Morgunblaðið - 09.12.1970, Page 7
MORiGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1970
7
Gata landnámsmannsins
Hvers vegna hefur Ingólfur
Arnarson snúið baki við
sinni eigin götu?
Kannski vegna þess, að hann
þolir illa ysinn og þysinn á
þessari miklu umferðaræð höf
uðborgarinnar. Sannarlega
gerði hann ekki ráð fyrir
slíkum hamagangi þegar hann
kom hér að ónumdu landi og
settist að með fólki sínu í
kyrrð óbyggðarinnar. Og nú
horfir hann út á hafið og læt
ur sig langa heim í Dalsfjörð
inn sinn en fólkið er hætt að
syngja um Ingólf Arnarbur,
sem frægur steig hér fyrstur
á grundu.
Enda þótt Ingólfsstræti nái
nú alia leið norður í sjó er
hið eiginlega Ingólfsstræti,
hið gamla góða Ingólfsstræti,
aðeins frá Bankastræti og suð
ur að Spítalastíg. Um það
fjallar þvi þessi grein, enda
er þess vart að vænta að í
svona örstuttu skrifiríi rúmist
öll stóru voldugu húsin,
stjórnsýslu- og menningarslot
in, sem við strætið standa
norðan ,,Bakarastigs.“
Dr. Jón biskup Helgason
segir i bók sinni: Reykjavik
1786 — 1936 að fyrstu býlin í
Ingólfsstræti hafi verið
nefnd „Nýju Þingholtin." Og
svona til tilbreytingar frá
nafnleysunni á þessari öld
númeranna og talnanna, er
ekki úr vegi að rifja upp
þjóðlegu heitin á fyrstu hús-
unum við stræti Ingólfs:
Nyrzt var Bjarg, næst var
Stafn, fyrir sunnan hann Of-
anleiti, loks var fjórða býlið
suður af Ofanleiti: Grímsbær.
Á grunni hans „reistu þeir
Theódór Jónassen og Magnús
Stephensen hið mikla tví-
lyfta hús, sem enn stendur
þar nr. 9,“ segir biskup í fyrr
nefndri bók. Loks getur hann
um bæinn Holt, byggt 1833.
Því fylgdi allstór tún. Er þá
komið*suður að Spítalastíg og
Ingólfsstræti á enda.
Enda þótt þessi hluti af
Ingólfsstræti sé ekki langur,
er þar að finna ótrúlega fjöl-
breytni — að maður ekki segi
andstæður. Norður við Banka
stræti er það undirlagt af tóm
um bissness en suður við Spít
alastíg endar það í upphafn-
ingu og andlegheitum. Svona
Að baki Ingólfs.
þurfa víddir lífsins lítið rúm.
Það er ekki nema eðlilegt,
að þau stræti, sem koma i ein
hverja snertingu við Banka-
stræti og Laugaveg dragi dám
af þessum miklu verzlunar-
götum. Þar er Ingólfsstrætið
vitanlega engin undantekn-
ing. Næstum í hverju húsi
milli Bankastrætis og Amt-
mannsstígs er ein forretning
eða fleiri og ýms „þjónustu-
fyrirtæki." Þar er fatavið-
gerð og fasteignasala, læknir
og lögfræðingur, bókabúð og
blaðaútgáfa og svo vitanlega
tryggingarféiag til að skapa
mönnum öryggi á þessum
óvissu og háskasamlegu tim-
um.
En þótt miðbik Ingólfsstræt
is virðist einna þýðingar-
minnsti kafli af götu land-
námsmannsins, gætir áhrifa
þess alla leið niður í sjálfa
Lækjargötu. Amtmannsstígur
inn, hann dregur nefnilega
nafn af húsinu sem stendur
fyrir enda hans við Ingólfs-
stræti. Það reis á Grímsbæjar
HER
ÁÐUR
FYRRI
Syðst í strætlnu -
hús andans.
lóðinni gömlu eins og áður er
sagt og þar bjuggu a.m.k. þrír
menn, sem gegndu amtmanns
embætti, hvar af stígurinn
fékk sitt nafn. Sunnan þess
er nú að rísa hið nýja Iðnó
við Hallveigarstig.
Eins og verzlunin hefur
lagt undir sig stræti Ingólfs
norður við Bankastræti, þann
ig hafa áhugamenn um andleg
mál sett svip sinn á suður-
enda þessarar götu með
stofnunum sínum. Þar er
kirkja aðventista með messu
hvern laugardag, þar er hús
guðspekinnar með fundi sína
og fyrir enda Ingólfsstrætis
(að vísu „staðsettur" við Spít
alastíg) er Dulspekiskólinn
þar sem dulrænar táknmynd
ir í gluggum blasa við veg-
farendum.
Já, það er viðar Guð en í
Görðum. — G.Br.
FRETTIR
Kvenfélag Hreyfils
Spilum bingó að Hallveigarstöð-
um fimmtudaginn 10. desember
kl. 8.30. Takið fjölskylduna með.
Kvenfélagið Seltjörn
Jólafundur félagsins er í kvöld
kl. 8.30 í anddyri íþróttahúss-
ins. Dagskrá: Jólaskreyting og
jólahugleiðing. Munið kaffiboll-
ana.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins i Reykjavik
Jólafundurinn verður að Hótel
Borg, fimmtudaginn 10. desemb-
er kl. 8.30. Fjölbreytt skemmti-
skrá. Séra Jónas Gislason flyt-
ur jólahugleiðingu. Keflavíkur-
kvartettinn syngur nokkur lög.
Anna Guðmundsdóttir leikkona
les jólasögu. Jólahappdrætti. Fé
lagskonur mega taka með sér
gesti.
VISUKORN
Vonin treystir trúna
Veik er trúin, vonin björt,
vöxtur tærra linda.
Nótt þó komi svöl og svört,
senn mun roða tinda.
St. D.
AU PAIR BROT AMALMUR
stúHka óskast sem fynst á Kaupi allan brotamálm lang-
heimöi í Bngleinidii. Upplýs- hæsta verði, staðgreiðsla.
mgar eftir W. 6 í síme 15620. Nóatúni 27, simi 2-58-91.
TAKIÐ EFTIR ÞRÍR UNGIR MENN
Seim ný rækijuifliokikiuneirvél til söiu í mjög góðu ásig- kom'ulagii. Uppl. í siíme 94- 3604, Hnífsde'l. óska eftir vinnu úti á landú Margt kemnr tH greina. Upplýsingair í síma 2052, K'Oflavjk, ktl. 5.30—7.
Ibúð Ti'l leigu tveiggje henb’ergija ný ilbúð í Breiöih'oltii. Tillboð, er greimi fjölskyld ustærð og gre'iðslugetu, óska'st sient Mibl., menkt „6504”. HAFNFIRÐINGAR - nágrannar Rúllu'kragapeysurna'r með háu'm knaga, k'U'ldaiúlpurnair á börn nýkomnar. Verzlunin Nina Strandgötu 1 í Sk'iphólsh'úsiniu.
TIL SÖLU KEFLAVlK — SUÐURNES
Uppþvottavél til söl'u. tbúð óskast t'M leigu strax.
Upplýsingar i síma 50914. Upptýsingar i síma 92-2508.
HAFNFIRÐINGAR - nágrannar Nýkomið: Kjólar á 1-—3 ána, hvítair skyrtur á direngi frá 2 éra. Ýmjss konair gjafavör- ur: Jólaskiraut, 'kerti og spíl. Verzlunin Nína Strandgötu 1 i Sk'iiphólsh'úsiniu. TIL SÖLU SÖLUTURN (sjoppa) á góðuim stað. Meðal áhalda er pylsupottu'r, popcorn-vél o. fl. Saia miðast við mk. ára- mót. Tilto. merkt „Söluturn 6706" sendist afgr. Mbl. fyrir nk. la'ugardag.
LESIfl VESTMANNAEYJAR
DflGLECfl Til leigu þriggja herbergjá íbúð. Upplýsingar i sikna 91-51253 eftir kl. 1.
HURDIR - HURDIR
Gullálmurinn kominn. Þeir sem ætla að fá hurðir afgreiddar
fyrir jól hafi samband við okkur strax.
HURÐASALAN,
Baldursgötu 8 — Sími 26880.
0SRAM
hátíðarljós
Fyrir nýtízku lampa
OSRAM kertaperur.
Fyrir sérlega hátíðlega lýsingu
OSRAM kristalkertaperur.