Morgunblaðið - 10.03.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.03.1971, Blaðsíða 11
MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1971 11 Meira um hunda, ketti G.Á.S. og hitt og þetta málið nö í sumar og hefja happ- drœttið strax á næsta hausti. Strax og peningar færu að nást inn fyrir skuldabréfin, ættu framkvæmdir að geta hafizt og vona ég, að það geti orðið á nsesta ári. Þó að þessí leið nægði ekki fyrir verkinu i heild, ætti með þessu að aflast nægileg f jár upphæð til að leysa málið og koma því í framkvæmd. Um- fangsmikið verkefni verður þetta óneitanlega, en ég hef áð- ur sagt að þýðing þessarar fram kvæmdar sé svo stórfelld, að hún verði naumast metin til fjár. Og verkefnið er undir engum kringumstæðum óframkvæm- ardegt." N'VTT VERÐGILDI LANBSUíS Eysteinn Jónsson hefur sýnt þessu máli mikinn áhuga, og á Alþingi í hitteðfyxra var hann 1. flutningsmaður ásamt hópí þingmanna úr ðllum flokkum og mælti fyrir þingsályktunartil- lögu um hringveg um landið, sem þá hlaut samþykkí: „Síðan hafa verið veittar í Vegasjóð þær fjárhæðir, sem Vegagerðin hefur talið sig þurfa til. rarrn- sókna, tílrauna og gerð vamar- garða,“ sagði Eysteinn i samtali við Morgunblaðið. Nú er verið að knýja fram tillögur sérfræð- inga Vegagerðarinnar um fram- kvæmdina, en þeir munu vilja bíða Grímsvatnahlaups og sjá hverju fram vindur. Enginn vafi er á þvi, að þessí framkvæmd er möguleg. Ekki er dregíð í efa, að mér skilst, að brúarstölpam- ir standist átökin og þá ætti brú in sjálf að standa. Hvað gerir til þó að eitthvað af görðum fari i hlaupum miðað við þá byítingu sem verður þama við tilkomu brúarinnar? t>á fyrst verður Is- land eyland í orðsins fyllstu merkingu, er akfært er orðið um hverfis landið. Og um sjö klukkutíma akstur er orðinn frá Reykjavík austur á land. Á svæði því sem brúað verður er líka sllk náttúrufegurð, að vart verður líkt við neitt hérlendis nema Mývatn. Landið tekur á sig nýtt verðgildi sem ferða- mannaland, og nýr grundvöllur skapast t.a.m. fyTir Hornafjörð sem ferðamannabæ. Ég hef hamr að á þvi að reyna ætti að ljúka þessari framkvæmd fyrir 1974, þvi að verðugri afmælisgjöf get ur þjóðin vart gefið landi sínu. Undir þetta hefur samgöngu- málaráðherra tekið. Og kostnað urinn, sem rætt hefur verið um varðandi þessa framkvæmd, — 200—300 millj. króna. Það sam- svarar þremur góðum togurum — hégómaverð segi ég.“ FRAMKV ÆMDIR HAI- N AR VORIÐ ’72 Ingólfur Jónsson samgöngu- málaráðherra, hefur talið frum- varpið um happdrættislánið spor í rétta átt, en sagt að þessi framkvæmd mætti ekki standa og falla með þvi hvort happ- drættisskuldabréfm seldust eða ekki. Menn þurfa ekki að láta þessar 2—300 milljónir, sem gizkað hefur verði á, að fram- kvæmdin kosti, vaxa sér i aug- um með tilliti til þess að á einu ári séu notaðar til vegafram kvæmda 1250 milljónir. Með aukinni tækni séu auðið að gera ýmislegt, er áður virtist ófram- kvæmanlegt, og það sé ör- ugglega dómur verkfræðinga, að tæknilega eigi þetta verkefni að vera framkvæmanlegt. Hins veg- ar sköpuðu jökulhlaupin erfíð- leika, því að engiim gæti sagt með vissu hvar vatnið tæki sér farveg. Verið gæti að ekki tæk- ist að halda vatninu undir brúnni, þrátt fyrir mikla varn- argarða i þvi skyni. Hafa því komið fram hugmyndir um að hyggilegast væri af þessum sök um að byggja trébrýr, sem mundu í versta tilfelli eyðileggj ast en ekki yrði dýrt að endur- nýja. Hefur ráðherra ennfremur sagt, að vonir standi til að i sum ar liggi fyrir nægilegar niður- rarmsókna, þannig að kleift verði að hefja framkvæmdir vor ið 1972. Margt hefur verið ritað um seppana undanfarið og kannski er ég að bera í bakkafullan læk inn, en þar sem ég bý í Örkinni hans Nóa — ég á tvo hunda, tvo ketti, tvær krákur, sem ég kalla prinsa, þá langar mig til að láta Ijós mitt skina. Ég á einnig góða fomvinkonu á Fróni, Guðrúnu Á. Símonar, sem rækilega hef- ur orðið fyrir barðinu á hunda- höturuna. Hvað hundaæðinu viðvíkur, þá er það álit mitt, að það sé nú ekki einungis skerðing á hundaréttindum heldur og mannréttindum. Ég hygg að hundar, kettir og yfirleitt öll dýr séu holl bömum og fullorðn um. Flestir merkustu menn sög- unnar fyrr og síðar, hafa átt sin húsdýr, og mörg fallegustu kvæði uppáhalds skálda okkar, eru gerð um dýrin. Dýrin gera okkur að betra fólki, þau eru vitur og trygg. Ég er alin upp í sveit og elti marga litla geit. Ég lék mér við hunda, ketti, alilömb, hænsni og seli, sem voru friðaðir í landar- eign ömmu minnar — aug- un voru svo m£tnnleg sagði hún. Við krakkarnir tömdum selina — spiluðum fyrir þá á munn- hörpu eða hárgreiðu og hekluð- um fyrir þá litfögur flögg til að hæna þá að landi. Þarna var æð arvarp og sömu kollumar komu ár eítir ár — við merktum þær. j Og ég átti dýrðlega æsku með þessum dýrum, og hvar sem ég hef flækzt í heimnram síðan, hef ur mér aldrei fundizt ég eiga heima nema eiga húsdýr, og það hefur verið auðvelt það 21 ár, sem ég hef dvalið í Bandarikj- unum, þvi hér virðast aHir vera dýravinir og enginn amast við þótt hundur gelti eða köttur syngi sín ástaljóð á óheppileg- um tímum sólariiringsins. Nú sit ég við eldhúsgluggann minn og horfi á nokkra tugi fugla borða brauð og fræ, sem ég henti út klukkan 6 í morg- un. Allt er snævi þakið og kalt, en mér hlýnar um hjartaræturn ar við að horfa á þessi faHegu dýr — svo þakklát fyrir bitann. Maður verður jafnvel mannvin ur af að horfa á dýrin. , Vinkona min, G.Á.S. hefur orð ið fyrir miklu aðkasti vegna skrifa sinna um dýr, léiegar söngkonur o.fl., enda kannski dá Htið öfgafuH eins og listafólki er titt, en þó sannsögul og óhrædd við að berjast fyrir sin um hugðarefnum. Ég er hissa á, að enginn skuli hafa tekið upp hanzkann fyrir G.Á.S. þvi hún berst fyrir góðu málefni. Ég hef átt heimili með G.Á.S„ bseði i Englandi og Bandaríkjunum, og veit að hún hefur reynzt lönd um okkar vel á báðum stöðum og er tryggur vinur — en ekki of auðgleypt — það tók okkur háift ár að verða dús. Kettlings- skinni, sem fannst I öskutunnu fúllt af fló, gaf hún mjólkina, sem keypt var á svörtum til að hafa i tevatnið sykuriaust, og músinni okkar gaf hún ost- skammtinn sinn. Og síðan mun- um við ávaHt verða dús, hvort sem hún Iíkir okkur við Porto- rikana eða annað, þegar hún bregður sér á há C-ið! Annars eru Portorikanar ágætis fólk, sem þykir góður saltfiskur, en sennilega yrðu þeir stórmóðgað- ir, ef þeim væri likt við Islend- inga. Heimskuleg grein birtist um G.ÁJ3. í Mánudagsblaðmu ný- lega. Sá hái herra, sem kallar sig Kakala, gagnrýnir þar útlit söngkonunnar. Þótt G.ÁR. sé ekki mittismjó, þá hefði hann mátt benda á, að hún er bæði faguriimuð og fagureygð. Mér hefur aUtaf þótt Hla farið, að við neyðumst til að borða elsku litlu lömbin og blessaða rjúpuna hvítu — og það með beztu lyst! En þar sem ég þekki GJLS. mæta vel, þá veit ég að hennar aukapund stafa nú ekki af slíku — heldur þvi, að þegar við hin kveikjum okkur i rettu eða fá- um okkur einn laufTéttan, þá laumast hún í súkkulaðimola eða kökubita, því öH þurfum við að hafa munað i einhverri -mynd. Ég hugsa að þessi Kakali, hver sem h-ann er, hljóti að vera illa eygður og hjólbeinóttur, a.m.k. kiðfættur, því ég hef tekið eftir þvi á langri lífsleið, að fólk með slika skanka, sem það heldur að það geti falið í buxunum eða bak við briHurnar, hefur yndi af að setja út á útlit annarra. G.Á.S. hefur áreiðanlega sann- að, að hún er ekki hætt að syngja — eða í þann veginn. Ég er hissa á að ritstjóri þessa blaðs skuH birta þessa grein. Hann ætti að vita, blaðamennt- aður héðan, að Iistafólki leyfist og fyrirgefst að vera svolítið fanatiskt og bregða sér á háa C í skrifum sem öðru. Annars man ég nú frá mínu ungdæmi, að mér var bannað að lesa um- rætt blað, og skil það síðan ég fluttist til þessa lands, þar sem slík blöð eru aðeins Iesin i laumi af þeim, sem yndi hafa af að lesa óhróður. Ég bjó með G.Á.S. í London, þegar hún var þar við söngnám og lifði á styrkjum. Ég hef aldrei þekkt nokkurn stúdent fara betur með sitt styrktarfé af skornum skammti. Þar var spar- aður hver eyrir og gerð grem fyr ir andvirði alls, sem eytt var, námið stundað af slíkri kost- gætfni, að ekki var betur unnt að gera, enda eignuðumst við beztu söngkonu og menntuðustu sem ísland hefur átt. Að hún ekki varð fræg hér vestra, hafði sínar mörgu ástæður. Fyrst og fremst fjárskortur. Það vita aU- ir islenzkir listamenn, sem hér hafa reynt að gera hosur sínar grænar, að í „Guðsríki" ræður Mammon ári miklu. Þegar G.Á.S. áræddi að halda „konsert", sem var styrktur af American Scandinavian Foundation, gerðu þeir þá skissu að styrkja Jussi Björling sama kvöld I Camegie Hall. Hann sem þekkt- ur söngvari dró auðvitað að sér flesta Skandinavana hér. En G.Á.S. fékk þó glæsilega blaða- dóma, og mér er minnisstætt, að blaðadómarinn frá New York Times, sem sat fyrir aftan mig, lét í Ijós mikla hrifningu yfir söng Guðrúnar, enda fékk hún mikið lof í blaðinu næsta dag, en þetta er nú ekki Mánudags- blað New Yorkborgar. f Greenwich Village búa marg ir andans menn, sem hvorki skerða hár sitt né skegg. Þar búa líka milljónir af kakka- lökkum (ég tamdi einu sinni einn kakka, og komst þá að raun um, að þetta eru skynsam- ar skepnur og músikalskar, enda kunna þeir vel við sig í um- ræddu hverfi). Þessum andans mönnum — er að vonum mjög annt um skóna, — ef þeir þá eiga skó, og þar sem hugurinn er svo hátt uppi, þá kunna þeir ekki fötum sinum forráð, þegar þeir fara í Iabbitúr og lenda svo i hunda-pú-pú eða katta-pí-pí, og gerast síðan hundahatarar. Slikir andans menn ættu að fá sér hvolp til að rmlda andann og kisu tH að leika við hjöppa. Endur fyrir löngu átti ég móð ursystur, sem var kennari í Reykjavik en dvaidist á sumrin hjá móðurbróður sínum i sveit. Henni áskotnaðist Util tík, sem köUuð var Mýsla. Um haustið. þegar hún fór suður tU sinna starfa, fól hún Mýslu frænda sin um tfl umsjár. Hann var prakt- ískur búmaður og fannst lítið til Mýslu koma, og skrifaði móður- systur minni, að þar sem tíkin væri til einskis nýt, enginn fjár- hundur o.s.frv., myndi hannláta lóga henni. Þegar frænku minni barst þetta bréf, sendi hún hon um þetta vísukorn: Haltu verndarhendi þínni henni ytfir Mýslu minni, svo að dauðinn dapur sár dragast megi þetta ár. Hemnar bréf barst of seimt, en móðursystir mím fékk aldrei að vita um það þvi hún lézt úr Spönsku veikinni skömmu síðar. En ömmubróðir minm gieymdi þessu aldrei og bar ekki sitt barr eftir þetta. Ég hef brynnt mörgum músunum yfir þessu at- viki, og vona að elnhverjum í hunda-hatara-nefndmni sé Iíka grátgjarnt og endurskoði huga sinn áður en hundalögin ganga í giIdL Nýlega las ég grein eftir ógreindan skrifara um litlu stúlkurnar — vinnukonurnar frá Fróni, sem bregða sér á beit. Hér er urmull af ungum ís- lenzkum stúlkum, sem ginnast til; að fara í vist tU burgeisanna hér fyTÍr sama sem ekkert kaup. Ég efast um, að þær hafi efni á að kaupa sér sígarettur, hvað þá „gras“. Og þótt þessi ókunni blaðrari viti um einhverja „Grasaguddu", sem hefur sam- bönd, er ekM rétt að setja all- ar þessar ungu — flestar in- dælu — telpur undir sama hatt. Mér finnst ekki rétt af bíaðun- um að birta svona nafnlausar greinar. Nú er klukkan orðin 8. Dýr- in min sitja hér öll í kringum mig og bíða eftir bitanum. Krák an — hann Tommy boy — kall- ar „open that door“ og allt er komið í gang. Enda bezt að hætta áöur en ég fer út I fleiri sálma. Að lokum — lengi, lengi lifi Guðrún Á. Símonar. Megi hún syingja yfir okkur öHum — mönnum sem máUeysingjum! Halldóra Rútsdóttir 29 Parsonage Koad East Setauket, NY. 11733. Verkamenn óskast strax til standsetnirrgar á nýjum btlum. BIFREIÐAR OG LANDBÚMAÐARVÉLAR Suðurlandsbraut 14 — Simi 38600. Heimilish§álpin óskar eftir konum til starfa strax. Upplýsingar í Tjamargötu 11 hjá Helgu M. Níelsdóttur og Stgrúnu Schneider frá kl. 16—18. Félagsmálastofnunin. Verzlunorhúsnæði óskost 70—80 ferm. húsnæði með 25—30 ferm. geymsluplássi wtð góða götu í borginni óskast til leigu. Tilboð er greini frá staerð. staðsetningu og leéguverði sendíst afgreiðslu Morgunblaðsins fyrrr 18. þ,m. merkt: „Góður staður — 7402". OPIÐ SKÁKMÖT — I. HELGARMÓT Tailiélags Reykjavíkur fer fram í félagsbeimilinu við Grensásveg föstudaginn 26. marz kl. 20,30—23,30, laugardag'mn 27. marz kl. 9—12 og 14—17 og sunnudagtnn 28. marz kl. 9—12 og 14—17. Fimrn umferðir — Monrad — 90 mfnútur á skák. Innritun á fimmtudögum kl. 20—23. — Stmt 83540. TAFLFÉLAG REYKJAViKUR. íbúðir í smíðum 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðtr á etnum bezta útsýnrsstað í Breiðholtshverft. Hverti ibúð fylgir sérþvottahús og geymsla á hæðinni. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk og mátningu með frágenginni sameign, teppalögðum sttgagöngum og hurð fyrir íbúðina. Beðtð eftir lánum Húsnæðismálastiómar. íbúðimar tilbúnar ti! afhendingar nú þegar. Aflar nánari upplýsmgar og teikningar á skrifstofunnL EIGMASALAN REYKJAVÍK Þórður G. Halldórsson sími 19640 og 19191 Ingólfsstræti 9 kvöldsrmi 30834.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.