Morgunblaðið - 26.02.1971, Síða 16
16
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1971
Skrifstofustúlka
Heildverzlun óskar að ráða stúlku til starfa við bókhald og
útborganir.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist blaðinu
fyrir 29. þ.m. merktar: „Ábyrgð — 6771".
M iðstöðvarketil I
15—20 fermetra gufu- eða vatnsketill óskast.
Upplýsingar í síma 33359 milli kl. 5—8 í dag.
Vanan háseta
vantar á 200 lesta netabát á Austfjörðum.
Upplýsingar gefur Már Karlsson, Djúpavogi.
Svo einhver verð séu neind
KONUR:
Artemis náttkjólar
495—
Artemis undirkjólar
275—
Artemis skjört
195—
Frotte sloppar
750-
Crepe-sokkar
38—
Kápuefni br. 1,50
350—
Einlit ullarefni
br. 1,50 280—
KARLAR:
Crepe-sokkar
45—
Karlmannaskyrtur
395—
Náttföt
200—
Gallabuxur
Lítil númer 195—
Vinnujakkar
350-
Flónel-skyrtur
225-
Unglingabuxur
195—
Stretch-buxur
225-
Flonel-skyrtur
135—
Telpudragtir
buxur og jakki
375-
Metravara ótrúlega lágt verS.
Útsalan hœttir eftir nokkra daga.
Notið tœkifœrið og kaupið ódýrt.
Austurstræti 9.
BORN:
Gallabuxur
195—
Nælonúlpur
695—
Terylene-buxur
275—
stærðir 14 og 16
- Að lif a
Framh. af bls. 13
mýrar fyrir vaðfuglana. Þjóð-
garðar eru ágætir, þar sem þeir
eiga við. Hvað um Hreðavatn og
Grábrókarhraun, að því til-
skildu, að sumarbústaðir hverfi
allir, girðingar verði fjarlsegð-
ar og að almenningur fái að
skoða Laxfoss? Við skulum
friða Hólmatungur fyrir sauð-
kindum og Barnafoss fyrir lax-
veiðispekúlöntum. En það, sem
við þurfum að nota til að geta
lifað í landinu skulum víð hag-
nýta, en þó þannig að vel sé að
öllu farið. Þjórsá og Dettifoss
eru stórkostlegar auðlindir og
sömuleiðis Laxá. Við verðum að
taka eitt en gefa annað, en um
gengni okkar í landinu og með-
ferð á því verður að vera góð.
Þannig mun friður komast á og
þjóðinni getur fjölgað en ís-
lenzk náttúra haldið svip sínum
og töfrum.
Virkjanir geta oftastnser ver-
ið jákvæð mannvirki að öllu
leyti. Þær eru hreinlegar og
snyrtilegar og geta fallið vel
inn í landslag, jafnvel betur en
heyhlöður og votheysturn-
ar. Þær vinna gegn mengun
í andrúmslofti og menga ekki
vatnið. Þær geta beinlínis stuðl
að að friðun landsvæða. Þær
þurfa ekki að spilla laxveiði né
fiskiræktarmöguleikum, oft
frekar hið gagnstæða, því þær
hemja vatnsföll, sem oft eru
óstýrilát og lífi hættuleg, svo
sem Laxá. 1 ánum eigum við
gnægtir af hreinni orku, sem aðr
ar þjóðir öfunda okkur af.
Islenzk náttúra er sífellt að
breytast. Mývatn mundi, án kís-
iliðju, fyilast af barnamold á
fyrirsjáanlegum tíma. Foss, sem
í dag er fagur getur horfið með
öllu á næstu öld. Náttúruvernd,
sem miðast við status quo er því
óraunhæf. Náttúruvemd, sem
miðast við að stór hluti þjóðár-
innar þurfi að flytjast af landi
brott er neikvæð. Ég vona, að
við berum gæfu til að koma á
jákvæðri og uppbyggilegri nátt-
úruvernd, sem þoli framfarir í
landinu og fjölgun þjóðarinnar.
Og ég vona, að misnotkun land-
eigendaauðvaldsins og laxveiði-
spekúlantanna á þessari hug-
sjón skaði hana ekki óbætan-
lega.
MEÐ EINKALEYFl
A ÞJÓÐHOLLUSTU
Forsvarsmenn landeigendaáuð
valdsins telja sig hafa einkaleyfi
á þjóðhollustunni, og þeir senda
jólaskeyti þeim, sem þeir þykj-
ast geta veitt aðild að einkaleyf-
inu. Samkvæmt minum skilningi
er þjóðhollusta hollusta við fólk
ið I landinu og áhugi fyrir vel-
ferð þess. Ættjarðarást er ást á
ættjörðinni, landinu. Ég held að
Islendingar hafi aldrei talið
þessi hugtök andstæð. Hvar sem
hugtakanna er getið, í bundnu
eða óbundnu máli skálda okkar
eða annars staðar, virðist geng-
ið út frá, að hér sé um samstæð
hugtök að ræða og jafnvel sama
hugtakið. Þjóðhollusta hlýtur að
miðast við þjóðarheildina en
ekki einstaka smáhópa, og hags-
munir þjóðar og ættjarðar hafa
hingað til verið taldir þeir sömu.
Það sýnir einstæða óeigingirni,
að maður bindi ættjarðarást
sína og þjóðhollustu við aðra
dýrategund en sína eigin, homo
sapiens, svo sem heiðargæsir og
vaðfugla, og vilji láta hagsmuni
þeirra ganga fyrir hagsmunum
mannfólksins. Sennilega er
þama um að ræða miklu hærra
andlegt þroskastig en mitt eða
alls almennings! En ég ætla að
vera svo lágkúrulegur að taka
mér stöðu með mínum likum, og
stangist hagsmunir minnar dýra
tegundar á við hagsmuni ann-
arrar tegundar ætla ég að halda
með minni eigin. Fólkið i iand-
inu er mín þjóð, og þar er mín
þjóðhollusta. En ég ætla að
leggja áherzlu á friðsamlega sam
búð við aliar aðrar þjóðir og
gera þeim það gott er ég má. Ég
er viss um, að þótt mín þjóð
stækki og bæti umhverfi sitt og
kjör, verður samt pláss fyrir
hinar þjóðirnar lika. Ég veit
ekki hvort hinir tveir ágætu rit-
höfundar, sem rætt hefur verið
um í grein þessari, gera sér
ljóst, að afstaða þeirra er and-
stæð þjóðarhagsmunum. Ég
vona, að þeir hugleiði þetta I
góðu tómi. Þessir menn eiga að
vera hafnir yfir fjáröflunarstarf
semi landeigendaauðvaldsins og
laxveiðispekúlantanna og póli-
tíska hentistefnu marxistanna.
íslandssagan er ótrúleg ævin-
týrasaga. Ekki eru nema tvær
aldir síðan við lá að þjóðin yrði
aldauða. En við höfum risið úr
öskustónni. Afar okkar og ömm-
ur, feður og mæður og við sjálf
höfum byggt upp nútíma hag-
sældarþjóðfélag á Islandi. Hing-
að til hefur þetta verið stolt
okkar. Og samfara hinni efna-
legu hagsæld og vegna hennar
dafna listir og vísindi i land-
inu. Skólar landsins eru fullir
af þróttmiklu, ungu fólki, sem óð
um bætist í hóp okkar, sem
vinnum að uppbyggingu þjóðfé-
lagsins. Við eigum við okkar erf
iðleika að stríða, en við höfum
þó fulla ástæðu til bjartsýni. Aft
urhaldsöfl hafa alltaf verið til á
Islandi, og þau hafa stundum
náð miklum áhrifum um skeið.
En þau hafa alltaf verið brot-
in á bak aftur, því framtíðin er
ævinlega sterkari en fortíðin.
Framfarirnar munu brjóta af
þjóðinni það, sem eftir er af
hlekkjum fátæktar og fáfræði,
og þá mun dafna hér og stækka
frjáls ménningarþjóð I fögru
landi.
Þó að Laxármálið skipti Akur
eyri miklu og Norðurland er það
miklu stærra og þýðingarmeira
en það. Þetta er prófmál þekk-
ingar og framfara gegn aftur-
haldi og forpokun. Eftir úrslit-
um þessara átaka getur farið
hvort bjartsýni mín á framtið
lands og þjóðar er raunhæf eða
ekki. Ef afturhaldið sigrar nú
mun það færa sig enn upp á
skaftið. Þá verða öll framfara-
mál þjóðarinnar í hættu, Við
skulum gera Laxárvirkjunarmál
ið að ragnarökum afturhaldsins
á íslandi.
Akureyri í febrúar 1971,
Bjarni Einarsson.
Iðnoðorhúsnæði óshnst
30—50 ferm. húsnæði óskast fyrir léttan iðnað.
Tilboð merkt: „Bólstrun — 6769" sendist afgr. blaðsins.
SKÓÚTSALAN
Síðustu dagar. Seljum KARLMANNASKÓ (vinnuskór) frá kr. 395.—
Stórkostlega góð kaup. Stendur til mánudags. KVENSKÓR frá kr.
275—500.— (góðir hversdagsskór) takmarkaðar birgðir. KULDA-
SKÓR úr leðri karlmanna-, kven- og drengjaskór.
Þar getið þér gert reyfarakaup. — Stendur aðeins í 2 daga.
SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSSONAR
Laugavegi 96 og Laugavegi 17.
SKÓVERZLUNIN Framnesvegi 2.
Skrifstofustúlka
Iðnfyi-irtæki óskar eftir skrifstofustúlku til að annast
■:■ Bókhald
Enska bréfritun
25 þúsund kr. á mánuði í boði fyrir rétta stúlku. Starfið hefst 1. maí.
Umsóknir leggist inn á Morgunblaðið fyrir mánudagskvöld merkt:
„Skrifstofustúlka — 6892“. Með þær verður farið sem trúnaðarmál.
Öilum umsóknum verður svarað innan viku.