Morgunblaðið - 16.02.1971, Page 13

Morgunblaðið - 16.02.1971, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1971 13 — Léttsteypan Framhald af bls. 10. og hreinsun á timbri, slíkt er tal in verulegur hluti af heildar- kostnaði hverrar byggingar. Eft ir þeirri miklu sölu að dæma, sem verið hefur á framleiðslu Léttsteypunnar, hljóta húsbyggj endur að vera farnir að sjá þann mikla sparnað og annað hagræði við að láta hlaða hús sín miðað við annað byggingar- lag. Megintilgangurinn með kaupunum á Léttsteypunni og flutningi hingað í Mývatnssveit var fyrst og fremst sá að auka atvinnu viðkomandi aðila hér, og þá alveg sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Að visu var bú ið að koma þessu fyrirtæki upp áður en nokkum var farið að dreyma um Kísiliðjuna, og þá at vinnu, sem hún mundi skapa hér. Þrátt fyrir það hefur gildi Léttsteypunnar sem atvinnu- aukningar fyrirtækis sízt rýmað nema síður sé. Reynslan hefur þegar sannað nauðsyn þessa fyrirtækis, ekki einungis til að skapa aukið atvinnulíf meðal eig endanna, heldur líka ekki síð- ur, að framleiða hagkvæmt og tiltölulega ódýrt byggingarefni. Vegna siaukinnar eftirspum- ar, og sölu á framleiðslunni, hef ur ekki nægt að vinna aðeins yfir vetrarmánuðina, heldur hef ur lika orðið að vinna á sumr- in. Nú er svo komið að aðal- steypuvél Léttsteypunnar og til heyrandi tæki hennar eru orðin allmjög slitin sem von er, enda komin til ára sinna. Einn- ig er húsnæðið mjög óhentugt, og langt frá því að svara kröf- um timans. Það er þvi orðin nauðsyn að fara að endurnýja vélakostinn og byggja ný hús. Til þessa hefur verið notazt við gamla dísilrafstöð til orkufram- leiðslu fyrir verksmiðjuna, en sú stöð er nú mjög gengin úr sér og því mikil spurning hvort svarar kostnaði að gera hana upp. Verður þá ekki um annað að gera en fá raflínu og líklega helzt frá Gufurafstöðinni í Bjarnarflagi. Það skiptir vitan- iega meginmáli fyrir rekstur þessa fyrirtækis í framtíðinni að slík lina fáist með viðráðanleg- um kjörum. Það er ekki orðin nein smá upphæð sem Léttsteyp an skilar nú til ríkisins á ári þ.e. söluskatturinn. Það væri því vissulega allra hagur að þetta fyrirtæki þyrfti ekki að sæta afarkostum hvað raforku snertir. Öll uppbygging og endumýj- um Léttsteypunnar kostar vit- anlega geysilegt fé, þó er varla hægt annað en ráðast í þá end urbyggingu, og það sem allra fyrst, ef fjármagn til þess fæst með hagstæðum kjörum. Við höf um hér ótakmarkað fyrsta flokks hráefni til framleiðslunnar. 1 öðru lagi hefur þetta fyrirtæki þegar sannað að það skapar verulega atvinnu. Og í þriðja iagi hefur framleiðslan fallið mönnum mjög vel, enda vaxandi sala, þamnig að fullyrða má að framleiðsla Léttsteypunnar sé þegar orðin fjölmörgum hús- byggjendum víðs vegar á Norð- ur- og Austurlandi mjög mikils virði. — Kristján. HLUSTAVERND STURLAUGUR JOIMSSON & CO. Vesturgö'u 16, Reykjavík. Símar 13280 oq 14680 Ráðskonustarf Ung kona með 2 drengi, 4ra og 6 ára vill taka að sér að sjá um heimili. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Friðbergsdóttir Framnesi, Reyðarfirðí. Iðnaðarhúsnœði 250—300 ferm. iðnaðarhúsnæði óskast til leigu fyrir bifreiðaverkstæði. Tilboð merkt:,, „Iðnaðarhúsnæði — 6999" óskast send Mbl. fyrir föstudagskvöld. IÐJA, félog verksmiðjufólks heldur félagsfund í Alþýðuhús'nu við Hverf- isgötu, fimmtudaginn 18. þ.m. kl. 8,30 e.h. Fundarefni: Umræður um félagsmál. Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega. F élagsst jórnin. Maður sem getur lagt fram 1.000.000 krónur getur orðið meðeigandi í góðu fyrirtæki sem framleiðir fyrir erlendan markað. Sá hinn sami getur fengið atvinnu við fyrir- tækið. Einstakt tækifæri fyrir duglegan mann. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins merkt: „Atvinna — 6851". Áhugaljósmyndarar Vil kaupa góðar jóla- og vetrarljósmyndir, teknar hvar sem er á landinu. Myndimar verða að vera teknar á litfilmu (slides), stærð 35 mm eða 6x6 cm. Sendið nafn, heimilisfang og símanúmer til afgreiðslu Morg- unblaðsins fyrir 25. þ.m. merkt: „Áhugaljósmyndari — 6850". NÝTT FRÁ BANDARÍKJUNUM - FREMSTA GÆÐA-SÍGARETTAN í AMERÍKU 'A*. Hgaworth tóbaksframlciðendur í Richmond, Virginiufylki. Frægir um allan heim fyrir úrvals gæða-tóbak, sem þeir hafa framleitt siðan 1877.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.