Morgunblaðið - 18.02.1971, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.02.1971, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1971 * > 0 Flengir þá með klám- blaðavendi Freymóður Jóhannsson „Velvakandi góður! Viltu ljá eftirfarandi rúm í dálki þínum? Ég hef því miður ekki haft tök á því fyrr að þakka Svövu Valdimarsdóttur það traust, er hún vottar mér í Velvakanda, föstud. 5. þ. m., en þar telur hún fleiri sammála mér um klámmyndafarganið en ég viti um. Gott er að vita til þess, enda hefur dagbl. Visir stað- fest það 1. þ. m. með skoðana- könnun sinni. Ekki get ég trúað því, að þeir í dómsmálaráðuneytinu og hjá lögreglustjóraembættinu séu svo sinnulausir, að þeir létu óáreitta umrædda klám- ritsútgáfu pilts þess, er Svava ræðir um, ef af útgáfu hans yrði eða hefur orðið. Slíkar út- gáfur hafa verið stöðvaðar hér. En ekki teldi ég eftir mér að hnippa í þá góðu herra, ef þeir færu að dotta á verðinum, — jafnvel þó að ég þyrfti að flengja þá með nokkrum blað- síðum af klámefni, til þess að þeir tækju við sér. 0 För stórtemplara Engu hættuminni en slík út- gáfustarfsemi, að henni fulllast aðri þó, er, að minu áliti, hin íátlitla niðurrifsstarfsemi kvik- myndahúsanna á siðgæðisvit- und fólks. Oft er þar einskis Fa itÍLA LEifwAX LIÍBi 22-0-2M [raudararstíg 3lJ 25555 svifizt, ef gróðavon er annars vegar, svo svæsin er þessi fjár- sýki; — og ekki tímdi Hafnar- bíó að sjá af svo miklu sem einni krónu fyrir sálu sinni, ef svo má orða það um bragghýsi við Barónsstíg, af sínum ilia fengna milljónagróða af klám- myndinni sinni yndislegu, þrátt fyrir áskorun; og það faðmaði með ánægju, að því er virðist, aðstoð Hafnarfjarðarskólans undir vernd skólastjórans, sem jafnframt er stórtemplar, við það að reyna að festa hinn falsaða fræðslustimpil á ósóm- ann, svo að löggæzluvaldinu yrði óhægra um vik að stöðva hann. Hefði þó einmitt í þetta sinn, og það líklega í fyrsta skipti hingað til, reynzt auð- velt að kæra og sanna marg- endurtekin lögbrot bíóanna, — að hleypa börnum og ungling- um inn á myndir, sem eru þeim bannaðar. 0 Það var ekki Stefán í Borgarbíói Eitt dagblaðanna, — ég held, að það hafi verið Tíminn, skýrði fyrir nokkru frá sam- tali við einn bíóstjórann utan Reykjavíkur, forstjóra Borgar- bíós á Akureyri, er úthellti harmagráti sínum yfir því að fá ekki klámmynd Hafnarbiós til sýningar á Akureyri, vegna gróðans, er af sýningu hennar hlyti að verða. Flaug þá í hug mér, að fljótt reyndu limirnir að dansa eftir höfðinu, þar sem þetta er bíó templara á Akureyri, og stórtemplar hafði sem skólastjóri Flensborgar- skóians gefið merkið hér syðra. Undraðist ég að vísu, að Stefán Ágúst Kristjánsson sem svo lengi hefur verið bíóstjóri templara á Akureyri við góð- an orðstír að þvi er bezt er vit- að, hefði smitazt svo fljótt. >að reyndist hins vegar ekki svo. Stefán hættur og fluttur hing- að suður, en annar klámfúsari kominn í hans stað fyrir norð- an. Eins og ég hef fyrr drepið á á prenti, eru það fleiri kvik- myndahús en Hafnarbíó, er gerzt hafa sorafengin og refsi- verð vegna gjörspillandi kvik- myndasýninga, og ekki ein- göngu í Reykjavik, heldur líka í Hafnarfirði og að sögn einn- ig Kópavogi og e.t.v. víðar. 0 Sleikjur, þukl og þjapp meðal úrkynjaðra stétta Þegar ég kærði Hafnarbiós- myndina, var því heitið af op- inberri hálfu, að betur skyldi verið á verði framvegis gegn þeim kvikmyndum, er hingað bærust framvegis og varhuga- verðar mættu teljast. Fór ég því s.l. mánudag 8. þ.m. í Laug arásbió, til þess að forvitnast um efndirnar og sjá, hvað þar væri á seyði í ástarleikjum þeim, er auglýstir voru. Jú, viti menn! Fyrst komu 3 iburð- armiklar auglýsingakvikmynd- ir frá jafnmörgum „sígarettu"- framleiðendum um ágæti vindl- inga þeirra. Var þar fátt til sparað. Næst komu sýningar- glefsur úr ýmiss konar áistar- leikjum. Risastórir munn- ar mættust og meira en hurfu hvor í annan, sleikjur, þukl og þjapp fylgdu með. Brátt komu til sögunnar afbrýðisemi, reiði, brigzlyrði, ókvæði, áflog, löðr- ungar, kjaftshögg, blóðnasir, barsmíðar, morðvopn, fall í gólf, þot út að vegg eða i hom af hnefahöggi, fall á og yfir borð og stóla, brotinn húsbún- aður, vasar, speglar, rúður, stól ar, borð, — blóðrisa andlit, lim- lestir búkar, — sem sagt sýnis- horn af fyrsta flokks ást- arleikjum mikilsmetinna „flott" úrkynjunar stétta. H Stunur og andköf Svo byrjaði sjálf myndin: — rúmgisting giftrar konu og ógifts viðhalds hennar, — dá- læti ógiftra kvenna á glæsilegri giftri karlstjörnu við grammófón og segulband í sjónvarpi, kossar þar og faðm- 1 \mium BILALEIGA HVERFISGÖTU103 VW Sendiferaabifíeið-VW 5 manna-VW sveinvagn VW 9 maima -Landrwer 7manna Hafnarfjörður Aðalfundur Styrktarféiags aldraðra verður í samkomusal Kaup- félags Hafnfirðinga, föstudagínn 26. febrúar nk. kl. 8.30 e. h. Auk aðalfundarstarfa verða umræður um aukið verkefni fé- lagsins. Kaffi. Áríðandi að félagar og nýir félagar fjölmenni. STJÓRNIN. LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. BÍLALEIGAN Blíki hf. Sími 5-18-70 NÝTT VETRARGJALD NÝIR BlLAR. Heimasímar 52549. 50649. Sérhæðir í smíðum Vorum að fá í sölu sérhæðir á mjög góðum stað í borginni. Ibúðirnar eru 150 fm, 3 svefnherbergi, húsbóndaherbergí, borðstofa, dagstofa, skáli, eldhús, þvottaherbergi, búr og baðherbergi. Þessar ibúðir seljast tilbúnar undir tréverk, fullfrágengnar að utan og sameign innanhúss. Þá fylgir 49 fm. bílskúr. Teikningar á skrifstofunni. Upplýsingar ekki veittar í síma. FASTEIGNAÞJÓNUSTAN, Austurstræti 17, (Silli & Valdi), 3. hæð. lög. Margra metra löng læri birtust á sýningartjaldinu, fall hlífarstórir bossar, brjóst á stærð við uppblásna lóðabelgi, — kútveltingur fram af svamp dýnum og niður á flos- mjúkt gólfteppi, — risavaxnir stripiingar með ámóta blygðun arhlífar og brjóstahöld velta hvor undir og upp á annan og út af sviðinu; i staðinn koma hlifar lenda og brjósta í loft- köstum inn á sviðið, — æsing, kynofsi, samfarir, stunur, and- köf. Giftur maður þýtur í bíl með ógiftri stúlku heim tU hennar, afklæðning, rúmgisting, samfar ir. Úti á baðströnd er sandi rót að í loft upp við sams konar aðfarir. Á þennan hátt voru sem sagt ástarleikirnir, sem kvikmynda- hús Dvalarheimilis aldraðra sjómanna í Reykjavík bauð gestum sínum að sjá með þess- ari kvikmynd, — léttúð, laus- læti, samfarir, framhjáhald, rifrildi, skammir, áflög, skiln- aður, harmagrátur, með ö.o. andleg eitrun. Og hverjir voru svo gestirnir á svona 5-sýn- ingu? — Ungmenni, aðallega á aldrinum 14 ára til tvítugs, — aðeins örfáir eldri, að meðtöld um mér. 0 Eftirlit með börnum 1 huga mínum blasti við flak af olíuskipi, er siglt hafði ver- ið í strand af ölóðum, sam- vizkuvana eða sofandi stjórn- endum skammt frá landi. Oiían streymdi úr skipinu og flaut á yfirborðinu, gljáand*, jafnvel í skrautlegum ljósbrotum. Fugl- arnir, sem töldu sig vera að njóta lífsins við ströndina, lentu í olíubrákinni, sóttu jafn vel í hana, en urðu brátt reynsl unni ríkari, að þeir höfðu lent í tortímandi óþverra. Þeir urðu kámugir, þeir gegnblotn- uðu, svo að kuldinn ógnaði lífi þeirra og tilveru. Mér fannst bíóið hafa fyllzt af slíkum óþverra, og ungviðin, sem kúrðu i sætunum, hafa lent í brákinni. Er út var komið, spurði ég dreng, er gekk við hlið mér: „Hvað ert þú gam- all, góði minn?“ „15 ára,“ svar aði sá stutti. „Sýndirðu nafn- skírteinið þitt?“ spurði ég. Þá hlógu félagar hans, og leiðir skildu. Náiægt mér í salnum hafði og setið unglingsstúlka, auðsjáanlega enn yngri. Þegar ég grennslaðist fyrir um það hjá Barnaverndar- nefnd Reykjavíkur, hvort hún hyggðist kæra Hafnarbíó og Flensborgarskólann fyrir bíó- förina frægu á klámmyndina, þá var mér tjáð, að stefnt mundi að því að fá lögreglu- vörð við þau kvikmyndahús, er sýndu myndir, sem bannaðar væru börnum. Engrar slikrar gæzlu varð ég var á umræddri 5-sýningu. Var hún þó auglýst bönnuð börnum innan 16 ára. Ekki hef ég heldur orðið var við eða heyrt um slíka vörzlu annars staðar. Það skal tekið fram, að þeg- ar þetta er fest á blað, er Laug arásbió hætt að sýna þessa ást arleiki sína, og er það vel, En hvað á að gera við þau kvik- myndahús, er leggjast svo lágt að hella svona spillingu yfir auðtrúa ungmenni okkar? Svar ið er einfalt. Þeim á að loka! Telji löggæzluvaldið sig skorta heimild til þess, þá á það að afla sér slíkrar heimildar. Til þess þarf varla meðalmanndóm, — og beita heimildinni feimnis laust. Alþingi er enn að störf- um. Ef kvikmyndahúsin eru svo illa stödd fjárhagslega, að þau fremja slík spellvirki til þess að reyna að halda í sér líftórunni, þá látum þau held- ur geispa golunni. Vonandi komast einhver þeirra af án slíkra kvikmyndasýninga, ekki sízt ef þeim yrði fækkað, —- og Laugarásbíói ætti frekar að breyta í samkomuhús fyrir dvalargesti Hrafnistu með boð legu fræðslu- og skemmtiefni. 0 Kommúnismi er klámi betri Af forvitni renndi ég i dag augunum yfir auglýsingar kvikmyndahúsanna hér í blað- inu. Ekki virtust uppörvandi auglýsingarnar, sem þar var að finna. Þær virtust hvorki sniðnar til fyrirmyndar né upp byggingar hrjáðu mannkyni. Tónabíó: „bönnuð innan 16 ára,“ Háskólabíó: „bönnuð inn an 16 ára,“ Nýja Bíó: „bönnuð yngri en 12 ára,“ Hafnarbíó: „bönnuð innan 16 ára,“ Stjörnubíó: „bönhuð innan 14 ára,“ Laugarásbíó: „bönnuð börnum," Kópavogsbió: „bönn- uð börnum." Er þá nokkurn veginn auðráðið, hvernig inni- haldið muni vera. Sé hugað að nafngiftum, má lesa: „Vald bytssunnar" (miðandi byssur og krepptar krumlur), „Kysstu, skjóttu svo,“ „hörkuspenn- andi“, „stórkostlegt listaverk, merkasta mynd, sem fram hef- ur komið . . .,“ „seiðmögnuð spenna, frábær leiksnilld," „Operation opium," „Fireball 500.“ Þetta er dálítið sýni af bíómenningu okkar. Löggæzlu- menn lands og borgar, finnst ykkur ekki tími til kominn að stöðva þennan óþverra? Ég endurtek, að teljið þið ykkur skorta heimild eða vald til þess, þá reynið að útvega ykk- ur það sem fyrst. Ef svóna heldur áfram, þá verð ég að segja, að af tvennu miður æski legu held ég, að austrænt ein- ræði sé skárra en vestrænt frelsi í svona mynd. Enda er sýnilegt, að fái þetta hömlu- lausa frelsi að halda svona áfram óáreitt, verður ekki hjá hinu austræna komizt. Föstudaginn 12. feb. 1971. Freymóður Jóhannsson“. Tilboð óskost í Mb. Emmu þar sem hann stendur ósjófær í Dráttarbraut Eyrarbakka. í bátnum er m.a. togútbúnaður með vökvadrifinni togvindu og dragnótarspili. Upplýsingar verða veittar í síma 99-3165. * Nýkomnir MIDI-JERSEY KJÓLAR í stærð- unum 36 til 42, VISTRAM- KÁPUR stærðir 38 tíl 42, PEYSUR með háum rúMukraga á 12—15 ára, 798,00 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.