Morgunblaðið - 09.12.1970, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.12.1970, Blaðsíða 7
MORiGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1970 7 Gata landnámsmannsins Hvers vegna hefur Ingólfur Arnarson snúið baki við sinni eigin götu? Kannski vegna þess, að hann þolir illa ysinn og þysinn á þessari miklu umferðaræð höf uðborgarinnar. Sannarlega gerði hann ekki ráð fyrir slíkum hamagangi þegar hann kom hér að ónumdu landi og settist að með fólki sínu í kyrrð óbyggðarinnar. Og nú horfir hann út á hafið og læt ur sig langa heim í Dalsfjörð inn sinn en fólkið er hætt að syngja um Ingólf Arnarbur, sem frægur steig hér fyrstur á grundu. Enda þótt Ingólfsstræti nái nú alia leið norður í sjó er hið eiginlega Ingólfsstræti, hið gamla góða Ingólfsstræti, aðeins frá Bankastræti og suð ur að Spítalastíg. Um það fjallar þvi þessi grein, enda er þess vart að vænta að í svona örstuttu skrifiríi rúmist öll stóru voldugu húsin, stjórnsýslu- og menningarslot in, sem við strætið standa norðan ,,Bakarastigs.“ Dr. Jón biskup Helgason segir i bók sinni: Reykjavik 1786 — 1936 að fyrstu býlin í Ingólfsstræti hafi verið nefnd „Nýju Þingholtin." Og svona til tilbreytingar frá nafnleysunni á þessari öld númeranna og talnanna, er ekki úr vegi að rifja upp þjóðlegu heitin á fyrstu hús- unum við stræti Ingólfs: Nyrzt var Bjarg, næst var Stafn, fyrir sunnan hann Of- anleiti, loks var fjórða býlið suður af Ofanleiti: Grímsbær. Á grunni hans „reistu þeir Theódór Jónassen og Magnús Stephensen hið mikla tví- lyfta hús, sem enn stendur þar nr. 9,“ segir biskup í fyrr nefndri bók. Loks getur hann um bæinn Holt, byggt 1833. Því fylgdi allstór tún. Er þá komið*suður að Spítalastíg og Ingólfsstræti á enda. Enda þótt þessi hluti af Ingólfsstræti sé ekki langur, er þar að finna ótrúlega fjöl- breytni — að maður ekki segi andstæður. Norður við Banka stræti er það undirlagt af tóm um bissness en suður við Spít alastíg endar það í upphafn- ingu og andlegheitum. Svona Að baki Ingólfs. þurfa víddir lífsins lítið rúm. Það er ekki nema eðlilegt, að þau stræti, sem koma i ein hverja snertingu við Banka- stræti og Laugaveg dragi dám af þessum miklu verzlunar- götum. Þar er Ingólfsstrætið vitanlega engin undantekn- ing. Næstum í hverju húsi milli Bankastrætis og Amt- mannsstígs er ein forretning eða fleiri og ýms „þjónustu- fyrirtæki." Þar er fatavið- gerð og fasteignasala, læknir og lögfræðingur, bókabúð og blaðaútgáfa og svo vitanlega tryggingarféiag til að skapa mönnum öryggi á þessum óvissu og háskasamlegu tim- um. En þótt miðbik Ingólfsstræt is virðist einna þýðingar- minnsti kafli af götu land- námsmannsins, gætir áhrifa þess alla leið niður í sjálfa Lækjargötu. Amtmannsstígur inn, hann dregur nefnilega nafn af húsinu sem stendur fyrir enda hans við Ingólfs- stræti. Það reis á Grímsbæjar HER ÁÐUR FYRRI Syðst í strætlnu - hús andans. lóðinni gömlu eins og áður er sagt og þar bjuggu a.m.k. þrír menn, sem gegndu amtmanns embætti, hvar af stígurinn fékk sitt nafn. Sunnan þess er nú að rísa hið nýja Iðnó við Hallveigarstig. Eins og verzlunin hefur lagt undir sig stræti Ingólfs norður við Bankastræti, þann ig hafa áhugamenn um andleg mál sett svip sinn á suður- enda þessarar götu með stofnunum sínum. Þar er kirkja aðventista með messu hvern laugardag, þar er hús guðspekinnar með fundi sína og fyrir enda Ingólfsstrætis (að vísu „staðsettur" við Spít alastíg) er Dulspekiskólinn þar sem dulrænar táknmynd ir í gluggum blasa við veg- farendum. Já, það er viðar Guð en í Görðum. — G.Br. FRETTIR Kvenfélag Hreyfils Spilum bingó að Hallveigarstöð- um fimmtudaginn 10. desember kl. 8.30. Takið fjölskylduna með. Kvenfélagið Seltjörn Jólafundur félagsins er í kvöld kl. 8.30 í anddyri íþróttahúss- ins. Dagskrá: Jólaskreyting og jólahugleiðing. Munið kaffiboll- ana. Kvennadeild Slysavarnafélags- ins i Reykjavik Jólafundurinn verður að Hótel Borg, fimmtudaginn 10. desemb- er kl. 8.30. Fjölbreytt skemmti- skrá. Séra Jónas Gislason flyt- ur jólahugleiðingu. Keflavíkur- kvartettinn syngur nokkur lög. Anna Guðmundsdóttir leikkona les jólasögu. Jólahappdrætti. Fé lagskonur mega taka með sér gesti. VISUKORN Vonin treystir trúna Veik er trúin, vonin björt, vöxtur tærra linda. Nótt þó komi svöl og svört, senn mun roða tinda. St. D. AU PAIR BROT AMALMUR stúHka óskast sem fynst á Kaupi allan brotamálm lang- heimöi í Bngleinidii. Upplýs- hæsta verði, staðgreiðsla. mgar eftir W. 6 í síme 15620. Nóatúni 27, simi 2-58-91. TAKIÐ EFTIR ÞRÍR UNGIR MENN Seim ný rækijuifliokikiuneirvél til söiu í mjög góðu ásig- kom'ulagii. Uppl. í siíme 94- 3604, Hnífsde'l. óska eftir vinnu úti á landú Margt kemnr tH greina. Upplýsingair í síma 2052, K'Oflavjk, ktl. 5.30—7. Ibúð Ti'l leigu tveiggje henb’ergija ný ilbúð í Breiöih'oltii. Tillboð, er greimi fjölskyld ustærð og gre'iðslugetu, óska'st sient Mibl., menkt „6504”. HAFNFIRÐINGAR - nágrannar Rúllu'kragapeysurna'r með háu'm knaga, k'U'ldaiúlpurnair á börn nýkomnar. Verzlunin Nina Strandgötu 1 í Sk'iphólsh'úsiniu. TIL SÖLU KEFLAVlK — SUÐURNES Uppþvottavél til söl'u. tbúð óskast t'M leigu strax. Upplýsingar i síma 50914. Upptýsingar i síma 92-2508. HAFNFIRÐINGAR - nágrannar Nýkomið: Kjólar á 1-—3 ána, hvítair skyrtur á direngi frá 2 éra. Ýmjss konair gjafavör- ur: Jólaskiraut, 'kerti og spíl. Verzlunin Nína Strandgötu 1 i Sk'iiphólsh'úsiniu. TIL SÖLU SÖLUTURN (sjoppa) á góðuim stað. Meðal áhalda er pylsupottu'r, popcorn-vél o. fl. Saia miðast við mk. ára- mót. Tilto. merkt „Söluturn 6706" sendist afgr. Mbl. fyrir nk. la'ugardag. LESIfl VESTMANNAEYJAR DflGLECfl Til leigu þriggja herbergjá íbúð. Upplýsingar i sikna 91-51253 eftir kl. 1. HURDIR - HURDIR Gullálmurinn kominn. Þeir sem ætla að fá hurðir afgreiddar fyrir jól hafi samband við okkur strax. HURÐASALAN, Baldursgötu 8 — Sími 26880. 0SRAM hátíðarljós Fyrir nýtízku lampa OSRAM kertaperur. Fyrir sérlega hátíðlega lýsingu OSRAM kristalkertaperur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.