Morgunblaðið - 07.02.1971, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. BEBRÚAR 1971
19
- Vinarfundur
Framhald af bls. 15.
kvaddur til Moskvu tit þess
að standa þar frammi fyrir
Stjómmálanefndinni og vera
rekinn úr henni.
Þeir sögðu honum að hjálpa
flokknum með því að fara
sjálfur fram á að verða leyst-
ur frá störfum af „heilsufars-
ástæðum". Hann neitaði því
og krafðist þess að kallaður
yrði saman fundur í miðstjórn
flokksins. En þetta stoðaði
ekki að heldur. Þvert á móti
var nú heilsufarsástæðan lát-
in niður falia og hann var ein
faldlega látinn víkja.
Hann greiddi atkvæði gegn
frávikningu sinni, en með því,
að Brezhnev yrði kjörinn í
hans stað, þannig að unnt var
að kjósa eftirmann hans með
samhljóða atkvæðum. Enda
þótt hann hafi ekki verið mik
ill „linumaður" var Krúsjeff,
er um iauk, agaður kommún-
isti.
Sú staðreynd, að valdaskipt
in fóru fram á svo snurðu-
lausan hátt, varð tilefni mik-
iILar kaldhæðni. Jafnvel sov-
ézkir herforingjar sögðu við
okkur: „Stalin var morðíngi.
Nú er Krúsjeff misgerðamað-
ur gagnvart flokknum. Hvað
verður Brezhnev, er hann fell
ur?“
Áhrifa falls Krúsjeffs gætti
þegar i stað á tvennan hátt I
Tékkóslóvakíu — en hvoru
tveggja var að sjálfsögðu
haldið leyndu. Hið fyrra var
símtal, sem Brezhnev átti við
Novotny þetta sama kvöld, áð
ur en verkamenn i Moskvu
höfðu lokið við að taka niður
handknattleikslandsliðsins undir
Olyiwpíuleikana 1972 er nú form-
lega hafinn. Hafa 32 leikmenn
verið valdir til æfinga og verið
er að skipuleggja kappleiki fyrir
þessa kandidata— á þeiin tima,
sem framundan er tii OL-
Leiikmiennirnir, sem valdir hafa
verið, eru þessir:
Martaverðiir: Kay Jörgeneen,
Benit Mortonsen, Fiieimimiing Laur-
itzen, Jörgen Kllitigaard, Laisse
Petersien og Benny Nieisem
Bakverðir: Jörgen Heidemann,
Jdrgen Vodsigaard, Jörgen Frand
sen, Verner Gaard, Keld Ander-
son, Garsten Luind, John Hansen,
Bjairme Siihiler og Birger Christi-
anisen.
Sóknarlieilkmenin: Bent Jörgen-
myndir af Krúsjeff í og á
stjórnarbyggingum.
KVÖLOVEBÐUR FRÚ
KRÚS.JEFF OG FRÚ
BREZHNEV
Novotny hafði áhyggjur af
breytingunum og var nægi-
lega hreinskilinn til þess að
segja það. Hann sagði Brez-
hnev að fall Krúsjeffs mundi
hafa „siæra áhrif“ á fólk í
Tékkóslóvakíu því hann hefði
verið vinsælastur allra komm
únistaieiðtoga. Brezhnev við-
urkenndi að til „skammvinnra
erfiðieika" mundi koma, og
stakk upp á því, að hann
kæmi sjálfur þegar i stað til
Prag til þess að skýra málin.
En Novotny svaraði: „Nei,
komdu ekki núna. Það mundi
aðeins valda mótmælum og
reiði meðal fólksins, sem dáði
Krúsjeff mjög.“
Og Brezhnev kom ekki.
Hitt, sem gerðist, var jafn-
vel enn viðkvæmara fyrir Nov
otny. Það mál snerist um það,
að i Tékkóslóvaktu voru nú
einmitt tvær mikilvægar sov-
ézkar konur — þæn tvær kon-
ur, sem hinir miklu atburðir
í Moskvu snertu meirá en
aðrar. Þær voru kona félaga
Krúsjeffs og kona félaga
Brezhnevs.
Þær voru sér til heilsubót-
ar við heilsulindir okkar við
Kariovy Vary og heyrðu frétt
irnar fyrst í útvarpi er þær
voru að snæða kvöldverð sam
an. Það, sem gerði ástandið
enn erfiðara, var að þær voru
mjög nánar vinkonur.
Sjónarvottar sögðu okkur,
að þegar tilkynningm hafi ver
ið iesin, hafi frú Krúsjeff
brugðið s rvíettu fyrir andiit
sér. Frú Brezhnev hafi stokk
sen, Arr.e Andersen, Kraud Erik
Bail'leby, Börge Thomsen, Paille
Niielisen, Klaus Kaabe, Iwan
Chrisitiansen, Hans Jörgen Thol-
Strup, Olaiuis Ftx>m, Sören Ander-
sen, Hanis Jöm Graversen, Thor
Murjkager, Johnrty Berntsen,
Jörgen Peteirsen, Svend Lurtd og
Tom Lund.
ið á fætur til að hugga hana
og sagt: „Gráttu ekki. Ég
vildi óska að þú vissir hversu
djúpt ég skammast mín.“ En
þær voru ekki látnar vera ein
ar á báti lengi.
Einni eða tveimur mínútum
síðar komu boð til frú Brez-
hnev um að snúa þegar í stað
til Moskvu.
FRÚ BREZHNEV NEITAR
AÐ FARA
Þetta var svo sem nógu aug
ljós ráðstöfun af hálfu hinna
nýju manna í Moskvu. Frú
Brezhnev var kona æðsta
mannsins i flokknum, en vin-
kona hennar, sem ■ þar til
nokkrum andartökum áður
hafði gegnt þeirri stöðu, var
nú kona brottrekins leiðtoga
í ónáð — -hættulegt ekkert.
Ef frú Brezhnev hefði dvalið
lengur í Karlovy Vary mundi
hún hafa svert bæði sjálfa
sig og mann sinn i augum
flokksins.
En kona hins nýja Fyrsta
ritara. lét ekki auðveldlega
undan. Mannlegt velsæmi
fékk orðið fyrst í stað. „Nei,“
svaraði hún. „Ég skammast
mín. Segið þeim í Moskvu að
ég neiti að koma án þess að
frú Krúsjeff komi með mér.“
Að lokum fór svo, að sov-
ézki sendihérrann, Zemyanin
— sem vissi hvað var i húfi
varðandi embættisferil hans í
öllu þessu — varð að fara
sjálfur til Karlovy Vary og fá
bæði Novotny og konu hans
til þess að beita áhrifum sín-
um til þess að brjóta andstöðu
frú Brezhnev á bak aftur.
Þegar hún lét loks undan
og sneri ein heim til Moskvu,
var þar að sjálfsögðu tekið á
móti henni með stórum Cha-
ika-bíl stjórnarinnar og lög-
reglufylgd. Þegar frú Krús-
jeff kom til Moskvu nokkru
siðar, fór hún ein frá flugvell
inum i leigubil.
Borið saman við það, sem
kynni að hafa gerzt á dögum
Stalíns, var hún heppin að
geta gert það. Þetta var sú
breyting, sem hinn fallni eig
inmaður hennar hafði barizt
fyrir að koma á.
(Einkaréttur Mbl.)
Úf á land
Ungur fjölskyidumaður með próf frá Verzlunarskóla íslands,
óskar eftir vel iaunuðu starfi úti á landi eða í Reykjavík.
Hefur góða bókhaldsþekkingu, er vanur bréfaskriftum og
hefur sæmilega reynslu í alhlíða rekstri fyrirtækja,
Lysthafendur iéggi nöfn sín inn á afgreiðslu Morgunblaðs-
ins. merkt: „Góð staða — 6965".
Undirbúningur hafinn
UNDIRBÚNIN'GUR danska
Nýkomin sending af hinum þekktu frönsku snyrtivörum CORYSE SALOMÉ. Sendum i póstkröfu. Höfum úrval af PERMANETT-olíum, háralit og hárskolii Gefum góðar leiðbeiningar, Veitum góða þjónustu.
Hárgreiðslustofan VALHÖLL HF.
Laugavegi 25 — Simi 22138.
PEUGEOT 404
sendiferðabifreið
Burðarþol 1000 kg.
Þessi bifreið er með hin þekktu Peugeot gaeði og innifalíð i eftirtöldu verði er:
miðstöð og rúðusprautur
Bensínbifreið kostar kr. 282.000.-
Dieselbifreið kostar kr. 322.000.-
Allar frekari upplýsingar veittar
UMBOÐ A AKUBEYW ___
VÍKINGUR 5F. H HAFRAFELL HF.
FURUVÖLLUM 11 Tty GRETTISGÖTU 21
AKUREYRI, SÍMI 21670. SlMI 23511.
l
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
j
5 herhergja sérhœð
í LAUGARNESHVERFI EÐA í CRENND
ÓSKAST TIL KAUPS
Upplýsingar í sima 15855
Verzlunarhúsnæði ósknsl
40—-30 ferm. húsnæði óskast á leigu fyrír sérverzlun.
Góð bílastæði er skilyrði. Þarf að vera laust í apríi.
Tiiboð er greinir frá stærð, staðsetningu og leíguverðf sendíst
afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir miðvikudagskvöld, merkt:
„GÓOUR STAÐUR — 6588"
Jörð til sölu
Flaga í Vatnsdal, A-Hún„ er til sölu og laus til ábúðar
í næstu fardögum.
Veiðíréttur í Vatnsdalsá.
Aflar upplýsingar gefnar á skrifstofu undirrítaðs.
Jón N. Sigurðsson. hrl.
Laugavegi 10, Reykjavíic-
T ryggíngafélag
óskair eftiir ai ráða
s ölufólk
Há umboðslaun. Getur hentað bæði sam aukastarf
eða aðalstarf.
Umsóknir sendist MbS, eigi síðar en 10. febrúar, merkt:
„Tryggingar — 6192".
Starfsmaður
— sfarfsstúlka
óskast til verksmiðjustarfa. Æskilegur aldur 20—35 ára.
Vinnutími kl 8—13 5 daga vikunnar.
Umsækjendur komi tfl viðtals mánudag og þriðjudag
kl. 9—10 og 17—18.
PLASTPRENT H.F.
Grensásvegi. 7.
BIFVELAVIRKJAR -
ATVINNA
Þrjá til fjóra bifvélavirkja vantar á bifreiða-
verkstæði okkar nú þegar.
Góðir möguteikar eru á akkorðsvinrra, eink-
um fyrir þá, sem vanir eru V.W.- og L.R.-
viðgerðum.
Upplýsingar gefnar í móttöku verkstæðis-
ins, í sírna 15450 kl. 8.00—18.00 nk. þriðju-
dag, miðvikudag og fimmtudag.
HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.