Morgunblaðið - 10.03.1971, Síða 4

Morgunblaðið - 10.03.1971, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1971 r I3ILALEIGA IIVERFISGÖTU 103 V W Sendiferðabifreið-VW 5 manna -VW svefnvagn VW 9manna-Landrover 7manna LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastrætí 13 Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. STOVELLA 3JET UPPÞVQTTAVELIN STENDUR FETIFRAMA8 • Vélin hitar vatnið sjáif upp I 95°C 0 Hægt er a3 forsköla sér- siaklega í vélinni mjög óhreint leirtau (potta o. fL) • Alger óþarfi að skola af leirtauinu. Kvörn er í vél- inni, sem malar öll ó- hreinindi. • Ljós sýna ávallt hvað vél- in er að gera. • Vélin er hljóðlát. (Vand- lega einangruð). • Vélin er á hjólum. Hún getur bæði staðið sjálf- stætt á gólfi eða verið byggð inn í innrétting- una. • Fjölbreytt þvottaval. • Einstaklega smekkleg og vönduð uppþvottavél. MJÖG GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR. — ÁRS ÁBYRGÐ EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Raftækjaverzlun Bergstaðastræti 10A Sími 16995. • „Hægan, hæffan, skoðanabræður góðir" Gísli Árnason skrilar: „Til stjórnanda Velvakanda- dálkanna, Morgunblaðinu, Reykjavík. Heiðraði Velvakandi: Má ég fá rúm í dálkum þín- um fyrir nokkrar setningar um ofur viðkvæman hlut? Það er ekki skemmtilegt fyr ir okkur ýmsa, sem tökum bar- áttuna gegn mengun og spjöll- um á islenzkri náttúru alvar- lega, hve æsingaseggir hafa (áreiðanlega óviljandi) spillt málstað okkar. Ég þurfti að dveljast í Reykjavík um hríð fyrir nokkrú, og þá varð ég þess oft áþreifanlega var, hve fólk, sem annars er okkur sammála i raun og veru í grundvallar- atriðum, hefur látið styggj- ast við svokallaðar „aðgerðir" nokkurra manna norður i Mý- vathssveit. Þar á ég við tiltekt ir eins og stiflusprengingar og maurasýruinngjafir. Af ein- hverjum ástæðum hefur ábyrgðarmönnum þessara verknaða tekizt að blanda hreinni baráttu gegn meng- un og náttúruspjöllum við „að- gerðir“ sínar. Þar með er kom ið óorð á okkur og þær hug- sjónir, sem að baki liggja. Þetta er mjög slæmt mál og miklu alvarlegra, en ýmsir hyggja. Það er nú einu sinni svo, að í Reykjavik og ná- grenni býr upp undir helming- ur hinnar íslenzku þjóðar. Ör- ætlaði með hr. Bjarnason að lög málstaðar okkar eru eigin- lega undir því komin, hvort þéssi fjölmenna byggð fyíg- ir og ýtir á eftir því, sem við höfum að segja. Viljann finnst mér ekki vanta, en ýmislegt hefur orðið til þess að fæla fólk frá góðu málefni. Af því að „aðgerðum" ofstopamanna er ruglað saman við gott mál- efni, hrökklast margir í burtu frá beinni þátttöku í okkar þágu. Þegar ég minntist á nauð syn þess að vernda landið, fékk ég oft svar á borð við þetta, (sem hjúkrunarkona í fjölmennu sjúkrahúsi sagði): „Já, það má vel vera, en ég get ekki staðið með fólki, sem sprengir, og hananú." Þetta er augljóslega afstaða flestra Reykvíkinga. Einhvern veginn í fjáranum hefur þessu mikla nauðsynjamáli verið blandað saman við „aðgerðirn- ar“ við Mývatn. 0 Ljótar umsagnir um andstæðinga Laxárvirkjunar Og ég fékk meira að heyra: Að „málstaður landeigenda við Mývatn“ byggðist á öfgum og ósannindum, að enginn vandi hefði verið fyrir þá að koma í veg fyrir þetta fyrir mörg- um árum, hefði vilji þá verið fyrir hendi, að farið væri að nota þetta pólitískt, að Her- móður hefði fælt alla góða menn frá sér í sjónvarpinu, að ef landeigendur við Mývatn Reimub og óreimuð stretchstígvéf Hvít, rauð, svört og Jörðin Fífustaðir í Arnarfirði er til sölu og laus til ábúðar í vor. Á jörðinni er stórt íbúðarhús, raflýst með öllum þægindum. Útihús steypt og stálgrindahús, grindafjárhús (700 fjár), heyhlaða (1000 hestb.), votheysgryfja (8 kýrfóður), fjós (4 stórgripir). — Ræktað land 40 ha og 7 ha þurrkað og brotið. 300 ha. girt og þurrkað beitiland. Við söluna fylgir samliggjandi jörð, Klúka, ásámt geysistóru beitilandi. Ennfremur getur fylgt ný heyvinnutæki, traktorar o. fl. og allt að 300 úrvals fé (úrtak úr stórum stofni). Um dalinn liðast straumlygn vatnsmikil á tilvalin til fiskiræktar. Greiðsluskilmálar mjög hagstæðir. Fasteignasalan HÚS & EIGMIR Bankastræti 6 — sími 16637. vildu ekki rafmagn, þá þeir um það, en ef þeir vildu það, þá skyldu þeir ekki halda, að þeir fengju það á niður- greiddu „landsverði" rafmagns sunnan um heiðar, að vestfirzk ar, austfirzkar og sunnlenzkar ár væru jafnfagrar og norð- lenzkar, að við byggjum enn í réttarríki, þar sem meirihluti íbúanna þyldi ekki ofbeldis- og frekjuaðgerðir, — og að lokum gekk þetta svo langt hjá sumum, að þeir sögðu ekki hundrað í hættunni, þótt „0,02% þessa ljóta Laxárdals" lægi að eilífu undir vatni. Svona er nú hljóðið í fólki, og því vil ég segja: Hægan, hægan, skoðanabræður góðir. Spillum ekki mikilsverðasta máli Islands á vorum dögum með því að hræra þvl saman við óvinsælar „aðgerðir" nokk urra landeigenda. Ofbeld- iskenndar aðfarir landeigenda- stéttarinnar geta orðið til þess, að öfgamenn til hægri og vinstri sameinist í mjög svo vanheilögu bandalagi. Mót- staða gegn ■ framförum og breytingum er landlæg hjá aft urhaldsmönnum, en þegar hún fær stuðning hjá móðursjúkum vinstrimönnum, þá er ekki á góðu von. Þess vegna: Sjáum í gegnum áróður beggja, höldum ró okk- ar og viti, og látum fyrir alla muni ofstækisáróður nokkurra Þingeyinga (aðallega burt- fiuttra) ekki eyðileggja mál- efni okkar, sem án hagsmuna- tilgangs viljum vernda fóstur- jörðina, en samt gera börnum okkar líft i þessu góða landi. Gísli Árnason". 0 B.jörk gegn barri Vigdís Ágústsdóttir skrifar nú öðru sinni um barrvið og birkitré. Um leið og hún svar- ar bréfi Hákonar skógræktar- stjóra Bjamasonar, sem birtist hér fyrir nokkrum dögum, legg ur hún nokkrar spurningar fyrir hann. „Komið þér sælir, hr. skóg- ræktarstjóri! Nú skal ég segja yður frétt- ir. Norski maðurinn, sem ég hitti í Hötel Loftleiðum í maí í fyrravor, var einmitt að fara að hitta hr. Hákon Bjarnason, skógræktarstjóra. Þess vegna er ég ekki alveg viss um, að þér séuð eins utan gátta og þér viljið vera láta. Og nú kemur skemmtilegasta fréttin. Eftir á langaði mig að vita nafnið á þessum manni, sem ég hitti þarna af einskærri tilviljun, og þá var mitt eina ráð að hringja á skrifstofu Skógræktar ríkis- ins, og þar var mér gefið upp nafnið Per Ojen. Vonandi hef ur enginn ruglingur orðið, ef vera kynni, að tveir Norðmenn hefðu heimsótt yður í maí? Maðurinn sagði mér, að hann ætlaði með hr. Bjamason að Hallormsstað og að mig minnir að Mógilsá líka, en hans aðal- áhugamál var íslenzka birkið og að finna góða stofna af þvi. Ekki voru það mín orð, að Norðmanninum hefði verið „meinaður" aðgangur að blöð- unuin eins og þér komist að orði, en a.m.k. var þagað yfir þessari heimsókn af Skógrækt ríkisins. Hefði hann hins veg- ar verið algjör „barrkarl“, þá grunar mig, að hann hefði fengið heillar síðu viðtal i Mogganum. — Svo að ég segi yður það í einlægni, hr. Hákon Bjarnason, þá trúi ég, að þér séuð fyrir löngu búinn að sjá mistökin í sambandi við barr- trén hér. Og meiri maður yrð- uð þér, ef þé viðurkennduð það og sneruð við. Væri það ekki verðugt verkefni yðar og um leið Skógræktar rikisins að rækta íslenzku trjátegund- irnar og hlú að þeim en reyna að gleyma barrtrjánum og sög- unarmyllunum? 0 Strítt er nú spurt Að síðustu fáeinar spurning- ar tii yðar. 1) Hvenær — að öllu óbreyttu, búizt þér við, að timb urframleiðsla úr barrtrjám hef j ist? 2) Hefur þá tilkostnaður með tilliti til allra barrtrjánna, sem drepast í uppvextinum, gef ið þann afrakstur, að við gæt um með góðum og gildum rök- um sagt, að „timburframieiðsl- an“ borgaði sig? 3) Hvers konar timburfram- leiðsla yrði þetta? Girðingar- staurar, jólatré? 4) Eruð þér með góð og gild rök fyrir því, að framleiðsla þilplatna úr grasi bogi sig síð ur en timburframleiðslan yðar? 5) Er það ætlunin að reisa „sögunarmyllur" um land allt, eða hvers vegna er barrtrján- um dritað niður alls staðar með höppum og glöppum innan'um birkikjarrið? Margt fleira langar mig að spyrja yður um, hr. Hákon, en ég veit að þér eruð mikill framkvæmdamaður — og land- ið þarf einmitt á slíku fólki að halda. Gætuð þér ekki gefið björkinni krafta yðar, þvi að hún á heima í íslenzku lands- lagi og ilsenzkri veðráttu. Það er mín ósk, að allir gangi vel um ættjörðina og unni þvi, sem íslenzkt er. Yðar einlægur bjarkarunnandi. Vigdis Ágústsdóttir. E.S. Ef þér vilduð láta fjar- lægja dauðu barrtrén úr Heið mörkinni t. d. skal ég verða fyrst til sjálfboðavinnu. Eins þyrfti að laga til á Þingvöll- um þeim helga stað. Ættum við að byrja á Stjórnarráðstrján- um? Sama“. NYKOMID Terylene flauelsbuxur í úrvali. Gallabuxur í öllum stærðum. Dönsk herra- og drengja- nærföt stutt og síð. Mikið úrval af handklæðum. Undirfatnaður, nærfatnaður og sokkar. Verzlunin DALUR Framnesvegi 2, sími 10485. Kveninniskór Gúmmístigvél, græn reimuð á böm og fullorðna. Herravínnuskór. Skóv. P. ANDRÉSSONAR Framnesvegi 2. y

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.