Morgunblaðið - 08.11.1970, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÖVEMBER 1970
39
Sítt eða stutt pils
40 stúlkur, sem vinna hjá hinu
frœga skartgripafyrirtæki „Cart
ier“ í New York, hefur beinlínis
verið skipað að klæðast midi-
sidd. Þær hafa hlýtt þeim til-
mælum, en þó ekki án þess að
kvarta. 1 fleiri stórum verzlun-
um í New York hefur verið far-
ið fram á það við afgreiðslu-
stúlkur, að þær klæðist midi-
sídd, enginn gengið svo langt að
krefjast þess beinlínis nema þeir
hjá „Cartier".
Blómkál
BLÓMKÁL
Nú eru líklega síðustu forvöð
að fá blómkál, í ár, og því ekki
seinna vænna að notfæra sér
það.
Bakað blómkál
2 blómkálshöfuð
vatn, salt
2 matsk. smjör
4 matsk. hveiti
3 dl. kálsoð og mjólk
1—2 egg
4 matsk. rifinn ostur
pipar eða paprika.
Sjóðið blómkálið, látið það i
heilu lagi í smurt eldfast mót.
Búið til jafning úr smjöri, hveiti,
kálsoði og mjólk. Blandið eggja
rauðum og þeyttum hvítum í
jafninginn, kryddið hann og hell
ið yfir kálið. Stráið rifnum osti
yfir. Setjið mótið i glóðarofn eða
vel heitan ofn þar til fallegur
bökunarlitur er kominn á rétt-
inn. Hægt er að sleppa jafningn
um, en smyrja þess í stað olíu-
sósu yfir kálið, strá osti yfir og
baka. G'óður miðdegisverðarrétt
ur með hrærðu smjöri og kart-
öflum. Forðizt að ofsjóða bióm-
kálið.
Fljótleg blómkálssúpa
11 kjötsoð eða grænmetissoð
30 g smjör (1% matsk.)
30 g hveiti (3 matsk.)
1 lítið blómkálshöfuð
14 dl rjómi eða eggjarauður
Salt, nýmalaður pipar.
Hitið soðið. Hrærið saman í
skál, smjör og hveiti, látið það
út i soðið og hrærið í með þeyt-
ara. Skiptið kálinu í hríslur,
skerið stilkinn í bita, sjóðið það
í súpunni við vægan hita, unz
það er hæfilega meyrt. Bætið
salti og pipar í súpuna eftir
þörf. Þeytið rjóma eða egg i
súpuskálinni, ausið súpunni út i.
17/ sölu
Raðhús, 200 fm, til sölu í Fossvogi,
getur selzt fullbúið ef vill.
Opið sunnudag klukkan 2—7.
FASTEIGIMAMIÐSTÖÐIN,
Austurstræti 12.
Simi 20424 — 14120.
Forréttir
HRÍSGR.TÓN OG RÆKJUR
150 gr. löng hrisgrjón
1 matsk. olía
200 gr. bacon
200 gr. rækjur
nokkur kapers korn
6 matsk olía
1 blað hvítlaukur
% tsk. Worchestersósa
safi úr % appelsínu
salt, cayenne pipar eða karrý
Persille til skrauts
Hrísgrjónin sett i sjóðandi
vatn, 1 matsk. olíu bætt út í,
soðið í ca 12 mín. þar til meyr.
Vatnið látið renna af. Baconið
brúnað á pönnu, tekið af og
skorið í smábita. Hrísgrjónunum
og baconi blandað saman, sett
yfir rækjurnar ásamt kapers. Þá
er blandað saman með gaffli
olíu, hvítlauk, Worchestersósu,
appelsínusafa, salti, pipar eða
karrý og hellt yfir rækjurnar og
hrísgrjónin. Borið fram í eins
skammta diskum eða hörpudisk-
um. Nægir fyrir 4.
Hreinn sínii.
Bezt er að hreinsa síma úr
veiku sápuvatni, t.d. með vaska-
skinni. Varast ber að nota sterkt
sápuvatn, þar eð það getur
skemmt yfirflöt símans og er þá
hættara á að ryk og alls kyns
óhreinindi festist.
TÚNFISKSSALAT
1 ds. túnfiskur
(ca. 200 gr. innihald)
1—2 tómatar
1— 2 selleristilkar
nokkrar olífur
2— 3 ansjósur
2 matsk olia
Sósan:
2 matsk. olía
1—2 tesk. edik
salt, pipar, sinnep, salatblöð
Túnfiskurinn tekinn sundur í
fremur litla bita, tómatarn-
ir skornir i báta, selleríið skor-
ið i sneiðar. Þessu blandað sam-
an, olifum og ansjósum bætt í.
Sósan: olía, edik, salt, pipar og
sinnep hrist saman í skál og
hellt yfir allan fiskinn. Borið
fram á salatblaði á litlum diski
eða hörpudiski. Fyrir 2.
BOBÐ FYRIR BARNIÐ
Ef aðeins þarf að gefa einu
barni smábita um miðjan dag-
inn, og eldhúsborðið er upptek-
ið við annað, má leggja plötu
ofan á eina eldhússkúffuna, sem
auðvitað má ekki draga of langt
út, og er þá komið borðpláss fyr
ir einn.
Keðjur eru notaðar til margra
hluta og oft til mikillar prýði.
Bráðsnjöll er hugmyndin um að
nota keðju fyrir hlýra á pilsi.
Sjá mynd.
Af hverju RING MASTER?
RING MASTER innanhússtalkerfi er nauð-
synlegt fyrir fyrirtæki. Þau vilja viðurkennd
tæki. Þess vegna kjósa þau RING MASTER.
RADIOSTOFAN SF.
Óðinsgötu 4 — Reykjavík — Sími 14131.
óskar eftir
einkaumboðsmanni
til sölu á allskonar
„spray"-brúsum
fyrir bíla- og benzinstöðvar, verkstæði, iðnfyrirtæki, kaupfélög,
málarabúðir, járnvöruverzlanir o. fl.
Við óskum eftir fyrirtæki, sem hefur góð sambönd, en sölu-
varningur vor veitir mjög góða hagnaðarmöguleika.
Upplýsingar veitir Ingvar Petersen, Hótel Sögu herbergi nr. 628.
NÝJUNC! NYJUNC!
„3-D YARN ART"
er nýjung í föndri
fyrir stúlkur á öllum aldri
LEIKFANCAVERZLUNIN
Skólavörðustíg 10
H afnarfjörður
4
Á
litir.
Leiðbeinum með litaval og eins og áður — 1. flokks þjónusta.
Opið í hádeginu. — Næg bílastæði.
Byggingavöruverzlun BJÖRNS ÓLAFSSONAR
Reykjavíkurvegi 68, sími 52575, Hafnarfirði.