Morgunblaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 22
22 MORGUNBfLABH), ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1970 Reimar Helgason á Bakka — Minning Fæddur 27. maí 1902. Dáinn 27. nóvember 1970. Fáir sjá fjallið eins og það er í raun og veru meðan þeir standa við rætur þess. t Fósturmóðir mín, Ingibjörg Björnsdóttir frá Gottorp, andaðist í Landspítalamim 29. nóvember. Þorgerður Þórarinsdóttir. Fram til 9 ára aldurs átti ég heima í lágreistum torfbæ á Löngumýri í Skagafirði. Mér þótti vænt um þennan gamla bæ og fannst hann fallegur. Ég dáði þar hverja veggarholu, er hafði að geyma leggi, völur og skeljar, — leikföng íslenzkra barna um aldaraðir. Sérhver kvistur í ómáluðum baðstofuþiljum hafði myndræna sögu að segja, er gerði þetta gamla heimkynni mitt að ævin- týrahöll. Um þennan gamla bæ verða mér minningar hugljúf- ar. Þar dvaldi líka margt gott fólk, sem mér þótti vænt um, auk foreldra minna, ömmu og systra. Það var hún Binna, fóst- ur- og leiksystir mín, sem mér þótti mjög vænt um, vinnumenn irnir, Nonni og Keli, sem voru vinir mínir, Þrúður frændkona mín, sem sagði með skemmtileg- ar sögur og hún Inga mín, er ég t Bjarnveig t Bróðir okkar, Guðmundsdóttir, Sigurjón Kristjánsson, Fagurhóli, Biesugróf, Hjöltum, Neskaupstað, andaðist föstndagin.n 27. nóv- andaðist í Landspitalamum ember. lauigardaginin 28. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Vandamenn. Sigriður Kristjánsdóttir, Ásbjörg Kristjánsdóttir, Ólafur Kristjánsson. t Konan mín, t Guðrún Karítas Faðir otekar, Pétursdóttir, Ari Jónsson, andaðist að Hrafnistu 26. nóv- Gerðnbergi, ember. Jarðarförin fer fram frá Fosis- andaðist .30. þ.m. i Lamdspítal- , vogskirkju miðvikudaginn 2. anmm. desember kL 10.30. Helgi Finnbogasen og dætur. Jón Arason, Þórður Arason. t Eiginmaður minn, faðir okk- t Móðir okkar, aar, tengdafBfkr og afl, Astríðnr Helgadóttir Kar O. Runólfsson, frá Stokkseyri, tónskáld, andaðiist að Hrafinistu 30. nóv- lézt á heimili sdwu aðfararnótt sunmudagsins 29. nóvember. ember. Börnin. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiríkur Sveinsson, t Hjartkær eiginkcHia mín, Þórsgötu 26A, Jóhanna Guðmundsdóttir, andaðisit 27. nóveínbetr. Þykkvabæ 1, Fyrir mina hönd og annairra aðstandenda, verður jarðsungln frá Foss- vogskirkju flmmitudaginn 3. desember kl. 1,30 e.h. Ingibjörg Guðniundsdóttir. Guðjón Pétursson. t Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar ARI EINARSSON húsgagnasmiðameistarí. Sandgerði. lézt 29. nóvember síðastliðinn. Erla Thorarensen og börn. elti á röndum. Já, það var margt gott fólk, sem dvaldi í þessum gamla bæ bæði sumar og vetur. -— Margt kaupafólk og oft marg ir gestir. Það voru sorgarstund- ir fyrir mig að loknufn slætti, þegar kaupafólkið fór í burtu og glaðværir hlátrar þess heyrðust ekki lengur, en lifað var í von um, að þetta góða fóik kæmi aftur næsta sumar. Á sólbjörtum síðsumars sunnu degi stóðum við Ólöf systir mín úti á hlaðinu á Löngumýri — fyrir framan burstirnar tvær og skálaþilið fyrir norðan þær. Þá sáum við allt í einu fjóra krakka koma þeysandi sunnan túngöt- una. Það voru börnin á Kirkju- hóli — greindir og skemmtilegir t Þökkum innliiega auðsýnda saroúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og bróð- ur, Þórs Birgis. Sigríður S. Jónsdóttir, Ragnar S. Sigurðsson, Sigurður .Tón Ragnarsson. Ólöf Þ. Ragnarsdóttir. krakkar, eins og þeir áttu kyn til. Foreldrar þeirra hétu Helgi, af þingeyzkum ættum og Sigur- björg, Eyfirðingur að ætt, talin gáfuð kona og vel hagmælt. Já, það var nú gaman að fá þessa krakka til þess að leika sér við og svo komu þau líka með ber og þau þóttu Hólmabörnum hnossgæti. Kristinn var elztur þessara barna — nú vistmaður á gamalmennahælinu á Sauðár- króki. Reimar næstur í röðinni, þremur árum eldr: en ég. Þar næst Anna, jafnaldra mín, nú búsett sæmdarkona á Akureyri. Yngst þeirra systkina var Bima, nú húsmóðir á stórbýlinu Fremsta-Gili í Langadal. Á næsta ári, er ég var 10 ára, brá Helgi Guðnason á Kirkjubóli búi, eftir andlát konu sinnar. Man ég vel hvað ég kenndi í brjósti um börnin á Kirkjubóli vegna móðurmissisins. Þá fluttist Reimar 13 ára gamall að Löngu- mýri til foreldra minna og yíð það heimili hefur nafn hans ver ið bundið æ síðan, því þar festi hann rætur allt til endadægurs. Við Reimar urðum því leiksystk in og framkvæmdum í félagi mörg græskulaus hrekkjabrögð, er við hlógum dátt að, ef vel heppnuðust. Hefur aldrei um langan æviferil fallið skuggi á vináttu okkar. Er Reimari „óx fiskur um hrygg“, kom það brátt í ljós, að þar var á ferð æðrulaust karl- menni, sem aldrei bar í bak eða fyrir víl eða vol. Kunnur var hann fyrir snilliyrði, glaðværð og geðprýði, enda naut hann mikilla vinsælda. Reimar var ekki skólagenginn, en hann var sjálfmenntaður. Stálminnugur var hann með óvenju skemmti- legan frásagnarhæfileika. Kunni urmul af ljóðum og lausavísum og sagði vel frá tildrögum þeirra. Var því alltaf gaman að tala við Reimar, þvi hann átti kímnigáfu í ríkum mæli. En undir gaman- yrðum hans bjó djúphyggja og alvara. Reimar kunni með fjár- muni að fara, enda græddist honum brátt fé, svo hann gat t Innilegar þakkdr sendum við öilum þeim, er sýndu okkur samúð við aindlát og jarðar- för raannsins míns, föður oktear, tjewgdaföður og afa, Elíasar Jóhanns Oddssonar. Fyrir höind aðstamdenda, Aðalheiður VaMimarsdóttir. t Eigiamaður mimn, Pétur Þorsteinsson, Mið-Fossnm, verður jarðsunginn frá '-ívanneyrarkirkj u laugardag- nm 5. desember tol. 14. •’erð verður frá Umferðar- niðistöðinm kl. 11 og Fólks- 'ílastöðinni, Akrfmesi, kl. 2.45. Guðfinna Giiðmundsdóttir, börn, tengdaböm og barnaböm. t Inndlegar þaktoir til allra, fjær og nær, sem sýndu okk- ur samúð við fráfall Björgvins Ólafssonar, Hverfisgötu 59B. Ingibjörg Valdemarsdóttir, Una Þorsteinsdóttir, Reynir Björgvinsson, Huida Sigurðardóttir, Gréta Björgvinsdóttir, Rúnar Arason, Aðalheiður Rúnarsdóttir. t Inn-ilegair þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systuir okkar og fósturmóður, Ólafar Guðnýjar Jónsdóttur. Sérstaklega viljum við þakka hjúkrunariiði og öðru starfs- fólM á Hrafnistn fyrir þá miklu hjálp, sem það veditti henni. Sigurbjörg Jónsdóttir, Ingveldur Jóna Jónsdóttir, Jón Jónsson, Gnnnar H. Þórisson. t Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem heiðruðu minn- ingu ÞORSTEINS JÓNSSONAR (Þóris Bergssonar) rithöfundar, Bárugötu 6. Vandomenn. keypt Bakka á Vallhólmi, næsta bæ við Löngumýri. Þar gerðist hann mikill jarðræktarmaður, byggði þar myndarlegt „penings hús“ og stóra hlöðu, er ætíð hafði að geyma nægan heyforða, þótt búið væri stórt og skepnum ar margar. Sundmaður var Reimar ágæt- ur, en hélt því lítt á loft. Hesta- maður góður. Vil ég geta þess til gamans hér, að eitt sinn teymdi hann brúnan hest, er hann fékk hjá mér, upp á bratt þakið á gamla íbúðarhúsinu, er foreldrar mínir byggðu á Löngu mýri og settist þar á bak á þann brúna og var tekin mynd af þeim félögum þar uppi. Já, Reimar var mikill dýravinur Munu flestir minnast, er til þekktu, hundsins Kjamma er bar bvo mikla tryggð og ást til Reimars, húsbónda síns, að hann fylltist svo mikilli sorg, ef Reimar fór eitthvað án hans, að hann missti alla matarlyst. Ég vU nefna hér eitt dæmi um karlmennsku og þrautseigju Reimars, vinar mins. Eitt sinn, að vetri tU, fór hann að gamni sínu í heimsókn til ættfólks á Akureyri. Er hann hafði dvalið þar stuttan tíma, færðist norð- lenzkt illveður í sinn versta ham tU lands og sjávar, svo talið var algjörlega ófært milli Akureyr- ar og Skagafjarðar. En þegar versta veðrinu slotaði, með öllu sír.u snjókyngi, lagði karlmennið Reimar Helgason ótrauður af stað gangandi til Skagafjarðar og komst þangað á ótrúlega skömmum tíma, þrátt fyrir erf- iðar aðstæður. Heim að Bakka og Löngumýri varð hann að fara til þess að hlynna að dýr- unum, er biðu hans þar. Þetta er aðeins eitt sýnishorn aí þreki og skyldurækni þessa manns. Þegar ég stofnaði húsmæðra- skólann að Löngumýri árið 1944, var Reimar þar jafnan fórnfús hjálparhella, sem gladdist yfir hverri framför. Mörg handtökin átti hann þar við gæzlu Ijósavél- ar og miðstöðvar, þar til vatns- orkurafmagn og hitavatnslögn kom til sögunnar. Já, hver skyldi geta þakkað eins og vera ber, öll þau handtök, er þessi maður hefur lagt fram fyrir Löngu- mýri, bæði fyrr og síðar? Fátækleg orð mín ná þar skammt og litil greiðsla, er hann krafðist fyrir störf sín í þágu skólans. Vil ég einnig með þessum fátæklegu orðum mínum þakka honum góðvild og gamanyrði gagnvart nemendum mínum, sem þeir hafa goldið honum með vináttu sinni. Reimar bar gæfu til að fá að deyja i starfi sem honum var hugleikið. Varð bráð kvaddur á Bakka við gæzlu bú- fjár síns. Er þar horfinn af sjón arsviðinu einn af traustustu bændum Skagafjarðar, en eftir er minningin um duglegan drengskaparmann, sem ég hlakka til að hitta yfir í landi eilífðar- innar. Ingibjörg Jóbannsdóttir frá Löngumýri. S. Helgason hf. LEGSTEINAR MAR6AR GERDIR SÍMI 36177

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.