Morgunblaðið - 31.12.1970, Síða 30
Sá íslenzkur frjálsíþróttamaður, sem náði beítum árangri á árinu var án
vafa Erlendur Valdimarsson, ÍR, sem margbætti íslandsmetið í kringlukasti,
og náði 60 metra markinu (60,06 m). Hann bætti einnig metið í sleggju-
kasti. Annars vakti frammistaða íslenzka frjálsíþróttalandsliðsins mikla at-
bvgli, en það tapaði naumlega fyrir Dönum, — svo og frammistaða fjögurra
okkar beztu frjálsíþróttamanna: Erlends, Guðmundar Hermannssonar, Jóns
1». Ólafssonar og Bjarna Stefánssonar, í keppnisferðalagi til Norðurlandanna.
þar sem þeir unnu marga góða sigra.
Svipmyndir
frá íþróttum
ársins 1970
ÁRIÐ 1970 var fyrir margra
hluta sakir eftírmfinnileg^
íjirótfaár. Me.rkasti innlendi
íþróttaviðbiirður ársins var
tvimælalaust hin velheppnaða
íþróttahátíð ISÍ, þar sem
keppt var í nær ölhim þeim
íþróttagrreinum sem iökaðar
ern hérlendis, og fjölmargir
erlendir íþróttaflokkar komu
hingrað til keppni. Merkasti
erlendi íþróttaviðburðiir árs-
ins var svo án tvímæla
Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu er fram fór í
Mexikö. Hefur sennilega
aldrei farið fram íþrótta-
keppni, að Olympíiileikjunum
undanskildiim, sem jafn
mikla athygli hefur vakið.
Þá fór einnig fram heims-
meistarakeppni i handknatt-
leik í Frakklandi, og náðu ís-
lendingar þeim áfanga að
komast í 16 þjóða úrslit. í
sjálfri lokakeppninni gekk á
ýmsu hjá íslendingum, en
þeir höfnuðu að lokuni í 11.
sætí, sem teljast verður vel
frambærilegur árangur.
I>á ber efmnig að minnast
gla>silegs árangurs íslenzka
landsliðsins í knattspyrnu, er
gerði jafntefli við Dani og
sigraði Norðmenn, og góðs
árangurs íslenzka sundfólks-
ins í Iandskeppnum við Skota
og Ira,
Hér á opnunni er brugðið
upp nokknim svipmyndum
frá liðnii ári.
íslendingar lé'cu 15 handknattleiksleiki á árinu og sigruðu í 8
þeirra. Hinn snjalli handknattleiksmaður úr FH. Geir Hallsteins-
son. skoraði langflest mörk í [>essuni landsleikjum og á þessari
mynd sést hvernig hann skorar á móti Luxemburgurum, Þann
leik unnu Islendingar 35:12, en aðrir leikir landsliðsins fóru þann-
ig: Island — USA 27:9, ísland — USA 25:12, tsland — Ungverja-
land 9:19, island — Danmörk 13:19, ísland — Pólland 21:18, ísland
— Japan 19:20, ísiand —* Rússland 15:19, island — Frakkland
19:17. island — USA 30:14, island — USA 28:17, island — Júgóslavía
15:24, ísland — V-Þýzkaland 13:20, island — Rússland 17:32, is-
land — Tékkóslóvakía (ul) 18:17.
islenzka unglingalandsliðið 1 handknattleik, kom á óvænt með sigri sínum í Norðurlandameistaramótinu og færðu
islandi fyrsta Norðurlandameistaratitil sem landlð vinnur í flokkaiþróttum. Það er þvi ekki að furða þótt þeir Stefán
Gunnarsson, sem var fyrlrliði liðsins og Axel Einarsson, form. HSÍ, séu hýrir á svipinn, þegar þeir meðhöndla bikar-
inn. Axel lét annars af formannsstörfum í HSl á árinu, eftir mikil og heilladrjúg störf í þágu handknattleiksíþrótt-
arínnar. Úrslit í unglingaiandsleikjunum voru þessi: ísland — Noregur 16:13. island — Svíþjóð 9:8, Ísland — Dan-
mörk 21:15, Ísland — Finnland 14:12.
Íþróttahátíð ÍSÍ, var sá iþróttaviðburður sem hæst bar á sl. ári. Stóð hátiðin i marga daga, og hingað komu til keppni fjölmargir erlendir íþróttaflokkar.
Uátiðin þótti heppnast það vel, að ákveðið var að efna til sliks móts á 10 ára fresti. Þessi mynd var tekin við hina hátíðlegu setningarathöfn, og eru það
ungar stúlkur, sem mynda stafina i S i á Laugardalsvellinum
Ferðir íslenzkra knattspyrnu-
liða í hinar ýmsu Evrópubikar-
keppnir voru ekki til fjár eða
frama á árinu, með þeirri und
antekningu þó, að Keflvíking-
ar stóðu sig með sóma á móti
enska meistaraliðinu Everton.
Var heimsókn Everton hingað
einn merkasti viðburðurinn í
knattspyrnulífinu. Englending-
arnir sigruðu 3:0, en myndin
sýnir fyrirliða þeirra — Alan
Ball — einn fremsta knatt-
spyrnumann beimsins.