Morgunblaðið - 10.03.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.03.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1971 — Fyrsti hlutinn af þessu hef- ur inni að halda ágætis lífs reglu sagði Priestley. — Ef fleiri menn læsu bibliuna af ein- hverju viti, nú á dögum, mundi ekki jafnmikil vitleysa vera sögð og skrifuð. Thaddeus Glap thorne hefur vafalaust ætlað af- ganginum af versinu að eiga við Ueizlumntur mr Smurt bruuð og Snittur SÍLI) ð FISKUR fjölskyldu sína. Hver er næsti ritningarstaðurinn ? — Orðskviðirnir 10. 15: ,,Auð- ur riks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli." Hanslet brosti: — Þetta er nú ekkert sérlega uppörvandi fyrir núverandi kynslóð ættarinnar. Að því er Jimmy segir mér, er öfluga vígið þeirra rústir einar og fátæktin er sama sem búin að gera út af við þá. En kannski hefur Thaddeus einmitt séð það fyrir. Priestley svaraði þessu engu og Jimmy hélt áfram: Sálmarn- ir 61. 3, og Harold las: — Því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinun- um. — Öruggt vígi, endurtók Pri- estley dræmt. — Thaddeus hef- ur þarna augsýnilega haft áletr unina á turninum í huga. Og hvað kemur svo næst ? — Jesaja 45. 2., sagði Jimmy og Harold las: ,,Ég mun ganga á undan þér og jafna hól- ana, ég mun brjóta eirhliðin og mölva járnslárnar." — Þetta varð nú efnið í al- þekktan sálm, sagði Priestley. — En hvernig það getur átt við Glapthorneættina, liggur hins vegar ekki í augum uppi. — Kannski Thaddeus hafi séð fyrir, að einhver afkomenda Dag- og kvöldnámskeið fyrir ungar stúlkur og frúr, sem vilja endurnýja og rifja upp kunnáttu sína og hæfileika hefjast 15. marz. Sérfræðingar leiðbeina með: ★ Snyrtingu if Hárgreiðslu ir Matreiðslu if Fataval if Blómaskr'eytingar ir Framkomu ir Kurteisi Afsláttur fyrir saumaklúbba og smáhópa. Snyrti- og tízkuskólinn, sími 33222. hans mundi verða gerður gjald- þrota, sagði Hanslet. Og að þvi er Jimmy segir, slapp hinn látni nauðuglega við það. Priestley lét sem hann heyrði þetta ekki, en kinkaði koili til Jimmy, sem las næsta ritningar- staðinn: „Sálmar 75. 6. Því að frami kemur hvorki frá austri né vestri, né úr suðri. — Það er ekki nema dagsatt! sagði Hanslet. — Thaddeus gamli hlýtur að hafa verið tals- verður spámaður, þegar hann sá svona greinilega ástandið hjá höf uðstaðarlögreglunni! —- Kann að vera, sagði Preist- ley. — En ég sé bara ekki strax, hvernig þetta vers getur átt við ættina hans. Lesið þér næsta staðinn, fulltrúi. -— 5. Mós. 8. 13. Þegar naut- gripum þínum og sauðfé fjölgar, þegar silfur þitt og gull eykst og allt, sem þú átt margfaldast, las Harold. Þetta virðist fróm ósk ættföð- urins, sagði Priestley. — Hann hefur áreiðanlega ekki ætlazt til, að þessi vers væru lesin í belg og biðu, heldur virðist hann hafa ætlað hvert þeirra ein- hverju sérstöku tækifæri. Og hvað kemur svo? — 1. Kor. 10. 12. Því gæti sá er hyggst standa, vel að því, að hann ekki falli. — Enn ein prýðileg ráðlegg- ing, sagði Priestley. Það er rétt eins og Thaddeus hafi viljað vara ættina einmitt við þeim ör lögum, sem hún hefur orðið að sæta. Eru þarna fleiri ritningar- greinar, fulltrúi. — Tvær enn. Sú fyrri er Post. 8. 20.: ,,Og Pétur sagði við hann. Þrífist aldrei silfur þitt né þú, því að þú hugðist eignast gjöf Guðs fyrir fé.“ — Fyrrihlutinn af þessu virð- ist hafa rætzt, sagði Hanslet. — Þar sem Caleb Glapthorne átti árlegan lifeyri, þá hafa pening arnir hans sannarlega dáið um leið og hann sjálfur. Og hið sama kemur til að eiga við um föður hans og bróður, fyrr eða seinna. — Ég býst nú við, að Thadd- eus hafi átt við eitthvað dálítið annað, sagði Priestley. En hver fermingarföt Þú þarft ekki að óttast krókódílana, því að þeim halda há- karlarnir í hæfilegri fjariægð. er svo siðasti ritningarstaður inn, fulltrúi? — Orðskv. 27. 3. Og Har- old fann staðinn: „Steinar eru þungir og sandurinn sígur i, en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja." — Kannski er þetta spámann- leg umsögn um skaplyndi Cal- ebs, sagði Hanslet. Vafalaust hefur Thaddeus skrifað þetta niður til minnis fyrir afkomend- ur sína. Það er bara verst, að þeir skyldu ekki fara eftir því. Hvað finnst yður, prófessor? — Ég veit varla hvað ég á að haida enn sem komið er, svar aði Priestley. Ég get varla ann- að haldið en ættfaðirinn hafi haft eitthvað annað og meira i huga en góð ráð. En sögðuð þér okkur ekki fulltrúi, að kring um þessa ritningarstaði hafi ver ið einhver frumstæð merki? — Það var nú fremur fjöldi aðskilinna merkja en eitt merki. Það var ekkert hægt að botna i þeim. Þau voru afskaplega ein- föld, en þó vandlega gerð, og virtust vera gerð af handahófi. — Getið þér gefið okkur nokkra hugmynd um, hverju þau líkt- ust? Að því er ég bezt get mun- að voru þau af fjórum mismun- andi gerðum, en ég tók ekki sér staklega eftir þeim. Eitt þeirra minnti mest á hnött og annað eins og hálfmáni. Ég held, að hin tvö hafi bara verið geómetr isk — þríhyrningur og ferhyrn- ingur. — Hnöttur! sagði Priestley, snöggt. — Hvenær sögðuð þér, að Thaddeus Glapthorne hafi dáið’i’ Jimmy leit aftur í vasabókina sína. Árið 1782, svaraði hann. — Montgolfierbræðurnir fóru í fyrsta sinn upp í loftbelg það ár. Kannski Thaddeus hafi tekið eftir þvi, áður en hann dó. Hálfmáninn kemur alls stað- ar fyrir sem tákn. Hann var til dæmis notaður af gullgerðar- mönnum til að tákna silfur. Þrí- hyrningurinn og ferhyrning- urinn mundu auðvitað minna á sig hjá hverjum þeim, sem vildi gera einhverja einfalda teikn- lngu. Þér hafið víst ekki teikn- að upp röðina á þessum merkj- um, fulltrúi? — Því miður ekki. Mér fund- ust þau ekki vera neitt sérstak- lega eftirtektarverð. —- Nei, ekki í sambandi við yðar rannsókn, býst ég við. En ég get ekki annað en haldið, að ættfaðarinn hafi ætlað þeim að hafa einhverja táknræna merk- ingu, til gagns fyrir afkomend- ur sína. — Jæja, ég þarf nú að fara aftur til Lydenbridge, þegar réttarhöldunum verður haldið áfram. Þá skal ég koma við í Klaustrinu og teikna merkin upp, eftir ættarbiblíunni. — Já, mér þætti vænt um ef Knattspyrnufélagið Víkingur: Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 18. marz í félagsheimiíi Víkings. STJÓRNIN. Pípur og fittings nýkomið, hagstætt verð. A J. Þorláksson & Norðmann hf. Afgreiðslustarf Stúlka óskast til afgreiðslustarfa hálfan eða allan daginn. Uppl. á skrifstofunni, Garðastræti 17. kiddabúð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.