Morgunblaðið - 15.11.1970, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.11.1970, Blaðsíða 12
12 MORGUN'BLAÐ'IÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVUMBKH 1970 „Þær miklti ábyrgðir og skuldbindingar, scm íslenzk hrepps- og bæjarfélög ganga í fyrir atvinnureksturinn á við- komandi stað, eru nijög einkennandi í uppbyggingti byggðarlaga á íslandi,“ segir Björn Stefánsson, deildarstjóri, sent í tvö ár hefur notið Vís- indasjóðsstyrks við rannsókn- ir á íslenzkunt bytígðarlögum frá hagrrænu og féiagslegu sjónarmiði. „Þetta hefur þróazt svo, þar sem íslenzk sveitarfé- lög eru flest samkynja at- vinnulega sem ég kalla en ósamkynja sveitarfélög við sjávarsíðuna — þar sem eru fleiri en 300 íbúar í sjávar- plássi og fleiri en 200 utan þess — eru hér aðeins Vopna- fjarðarhreppur og Ölfushrepp- ur með Þorlákshöfn." — Vegna mikils óstöðugleika í sjávarútveginum, heldur Björn áfram, hafa oft á tíðum ili sér sínum fyrir atvinnu. Það er að mestu einkamál hvers og eins, þó hann leggi niður útgerð og flytjist burt. En á sínum tíma kemur sVo frystihúsið í Stöðvarfjörð — að vísu er hreppurinn ekki að- aleigandi, en það lendir mjög á hreppnum að tryggja rekst- ur hússins, einkum með þvi, að útvega báta til að sjá húsinu fyrir hráefni. Nú stendur allt og fellur með frystihúsinu. Því er annað óhugsandi en hrepps félagið taki á sig þá ábyrgð, sem þarf til að húsið gangi vel, Þetta er og tiltölulega einfalt allt saman, því Stöðfirðingar eiga það ekki við nágranna- byggðarlögin, hvernig þeir nota hreppsfélagið. Komdu svo með mér í sjávar pláss á Nýfundnalandi árið 1968. Á Nýfundnalandi rik ir miðstjórnaraflið í sveitar- stjórnarmálum. — 1 þessu þorpi er atvinnulífið nú sem værum við á Stöðvarfirði 1945. „Skipulagið þarf að sveigja eftir landsháttuma — rætt við Björn Stefánsson, cleildarstjóra, um uppbyggingu byggðarlaga á fslandi komið upp árekstrar milli getu einstakra atvinnufyrirtækja og þeirra skuldbindinga, sem þau hafa orðið að takast á herðar. Til þess að draga úr þessu misræmi hafa íbúar byggðarlag anna gripið til þess ráðs að taka á sig i auknum mæli sam- eiginlega ábyrgð á at- vinnurekstrinum og nota þá töku hreppsins sem aðaleig- anda i útgerðar- og fiskverk- unarhlutafélagi, þó það kunni að vera, að slíkt sé ekki beint á stefnuskrá flokksins. Hér hef ur nauðsyn ráðið. Hins vegar virðist draga úr því, að komið sé á fót hreinum hrepps- og bæjarfyrirtækjum í útgerð og fiskverkun. Björn Stefánsson. hreppsfélagið til þess. Þar sem sveitarfélagið er samkynja at- vinnulega eru þessar skuld- bindingar í þágu allra íbúanna og því hefur jafnan legið ljóst fyrir, að þarna er aðeins ver- ið að taka úr eimjm vasanum og flytja í annan. Þannig hafa hreppsfélögin verið notuð til að efla atvinnulífið á staðnum, þar sem fólkið er í beinni línu við það stjórntæki, sem til þarf. Þessi þróun hefur á engan máta orðið til vegna einhverr- ar ákveðinnar opinberrar stefnu, t.d. ríkisstjórnar, held- ur hefur þetta aðeins verið bezta lausnin á knýjandi nauð- synjamáli hvers tíma á hverj- um stað. Keðjan hefur teygzt áfram og svo lokazt hringinn í kringum landið. Hér virðist skipta litlu máli, hvernig fylgi stjórnmálaflokkanna er á hverj um stað. Til dæmis styðja sjálf stæðismenn á Stokkseyri þátt- — Hvernig er þessuni málum háttað með öðrum þjóðum? MIÐST.IÓRNARVALD OG SIÁI.FST.IÓRN — 1 brezka stjórnkerfinu til dæmis er miðstjórnarvaldið svo mikið, að einstök sveitarfélög mega sig lítt hræra til atvinnu reksturs. í hæsta lagi mega þau kannski eiga vatnsveituna. Hjá okkur er takmörkunin eiginlega öfug, því það er í reynd fátt, sem sveitarfélög hér á landi ekki geta gert. 1 elleftu grein sveitarstjórnar- laga okkar segir reyndar, að án samþykkis ráðuneytis megi einstök sveitarfélög ekki leggja út í iðnað, verzlun eða útgerð. Að því er kunnugir segja mér, hefur það þó aðeins einu sinni gerzt, að sveitarfé- Iag sækti um leyfi til útgerðar — það var Reykjavíkurborg í stríðslok. Þau skörpu ski'l, sem hér eru milli hreppa og kaupstaða og fjárhagslegt sjálfsforræði þeirra hafa oröið þeim drjúg lyftistöng. Við skulum taka sem dæmi, að útvega þurfi bát til ein- hvers staðar. Það er jú ailtaf að gerast hér hjá okkur. Allir íbúar staðarins eru mjög háðir því að það takist að útvega þetta tæki til að tryggja hráefni. Jafnvel kaup maðurinn, sem aldrei kemur kannske nálægt fiskinum, og kona hans, sem þó ef til vill vinnur í frystihúsinu, eiga einn ig sitt undir því að báturinn komi. Þannig eru þær skuld- bindingar, sem til þarf, augljós ir hagsmunir allra íbúanna og þeir þurfa ekki að leita tii bændanna frammi í sveitinni til að nota hreppsfélagið, því bændurnir eru í öðrum hreppi. Ef aftur á móti Skagafjörð- ur væri ailur eitt sveitarfélag að sænskri eða norskri mynd, þyrftu íbúar Sauðárkróks að leita til bændanna frammi í firðinum og úti í Fljótum til að geta skuldbundið hreppsfélag- ið. Og það má álltaf búast við, að þeir sem ekki eiga beinna hagsmuna að gæta beiti sér gegn málinu. Efalaust skilja bændurnir frammi í firðinum þarfir Sauðkræklinga fyrir nýjan bát en þeir hafa líka sín sérstæðu hagsmunamál. „Hafið þið ekki heyrt um kalið hjá okkur?" Hofsósbúar myndu ef til vill segja sem svo: „Ja, okkur vantar líka bát og við viljum hafa fullt samræmi í þessum efnum.“ Hvað skvldu svo F’ljótamenn segja? Strax þarna geta rekizt á hagsmun- ir, sem erfitt kann að reynast að samræma. Ég býst við þvi, að lausnin yrði oft sú, að ekkert yrði gert. Það er reynslan frá sjávarsíðunni í Noregi, þar sem fleiri byggðarlög eru í einum hreppi. Sameining sveitarfélag- anna á þá kannski ekki upp á pallborðið hjá þér? Ég tel það hagkvæmast fyrir atvinnulega uppbygg- ingu landsbyggðarinnar, að þéttbýlið á hverjum stað sé sér stakt sveitarfélag með fáum undantekningum þó. Að flækja saman í eitt sveit- arfélag fólki, sem ekki á aug- ljósa samleið í atvinnumálum, tel ég óheppiilegt. Það sem skiptir sköpum í atvinnulegu tilliti hefur reynslan sýnt að er möguleiki fólksins á hverjum stað til að taka á sig þær skuldbindingar, sem því er hag ur að, án þess að eiga eitthvað undir öðrum, sem þá ekki eiga með því samstæða hagsmuni. Og ég tei — ætti kannski frekar að spyrja í svona blaða- viðtali. Er það ekki ein megin- ástæða þess, hve íslenzku sjáv- arplássin réttu ótrúlega fljótt úr kútnum eftir aflabrest og gjaldeyristap, að á hverjum stað hafði fólkið sitt eigið stjórntæki, sem það gat notað til að rétta við atvinnulíf sitt? SÖGUR TIL SAMANBURÐAR Mig langar til að leggja enn frekari áherzlu á það, sem ég hef kastað hér fram með því að segia þér tvær sögur til saman burðar: Hverfum nú til Stöðvarfjarð- ar á því herrans ári 1945. Þar rær hver á sinni trillu og menn salta aflann sjáifir. Engir stærri bátar eru til. Hvert heim Þetta ástand er síður en svo fólkinu i plássinu að kenna. En það hefur hvorki fjármála- vald né sveitarstjórnarvald til að rífa plássið sitt áfram — fólkið skortir sjálfsforræði. Miðstjórnarvaldið er í höfuð- borginní og bankar landsins og sjóðir eru lokaðir þessu litla plássi á ströndinni. En þangað liggur vegur, sem í engu gefur eftir Keflavíkur veginum okkar! SAMTÖIÍ OG SÉRSTAÐA — En geta ekki íslenzk sveit arfélög átt einhvers konar sam vinnu? íslenzk sveitarfélög eiga nú þegar með sér margháttaða samvinnu. Ég hef mikið' veit því fyrir mér, hvernig koma má þeirri samvinnu í skipu- legra form og hún má verða án þess að nokkru sé spillt i atvinnumálum eða dregið sé úr þeirri þjónustu, sem menn nú geta fengið heima hjá sér. Annars er ástæða til að minna á þá skipulagslegu möguleika, sem reynslan hefur kennt okkur að eru til, til að gera smáar einingar efnahags- lega hagkvæmar. Við höfum langa og góða reynslu í þeim efnum ba’ði i sjávarútvegi og landbúnaði. í þeim atvinnugreinum eins og í iðnaði getur tiltölulega lít- il framleiðsla oft gengið með góðum árangri — í landbúnaði eins og tveggja manna fyrir- tæki og við hraðfrystingu á fiski frystihúss með nokkra tugi manns í vinnu. — Hins veg ar standa slík fyrirtæki illa að vígi á öðrum sviðum. Til þess að bæta úr því hafa hér á landi verið stofnuð lands- samtök, sem annast sölu á af- urðum og veita tæknilega þjón ustu. Ég er að bíða eftir því, að öll litlu iðnaðarfvrirtækin, sem við höfum um allt landið — og þá skulum við hafa í huga, að iðnaðurinn er sú atvinnugrein, sem er talin hafa bezt vaxtar- Framhald á bls. 21 5 = . ORNINN • En á sínum tíma keniur svo frystihúsið ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.