Morgunblaðið - 07.02.1971, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. BEBRÚAR 1971
13
við stöku tilraunir aftur 1 enn
stærri stíl, ef nauðsynlegt er.
Ég reikna til dæmis með að litla
tilraunaverksmiðju þurfi fyrir
þetta stig, þ.e. magnesíumklóríð-
og sódaframleiðsluna. Jú hún
kostar nokkrar milljónir, svarar
Baldur innskotsspumingu okk-
ar.
— En allt á þetta að borga
eig í lokin?
— Já, það er einmitt það sem
við vonum.
— Hvenær verður það?
Þessu svarar Baldur ekki
beint i fyrstu. Þetta tekur allt
sinn tíma, segir hann. Kísilgúr-
inn tók nú tímann sinn. Ég held
að við höfum byrjað á að vinna
við hann að ráði 1955 og verk-
smiðjan tók endanlega til starfa
1968, svo það voru 13—14 ár. Og
hann tekur hliðstætt dæmi frá
Bandaríkjunum. Þar hefur und-
anfarin ár verið unnið að því að
vinna magnesíumklóríð úr vatni
Great Salt Lake. Við það hefur
verið unnið í 6—8 ár nú þegar
og engin verksmiðja hafið fram
leiðslu. Sú fyrsta tekur ekki til
starfa fyrr en i vor.
En við höldum áfram að krefj
ast einhvers svars. — Verður
efnaverksmiðja komin upp á
mæsta áratug?
— Ég verð fyrir vonbrigðum
ef það verður ekki, svarar Bald
ur snögglega. Ég vona að svo
geti orðið eftir 5 ár, ef allt geng
ur snurðulaust. Annars er þessi
undirbúningsvinna þróun á
mörgum þáttum, sem fylgjast að,
bætir Baldur við. Það er t.d.
unnið að borun á Reykjanesi og
Vilhjálmur Lúðvíksson o.fl. eru
að vinna að markaðsleit. Þetta
eru margir þættir, sem koma
saman, segir hann.
— Nú höfum við taiað um
þann lið í vinnslu efnaverk-
smiðjunnar, þegar unnið er úr
saltinu og sjónum, sódi og magne
sínumklóríð. Hvað verður um
það? Fer það beint á markaðinn
héðan?
— Sótánm seilst beöint á aflmeinin-
um markaði, svarar Baldur. En
úr magnesíumklóríðinu verður
að framleiða magnesíum hér. Við
það eru notaðar hefðbundnar
aðferðir og á þvi stigi kemur
fremur til verkfræðileg úr-
vinnsla en að það sé rannsókn
aratriði. Svona rannsóknir, eins
og þær sem við erum nú að
vinna hér, þarf ekki að gera
nema þegar afbrigðileg efni og
afbrigðilegar aðferðir eru notað-
ar. Og eins og ég sagði áðan, þá
miðum við við að notfæra okk-
ur séraðstæður hér á Íamdi.
Þær kalla á nýjar aðferðir og
þvi reynum við að leysa verk-
efnið á okkar eigin hátt, sagði
Baldur að lokum. — E.PÁ.
Hárgreiðsludömur
Hárgreiðslusvein vantar á hárgreiðslustofu.
hálfan eða allan daginn.
Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir þriðjudagskvöld,
merkt: „Hárgreiðsla — 6980'.
Brú í Fljótshverfi
Vegagerð ríkisins óskar að selja til niðurrifs og fjarlægingar
yfirbyggingu gömlu Brunnárbrúarinnar í Fljótshverfi. Brúin er
byggð 1913, — yfirbygging stálgrindarbiti með timburgólfi
yfir eitt haf 22,8 m. að lengd. Stálgrindarbitinn er byggður
upp af prófiljárnum og stálþungi alls áætlaður um 6 tonn.
Kauptilboð í yfirbyggingu brúarinnar, eins og ástand hennar
er í dag, þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11 f.h.
22. febrúar 1971.
Tilboðsgjafi skal skuldbundinn til að fjarlægja yfirbyggingu
og allt, sem henni tilheyrir, á sinn kostnað fyrir 1. október
1971.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 SlMI 10140
Þekktur danskur félagsfræðingur og fyririesari.
ERIK MANNICHE
heldur fjögur erindi í Norræna Húsinu sem hér segir
Mánudaginn 8. febrúar kl. 20.30:
HVAÐ ER FÉLAGSFRÆÐI?
STÉTTASKIPTING FRÁ FÉLAGSFRÆÐILEGU
SJÓNARMIÐI.
Þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20.30:
HLUTVERK FJÖLSKYLDUNNAR.
Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20.30:
BREYTINGAR I FJÖLSKYLDUHÁTTUM UNDAN-
FARNA ÁRATUGI.
Laugardaginn 13. febrúar kl. 16.00:
AFBRIGÐILEGT ATFERLI.
Frjálsar umræður verða eftir hvern fyrirlestur.
öllum er heimill aðgangur.
IMORRÆNA HÚSIÐ.
Sgjg^.
EINANGRUNARGLER
Framleitt með
Aðferö
npioiDi
inniiiBiBt
nnnimfi
["nHiinn
10 ára ábyrgð
mm dðir
EINANGRUNARGLER
Skeifon 3B - Reykjavík - Sfmi 84481
L0FTLEIDIR
Eitthvað við þitt hasfi?
LOFTLEIÐIR HF. óska eftir að ráða starfsfólk í eftirtaldar stöður:
Bókhald endurskoðun
Nokkrar stöður verða lausar i farmiðaeftirliti
endurskoðunardeiidar frá maí n.k. Samvinnu-
skóla- eða Verzlunarskólapróf æskilegt. Vilj-
um jafnframt ráða nokkra unga menn irá sama
tíma með staðgóða bókhaldsþekkingu til full-
trúastarfa í bókhaldsdeild.
Farskrá
Tvær stúlkur og tvo karla vantar til starfa i
farskrárdeild félagsins I Fleykjavik. Verzlunar-,
Samvinnuskóla- eða stúdentspróf æskilegt.
Stöðurnar eru lausar strax.
Hlaðfreyjur • aðstoðarstúlkur -
afgreiðslumenn (Keflavik)
Nokkrar stöður verða lausar á Keflavlkurflug-
velli. Nauðsynlegt er, að viðkomandi hafi gott
vald á ensku og allgóða vélritunarkunnáttu
(hlaðfreyjur og aðstoðarstúlkur). Lágmarks-
aldur 19 ára. Stöðurnar veitast frá og með
marz/aprll n.k., en ráðning gildir til okt./nóv.
i haust.
Hótet Loftleiðir
Staða forstöðumanns þvottahússins er laus írá
og með 1. apríl n.k. Þá verða lausar nokkrar
stöður við gestamóttöku frá april/maí. Ein-
ungis fólk með mjög góða tungumálakunnáttu
kemur til greina við gestamóttökuna. Með íil-
komu hins nýja hluta hótelsins í maí verða
allmargar herbergisþernur ráðnar, og er hér
með auglýst eftir umsækjendum.
Ritarar/skrifstof ustúlkur
Ritarastaða er laus í skrifstofu framkvæmda-
stjóra félagsins á Keflavíkurflugvelli, svo og
nokkrar ritarastöður í aðalskrifstofu f Reykja-
vfk. Einungis mjög hæfar stúlkur koma til
greina bæði f vélritun og iungumálum.
Skýrsluvélar
Nokkrar götunarstúlkur óskast frá og með
aprilmánuði n.k. Þá verða einnig lausar
nokkrar stöður kerfisfræðinga og skýrsluvélar-
manna frá maímánuði. Hér er ýmist um sumar-
störf eða fastráðningar að ræða, en þarf helzt
að vera vant fólk.
Umsóknareyðublöð fást f skrifstofum félagsins
á Reykjavikur- og Keflavíkurflugvelli, afgreiðsl-
unni Vesturgötu 2, svo og hjá umboðsmönn-
um félagsins úti um land, og skulu umsóknir
hafa borizt ráðningardeild félagsins, Reykja-
víkurflugvelli fyrir 15. febrúar n.k.
Fyrri umsóknir óskast staðfestar bréflega eða
með símtali fyrir 15. febrúar n.k.
Upplýsingar aS öSru leyti verSa ekki veittar I
sima.