Morgunblaðið - 18.02.1971, Page 10

Morgunblaðið - 18.02.1971, Page 10
10 MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1971 Það verður ekld annað sajft um Grenvíkinga, en að þeir séu með söngrglaðara fólki á land- inu, þegar svo ber undir, svo sem á þorrablótum og: öðrum tyllidögum. Við litum inn á þorrablót lijá þeim fyrir skömmu og þar var aldeilis glatt á hjalla og sungið og dans að fram á rauða nótt á núlli þess sem menn spændu úr þorra trogum sínum. Þess ber einnig að geta í þessu sambandi að hvert Iag sem tekið var i f jölda söng var sungið margraddað og ugglaust eru ekki margar sveit ir hérlendis, sem státað geta af slíku. En nú er öðru nær að Gren- víidngar séu alltaf á dansleikj- um og fyrr um daginn þegar við fórum um þorpið var öllu eðli legra um að litast. Grenivík byggir afkomu sína á sjónum, en í þorpinu búa um 400 manns og hafa mörg ný hús verið byggð þar síðustu ár, Þorsteinn Eyfjörð en segja má að bærinn hafi byggzt ört upp síðan hafnar- garðurinn var byggður þar og sjómenn fengu viðunandi að- stöðu fyrir báta sína. Nú eru 6 þilfarsbátar gerðir út frá Grenivik og aflinn er unninn í Kaldbak, frystihúsi staðarins. Niðri á gömlu bryggjunni hittum við Þorstein Eyfjörð skipstjóra á Víði ÞH 210, 6 tonna bát, sem hann rær á ásamt öðrum. Þorsteinn sagðist aUtaf hafa verið sjómaður, enda bar hann það með sér því að það var selta í augnsvipnum. Þeir félagar á Víði voru ný- komnir að, en þeir höfðu róið með 10 bjóð. Aflinn var fremur tregur, eða um hálft tonn af smáþorski. Hins vegar sagði Þorsteinn að þeir reru venju- lega með 12—15 bjóð á línunni og aflinn væri allt upp í 1600 kg af þorski. Hann sagði að þeir reru oft aðeins 15—30 mín. út fjörðinn eða einn og hálfan tlma út að Látrum. Bátarnir sem eru gerðir út frá Grenivík eru flestir i kring um 10 tonn. Þrir stórir bátar frá Grenivík eru gerðir út frá Grindavík, en það eru bátarnir Vörður, Odd- geir og Áskell. Vörður hefur þó að nokkru leyti verið gerður út frá Grenivík og var t.d. fyrir norðan s.l. sumar. Þorsteinn sagðist hafa átt Komið í Grenivík við Eyjafjörð á febrúardegi Kristleifur Meldal Björn Ingólfsson Víðir kemur til hafnar í vinnslusal Kaldbaks Víði síðan 1950, en hann lét setja þilfar i bátinn 1959. Hann sagði að fiskveiðin væri skást þarna í apríl og mai, en línu stundar hann allt árið utan þess að hann bregður sér á færi nokkrar vikur og grá- sleppuveiðar stundar hann með línunni í marz og apríl. Við litum einnig inn i frysti- húsið Kaldbak og hittum að máli verkstjórann Kristleif Mel dal. 1 Kaldbak vinna um 25— 30 manns á veturna, en um 40 manns á sumrin. Kaldbakur tekur við afla allra bátanna, en eins og sagt hefur verið frá í fréttum mun minkabú Grá- vöru i Grenivík fá fiskúrgang frá Kaldbak til fæðu fyrir minkana. Það er eftirtektarvert að um leið og einhver hafnarskilyrði komu i Grenivík hófst ör upp- bygging staðarins og nú er þar vaxandi þorp að menningu og manniifi. Ungur maður, Björn Ingólfs- son, er skólastjóri í Grenivík. Hann sagði að í skólanum væru nú 57 nemendur, en auk hans eru tveir kennarar við skólann. Grenivíkurskólinn starfar i húsi sem var byggt fyrir 50 árum af miklum stór- hug, en nú er farið að þrengj- ast um aðstöðu fyrir kennsluna auk þess að allar samkomur á staðnum eru haldnar í skóla- húsinu. Björn taldi að mikil þörf væri á því að leysa félagsheim- ilisvandamál Grenvíkinga og kom uppbyggingin nágrennis með þvi að byggja félagsheimili á staðnum þar sem hægt væri að hafa samkom ur og reka tómstundastarf fyr ir íbúana. Þá kvað hann það vera aðkallandi að byggja nýtt skólahús fyrir staðinn þar sem hægt væri að halda skóla sem nútímaþjóðfélag krefst. Slík bygging þyrfti að hafa ekki minna en 4 kennslustofur auk sérkennslustofa og annars hús- næðis sem ekki verður hjá kom izt að hafa í nútímaskóla. Skólinn I Grenivík menntar bæði börn og unglinga, en nú er gert ráð fyrir að unglingar fari næsta ár i Stóru-Tjarnar- skóla, sem er verið að byggja og þá rýmkast eitthvað í skóla húsinu, en það verður vart nema um stundarsakir. — á.j. Bátar í nausti. Bæjarstæði Grenivíkur í fjarska. Gert klárt við gömlu bryggjuna — Ljósm. Mbl.: á. johnsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.