Morgunblaðið - 16.02.1971, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1971
13
— Léttsteypan
Framhald af bls. 10.
og hreinsun á timbri, slíkt er tal
in verulegur hluti af heildar-
kostnaði hverrar byggingar. Eft
ir þeirri miklu sölu að dæma,
sem verið hefur á framleiðslu
Léttsteypunnar, hljóta húsbyggj
endur að vera farnir að sjá
þann mikla sparnað og annað
hagræði við að láta hlaða hús
sín miðað við annað byggingar-
lag. Megintilgangurinn með
kaupunum á Léttsteypunni og
flutningi hingað í Mývatnssveit
var fyrst og fremst sá að auka
atvinnu viðkomandi aðila hér,
og þá alveg sérstaklega yfir
vetrarmánuðina. Að visu var bú
ið að koma þessu fyrirtæki upp
áður en nokkum var farið að
dreyma um Kísiliðjuna, og þá at
vinnu, sem hún mundi skapa
hér. Þrátt fyrir það hefur gildi
Léttsteypunnar sem atvinnu-
aukningar fyrirtækis sízt rýmað
nema síður sé. Reynslan hefur
þegar sannað nauðsyn þessa
fyrirtækis, ekki einungis til að
skapa aukið atvinnulíf meðal eig
endanna, heldur líka ekki síð-
ur, að framleiða hagkvæmt og
tiltölulega ódýrt byggingarefni.
Vegna siaukinnar eftirspum-
ar, og sölu á framleiðslunni, hef
ur ekki nægt að vinna aðeins
yfir vetrarmánuðina, heldur hef
ur lika orðið að vinna á sumr-
in.
Nú er svo komið að aðal-
steypuvél Léttsteypunnar og til
heyrandi tæki hennar eru
orðin allmjög slitin sem von er,
enda komin til ára sinna. Einn-
ig er húsnæðið mjög óhentugt,
og langt frá því að svara kröf-
um timans. Það er þvi orðin
nauðsyn að fara að endurnýja
vélakostinn og byggja ný hús.
Til þessa hefur verið notazt við
gamla dísilrafstöð til orkufram-
leiðslu fyrir verksmiðjuna, en
sú stöð er nú mjög gengin úr
sér og því mikil spurning hvort
svarar kostnaði að gera hana
upp. Verður þá ekki um annað
að gera en fá raflínu og líklega
helzt frá Gufurafstöðinni í
Bjarnarflagi. Það skiptir vitan-
iega meginmáli fyrir rekstur
þessa fyrirtækis í framtíðinni að
slík lina fáist með viðráðanleg-
um kjörum. Það er ekki orðin
nein smá upphæð sem Léttsteyp
an skilar nú til ríkisins á ári
þ.e. söluskatturinn. Það væri
því vissulega allra hagur að
þetta fyrirtæki þyrfti ekki að
sæta afarkostum hvað raforku
snertir.
Öll uppbygging og endumýj-
um Léttsteypunnar kostar vit-
anlega geysilegt fé, þó er varla
hægt annað en ráðast í þá end
urbyggingu, og það sem allra
fyrst, ef fjármagn til þess fæst
með hagstæðum kjörum. Við höf
um hér ótakmarkað fyrsta flokks
hráefni til framleiðslunnar. 1
öðru lagi hefur þetta fyrirtæki
þegar sannað að það skapar
verulega atvinnu. Og í þriðja
iagi hefur framleiðslan fallið
mönnum mjög vel, enda vaxandi
sala, þamnig að fullyrða má að
framleiðsla Léttsteypunnar sé
þegar orðin fjölmörgum hús-
byggjendum víðs vegar á Norð-
ur- og Austurlandi mjög mikils
virði.
— Kristján.
HLUSTAVERND
STURLAUGUR JOIMSSON & CO.
Vesturgö'u 16, Reykjavík.
Símar 13280 oq 14680
Ráðskonustarf
Ung kona með 2 drengi, 4ra og 6 ára vill taka að sér að
sjá um heimili.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Friðbergsdóttir Framnesi,
Reyðarfirðí.
Iðnaðarhúsnœði
250—300 ferm. iðnaðarhúsnæði óskast til leigu fyrir
bifreiðaverkstæði.
Tilboð merkt:,, „Iðnaðarhúsnæði — 6999" óskast send
Mbl. fyrir föstudagskvöld.
IÐJA,
félog verksmiðjufólks
heldur félagsfund í Alþýðuhús'nu við Hverf-
isgötu, fimmtudaginn 18. þ.m. kl. 8,30 e.h.
Fundarefni:
Umræður um félagsmál.
Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega.
F élagsst jórnin.
Maður sem getur lagt fram
1.000.000 krónur
getur orðið meðeigandi í góðu fyrirtæki sem framleiðir fyrir
erlendan markað. Sá hinn sami getur fengið atvinnu við fyrir-
tækið. Einstakt tækifæri fyrir duglegan mann.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins merkt: „Atvinna — 6851".
Áhugaljósmyndarar
Vil kaupa góðar jóla- og vetrarljósmyndir, teknar hvar sem
er á landinu. Myndimar verða að vera teknar á litfilmu
(slides), stærð 35 mm eða 6x6 cm.
Sendið nafn, heimilisfang og símanúmer til afgreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir 25. þ.m. merkt: „Áhugaljósmyndari — 6850".
NÝTT FRÁ BANDARÍKJUNUM - FREMSTA
GÆÐA-SÍGARETTAN í AMERÍKU
'A*.
Hgaworth tóbaksframlciðendur í Richmond, Virginiufylki. Frægir um allan heim fyrir úrvals gæða-tóbak, sem þeir hafa framleitt siðan 1877.