Morgunblaðið - 24.02.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1971
7
Óþarft að láta minka sleppa úr búunum
„Ég held það sé algerlega
óþarfi að missa niinka úr góð
um minkabúum, og komi slíkt
fyrir hefur gæzlan verið eitt-
hvað slök, en á henni má
aldrei slaka,“ sagði Guð-
mundur Sveinsson minkafræð
ingur, sem nýkominn er frá
námi í Kanada, þegar við hitt
um hann á förnum vegi fyrir
nokkru, og spurðum hann
álits á þeim tíðindum, að sann
að er, að minkar hafa slopp-
ið úr nýreistum búum á Is-
landi.
„Ég vann alllangan tíma á
minkabúi Jóhanns Sigurðsson
ar, sem er fæddur Vestur-ís-
lendingur, og á minkabú ná-
lægt Lundar í Manitobafylki,
en á því búi voru þetta milli
7—8000 minkar. Við höfðum 2
minkahunda í garðinum, og
svo var hræðslan Mtil um að
minkamir slyppu út, að undir
minikabúrunium spíigsporuðu
gæsir og hænsni og tíndu
upp það sem frá minkunum
féll. En við yfirgáfum aldrei
Frá minkabúi Jóhanns Sigurðssonar við Lundar í Manitoba.
Guðmundur Sv'einsson.
allir minkabúið I einu. Hund-
arnir, hvenær sem var, tii taks
og lítil vön fyrir mink, sem
kynni að komasi út úr búrun
um að sleppa lifandi úr garð-
inum.“
„Hvers vegna fórst þú til
Kanada til náms, Guðmund-
ur?“
„Ég hafði heyrt að Kanada
menn stæðu framarlega í
minkaeldi, og ég fékk áhuga
á því að heilsa upp á frænd
ur okkar þar, sem fengust við
minkaeldi og læra af þeim. Ég
kom út 15. marz 1969. Ég var
við nám í Manitobaháskóla.
Lærði þar pelsun og var við-
staddur dýralækningar, og
lærði mikið af því. Hafði ég
þar prýðiskennara, m.a. Dr.
Cork, sem var forstöðumaður
tilraunabúsins. Á því búi, en
ég vann þar meðfram nám-
inu, voru skinnin fullfrágeng
in, svo að ég lærði meðferð
þeirra frá fyrstu byrjun. Ári
lengur var ég svo á vegum
þessa bús og ferðaðist milli
búa í landinu, vann að skinna
verzlun, við að „raga“ skinn,
og tel mig hafa öðlazt á því
dýrmæta reynslu, sem mig
langar að komi að gagni hér
á Islandi."
„Það er talað um, að merkja
þurfi minkana hérlendis, svo
að hægt sé að sjá, hvaðan
þeir sleppa. Hvað álitur þú
um slikar merkingar?“
„Það er erfiðleikum bund-
ið að merkja mink, eina ráð-
ið er að auka eftirlitið í
minkagörðunum. Annars er
möguleiki á að merkja minka,
en það myndi kosta viðkom-
andi bú mikla vinnu. Eru not
aðar til þess tangir, og mink
arnir merktir á eyrum með
eins konar „tattóveringu.“
En hvernig fer svo um merk-
ingar, þegar dýrin eru seld á
milli búa?
Piampiano hefur t.d. 2 þýzka
Shepherd-minkahunda á búi
sáinu.“
„Hvernig lízt þér á ís-
lenzku búin?“
„Jú, þau eru vel búin, en
ég kom eitt sinn að tveimur,
og var þar þá stundina eng-
in gæzla, og slíkt býður hætt
unni heim. Einnig tel ég, að
búin hafi byrjað of stórt,
þ.e.a.s., að þau eigi annað-
hvort að vera gríöarstör,
eins og t.d. bú Jóhanns Sig-
urðssonar i Lundar, sem ég
minntist á fyrr, og ég starf-
aði á i 9 mánuði, eða þá litil,
t.d. með 250—300 læðum, þar
sem hjónin á búinu sæju sjálf
um allan reksturinn.
Annars er svo sem um
mörg loðdýr að ræða, sem
rækta má, og er minkur ekki
Hann virðist svo sem nógu saklaus þessi minkurinn.
Nei, merking er ekki lausn
in. Auk þess hef ég aldrei
heyrt þess getið að lifdýr
væru merkt. Strangt eftir-
lit og notkun hunda er ráðið,
enda tíðkast það ytra, bæði í
Bandaríkjunum og Kanada.
Hinn þekkti minkabóndi Carl
Guðmundur Sveinsson heldur á hvítum minki í Kanadasól.
A
förnum
vegi
einn um hituna á skinnamark
aðnum, þótt verðmætustu
skinnin séu óneitanlega frá
honum komin.
Ég hef mikinn áhuga á
minkarækt á íslandi, og tel,
að tvimælalaust sé hægt að
rækta mink hér á landi með
góðum árangri, en auðvitað
verður að fara að þeirri rækt
un með allri gát.“
Og eftir að Guðmundur hef
ur léð okkur til birtingar
nokkrar myndir frá minka-
görðum í Kanada, kveðjum
við með ósk til hans, að hann
megi finna starfssvið við sitt
hæfi á íslandi og með reynslu
sinni og þekkingu hjálpa Is-
lendingum tii að komast vel
á iegg með minkaræktina.
— Fr.S.
FRETTIR
Kvcnfélag Árbæjarsóknar
Aðalfundur verður haldinn mið-
vikudaginn 3. marz kl. 8.30
stundvislega í Árbæjarskóia.
Kaffiveitingar.
Stórólfshvolskirkja
Messa á sunnudag kl. 2. Barna-
messa kl. 3. Séra Stefán Lárus-
son.
Föstumessur
Fríkirkjan í Reykjavik
Föstumessa í kvöld kl. 8.30.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Laugarneskirkja
Föstumessa í kvöld kl. 8.30.
Séra Garðar Svavarsson.
KÓPAVOGÚR — GARÐA- HREPPUR Maður í góðri stöðu óskar eftir 3ja—4ra herb. íbúð til feigu í Garðahreppi eða Kópa vogi. Vinsamlega hringið í síma 50216 frá kl. 10-5 f dag. BROTAMALMUR | Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91s
TIL SÖLU HASETAR
Opel Kadett coupe, árg. 1967 í góðu standi að Faxabraut 57, Keflavík, sfmi 2543. Háseta vantar á netabát frá Keflavík. Uppl. í sima 2236 og 2716, Keflavík.
HÚSEIGENDUR Þéttum eftirfarandi: stein- steypt þök, asbest þök, þak- rennur, svalir, sprungur í veggjum. — Verktakafélagið Aðstoð, sími 40258. KEFLAVlK — SUÐURNES Nýkomnir 4 litir af vetrar- bómull. Einnig rósótt og ein- litt terelyne jersey. Mynstrað acril jersey og flauel i sam- kvæmiskjóla. Verzl. Femina.
TIL SÖLU JARÐHÆÐ TENGIVAGN
á Suðurgötu 21, Akranesi. Uppl. hjá Helga Guðmunds- syrri, sama stað. Tveggja öxla tengivagn ósk ast. Tilb. skal skWa tW MM, mert: „Tengivagn 6887"g
ELTIKAR TIL SÖLU
Góð deyglögunarvéf f. 100— 150 kg. af mjöli til sötu. — Bakaríið Kringlan. Sími 30580, Moskwitch >67 í góðu ásig- komulagi. Má greiðast með fasteignatryggðu veðskulda- bréfi. Uppl. í síma 84751g
TIL SÖLU ER VOLVO F 86 árg. '66, með York burðar- öxiK, 12 tonna, selst með eða án húss till vöruflutninga. — Uppl. gefur Marteinn Karlss, i síma 10440 Rvfk, og síma 6252, Ólafsvík. 15 MANNA VEAPON til sölu. Uppl. í sima 84168.
Lokoð vegna jarðarfarai
Vegna jarðarfarar Sigtryggs Klemenzsonar, seðlabankastjóra,
verður bankinn lokaður fimmtudaginn 25. febrúar 1971 frá
klukkan 12.30.
SEÐLABANKI fSLANDS.
Góð 3ja herbergjo íbúð
til sölu i Árbæjarhverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
KAUPENDAÞJÓNUSTAN — FASTEIGNASALA
Þingholtsstræti 15. simi 10220.
Skrifstofuhúsnæði óskast
STRAX EÐA FLJÓTLEGA FYRIR AUGLÝSINGASTOFU
l EÐA NÁLÆGT MIÐBORGINNI.
HÚSNÆÐIÐ ÞARF AÐ VERA 2 HERB.
NÁNARI UPPLÝSINGAR SENDIST MBL. FYRIR N.K.
LAUGARDAG MERKT: „MAGN — 6885”.
Til sölu
fólks- og vörubílur
Citroen '68 DS 21 pallas.
Rambler American '67
Playmouth Belvadeere '67
ekinn 45 þús. km.
Chevrolet Station '65 8 manna.
Hiilman Hunter '70
ekinn 6 þús. km. Skipti á
R-jeppa með diesel.
Volkswagen 1600 TL '67
og '68.
Cortina '66, ’68, ’70.
Ford 20 MXL '68, sem nýr.
M.-Benz 1920 '66.
M.-Benz 1618 '67.
M.-Benz 1413 '66, '67,69.
M.-Benz 1911 '64.
Bedford '66, ný vél, vökva-
stýri.
Willys jeppar '63, '65, '67.
Rússa jeppar '57, '67, '68.
Getum tekið bila I sölu og
og haft þá inni.
SÝNINGARSALURINN
Kleppsvegi 152, Holtavegsmeginn, sími 30995.