar-
Myndin sýnir, hvernig koma má
hyacintulauk fyrir í glasi. Svo-
lítið vatn er sett neðst I glasið,
laukurinn má þó ekki ligg.ja í
vatninu, en rætumar teygja sig
niður í það.
ið sé liðið og vetur framundan,
er engin ástæða til að leggja
alla ræktun á hilluna. Nú eru
það laukarnir, sem við getum
reynt okkur við, bæði til að
setja út í garðinn og eins til að
setja í glas eða skál inni.
Við höfum beðið Hendrik
Berndsen hjá verzluninni „Blóm
og ávextir," að segja okkur dá-
litið frá laukum og meðferð á
þeim. Samkvæmt upplýsingum
hans hafur sala á laukum auk-
izt mjög mikið síðustu árin, og
aldrei verið til jafn mikið úrval
og í ár. Kaldir vetur undanfarið
hafa ekki dregið úr laukasölu.
Hægt er að setja niður lauk úti,
þótt frost hafi komið, svo fram-
arlega sem hægt er að gera holu
til að koma lauknum niður í.
Laukar þeir, sem settir eru nið
ur að hausti eru túlipanar, páska
liljur, krókusar, mikið af ýms-
um smávöxnum plöntum, t.d.
vetrargosa, hundalilju, vorboða,
sem er falleg í alls kyns steina-
beð. Að dómi Hendriks, er íal-
legra að setja laukana i hnapp,
frekar en að dreifa þeim mikið,
og fallegt er að raða í hópa eftir
litum. Flestir smálaukanna eru
fjðlærir, sömuleiðis páskaliljur.
Túlipanar eru yfirleitt einærir,
geta verið tvíærir og sumar teg-
undir eru fjölærar. Einkar vel
hafa reynzt túlipanar, sem heita
Kaufmanniana, mjög falleg gerð,
sterkir og lágvaxnir túlipanar,
sem standa vel, hæfa auk þess
vel veðráttunni hér hjá okkur.
Það sem athuga þarf í sam-
bandi við laukana, er að setja
þá niður í rétta dýpt. Mjög er
BLÓMAHÚSIÐ
ÁLFTAMÝRI 7
Sími 83070.
Blómaunnendur venja komu sína í Blóma-
húsið. Þar er skreytingameistari sem raðar
blómunum saman í vönd eða aðra skreyt-
ingu eftir yðar smekk.
Verð við allra hæfi.
Opið alla daga, öll kvöld og um helgar.
BLADBURÐARFOIK
OSKAST
í eftirtalin hverfi
Rauðarárstígur — Laugaveg 114-171
Úthlíð — Meðalholt
Höfðahverfi
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 1010C
00000009009000064
ÍOO
þarf að vera dálítið vatn í glas-
inu, þá teygja ræturnar sig nið-
ur í vatnið, þegar laukurinn
byrjar að spíra. Hvort sem lauk
arnir eru settir i glas með vatni
í eða skál með mold, þarf að
geyma þá á köldum stað og dimm
um, við ca 5—7 stiga hita, þar
til hann byrjar að springa út,
en þá má hann flytjast í stofu-
hita. Gott er að breiða yfir skál
ina eða glasið, sjá t.d. mynd.
Tíminn, sem þetta tekur, er ná-
lega tveir mánuðir venjuleg-
ast. Það er þó ekki útilokað að
hægt væri að fá blómstrandi
hyacintu um jólaleytið, ef laukn
um er komið fyrir strax.
Hyaeintur eru bláar, hvítar
eða bleikar að lit og hið mesta
stofuprýði, geta staðið í þrjár
vikur í fullum blóma.
Myndin sýnir hinar ýmsu tegundir lauka, sem á boðstólum eru.
Yfirleitt er laiikunum plantað u.þ.b. 10—12 em niðnr í moldina,
túiipönum og páskaliljum heldur dýpra en krókiisum og irísum.
þarf þó að hafa það lag, að lauk
Urinn geti hvílt á kanti, því að
hann má ekki liggja i vatni. Það
Það virðist þvi véra á flestra
færi að koma til lauk heima hjá
sér, eftir þeim upplýsingum, sem
við höfum fengið hjá Hendrik
Berndsen. Kostnaðurinn er ekki
mikill og ætti því tæpast að fæla
okkur frá því að reyna þetta.
Það veitir flestöllum gleði að
geta látið gróður vaxa hjá sér
og þvi ætti hyacinta, sem við
höfum fylgzt með frá þvi áð hún
var örlitill laukur í glasi áð
veita okkur tvöfalda ánægju
blómstrandi á stofuborðinu.
— fyrir þær sem vilja vera
grannar
Hyacintur, laukurínn — og í
fullum skrúða.
gott að setja mosa yfir moldina,
þar sem laukamir eru, og hafa
hann yfir allan veturinn, eða
þar til hætta á næturfrostum er
liðin.
Það er ekki siður ánægjulegt
að fá sér hyacintulauk eða túli-
pana til að setja í glas eða skál,
og láta blómstra hjá sér um jól,
eða þá ekki fyrr en í janúar,
þegar tómlegt verður eftir að
jólaskraut er tekið niður. Hér
hafa verið til sérstök hyacintu
glös, en auðvitað er hægt
að nota það sem til er. Glasið
IESI0
I
á vegum
DHGLEGH
1. Góður morgunverður.
Borðið eitthvað heitt í morg-
unverð, þá er ykkur síður hætt
við að langa i eitthvað um miðj-
an morgun. Eggjahvíturík fæða
eins og bacon, egg, fiskur, e.t.v.
með ofurlitlu smjöri, er ekki fit-
andi og þið verðið lengur sadd-
ar.
2. Gamalt ráð.
Standið upp frá matarborðinu,
þó að þið gætuð borðað meira.
3. Lærið að fara í boð.
Hafnið sterkum drykkjum, fá-
íð ykkur fremur ofurlítið hvít-
vin — sódavatn er líka ágætt!
4. Hættið að borða sætindi.
Burstið tennurnár pft, bragðið
af tannkreminu getur blekkt
bragðlaukana og komið í stað
sælgætis.
5. Hreyfið ykkur eftir máltíðir.
Ef þið borðið eitthVað eftir
kvöldmat, verður það að .vera
létt og lítið. Borðið því stærri
máltið um miðjan dag eða há-
degi, þá getið þið hreyft ykkur
meira og gengið, svo að hitaein-
ingarnar eyðist.
6. Dragið úr matarlystinni.
Hálfur grape-ávöxtur fyrir
máltíð seður sárasta hungrið.
7. Gangið meira.
Hreyfið ykkur og farið í auka
göngutúr!
8. Grannir fætur.
Munið, að gráir og brúnir
sokkar eru grennandi.
9. Gott ráð.
Aukapundin leyna sér ekki.
Látið taka mynd af ykkur (með
heimilismyndavélinni) og geym-
ið. Byrjið síðan á megrunarkúrn
um, og þegar þið hafið létzt um
4 kg, takið þá myndina fram,
það er ágæt uppörvun, og lítið
alltaf á myndina, þegar þið -er-
uð að því komnar að gefast upp.
10. Heilsan fyrir öllu.
Þegar ykkur er boðið konfekt,
segið þá, að þið séuð að grenna
ykkur af heilsufarslegum ástæð
um. Fáir munu þá leggja hart að
ykkur að þiggja sælgætið — og
satt er það þið eruð hraustari
grannar en feitar.
11. Hafið ekki kökur og kex
fyrir aiigunum.
Látið aðra i fjölskyldunni um
að kaupa kexið og baka kökum
ar, og geyma þær í lokuðum köss
um fyrir gesti.
12. Verið staðfastar.
Ef ykkur er gefinn konfekt-
kassi, opnið hann þá ekki. Gefið
hann strax grannri vinkonu
ykkar.
13. Vandið val fatanna.
Veljið fötin vel, vandið litaval,
og klæðizt helzt ekki mörgum
litum í einu. Ef hugsa á um síð-
ari móð, er það midi en ekki
maxi, sem grennir.
14. Veljið klæðilega hárgreiðslu.
Greiðið hárið frá enninu, það
lengir andlitið og grennir en
fram með eyrunum.
15. Kál.
Sjóðið það lítið (5—7 mín I
eins litlu vatni og hægt er). Setj
ið sítrónusafa á það. Rífið hrátt
kál í salöt og borðíð gulrætur
með.
16. Eruð þið svangar á
nóttunni?
Fáið ykkur heitan mjólkur
drykk, en munið, að þá má ekki
drekka neina mjólk yfir daginn.
17. Andlitssnyrtingin.
Vandið vel snyrtinguna, reyn
ið nýjan lit, gjarnan dekkri und
ir kinnbeinunum.
18. Gott ráð.
Munið, að það grænmeti, sem
vex ofanjarðar er vanalega
meira fitandi en það sem vex
neðanjarðar.
19. Fötin orðin of þröng?
Þegar þið eruð á megrunar-
kúr, mátið þá fötin ykkar hálfs-
mánaðarlega, og þegar þau
passa, halda þá upp á það.
20. Njótið lífsins.
Látið ykkur ekki leiðast
(Hugsið ekki um mat). Farið I
langar gönguferðir og hafið allt
af nóg fyrir stafni.
20 GÓÐ RÁÐ