Morgunblaðið - 16.02.1971, Síða 21

Morgunblaðið - 16.02.1971, Síða 21
MORGUNBLAEMÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1071 21 Einokun? Athugasemd frá stjórn Arkitektafélags íslands Arkitektar hafa undanfar- ið margoft fengið fyrirspumir um afstöðu sína til þeirra um- ræðna og blaðaskrifa, sem farið hafa fram um breytingartillögu byggingarnefndar á byggingar- samþykkt Reykjavíkur. Af því tilefni vill stjórn Arkitektafé- lagsins koma eftirfarandi sjónar miðum á framfæri. 1 byggingarnefnd Reykjavík- ur var þann 14.1. 1971 samþykkt tillaga að breytingu á 11. gr. byggingarsamþykktar borgar- innar. Hafði frá því í marz 1970 staðið yfir endurskoðun á um- ræddri grein og var m.a. á tíma- bilinu leitað eftir upplýsingum til þeirra tæknimenntuðu hópa, er hér starfa og málið er skylt. Tillagan hlaut samhljóða sam- þykkt í byggingarnefnd. Af þeim tveim arkitektum, sem atkvæð- isrétt höfðu í nefndirmi greiddi annar þeirra tillögunni atkvæði, en hinn sat hjá. Við teljum, að tillagan gangi of skammt hvað varðar mat á starfsreynslu á móti raunveru- legri menntun á þvi sviði, er um ræðir. Þó teljum við þá stefnu, sem fram kemur í tillögunni, að hvetja beri til, að menn afli sér ávallt sem fullkomnastrar menntunar á því sviði, sem þeir vilja starfa, virðingarvert spor í rétta átt, og góða fyrirmynd fyrir löggjafann. Rétt er, að það komi fram, að umrædd tillaga fjallar aðeins um réttindi til að leggja fyrir byggingarnefnd teikningar, sem varða sjálft skipulag og útlit mannvirkja. Ekki er verið að fjaila um þær greinar bygging- arsamþykktarinnar, sem kveða á um tækniteikningar og útreikn- inga, sem eru sérsvið verkfræð- inga og tæknifræðinga. Það má segja, að um tvær leiðir sé að velja fyrir bygging- aryfirvöld til að tryggja gæði umhverfis okkar. 1 fyrsta lagi að takmarka rétt- indi til þess að móta þetta um- hverfi, við þá, sem hafa aflað sér fullgildrar menntunar á þvi sviði, þó með opnum möguleika til að veita réttindi hæfileika- mönnum, sem hafa leitað sér menntunar á annan hátt. 1 öðru lagi að veita öllum þjóðfélagsþegnum rétt á að leggja teikningar fyrir bygging- arnefnd og þar með móta um- hverfið, en setja jafnframt á stofn strangt gæðaeftirlit og eftirlit til þess að vernda og gæta hinna ýmsu hagsmuna sam- borgaranna og þjóðarheildar- innar. Að veita öllum þessi réttindi er andstætt grundvallarstefnu og uppbyggingu þjóðfélagsins í dag, þar sem menntun mótar starfssvið manna. Það dregur úr löngun til þess að afla sér sem beztrar menntunar. Hér er um að ræða grundvallarákvörð- un um gildi menntunar og af- stöðu til háskólamenntunar al- mennt. Slíkt hefur einnig mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir sveitarfélög. Þau verða að koma á fót mjög strangri eftirlits- stofnun, sem í stað skólanna nú, verða að taka að sér að meta hæfni manna á þessu sviði. Og hvar á að finna menn með bak- grunn og menntun til slíks mats, þegar grundvellinum hef- ur verið kippt undan þvi, að menn afli sér slíkrar menntun- ar? Ennfremur leiðir af þessu fyr- irkomulagi, að byggingamefnd- ir verða að taka á sig ábyrgð á teikningum þeirra aðila, sem ekki hafa fullnægjandi mennt- un, til þess að vinna arkitekta- störf. Danir hafa á vissan hátt reynslu af þessu fyrirkomulagi, en þeir eru fyrir löngu búnir að gera sér grein fyrir vankönt- unum. Eftirlitsbáknið er þar orðið svo ógnvekjandi, að þeir eru nú að breyta yfir í það fyrirkomulag að flytja ábyrgð- ina beint á þá, sem fullkomn- asta menntun hafa og láta skól- ana um menntunina. Megin kostir verksviðsmótun- ar eru, eins og áður hefur kom- ið fram, að hún hvetur til, að menn afli sér fyllstu menntunar á því sviði, sem þeir hafa vilja og hæfileika til að starfa á. Skýrgreining starfssviðs eft- ir menntun er grundvöllur þess, að starfshópar vinni á sinu sviði og taki upp eðlilegt samstarf. Brýna nauðsyn ber til, að þær stéttir, sem menntaðar eru til þess að annast undirbúning mannvirkjagerðar, nýtist hver annarri til uppfyllingar. í því efni hafa yfirvöld mikil- vægu hlutverki að gegna. Ef þessum stéttum er ætlað sama hlutverk og sömu réttindi I reglugerðum eins og bygging- arsamþykktum, er komið í veg fyrir eðlilega verkaskiptingu og samvinnu á milli þeirra. Það að byggja sér hús, er ekki einkamál þeirra, er það gera. Þeir eru þátttakendur í að móta umhverfi meðborgaranna um ókomna tíma. Það er því aug ljóst, að mikil ábyrgð hvílir á þeim, er móta umhverfi okkar og híbýli, og að nauðsynlegt er að þjóðfélagið geri til þeirra mikl- ar kröfur. - Þjóðgarður Framhald af bls. 20. arnámi, svo að réttmætir eig- endur og afkomendur þeirra fái ekki lengur notið eigna sinna. Ósjálfrátt hlýtur sú spurning að vakna. Hvar og hvernig ætl ar hæstvirt Alþingi að afla fjár til svo stórfelldra kaupa? Eftir hinum stórkostlegu lýsingum má ætla, að landsvæðið sé ómetan- legt. önnur eins jarðakaup hér á landi eiga sér vart hliðstæðu á síðari tímum. Sambærileg þjóðnýting þekkist hvergi, nema í einræðisríkjum. Hefur ekki gengið nógu erfiðlega að meta Laxárdalinn svo sem alþjóð er kunnugt, og eru það þó smá- munir samanborðið við 582 fer- km. Kostnaður við mannahald og eftirlit á svo gífurlegu svæði, yrði verulegur baggi á ríkis- sjóði, ef vel ætti að vera og því eru það eindregiin tilmæli okkar, sem þekkjum aðstæður betur en nokkrir aðrir, að skyn samlegra sé að verja peningun- um til bættra samgangna við hið einangraða og afskekkta byggð arlag. Með bættum samgöngum er heldur engan veginn útséð um, að byggð eigi ekki eftir að rísa þarna að nýju, þar sem fengsæl og auðug fiskimið eru skammt undan landi. Hvern hug hæstvirtur flutn- ingsmaður ber til fyrrverandi Sléttuhreppsbúa má sjá í um- mælum hans um frumvarpið við fyrstu umræðu á Alþingi sl. miðvikudag. Þar talar hann um að gera Sléttuhrepp að þjóðar- eign, þar sem fólk hefði þegar sýnt lítinn áhuga á þessum byggðum með því að láta hús grotna niður. Til að gefa fólki kost á að dæma um sannleiksgildi þessara orða er rétt að benda á myndir af hinum grotnandi húsum. — Hvaðan flutningsmanni kemur sú spámannlega vissa, að þessi landsvæði fari ekki í byggð, skal ekkert fullyrt um hér, en hitt er staðreynd, að þjóðnýting aráform hans eru ekki í anda sannra íslendinga. Því skorum við á hæstvirt A1 þingi að fella margnefnt frum varp og leyfa þegnum sínum að njóta laga og réttar, þar sem lýðræði sé virt og réttur ein- staklingsins ekki fótum troðinn. Fyrir hönd Átthagafélags Sléttuhrepps, Ingimar Guðmundsson. Knútur Bruun hdl Lögmonnsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 24940. RACNAR JÓNSSON Lögfræðistörf og eignaumsýsla Hverfisgata 14. - Sími 17752. HILMAR FOSS Lögg. skjalþ. og dómt. Hafnarstræti 11 - sími 14824. Sveinbjöm Dagfinnsson, hri. og Einar Viðar, hri, Hafnarstræti 11. - Sfml 19406. H afnarfjörður GUÐJÓN STEINGRÍMSSON hæstaréttarlögmaður Linnetsstíg 3, Hafnarfirði. Simi 52760. .SAMÚELCSí OWW* 1. tbl. 3. árg. nýkomið á blaðsölustaði. POP-TÍMARIT UM UNGT FÓLK, SKRIFAÐ FYRIR UNGT FÓLK, AF UNGU FÓLKI. Ungmenni athugið: Geymið blaðið þar sem foreldrar ná ekki til. Undirritaður óskar eftir áskrift (10 blöð, 420 kr.): Nafn: ............................................. Heimilisfang: ................................... Staður: ........................................... Box 594 — Sími 20865. I.O.O.F. = Ob. 1. P. = 152216 8 y2 = □ Edda 59712167 — 1 FrL Atkv I.O.O.F., 8 = 1522178 y2 = I.O.O.F. Rb 4 = 1202168% — Bingó □ Hamar 59712168 — 1 Filadelfía Almennur biblíulestur í kvöld kl. 8.30. Ræðumaður Einar Gíslason. Reykvíkingafélagið Spilakvöld n.k. fimmtudag kl. 8.30 í Tjarnarbúð. Reykvíkingafélagið. Stúlkur! Æfingar í körfuknattleik, þriðjudaga kl. 22.10 í Iþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar. Körfuknattleiksdeild Ármanns. Valsmenn Afmælismót í bridge verður haldið í félagsheimilinu að Hlíðarenda þrjá næstu mánudaga. Tvimenningur. Þátttaka tilkynnist Erni Ingólfssyni i síma 33880. Kvenfélag Kópavogs heldur fund í Félagsheimil- inu, efri sal fimmtudaginn 18. febrúar kl. 8.30. Kynnt verður handavinnunámskeið og sagt frá safnferð sem verð ur næsta laugardag. Gestur fundarins verður frú Elínborg Ágústsdóttir frá Ólafsvík. Stjórnin. Hafnarfjörður Þriðja samkoma Æskulýðs og kristniboðsvikunnar er í húsi K.F.U.M. og K. við Hverfisgötu í kvöld kl. 8.30. Ungar raddir: Málfriður Finnbogadóttir og Gísli Jón asson. Ræðumaður kvölds- ins: Gunnar Sigurjónsson, cand. theol. Einsöngur. Allir velkomnir. Félagsstarf eldri borgara í Tónabæ. 1 dag, þriðjudag, er handa- vinna. Á morgun, miðvikudag, verð- ur „Opið hús“ frá kl. 1.30 til 5.30 e.h. Dagskrá: lesið, teflt, spilað, kaffiveitingar, upplýsinga- þjónusta, bókaútlán og kvik myndasýning. K.F.U.K. a.d. Fundur 1 kvöld kl. 20.30 í húsi félagsins við Amtmanns stíg. Húsmæðraþáttur. Ásgeir Ellertsson læknir flytur hugleiðingu. Allar konur velkomnar. Stjórnin. HÆTTA Á NÆSTA LEITI • eftir John Saunders og Alden McWilliams Við látum fara fram nákvæma rann- sókn á því sem gerðist Logan, þangað til lienni er lokið og annað ákveðið, gegnir Monroe áfrant skyldustörfum sínum. Þetta er mín endanlega ákvörðim. Það er rangt herra. (2. mynd). Ég er enginn stórkaupmaðnr. en ég á stóra vini og valdamikla. 1 háiim stöðum auðvitað. (3. mynd). Þegar ég hætti, verður þessi ó- bótamaður í einkeimisbúningi götusópara. HÖRÐUR ÓLAFSSON hæstbréttarlögmaður skjataþýðandi — ensku Austurstræti 14 símar 10332 og 35673 Þaklba ykkur öl'lum, vinir mlnir, fyrir alla vináttuna, sem þið sýndiuð mér í orði og verki á áttræðisafmæli mínu 6. tebrúar. Helgi Ágústsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.